Dagblaðið - 23.12.1975, Síða 4
4
r
Dagblaðið. Þriðjudagur 23. desember 1975.
Atburðir síðustu daga knýja
Lokum hafnarsvœðunum!
Þrír gœtu gœtt beggja hafnarsvœðanna
Lokun hafnarsvæðanna i
Reykjavik er stórmál, sem yfir-
völd borgarinnar hafa hummað
fram af sér árum saman án
framkvæmda. Málið hefur verið
rætt á mörgum fundum og
áætlanir gerðar. Enn bólar ekk-
ertá framkvæmdum. Má ef til
vill segja, að við séum fjær þvi
takmarki nú, að fá hafnar-
svæðunum lokað en þá er málið
kom fyrst á dagskrá. Atburðir
siðustu daga setja þó þetta mál
aftur i brennipunkt og nú þarf
athafnir i stað orða.
Dagblaðið ræddi þessi mál við
Gunnar B. Guðmundsson
hafnarstjóra. Hann kvað stutt
siðan þessi mál voru siðast á
dagskrá hjá hafnarnefnd
Reykjavikurborga r.
Varðandi Sundahöfn kvaö
Gunnar málið auðvelt i fram-
kvæmd og lokun hafnar-
svæðisins þar hefði veriö liöur i
Slysið, sem varð á föstudags-
kvöldið, þegar tvö ungmenni
fórust i Sundahöfn, hefur vakið
menn til umhugsunar um lokun
hafnarmannvirkjanna. (DB-
mynd Ragnar)
byggingaráætlun hafnarinnar
frá fyrstu tið. Þar þarf ekki
nema tvö hlið á tveimur götum
til að svæðið sé lokað umferð.
Gunnar kvaðstbúast við,aðat-
burðir siðustu daga myndu flýta
lokun Sundahafnar. Hliðin væru
i sjálfu sér ekki dýr en rekstur
þeirra væri óleysta málið.
Vörzlu þyrfti við annað
hliðanna, þegar höfnin væri
lokuð og skip lægju þar. Rætt
hefði verið um að dreifa þeim
kostnaði m.a. með þvi að leggja
sérstakt næturvaktargjald ofan
á hafnargjöldin.
Gunnar sagði að viss vand-
kvæði væru hins vegar á lokun
gömlu hafnarinnar. Frá
Ingólfsgarði að Hafnarhvoli
væru 5 götur, sem liggja að
hafnarsvæðinu. A Ægisgarði
kæmi 6.hliöið og á Grandagarði
sjöunda hliðiö. Eftir væri þá
erfiðasti kaflinn, þ.e. frá
Hafnarhvoli að Ægisgarði.
Kæmi vart annað til greina en
að girða meðfram Tryggvavötu.
Við slika girðingu lokuðust
Hafnarbúöir innan girðingar.
Gunnar sagði að skoðanir
manna i þessum efnum væru
skiptar eins og i flestum öðrum
málum. Fjárhagshliðin væri þó
aðal dragbiturinn. Þá hefur það
valdið töfum framkvæmda að
gamla höfnin hefur verið að
breytast, einkum austantil,
með breytingum á Kalkofns-
vegi.
Gunnar sagði að ýmis skipa-
félög t.d. Eimskip væru mjög
hlynnt lokun hafnarsvæðanna
og myndu vafalaust fáanleg til
að veita þvi máli fjárhagslegan
stuðning.
Gunnar sagði að til væru
kostnaðaráætlanir um lokun
gömlu haínarinnar, en þær
væru svogamlar að ekkert væri
lengur á þeim að byggja. Engin
áætlun um kostnaðinn hefði
verið gerð miðað við núverandi
verðlag.
Þó talað sé um 7-8 hlið á göt-
um er liggja að gö.mlu höfninni
þýðir það ekki að þau yrðu öll
vöktuð að næturlagi. Opin yrðu
kannski 2 hliö að gömlu höfninni
og siðan yrðu þeir er nauðsyn-
lega þyrftu að fara að ferðast
um hafnarsvæðið innan
girðingar. Þvi mætti loka báð-
um hafnarsvæðunum t.d. með
þremur vaktstöðum.
-ASt.
DVELUR EINN UPPI
FLJÓTDALSHEIÐI
kann einangruninni þó vel
r
A
Uppi á Fljótsdalsheiði, i um
640 metra hæö yfir sjávarmáli,
býr maður nokkur, Einar örn
Bjömsson að nafni. Hann dvelst
þarna einn ásamt hundinum
sinum og gætir mannvirkja
Rafmagnsveitna rikisins.
Þarna er hús og ýmis áhöld sem
notuð voru I sambandi við rann-
sóknir vegna Bessastaðaár-
virkjunar siðastliðið sumar.
Verk Einars er aðallega i þvi
fólgið að halda ljósavélinni á
staðnum gangandi og einnig
þarf hann að halda hita á hús-
inu. Þá þarf Einar að gæta þess
að fólk sem bregður sér upp á
Fljótsdalsheiði steli engu eða
vinni skemmdarverk.
Þó að Einar sé i um fjórtán
kilómetra fjarlægð frá næstu
byggð og að mestu einangraður
vegna þungrar færðar er ein-
angrunin ekki mjög tilfinnanleg
þar sem hann hefur bæði sjón-
varp og sima. Framan af hausti
á meðan akfært var upp á
Fljótsdalsheiði var nokkur
gestagangur hjá Einari og hann
býst við aö seinna I vetur, þegar
sleðafærið verður komið, verði
umferðin töluverö.
Einar hefur dálitið fengizt við
að rita greinar um málefni fyrir
Morgunblaðið. Tiðindamaður
Dagblaðsins, sem skrapp upp á
heiði á dögunum, spurði Einar,
hvort hann ætlaði að skrifa eitt-
hvað þarna i einverunni.
•,,0, ég veit það nú ekki,”
svaraði Einar, ,,en ég tók nú
samt pennann með mér til von-
ar og vara.”
—BA/ÁT
.;••••••;. y... ... ,••,...•••. •;• ••••
• • •!'• •• •• •• !• »i •! !•• • •
•••.•••• ..V •:’■.
:Vtt’u r.:S
-•* *•
». s J •«
v..
•••••
v ?
1 •
Einar örn fyrir utan kofa sinn. JVIeð honum er félagi hans i út-
legðinni. Myndin var tekin i hriðarkófi uppi á heiöinni (DB-
mynd Bjarni Arthúrsson)
Bilanir í Baldri smávœgilegar —
geta þó tafið nokkuð fyrir
YFIR HÁTÍÐARNAR
VERÐUR OPIÐ SEM HÉR SEGIR:
Aðfangadag: opið til kl.14,00
Jóladag: lokað
Annan í jólum: lokað
Gamlársdag: opið til kl.14,00
Nýjársdag: lokað
GLEÐILEGA HÁTÍÐ!
ASKUR
Suðurlandsbraut 14
Menn hafa verið að sjá ofsjón-
um yfir viðgerð þeirri er nú fer
fram á skuttogaranum Baldri
sem Landhelgisgæzlan hefur
tekið I þjónustu sina.
Við litum um borð og ræddum
við Sigurð Sigurpálsson fyrsta
vélstjóra og Bergvin Fannar
Jónsson, annan vélstjóra, serri
sjá um viðgerðirnar:
„Stærsta vandamálið er öx-
ullinn frá vél út i aðalspil”,
sagði Sigurður. ,,Það kom i ljós
að einhver sláttur var á honum
þannig að átakið var ekki beint
og þvi hætta á að hann brotnaði
við átök.” Sigurður sagði að
verið væri að vinna við öxulinn
uppi i Landssmiðju.
,,Að öðru leyti erum við að
gera vélina klára fyrir þau átök
sem hennar biða,” sagði Berg-
vin. „Tökum af henni öryggi,
sem dempar viðbragðið, þvi bú-
ast má við að þeir muni keyra á
fullu áfram og svo fullu afturá-
bak.”
Benedikt Guðmundsson, eftir-
litsmaður hjá Landhelgisgæzl-
unni, vildi ekkert segja um það
hvað viðgerð öxulsins liði.
—HP
i