Dagblaðið - 02.02.1976, Blaðsíða 24
Bœjorsljóra Vestmama
eyja vísað úr starfi
— vantur að gera grein fyrir hálfri fjórðu milljón, sem Samband sveitarfélaga
í Suðurlandskjördœmi œtlaði að gefa í uppbygginguna í Eyjum
Sigfinni Sigurðs syni, bæjarst^jðra í
Vestmannaeyjum, hefur verið vlsað
frá störfum. Páll Zóphoníasson,
bæjartæknifræðingur, gegnir störfum
bæjarstjóra um stundarsakir og hefur
prókúuruumboð fyrir bæjarstjóm.
Þetta var ákveðið á lokuðum
skyndifundií bæjarstjórn Vestmanna-
eyja á laugardaginn. Meirihluti
bæjarstjórnar bar fram tillögu þar
um og var hún samþykkt með öllum
atkvæðum.
Kveikjan að brottvísun Sigfinns
eru upplýsingar, er stjórn Sambands
sveitarfélaga í Suðurlandsjördæmi —
en Sigfinnur var áður framkvæmda-
stjóri sambandsins — kom áleiðis til
bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Dagblaðið hefur öruggar heimildir
fyrir því, að þessar upplýsingar séu
eftirfarandi: í framkvæindastjóratíð
Sigfinns ákvað stjórn sambandsins að
leggja þrjár og hálfa milljón króna í
uppbygginguna í Vestmannaeyjum
■og var Sigfinni falið að afhenda þá
peninga. En þeir peningar hafa
aldrei komið til skila. Telja menn sig
nú hafa ástæðu til að ætla, að Sig-
finnur hafi notað féð í eiginhags-
munaskyni, en eins og áður hefur
verið getið um byggir hann nú stórt
einbýlishús á Selfossi.
Þá kemur hér einnig til, að á
síðasta bæjarráðsfundi í Vestmanna-
eyjum lagði Sigfinnur bæjarstjóri
fram beiðni um leigukjör á tveimur
íbúðum, sem verið er að byggja á
vegum kaupstaðarins. Einn bæjar-
fulltrúa í Vestmannaeyjum sagði í
samtali við fréttamann blaðsins í
gærkvöld, að þessi beiðni hefði verið
„um sérstök kjör, sem .keyrðu svo
langt úr hófi fram, að vonlaust var að
verða við beiðninni”. Áður en bæjar-
stjórn hafði tekið endanlega afstöðu
til málsins, hafði Sigfinnur látið
brjóta niður veggi á milli íbúðanna,
svo úr yrði ein íbúð. íbúðirnar tvær
vildi hann síðan leigja á fimmtán
þúsund krónur á mánuði og eiga
forkaupsrétt að þremur árum liðn-
um — á núgildandi verði.
Einnig koma inn í dæmið
óeðlilega háir dvalarkostnaðar-
reikningar bæjarstjóra, „langt um-
fram það sem kalla má eðlilegt,”
sagði einn bæjarfulltrúinn. Eins og
frá hefur verið greint í blaðinu hefur
minnihluti bæjarstjórnar í Eyjum nú:
farið þess á leit við embætti ríkissak-
sóknara að rannsókn verði gerð á
fjármunastjóm Sigfinns Sigurðssonar
frá því að hann tók við starfi bæjar-
stjóra Vestmannaeyja í byrjun ágúst
1975
Stjórn Sambands sveitarfélaga í
Suðurlandskjördæmi mun koma
saman til fundar á miðvikudaginn,
þar sem málin verða rædd. Þar
verður tekin afstaða til þess hvort
ástæða sé til að hefja málshöfðun ál
hendur Sigfinni vegna peninganna,
sem ekki hafa komið fram.
I Vestmannaeyjum er gert ráð
fyrir því að krafa bæjarsjóðs um
endurgreiðslu vegna dvalarreikninga
bæjarstjórans fráfarandi muni verða
lögð fram fljótlega.
-ÓV.
Os við skattstofuna á „elleftu stundu”:
DRENGSKAPARHEITUM SKILAÐ í TONNA TALI
Drengskaparheit er gefið á hverri
skattskýrslu, og það gefa konur ekki
síður en karlar.
Það var heilmikil „stemning”í
bænum á laugardagskvöldið og um-
ferð eins og á mesta annatíma.
Þegar nálgaðist miðnætti náði um-
ferðin hámarki og var varla hægt að
komast um Tryggvagötuna, en þar
voru hlutirnir að gerast.
Fólk var að skila skattskýrslum
sínum í kassann hjá Skattstofunni
og það voru margir sem voru á
„síðustu stundu” en náðu samt að
skila fyrir miðnætti.
Það var eins og „léttara” væri yfir
umferðinni úr bænum og eins og
fargi væri létt af fólki að hafa losn-
að við þetta áhrifamikla plagg í
tæka tíð. — A.Bj.
Sveinn Einarsson, þjóðleikhússtjóri,
gengur að kassanum þar sem hann losar
sig við þá illræmdu skattskýrslu, sem
gerir mörgum manninum lífið leitt í
byrjun hvers árs. (DB-mynd HS)
Yarnarsamningnum er ekki framfylgt
PÓSTURINN FER ÓSKOÐAÐUR
TIL VARNARLIÐSMANNANNA
— og þar er „bein lina" í fíkniefnasendingum til landsins
„Heildarmagnið, sem náðst hefur í
á Vellinum er sennilega um 25 kiló
af hassi og marijuana,” sagði
Kristján Pétursson deildarstjóri hjá
Tollgaezlunni á Keflavíkurflugvelli í
viðtali við Dagblaðið. „Þá höfum við
náð i töluvert ntagn af „speedi”,
mjög sterku, og eitthvað berst alltaf
inn af LSD”.
Sagði Kristján að söluverðmæti
hassins eins væri sennilega um 30
milljónir og „speedið” væri um fjög-
urra milljón króna virði.
„Það sem gerir okkur erfiðast fyrir
er að grein þeirri í varnarsamningn-
um við varnarliðið sem kveður á um
nákvæma tollskoðun á pósti varnar-
liðsntanna er ekki framfylgt,” sagði
Kristján ennfremur. „Pósthúsið hér á
Vellinum er því „bein lína” frá
Bandaríkjunum og mestur hluti
fíkniefna, er við höfum fundið,
kemur með pósti til Vallarins. Þó vil
ég benda á að 10 kíló af hassi fundust
i einni af flutningavélum hersins
núna i sumar, þannig að allar leiðir
eru notaðar.”
Sagðist Kristján margoft hafa bent
ráðamönnum á nauðsyn þess að toll-
skoðun færi fram á pósti og varningi
sem til pósthússins kæmi. Þar hefðu
menn vísað hver á annan.
„Pósturinn er heidur ckki
skráður, nema þær sendingar, sem
fara eiga í ábyrgð,” sagði Kristján
ennfremur. „Þrátt fyrir gott samstarf
við bandarisku lögregluna hér hefur
ekki verið nokkur vegur að rekja slóð
sendinganna og komast þannig fyrir
þær.” —HP
fijálst, úháð dagblað
Mánudagur 2. febrúar 1976.
Týndi foreldrum
sínum:
Ætlaði
fétganq-
andi til
Þorléks- |
hafnar
Urii fimm-leytið í gærdag var
komið með átta ára dreng á lög-
reglustöðina í Árbæjarhverfi.
Hafði sá er með hann kom ekið
fram á drenginn einan á gangi á
Suðurlandsvegi. Tók maðurinn
drenginn tali, þar eð honum þótti
ferðalag hans undarlegt, og kom þá
í ljós að hann ætlaði sér fótgangandi'
til Þorlákshafnar.
Er á lögreglustöðina kom sagði
drengurinn til nafns og sínar farir
ekki sléttar. Hafði hann verið í
Reykjavík með foreldrum sínum en
orðið viðskila við þá. Sá hann því
ekki annað ráð en að halda fótgang-
andi til heimabæjar síns og var
kominn langt á leið er maðurinn
fann hann.
Er drengurinn hafði dvalið á lög-
reglustöðinni um stund, var hann
sóttur af skyldmennum sínum.
—HP
Gabboði
lögregluna
upp að
Geithólsi
Lögreglan í Árbæjarhverfi fékk í
nótt tilkynningu um slys uppi við
Geitháls. Var brugðizt hart við og
sendar þangað lögreglu- og sjúkra- ,
bifreið.
Er löggæzlumenn komu á staðinn
var þar fyrir kunnur borgari, sem
gjaman ferðast um á reiðhjóli sínu.
Engin meiðsli var á honum að
finna, enda kom fljótlega í ljós að
hann hafði verið að þykjast.
Löggæzlumenn gerðu athuga-
semdir við ljósaútbúnað hjólsins og
með það var hjólreiðakappanum
sleppt.
Að sögn lögreglunnar í Árbæ
hefur hann verið í slagtogi með
öðrum manni, af svipaðri gáfna-;
gráðu, sem hefur um langan tíma
haft ofan af fyrir sér með því að selja
hjólkoppa. Hefur samstarf þessa
tveggja manna verið Árbæjarlög-
reglunni þyrnir í augum, enda hafa
þeir átt það til að stunda ýmis
bellibrögð. — HP —
Varð fyrir
bíló
Miklubraut
Lítil stúlka varð fyrir bil á Miklu-
braut i gærdag. Var bilnum ekið
framhjá kyrrstæðum strætisvagni,
en telpan hljóp út undan honum.
Telpan var flutt í slvsadcildina en
hlaut ekki alvarleg meiðsli. ASt.
V