Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 1
Ritstjórn Síðumula 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022.
BÆJARSTJÓRA VÍSAÐ ÚR
STARFI í VESTMANNAEYJUM
— baksíða
Lítið letur,
en bara
til bráða-
birgða
Dagblaðið í dag er þaö fyrsta sem
út kemur, sem unnið er í prent-
smiðju Dagblaðsins, en prentað í
prentsmiðju Árvakurs h.f.
Eins og lesendur munu ugglaust.
veita athygli, þá er leturstærð blaðs-
ins talsvert minni en áður var. Þetta
letur notum við aðeins til bráða-
birgða, eða þar til leturdiskar okkar
koma frá Bandaríkjunum. Þá munu
lesendur aftur fá stærra og
greinilegra letur. Biðjum við þá að
sýna biðlund með okkur. —JBP—
Ólafur i „beinni línu":
MUN SVARA
„MAFÍUNNI" SÍÐAR!
Landhelgin: ENGIR SAMNINGAR
Engir samningar verða við Breta á
grundvelli þeirra hugmynda, sem
fram komu í viðræðum forsætis-
ráðherranna í London. Hins vegar
hafa verið hugmyndir uppi í stjórn-
arflokkunum um, hvort semja ætti
við Breta til tveggja eða þriggja
inánaða. Byggjast hugmyndirnar
helzt á því að hafréttarráðstefna
Sameinuðu þjóðanna kemur saman í
marz, og hafa sumir talið, að rétt
væri, að friður væri í landheginni
fram yfir þann tíma. Þessar hug-
myndir hafa þó fengið dræmar
undirtektir j stjórnmálaflokkunum.
Bretar buðu í viðræðunum í
London að „lækka” sig frá fyrri
kröfum niður í milli 80 og 90 þúsund
tonna afla. Það olli íslenzkum stjórn-
málamönnum miklum vonbrigðum,
að Bretar skyldu ekki lzkka sig
meira, enda var þegar í viðræðum í
október sýnt, að þeir mundu rciðu-
búnir að semja um þann afla.
Bretar vilja hafa „vopnahíé” á
miðunum fram til 3. eða 4. þessa
mánaðar, meðan málin séu í
athugun. Samningahugmyndir þess-
ar hafa fengið mjög slæmar viðtökur,
bæði í stjórnarflokkunum og utan-
ríkis- og landhelgisnefnd. Engir
möguleikar eru á, að samið verði á
þeim grundvelli. -HH.
í útvarpsþættinum „Bein lína” í
gærkvöld sat Ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra fyrir svörum hjá
hlustendum. Fékk hann til sín marg-
ar spurningar um dómsmála- og við-
skiptaráðuneytin og brást misjafn-
lega við þeim. Var Ólafur m.a.
spurður um álit sitt á samningum við
Breta í landhelgismálinu og svaraði
hann því til, að hann teldi samnings-
grundvöll engan í því máli.
Þá var hann spurður um ásakanir
þær sem komið hafa fram á hendur
dómsmálaráðuneytinu um töf á rann
sókn í Geirfinnsmálinu og var Ólafur
ómyrkur í máli í svörum sínum:
„Það er alltaf álitamál hvenær á
að svara svona atriðum og í raun og
veru er það dálítið erfitt að koma á
framfæri svona leiðréttingiim. . .
annars er það ekki Vilmundur, sem
þarna er við að eiga, heldur auðvitað
sú mafla, sem stendur á bak við þessi
skrif og henni mun ég svara síðar.”
— Hvaða mafía er það?
— Það er Vísis-mafían.”
Um það, hvort ekki væri rétt að
krefjast opinberrar rannsóknar á allri
mafíunni, jafnvel bæði ráðuneytinu
og Vilmundi sagði Ólafur; að fram
færu nú rannsóknir í þessum málum,
en hann taldi oft um viðkvæm mál
að ræða og ekki rétt að reka kutann í
opin sár og snúa honum þar. — HP.
Dálítil
hestamennska
Ekki amalegt að geta stundað
hestamennsku meðan beðið er eftir
að pabbi og mamma ljúki viðskipt-
um í stóru, stóru búðinni. Bjarnleifur
tók myndina meðan helgarviðskiptin
fóru fram núna um helgina.
Rannsókn Klúbbmálsins var stöðvuð af ráðuneyti 1972
— segir í skjölum saksóknara frá þeim tíma
í október 1972 gerði aðalfulltrúi
»aksóknara ríkisins ítarlega athugun
á máli veitingahússins að Lækjarteig
2. í bréfí saksóknara um þá rannsókn
aðalfulltrúans koma ýmsar upplýs-
ingar fram og skal nú getið þeirra
helztu.
Rannsóknardeild ríkisskattí/fjóra
vekur athygli á grunsemdum skatt-
rannsóknarstjóra um ýmiss konarmis-
ferli í sambandi við starfrækslu veit-
ingahússins að Lækjarteig 2 hér í
borg. Var rannsóknar beðið á þessum
málum, segir í skýrslu Hallvarðs Ein-
varðssonar. Þar segir ennfremur:
„Eðlilegt var að tékið væri fyrir
frekari áfengisveitingar í þessu veit-
ingahúsi meðan rannsókn stæði
yfír...”
„Er ráðuneytið aflétti þessu banni
hinn 20. þ.m. var sakadómsrannsókn
málsins hvergi nærri lokið, rannsókn-
argögn um rannsókn málsins höfðu
eigi heldur borizt embætti saksókn-
ara eóa dómsmálaráðuneyti og frum-
skýrslum ríkisendurskoðanda og
skattrannsóknarstjóra um þeirra at-
hugun eigi heldur lokið. Að sögn
rannsóknardómara og skattrannsókn-
arstjóra eru hins vegar þegar fram
komin veigamikil gögn, sem benda
til þess, að upplýst verði í málinu um
veruleg söluskattsvik og ófullnægj-
andi launaframtöl, ennfremur um
verulega bókhaldsóreiðu og brot á
reglugerð um veitingar áfengis.
Fyrrgreind niðurfelling dómsmála-
ráðuneytisins hinn 20. þ.m. á um-
ræddu banni lögreglustjóra frá 14.
þ.m. þykir því af hálfu saksóknara
hafa verið allséndis ótímabær og
ástæðulaus og ekki studd almennum
opinberum réttarhagsmunum.” ASt.
......—„
f8u olcl holdur borizt ozbcottl
- “Trr:...... -
omln volgnmlk11 R B ’
Myndí!Te^^53S!u^»öíir533ímarhéítim^tefónssöí^íkissaksóknari sendi
dómsmálaráðherra MR|1V72 ' vtflna Klúbbmábins.
Bankastjóra-
launin 324
þús. á
mánuði
Mesta
listaverka-
rán
sögunnar
- Eiibb. 7
Míní lentí í
árekstri við
slökkvibíl - bb. 4
Situr inni grunaður
um morð:
ÓHUGNAN-
LEGUR
FERILL
- bls. 17