Dagblaðið - 02.02.1976, Side 9
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976.
9
BANKASTJORARNIR
HAFA GOn BETUR
— segir Korl Árnason og leiðréttir ummœli ritara bankaráðs
Landsbankans í útvarpsþœtti
Leiðréttinga á upplýsingum um
bankastjóralaun er að vænta í þættinum
um vinnumál sem fluttur verður næst-
komandi miðvikud. í ríkisútvarpinu. I
dagskrárkynningarþætti útvarpsins á
laugardag kom það fram að Karl Árna-
son, bankaráðsmaður Búnaðarbanka
íslands, teldi að Baldvin Jónsson,
bankaráðsmaður Landsbankans, hefði
gefið ófullnægjandi og villandi upplýs-
ingar um laun bankastjóra í útvarps-
þættinum um vinnumál sem fluttur var
21. janúar sl.
Af upplýsingum Baldvins Jónssonar
má draga þá ályktun að laun banka-
stjóra séu um kr. 233.000,00 á mánuði.
Telur Karl að þetta sé ekki í samræmi
við greiðslur til bankastjóra þess banka
þar sem hann er bankaráðsmaður.
Lætur nærri að þær séu um 110 þús.
krónum hærri á mánuði þegar talin er
risna, greiðsla fyrir fundarseíu með
bankaráði og bifreiðakostnaður auk
launa sem ákveðin eru af bankaráðum
ríkisbankanna með samþykki bankaráð-
herra og, hvað Búnaðarbankann
varðar, landbúnaðarráðherra.
í lögum um Búnaðarbanka íslands
Fitumagn loðnunnar minnkar
um eitt prðsent ó viku
segir að bankastjórar hans skuli ekki
hafa hærri laun en bankastjórar Lands-
bankans. Sé eftir þessu ákvæði farið
liggur beint við að álykta að laun og
kjör Landsbankans geti ekki verið lakari
en í Búnaðarbankanum. Laun og kjör
starfsmanna ríkisins eru ekkert laun-
ungarmál. Er því í alla staði eðlilegt og
æskilegt að ekkert fari þar á milli mála,
hvernig sem menn vilja túlka sundur-
liðun á greiðslum til bankastjóra þess.
Eftir síðustu hækkun á Íaunum
bankastjóranna nema greiðslur til
þeirra á fimmtu milljón árlega. Sé þeim
skipt niður á 12 mánuði ársins nema
þær um kr. 340.000,00 mánaðarlega.
Samkvæmt kjarasamningum banka-
starfsmanna eru launamánuðir taldir
13 árlega. Hér að framan er þrettándi
mánuðurinn innifalinn og launum fyrir
hann deilt niður á hina 12 mánuði
ársins. —BS—
„Samkvæmt þeim mælingum sem
við gerðum í gær á sýnum veiddum 27.
er fítumagnið nú um 10.3%,” sagði
Emelía Marteinsdóttir efnafræðingur
hjá Rannsóknadeild fiskiðnaðarins í
viðtali við Dagblaðið. „Loðnan hrygnir
sem kunnugt er í febrúar og leggur því
jafnt og þétt af.”
Sagði Emelía, að ef byggt væri á
reynslu síðustu ára mætti búast við því
að fitumagn loðnunnar minnkaði um
eitt prósent á viku, nema ef einhverjar
verulegar breytingar yrðu á. Hegðun
þessarar loðnugöngu benti þó ekki til
slíks.
„Loðnan var veidd fram í marz í
fyrra, eða þar til hún var komin niður í
tvö og hálft prósent,,’; sagði Emelía
ennfremur. „Eftir það fæst það lítið lýsi
úr henni. að ekki er talið borga sig að
halda áfram veiðum.”
Frá miðnætti í nótt bárust 2.200 tonn
á land. Fyrsta loðnan berst til Siglu-
fjarðar með Sigurði RE 650 tonn og
Gísli Árni RE siglir með fyrstu loðnuna
til Hornafjarðar, 550 tonn. —HP
Stykkishólmur:
FÉLAGSHEIMILIÐ BYGGT
í SJÁLFBOÐAVLNNU
„Það hefur ekki skort sjálfboðaliða
við vinnuna hér og við búumst nú við
því að fyrsti hluti félagsheimilisins verði
tekinn í notkun 28. febrúar,” sagði
Sturla Þórðarson sveitarstjóri í Stykkis-
. hólmi í viðtali við Dagblaðið.
„Félagasamtökin í bænum eru aðilar
að byggingunni og fá að greiða sinn
hluta í kostnaðinum í vinnu. Þetta
hefur allt saman gengið vel og því fáum
við þarna sal sem tekur 350 manns í
sæti við borð og leikaðstöðu, auk þess
sem þarna verður í framtíðinni hótel
með 26 tveggja manna herbergjum.”
Sagði Sturla að húsið myndi kosta
fullbúið um 170 milljónir króna og
hefði verið unnið fyrir um 70 milljónir á
síðasta ári.
Á síðustu 10 til 12 árum hefur verið
sívaxandi ferðamannastraumur til
Stykkishólms og hefur gistiheimili verið
rekið í gagnfræðaskólanum með
ágætum árangri. Þótti þó rétt að».koma
upp betri aðstöðu til gestamóttöku, en
nú sem stendur er útlitið heldur svart í
hótelrekstri og hefur því húsnæðis-
vandamál Gagnfræðaskólans verið leyst
til bráðabirgða, með því að innrétta sex
kennslustofur í hótelrýminu. —HP.
Bankaráðsformaðurinn:
KARL FÉKK ALLAR
UMBEÐNAR
UPPLYSINGAR
„Það er rétt að ég fékk þetta bréf
frá Karli Árnasyni bankaráðsmanni
sem dagsett er 17. desember sl„”
sagði Stefán Valgeirsson, formaður
bankaráðs Búnaðarbanka íslands, í
viðtali við Dagblaðið í gær. „Ég
afhenti bankastjórunum bréfið,”
sagði Stefán, „og á fundi sem hald-
inn var fyrir jól svöruðu þeir ná-
kvæmlega þeim spurningum sem
fram voru bornar og þar á meðal
þeim 10 liðum sem Karl bar fram.
Stefán kvað allar upplýsingar
liggja fyrir í hagdeild bankans og
ættu bankaráðsmenn aðgang að
þeim. „Hvað menn telja fullnægj-
andi getur farið eftir ýmsu. Ég tel
mig fá allar þær upplýsingar sem ég
hefi óskað eftir,” sagði Stefán Val-
geirsson.
Hann kvað engar athugasemdir
við starfsemi bankans hafa borizt
frá Seðlabankanum. „Ef menn vilja
vera í sviðsljósinu þá geta þeir gert
það með ýmsu móti,” sagði Stefán
að lokum. —BS—
Dale Carnegie
námskeiðið
í ræðumennsku og mannlegum samskiptöm er
að hefjast.
Gerum ráð fyrir því að þú sért að hugsa um að
taka þátt í Dale Carnegie námskeiðinu. —
Hverju geturðu tapað?
★ Nokkrum sjónvarpskvöldum, spilakvöldum
eða saumaklúbbum.
★ Kvíða við það, að standa upp og segja
nokkur orð.
★ Efa um hæfileika þína til að taka virkan þátt
í lífsgæðakapphlaupi nútímans.
Þú gætir einnig tapað
★ Vantrú þinni, að ná því markmiði, sem þú
hefur sett þér.
★ Vana þínum, að bíða með ákvarðanir.
★ Áhyggjum og kvíða
★ Þú vilt áreiðanlega tapa
★ Möguleikanum að vera „múraður” inn í
núverandi launaflokki.
★ Tækifærinu að vera viss um að hreyfast ekki
í starfi um aldur og ævi.
Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale
Carnegie námskeiðinu.
Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma.
82411
Stjórnunarskólinn
Konráð Adolphsson.
UTSALA NÆSTU DAGA
VEGGFÓÐUR 100 fermetrar á
Verð á rúllu frú kr. 100 3 þúsund kr.
TORKOSTLEG
VERÐLÆKKUN
15% dfslattur iou*ra»$»ucm.j
nl núlum uSrum f rtlifni PLASTMAtNINGU
at nyjum vorum i tiletni a a4.inS kr. 3.000
útsölunnar
VEGGFÓÐUR 50 /o
veggstrigi afsmttur
GÓLFDÚKUR á s"dolin
málningu —
Gripið tækifærið strax
og sparið ykkur stórfé
þ.e. 10 I fata á
kr. 4.500
VIllKNI i
Veggfóöur- og málningadeiid
Ármúla 38 — Reykjavik
Simar 8-54-66 og 8-54-71
Opið til 10 í kvöld og hádegis á morgun