Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 23

Dagblaðið - 23.12.1975, Qupperneq 23
Dagblaðið. Þriöjudagur 23. desember 1975. Cí 23 Útvarp Sjónvarp I BYRJAÐ VAR Á MIÐJU SUMRI AÐ UNDIRBÚA JÓLADAGSKRÁNA Yönduð tónlist um jóladagana Tónlistarstjóri útvarpsins, Þorsteinnn Hannesson óperu- söngvari. — „Jafnan er mjög vandað til alls tónlistarefnis sem flutt er á jólunum,” sagði Þorsteinn Hannesson, tónlistarstjóri út- varpsins er við spurðum hann um tónlistina i útvarpinu um jólin. ,,Er þá fyrst að nefna tónleik- ana á jólanóttina eða jóla- tónleika útvarpsins sem eru á dagskrá kl. 19:00 á aðfanga- dagskvöld. Sinfóniuhljómsveit Islands leikur i útvarpssal, undirstjórn Páls. P. Pálssonar. Einleikararnir með hljóm- sveitinni eru fimm talsins. Dun- can Campell, Christina M. Tryk, Sigurður Ingi Snorrason, Hafsteinn Guðmundsson og Anna Aslaug Ragnarsdóttir og eru þau öll i Sinfóniuhljómsveit- inni. A efnisskránni er Sinfónia i D- dúr eftir Johann Christian Bach, Sinfónia Concertante fyr- ir óbó, klarinettu, horn og fagott eftir Mozart, Pianókonsert i F- dúr eftir Haydn og loks ,,Af himnum ofan hér kom ég” til- brigði eftir Johann Sebastian Bach/Vuatos. ,,Þetta er mjög vandaðir tón- leikar,” sagði Þorsteinn. ,,Þeir eru teknir upp og aðeins fluttir einu sinni. Þá vil ég einnig benda á organleik og einsöng i Dóm- kirkjunni, sem er á dagskrá strax á eftir jólatónleikunum. Sólveig Björgling og Erlingur Vigfússon syngja við orgelund- irleik Ragnars Björnssonar dömkantors. Við byrjuðum að undirbúa jóladagskrána strax i sumar og tókum þá upp þessa tónleika þegar Erlingur var staddur hér heima.” Þá er flutt gömul upptaka af orgelleik Páls sál. Isólfssonar, en hann leikur orgelverk eftir Bach, Pachelbel og Buxtehude. Siðar um kvöldið verða fluttir þættir úr jólaóratóriu eftir Janowitz, Christa Ludwig, Fritz Wunderlich og Franz Crass Wunderlich og Franz Crass syngja með Bach-kórnum og hljómsveitinni i Munchen. Karl Richter stjórnar, en hann er einn af frægustu hljómsveitar- stjórum Þýzkalánds. A jóiadag ber miðdegistón- leikana kl. 14:10 einna hæst en þá er útvarpað frá tónleikum sem haldnir voru i Háteigs- kirkju 7 þ.m. Margrét Bóasdóttir, sem út- skrifaðist úr Tónlistarskóla Kópavogs sl. vor, Rut Magnús- son, Garðar Cortes og Halldór Vilhelmsson flytja með kór Háteigskirkju og félögum úr Sinfóniuhljómsveit fslands. Hörður Askelsson leikur á oregl og Elin Guðmundsdóttir, sem útskrifaðist úr Tónlistarskólan- um i fyrra, leikur á sembal. Marteinn Hunger Friðriksson stjórnar. A efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Hein- rich Schutz, Johannes Brahms og Willy Burkhard. Dagskrá jóladags lýkur með flutningi þátta úr óratoriunni „Messias” eftir Handel. Flytj- endur eru Joan Sutherland, Gracy Bumbry, Kenneth Mc- Keller og David Ward ásamt kór og Sinfóniuhljómsveit Lundúna. Sir Adrian Bolt stjórnar. Á II. dag jóla eru viðamiklir morguntónleikar og kl. 15.00 er óperukynning Guðmundar Jóns- sonar. Kynnt verður óperan „Idomeneo” eftir Mozart. Þorsteinn Hannesson sagði að ekki væru nema tiltölulega fá ár siðan þessi ópera fékk viðurkenningu, en nú þykir hún jafn mæt og önnur verk tón- skáldsins. Meðal flytjenda eru Nicolai Gedda og Anneliese Rothenberger, kór útvarpsins i Leipzig og Rikishljómsveitin i Dresden. Stjórnandi er Hans Schmidt-Isserstedt. Kl. 18:10 syngur Sigriður Ella Magnúsdóttir og kl. 20:40 er samleikur . i útvarpssal, Manuela Wiesler, Pétur Þor- valdsson og Helga Ingólfsdóttir leika saman verk eftir Johann Sebastian Bach. Loks leika Gisli Magnússon og Halldór Haraldsson Fantasiu i f-móll eftir Schubert kl. 21:40. A.Bj. „Ég hef þekkt hann frá því að hann var smápatti..." Sjónvarp aðfangadagskvöld kl. 23.10: „Við leikum þarna saman m.a. largo eftir Sanmartini, — Rondó eftir Weber, Largo eftir Cophin, vals eftir Prokofjeff Svanirnir eftir Saint-Saens og Hunangsflugan eftir Rimsky- Korsakoff”, sagði Arni Kristjánsson um þáttinn,,,Tón- leikar”, sem er á dagskrá sjónvarpsins kl. 23.10 i kvöld. Erling Blöndal Bengtson selló- leikari og Árni Kristjánsson pianóleikari leika saman nokk- ur lög núna i kvöld. „v'ið Erling höfum þekkzt frá þvi að hann var smápatti, 12 ára gamall, — en þáttur þessi var gerður i beinu framhaldi af konsertferðalagi okkar nú i sumar. Það er alltaf jafn ánægjulegt þegar Erling kemur hingað til tónleikahalds.” Erling er giftur danskri konu og á með henni tvö börn. Hann er hálfur tslendingur, móðir hans var islenzk en faðirinn danskur. Hefur hann notið mik- illa vinsælda erlendis enda frá- bær sellóleikari. HP A aðfangadagskvöld kl. 22:20 cr jólaguðsþjónusta i sjónvarps- sal. Biskupinn yfir íslandi, Sigurbjörn Einarsson, predikar og þjónar fyrir altari. Kór Menntaskólans i Hamrahliö syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, organleikari er Hörður Áskelsson. Guðsþjónustan er flutt sam- timis i útvarpi og sjónvarpi. -A.Bj. Þriðjudagur 23. desember 14.30 „Skrumskæling konunnar" eftir Barbro Bachberger. Guðrún Birna Hannesdóttir lýkur lestri þýðingar sinnar (5) 15.00 Jólakveðjur. Almennar kveðjur, óstaðsettar kveðjur og kveöjur til fólks, sem ekki býr i s’ama umdæmi. Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir) Tónleikar. 16.40 Litli barnatlminn. Finnborg Scheving fóstra sér um timann. 17.00 Lagið mitt. Berglind Bjarnadóttir sér um óska- lagaþátt fyrir börn yngri en tólf ára 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Frétaauki. Tilkynningar. 19.40 „Helg eru jól” Jólalög i útsetningu Arna Björns- sonar. Sinfóniuhljómsveit tslands leikur. Páll P. Páls- son stjómar. 19.55 Jólakveðjur. Kveöjur til fólks 1 sýslum og kaupstöðum (þó byrjað á al- mennum kveöjum ef ólokið veröur) 22.00 Fréttir. Veðurfregnir. Jólakveðjur — framhald. — Tónleikar (23.55 Fréttir i stuttu máli) Miðvikudagur 24. desember Aðfangadagur jóla 7.00 Morguniitvarp Veður- fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Svala Valdimarsdóttir lýkur lestri þýöingar sinnar á „Malenu og hamingjunni” eftir Maritu Lindquist (8). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Kristnilffkl. 10.25: Umsjónarmenn: Séra Jón Dalbú Hróbjartsson og Jóhannes Tómasson. 1 þættinum verður rabbaö viö forystumenn Hjálpræðis- hersins og greint frá ýmsu i sambandi við jólahald i Reykjavlk Kór Menntaskól- ans við Hamrahlið syngur kl. 11.00: Þorgeröur Ingólfs- dóttir stjórnar. Jólasveina- þáttur kl. 11.20: Umsjón: Steinunn Sigurðardóttir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veöurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.10 Sóískrlk jan okkar Asgeir Guðmundsson iðnskóla- kennari flytur stutt erindi. 13.20 Jólakveðjur til sjómanna á hafi úti Margrét Guð- mundsdóttir og Sigrún Siguröardóttir lesa kveðjurnar. 15.25 „Gleðileg jól”, kantata eftir Karl O. RunólfssonRut L. Magnússon, Liljukórinn og Sinfóniuhljómsveit Is- lands flytja undir stjóra Þorkels Sigurbjörnssonar. 15.45 „Ast á jólanótt”, smá- saga eftir Eirlk Sigurðsson Sigmundur Orn Arngrims- son leikari les. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir Jólakveðj- ur til Islenzkra barna Gunn- vör Braga Siguröardóttir sér um tfmann. Lesnar verða kveöjur frá börnum á Norðurlöndum og Borgar Garðarsson les þýðingu sina á sögunni „Grenitréð” eftir Tove Jansson. 17.15 (Hlé). 18.00 Aftansfingur I Dómkirkj- unni Prestur: Séra Þórir Stephensen. Organleikari: Ragnar Björnsson. 19.00 Jólatónleikar Sinfóntu hljómsveitar tslands I út- varpssal Einleikarar: Dun- can Campell, Christina M. Tryk, Hafsteinn Guðmunds- son og Anna Aslaug Ragnarsdóttir. Stjórnandi: Páll P. Pálsson a. Sinfónia I D-dúr eftir Johann Christi- an Bach. b. Sinfónia Con- certante fyrir óbó, klari- nettu, hom og fagott eftir Wolfgang Amadeus Mozart. c. Pianókonsert i F-dúr eftir Joseph Haydn. d. „Af himn- um ofan hér kom ég”, til- brigöi eftir Johann Sebasti- an Bach/Vuatoz. 20.00 Organleikur og einsöng- ur I Dómkirkjunni Sólveig Björling og Erlingur Vig- fússon syngja við orgel- undirleik Ragnars Bjöms- . sonar. Dr. Páll Isólfsson leikur orgelverk eftir Bach, Pachelbel og Buxtehude. (Af hljómböndum útvarps- ins frá fyrri árum). 20.30 Jólahugleiðing Séra Gunnar Arnason flytur. 20.45 Orgelleikur og einsöngur I Dómkirkjunni — framhald 21.05 „Þau brostu i nálægð, mln bernskujól” Helga Þ. Stephensen og Þorsteinn O. Stephensen lesa jólaljóð og kvennakvartett leikur jóla- lög. 21.35 Þættir úr jólaóratoriu eftir Johann Sebastian Bach Gundula Janowitz, Christa Ludwig, Fritz Wunderlich og Franz Crass syngja með Bach-kórnum og hljóm- sveitinni I Munchen, Karl Richter stjómar. 22.15 Veðurfregnir 22.20 Jólaguðsþjónusta I sjón- varpssal Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einars- son, predikar og þjónar fyr- ir altari. Kór Menntaskól- ans viö Hamrahlið syngur undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur. Organ- leikari: Höröur Askelsson. Guðsþjónustan er flutt sam- timis í sjónvarpi og útvarpi. — Dagskrárlok um kl. 23.10. Miðvikudagur 24. desember 1975 aðfangadagur jóla 14.00 Fréttir og veöur 14.15 Björninn Jógi Bandarisk teiknimyndasyrpa. Þýöandi Jón Skaptason. 14.40 Kaplaskjól Breskur myndaflokkur byggöur á sögum eftir Monicu Dickens. Verölaunin. Þýöandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 15.05 Tumi þumalLTékknesk teiknimynd. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 15.50 Jólasaga. Bresk teikni- mynd gerð eftir sögu Charles Dickens: A Christmas Cárol. Þýðandi Jón Skaptason. 16.35 Hlé 22.20 Jólaguðsþjónusta 1 sjónvarpssal- Biskup Islands, herra Sigurbjöra Einarsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Menntaskólans í Hamrahliö syngur undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur. Organleikari Höröur Áskelsson. 23.10 Tónleikar. Erling Blöndal Bengt' son og Arni Kristjánsson leika saman á selló og pianó. 23.30 Dagskrárlok

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.