Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 6
6 Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976. Ný sending frá VING Verð kr. 7.995,- Hlýfóðraðir vandaðir kuldaskór frá Ving verksmiðjunum. •Grænt, sterkt og mjúkt skinn og þrælsterkir sólar. Nr. 36-41. Póstsendum samdægurs. Arl. 444 DOMUS MEDICA Egilsgötu 3 pósthólf 5050 Sími 18519 Stúdentar mótmœltu, skólunum var lokað: EFTIR 6 MÁNAÐA HLÉ OPNA SKÓLAR í BURMA „Suðupottar stjórnmálanna” voru háskólarnir í Burma oft kallaðir. í rúma sex mánuði hefur skólunum verið lok- að að boði yfirvalda. Nú hafa háskól- arnir aftur tekið til starfa. Það var 11. júní í fyrra sem yfirvöld létu loka skólunum þegar soðið hafði upp úr í þessum „suðupotti stjórnmálanna”. Miklar mótmælaaðgerðir brutust þá út. Kröfðust stúdentar að félagar þeirra, sem tekið höfðu þátt í mótmælaaðgerð- um vegna útfarar U Thants, yrðu látnir lausir. FÉLL 20 HÆÐIR NIÐUR - LIFIR! Lítil stúlka í Sao Paulo í Brazilíu féll í síðustu viku út um glugga á heimili sínu á 20. hæð í fjölbýlishúsi. Það furðulega gerðist, að barnið lifði fallið af. Á leiðinni niður lenti stúlkubarnið, 22 mánaða gamalt, á rafmagnsvíra sem tóku fallið nógu vel af því til þess að höggið var ótrúlega lítið. Myndirnar: örin sýnir hvaðan barnið féll og einnig rafmagnslínurnar sem urðu því til bjargar. Myndin t.h. sýnir móðurina ásamt dóttur sinni á sjúkrahúsinu. Ingmar Bergman með slœma skattskýrslu Ingmar Bergman, kvikmynda- leikstjórinn heimsfrægi, liggur nú undir grun um að hafa svikið verulega undan skatti. Vegabréf leikstjórans var tekið af honum. Saksóknari, Curt Dreifaldt, sagði að Bergman hefði verið yfirheyið- ur sl. föstudag vegna máls þessa. Hann gat þess jafnframt að skattamál nokkurra annarra starfsmanna sænska kvikmynda- iðnaðarins væru. í rannsókn. Sænsku blöðin segja að Berg- man hafi verið tekinn til yfir- heyrslu meðan hann var að æfingum hjá Dramaten. Málin snúast um málefni svissnesks fyrirtækis sem Bergman átti aðild að árið 1968. Mækkun almn Bergstaðastræti 4, sími 14350

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.