Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 3

Dagblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 3
Dagblaðið. Þriðjudagur 23. desember 1975. 3 ‘Af hverju er ekki látið loga á jóiatrénu allan sólarhringinn? spyr iesandi. Ekki veitir af I skammdeginu DB-mynd Bjarnleifur. SPARAR MORG SPOR OG ÞAÐ ER VEL ÞEGIÐ Kona úr Austurbænum hringdi: „Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til, stend- ur i sálminum. Já, blessuð jólin eru að koma og þeim fylgir á- vallt mikið annriki og fjárútlát. Þvi vil ég koma á framfæri þökkum minum til Dagblaðsins fyrir hina mjög svo vel og smekklega unnu jólagjafahand- bók. Þar var bent á ódýrar og um leið mjög smekklegar jólagjafir — áreiðanlega var það vel þegið af mörgum, þeirra á meðal mér. Stærsti kosturinn við jóla- gjafahandbókina var sá að ekki var um auglýsingu að ræða — heldur einfaldlega bentá ódýrar og um leið praktiskar jólagjafir sem mér finnst blaðamaður hafa valið mjög smekklega. Allir þekkja hið mikla búðar- ráp fólks sem ekki veit i hvorn fótinn það á að stiga — verður ráðvillt af öllu þvi, sem verzl- anir bjóða upp á. Þvi sparar handbókin mörgum spor — og ekki vanþörf á.” ER SVONA FRAMKOMA AFSAKANLEG? óttar Jóhannsson, Seyðisfirði, þetta sætti. Stúlkan svaraði þvi hringdi: til, að það væri nú einu sinni „Þannig er mál með vexti, að ekki venja að stimpla inn svona ég var að kaupa sigarettur i smáupphæðir, eins og andvirði Kaupfélagi Héraðsbúa hérna á sigaretta, mjólkurvara og þess Seyðisfirði fyrir skömmu. Ég háttar. Kaupfélagsstjór.inn borgaði með 5000 króna seðli. hafðiengin umsvif, heldur sagði Þegar afgreiðslustúlkan var stúlkunni að hún gæti farið heim hálfnuð við að telja til baka kom með það sama. kaupfélagsstjórinn fram, leit i Þvi spyr ég kaupfélagsstjór- peningakassann og sá, að stúlk- ann á Egilsstöðum, sem er yfir- an hafði ekki stimplað upp- maður Kaupfélags Héraðsbúa: hæðina fyrir andvirði sigarett- Er svona íramkoma afsakan- anna inn. Hann spurði hverju leg?” „Jólaljósaskreytingar gleðja augað, en..." R. hringdi: ,,Nú þegar skammdegið leggsthvað þyngst á okkur — þá bregðumst við við með þvi að tendra ljós. Þannig reynum við að lýsa upp umhverfið sem og sálina. Og ekki er vanþörf á óslóborg hefur gefið Reykvikingum — sem og mörg undanfarin ár — jólatré Austurvöll. Hátiðahöld kveikt er á trénu eru fastur liður i lifi margra Reykvikinga. Jólatréð er skreytt marglitum ljósum og kem ég þá að aðalefni máls mins — sem er: Af hverju er slökkt á ljósum trésins um leið og götuljósum? Ég vildi gjarna ogégveitað ég tala fyrir munn margra — hafa kveikt á ljósum trésins allan sólarhring- inn — enda full þörf f þeim skammdegisdrunga sem hvilir Annað sem ég vildi gjarna vekja máls á er jólaskreytingar húsa. Nú er bað siður margra að skreyta hús sin jólaljósum. Sérstaklega er skemmtilegt að sjá fjölbýlishús fallega skreytt jólaljósum. Þetta gleður augað og þá um leið hjartað. Þvi finnst mér nauðsynlegt að vanda til skreytinga þessara. Við Þórufell i Breiðholti eru til að mynda jólaljósaskreytingar á nokkrum ibúðum. — Vel hugsað hjá ibúunum en ljósun- um er svo óreglulega raðað að til lýta er. Þannig er ekki sama hvernig hlutirnir eru gerðir og vil ég þvi sérstaklega beina orðum minum til ibúa Þórufells um að iaga ljósin hjá sér — með vinsemd.” Raddir lesenda Austurstrætið er fagurt i skammdeginu þegar búið er að skreyta það jólaijósum. Ekki vanþörf á að gleðja hjartað i fimbuikulda des- ember. DB-mynd Björgvin Pálsson. Ótrúlegur verðmismunur Bjarni Bjarnason kom að máli við DB: ,,Nú á þessum siðustu verð- bólgutimum er mjög erfitt fyrir verðlagsyfirvöld að fylgjast með verðlagi i verzlunum. — Allir vita að full ástæða er til. Ég keypti nú um daginn sósu vörumerkið var Russian Dressing. Verðmismunur var ó- trúlegur. Þvi fór ég með flösk- urnar til verðlagsstjóra og benti á þetta og eins og venjulega var málið tekið til athugunar. f Vörumarkaðnum kostaði flaska af Russian Dressing 105 krónur — reyndar stóð að leyfi- legt verð væri 175 krónur. 1 Kjarabæ kostaði nákvæmlega eins flaska 305 krónur. Heldur þótti mér verðmis- munur mikill — já ótrúlega mikill — eða hvað finnst ykk- BÚNAÐARFÉLAGSMENN, VERIÐ VELKOMNIR í BORGARFJÖRÐ! Sveinn G. Hálfdánarson, Borgarnesi skrifar: „1 Dagblaðinu 16. desember siðastliðinn var viðtal við tvo starfsmenn Búnaðarfélagsins, þá Agnar Guðnason og Jónas Jónsson vegna hugsanlegs flutnings stofnunar, sem þeir starfa við, upp i Borgarfjörð. Agnar segir að eini ókosturinn við Borgarfjarðarhérað sé sá, að þar sé ekki starfrækt prent- smiðja. — Ég vil benda Agnari á, að hann þurfi engu að kviða i þeim efnum, þvi siðan 1967 hefur prentsmiðjan Prentborg hf. starfað i Borgarnesi. Við i Prentborg bjóðum Agnar og Búnaðarfélagsmenn alla vel- komna til viðskipta hvenær sem er. Þegar þessum ótta þeirra Búnaðarfélagsmanna hefur verið eytt ættu þeir að vera til- búnir að flytja úr „sælunni” i Reykjavik. Ég veit að Borgfirð- ingar munu taka vel á móti þeim þegar þar að kemur —■ sem vonandi verður sem allra fyrst.” BARÁTTUKVEÐJUR FRÁ CORNWALL — í landhelgisdeilu Ritstjóri Dagblaðsins 29. nóvember Heiðraði ritstjóri, Við, sem ein smáþjóð til ann- arrar sendum ykkur íslending- um árnaðaróskir i baráttu ykkar við enska valdbeitingu. Við þekkjum vandamál ykkar og við vonum að ykkur takist að verja og vernda landhelgi ykk- okkar við Englendinga Mr. Davey sendi islenzku þjóðinni þessar árnaðaróskir og kunnum við honum beztu þakkir fyrir. En eins og lesendur vita An Penscryfa 29ves Mys Du a syrra Ker er Cornwall skagi.'sem gengur vestur úr Englandi. Þar eins og viðar i Skotlandi, Wales og Irlandi búa nú Keltar, — þjóðflokkur sem varð að lúta i lægra haldi fyrir Engilsöxum. Fiskimenn okkar eru sifellt beittir sams konar valdbeitingu. Fljótt risi sá dagur er allar þjóðir hafi 200 milna fiskveiði- lögsögu. Beztu kveðjur M.R. Davey framkvæmdastjóri Cornwall deildar keltnesku flokkanna. Truro, Cornwall, Stóra Bretlandi. ''y’-'-j avel an 0enethel vy0-han dh'onen whath a dhanvon uOr.hemmynad ow'n ^wella dhe dus 3nys 7ey y'^a bell erbyn voweth ^orthru0h íow Saws Oo<fh\-os a wren yn tyen a0as stuth, ha0 yma 0naytyans dhyn y sowynveu0h ow tywella tythy0as bewnans. ,'.0an pyskajory.n ny a vyth ow codhevel an kerth Oorthry0h, ha ne dheffo'n jeth may fyth fynyou pysaessa deucans myldyr dhe bup tyn*-Savens an poblow oll warbarth. Dheu„h -why-yn-lel Cowethas an scryfa Scoren Kernewek Kesunyans Keltek Tru ro Kernow Breten Vur

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.