Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 23
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976. li Útvarp 23 Sjónvarp D Útvarp kl. 20.30. „Á VETTVANGI DÓMSMÁL- ANNA" — bíleigandi fer í mál við Vegagerðina „Þetta atvik skeði daginn eftir að gosið hófst í Vestmannaeyjum,” sagði Björn Helgason hæstaréttarritari, en þáttur hans ,,Á vettvangi dómsmál- anna” er á dagskrá útvarpsins kl. 20.30 í kvöld. Á sínum tíma lögðu margir bíleig- endur leið sína um Suðurlandið, þar sem vel sást til gosstöðvanna í Eyjum. Einn vegfarandinn ók bíl sínum ofan í hvarf eða ræsi á leið sinni um þjóðvegi landsins. Maðurinn varð fyrir tjóni af völdum þessa óhapps og vildi meina að Vegagerðin ætti að bæta það. Til vara krafði hann tryggingafélag bílsins bóta vegna þessa tjóns. Það verður fróðlegt fyrir okkur hlust- endur að heyra hvernig þessu máli lyktar og getum við dregið okkar lær- dóm af því. KP Það er nóg af holóttum vegum á landinu okkar og í kvöld heyrum við um ófarir manns nokkurs sem fékk á þeim að kenna. Útvarp kl. 22.15. MYNDLISTARÞATTUR -^sömnomen5 sýrnngtex tilh©Tmfða ndanlega um samnorræna sýningu á vefjarlist, ^hvar hún verður en væntanlega l sýningu á vefj sem verið er að undirbúa á öllum Norðurlöndunum,” sagði stjórnandi þáttarins Þóra Kristjánsdóttir, en þáttur hennar verður á dagskrá út- varpsins kl. 22.15. Sýning þessi verður farandsýning og verður sett fyrst upp í Álaborg. Hún verður væntanleg hingað til lands eftir um það bil eitt ár og verður sett upp 20. janúar 1977. Það verður hún á Kjarvalsstöðum. Sýningin er styrkt af Norræna menn- ingarsjóðnum vegna kostnaðar við flutning og annað. í félagi textilhönnuða eru nú 17 konur, sem fást við vefnað og tau- þrykk m.a. Þetta félag hefur starfað nú í eitt og hálft til tvö ár og formaður er Ragna Róbertsdóttir. öllum er heimil þátttaka í þessari sýningu og greint verður frá því síðar hvar tekið verður á móti verkum á hana. Búizt er við að sýningin verði geysi umfangsmikil og að þar verði um 200 verk. Þóra minnist á aðrar sýningar í borginni, t.d. sýningu Elíasar B. Halldórssonar, sem var opnuð í Norræna húsinu á laugardaginn var. Elías er búsettur á Sauðárkróki og langt er síðan borgarbúum hér hefur gefizt kostur á að sjá verk hans. KP Nemendum Myndlista- og handíðaskólans gefst kostur á að nema fjölda námsgreina,sú nýjasta er textilhönnun. Sjónvarp kl. 22.40. HEIMSSTYRJÖLDIN SÍÐARI - 3. þáttur Það var í maí 1940 sem Þjóðverjar hertóku Holland, Luxemborg og Belgíu. Þeir höfðu sterkan flugher og gerðu loftárásir við töku landanna. Frakkar bjuggust við svipaðri árás og árið 1914 af Þjóðverja hálfu, en sú varð ekki raunin, Holland gafst upp 15. maí 1940. grein fyrir vélvæðingu herafla Þjóð- verja. Þann 14. júní féll svo Parísar- borg. Þann 16. júní var Pétain gerður for- sætisráðherra og vopnahlé var samið við Þjóðverja. Stjórn hans var eins konar leppstjórn undir stjórn Þjóðverja sjálfra. FRAKKLAND FELLUR KP Sóknarlína Þjóðverja lá í gegn um Ardennafjöll en því höfðu landsmenn ekki búizt við vegna þess hve landið er erfitt yfirferðar á þessum stað. Þarna var því aðeins til varnar léttvopnað lið manna, sem gat engum vörnum við komið gegn sókn Þjóðverjanna. Þann 20. maí náðu skriðdrekahersveitir Þjóð- verja allt að Ermarsundi þar sem Somme fellur í það. Bandamenn sundr- uðust og herir þeirra flýðu m.a. til Englands. Frakkar hugsuðu enn um fastar víglínur og höfðu ekki gert sér Q Utvarp MÁNUDAGUR 2. febrúar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Sagan af Birgittu,” þáttur úr endurminn- ingum eftir Jens Otto Kragh. Auðun Bragi Sveinsson byrjar lestur eigin þýðingar. 15.00 Miðdegistónleikar Léon Goossens og Gerald Moore leika á óbó og píanó Þrjár rómönsur op. 94. eftir Schumann. Jean- Rodolphe Kars leikur á píanó Fantasiu í C-dúr op. 15, „Wand- erer.”-fantasíuna eftir Schubert. Harmony kammersveitin í Prag leikur Serenöðu i d-moll fyrir blásturshljóðfæri, selló og bassa op. 44 eftir Dvorák; Martin Turnovský stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.00 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson sér um timann. 17.30 Að tafli. Ingvar Ásmundsson sér um skákþátt. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn- ingar. 19.35 Daglegt mál. Guðni Kol- beinsson flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn. Ingólfur Guðmundsson lektor tal- ar. 20.00 Mánudagslögin. 20.30 Á vettvangi dómsmálanna. Björn Helgason hæstaréttarritari segir frá. 20.50 Frá tónlistarhátíðinni í Salz- burg s.l. sumar. Leontyne Price syngur lög eftir Beethoven, Strauss o.fl. Píanóleikari: David Garvey. 21.30 Útvarpssagan: „Kristnihald undir Jökli” eftir Halldór Laxness, höfundur les (4). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Myndlistar- þáttur í umsjá Þóru Kristjáns- dóttur. 22.50 kvöldtónleikar. Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Mormónakórinn og Sinfóníu- hljómsveitin í Fíladelfíu. Leopold Stokowski stjórnar. a. „Valkyrju- reiðin” eftir Wagner. b. „Síðdegi fánsins” eftir Debussy..c. Andleg lög. d. Tilbrigði eftir Rakhmani- noff um stef eftir Paganini. 23.40 Fréttir t stuttu máli. Dag- skrárlok. MÁNUDAGUR 2. febrúar 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Meðferð gúmbjörgunarbáta. Fræðslumynd um notkun gúm- báta og fleiri björgunar- og öryggistækja. Kvikmyndun: Þor- geir Þorgeirsson. Inngangsorð og skýringar: Hjálmar R. Bárðar- son, siglingamálastjóri. 21.00 Iþróttir. U msjónarmaður Ómar Ragnarsson. 21.30 Til hvers er félagið? Haldinn er fundur í fámennu átthaga- félagi. Félagslífið er komið í fast- ar skorður og mikil deyfð yfir því, en nýr félagi hristir drung- ann af samkomunni. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. (Nord- vision-Sænska sjónvarpið) 22.40 Heimsstyrjöldin síðari. 3. þáttur. Frakkland fellur. Þátturinn fjallar m.a. um árás Þjóðvcrja á varnarlínu Frakka, og reynt er að skýra, hvers vegna Þjóðverjum tókst að rjúfa varnir Frakka. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 23.35 Dagskrárlok

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.