Dagblaðið - 02.02.1976, Page 15

Dagblaðið - 02.02.1976, Page 15
Dagblaðið. Mánudagur 2. febrúar 1976. I Iþróttir Iþróttir 15 Iþróttir Iþróttir ÍRfór létt með ÍS — en KR átti fullt í fangi með Val Stúdentar voru ÍR engin hindrun þesar liðin mœttust i 1. deild körfuboltans á laugar- daginn i iþróttahúsi Kennarahá- s/cóla íslands — 98—78 urðu lokatölur leiksins — sem var afspyrnu illa leikinn og að sama skapi leiðinlegur á að horfa. Virtist lengst af að leikmenn vœru að innleiða einhvern nýjan bollaleik i landið — eða að minnsta kosti átti leikurinn litið skyll við körfubolta. En hættum öllu nöldri og snúum okkur að leiknum. ÍR tók þegar forystu — og virti.st sem stúdentar færu aldrei verulega í gang. Staðan í hálfleik var 45-33 og í síðari hálfleik hélt munurinn áfram að aukast — þegar 5 mínútur voru af leik var staðan 59-37 og eftir 10 mínútur 72-48. En eftir það fóru ÍR- ingar að slaka á — sendu varamenn inn á og stúdentar drógu aðeins á — án þess nokkurn tíma að ógna ÍR — öruggur sigur ÍR 98-78. Sem endranær var Bjarni Gunnar stigahæstur stúdenta — skoraði 25 stig. Jón Héðinsson skoraði 23 stig — aðrir léku undir getu. Kolbeinn Kristinsson og Kristinn Jörundsson voru stigahæstir ÍR-inga með 19 stig — Jón Jörundsson skoraði 17 stig. Vestur í Hagaskóla áttust við KR og Valur. Flestir áttu von á öruggum sigri KR — en svo átti ekki að verða. Valsmenn gáfu ekkert eftir og það var ekki fyrr en á tveimur síðustu mínútum leiksins sem KR tryggði sigurinn, 88-83. Staðan í hálfleik var 43-33 en fljótlega í síðari hálfleik tóku Valsmenn að saxa á forskotið — eftir 7 mínútur var staðan 53 -49 og þegar aðeins tvær mínútur voru eftir var staðan 8Q-77. A.llt gat þvi gerzt — en Kolbeinn Pálsson var á öðru máli. Hann skoraði næstu þrjár körfur — hans einu í leikn- um — og Trukkurinn bætti þeirri fjórðu við og KR-sigur í höfn. Sem fyrr bar Trukkurinn höfuð og herðar yfir aðra í * liði KR —- hann skoraði 35 stig. Gunnar Jóakimsson skoraði 12, Árni Guðmundsson og Bjarni Jóhannsson skoruðu 10 stig hvor. Þórir Magnússon var drýgstur Vaísmanna með 25 stig • og Torfí Magnússon skoraði 19 stig. Dregið í bikar- keppni HSÍ FH má gera sér að góðu að fara norður til Akureyrar og hefja vörn titils síns þar gegn Þór í 1. umferð bikarkeppni HSÍ. Sjálfsagt verður róðurinn FH erfiður — þó Þór sé neðarlega í 2. deild vita allir að liðið er erfítt heim að sækja og mun meira býr í liðinu en staða þess í 2. deild gefur til kynna. Annars varð drátturinn svo: . KR — ÍR ÍA — Grótta Afturelding — Víkingur Þór — FH Þróttur — Haukar Fylkir — Leiknir. 10 lið sitja yfir í 1. umferð — Víðir, UBK, Stjarnan, Týr, ÍBK, Fram, Ármann, Valur, KA, KR. Mikill hringlandaháttur hefur ein- kennt bikarkeppnina — til að mynda hafa leikdagar ekki enn verið ákveðnir. h. halls. ín er enn að — kappinn Gunnlaugur Hjálmarsson. Þarna hefur hann tundið smugu í vöm KA og hvar hafnaði boltinn annars staðar en í netinu? DB-mynd Bjamleifur. Þrátt fyrir jafnteflið blasir 1. deildin við ÍR — Jafntefli efstu liðanna í 2. deild, IR og KA, í Laugardalshöll ó laugardag Það fór ekki eins og margir spáðu fyrir leik ÍR og KA — að i þeim leik tryggði annað hvort lioið sœli sitt í 1. deild. Leiknum lauk með iafntefli. 16-16. og máttu iR-ingar vel við una —þvi KA var lengst aj yju og átti sigur skilið. En hvað um pað — ÍR þokaðist skrefi ncer 1. deild við jafnteflið. Liðið hefur nú tapað tveimur stigum — KA þremur. Það cetlar þvi að verða KA dýrkeyptur ósigurinn fyrir norðan þegar ÍR sigraði KA t fyrsta leik 2. deildar. En hvað um það — leikurinn á laugardaginn var alls ekki vel leikinn — bæði lið léku undir getu. Sjálfsagt hefur mikilvægi leiksins haft neikvæð áhrif á getu liðanna og svo annað — við missi síns bezta manns — Ágústs Svavars- sonar -— er ÍR aðeins svipur hjá sjón, það er engum vafa undirorpið. Ágúst hefur verið í góðri æflngu í vetur og verið mikill ógnvaldur vörnum 2. deild- ar liðanna. KA hafði lengst af frum- kvæðið í leiknum — staðan í hálflcik var 8-8. Strax í byrjun síðari hálfleiks náði KA eins marks forystu — en alltaf jafnaði ÍR. Þannig hélzt leik- urinn í jafnvægi. — Mikil barátta einkenndi liðin öðru fremur og klaufa- legar villur sáust. Sérstaklega gerðu ÍR-ingar sig seka um slæmar villur — furðulegt af jafnleikreyndu liði. Þegar aðeins 5 mínútur voru til leiks- loka komust ÍR-ingar yflr, 15-14, og þá hélt maður að sigurinn væri þeirra þar sem þeir höfðu reynsluna með sér — en svo átti ekki að verða. KA skoraði næstu tvö mörk og síðan ÍR eitt mark — þannig endaði leikurinn 16-16 þrátt fyrir að báðum liðum byðist tækifæri í lokin til að skora. — í lokin fögnuðu ÍR-ingar sem sigurvegarar — ef til vill má segja að svo hafi verið, liðið hefur tapað fæstum stigum í deildinni. En ÍR verður að halda vel á spilunum það sem eftir er — og leika mun betur á laugar- daginn. Markahæstur leikmanna.’var Halldór Rafnsson með 8 mörk — en Brynjólfur Markússon og Guðjón Marteinsson voru markahæstir ÍR-inga með 4 mörk hvor. Á undan leik ÍR og KA lék KR — helzti keppinautur ÍR og KA um 1. deildarsætið — þó möguleiki KR sé frekar fræðilegur en raunverulegur. KR lék við Þór og sigraði KR — 28-23. h. halls. Baðfatatízkan 1976! Myndin sýnir bikini nr. B66, til í sörtu og hvítu, stærðir 38-40-42-44 — stuttir frottéstrandkjólar í stíl við. 10—20% afsláttur á eldri gerðum. Póstsendum Kerið Laugavegi sími 12650 66

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.