Dagblaðið - 03.02.1976, Page 1

Dagblaðið - 03.02.1976, Page 1
2. árg. — Þriðjudagur 3. febrúar 1976 — 28. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. * . STJÓRNARSLIT? „Ekki af mínum völdum", segir Ólofur Jóhannesson „Ekki koma þau af mínum völdum á næstunni,” sagði Ólafur Jóhannesson. dómsmálaráðhcrra, er hann var spurður að því hvort stjórnarslita væri nú að vænta. — Hvort vfirlýsing Cíunnars Thor- oddsen hcfði komið honum á óvart? — Ég veit að cnnþá cru í Sjálf- stæðisflokknum ýmsir drengilegir menn og þessi vfirlýsing var sérlega drengileg. Henni mun ég seint gleyma,” sagði Ólafur. — Hvort hann óttaðist, að dagbl. Vísir myndi höfða mál gegn honum? „Nei, — mér væri nú nokkuð sama,” sagði Ólafur. „Það færi þá aldrei öðruvísi en að þeir hefðu af mér einhverjar krónur og þær tek ég ekki með mér hvort eð er og þeir ekki heldur. —HP. Þessi hlutafélög hafa rekið veit- ingahúsið Klúbbinn, sem nú hefur meðal annars blandazt inn í stór- pólitískar umræður á Alþingi. Bær hf var stofnað 30. júní með kr. hlutafé. Tilgangur félagsins, er m.a. talinn rekstur gisti- og veitingahúss, skemmtanahahald, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. Formaður stjórnarinnar og fram- kvæmdastjori ineð prókúruumboði er skráður Sigurbjörn Eiríksson, Álfsnesi, Kjalarneshreppi. Aðrir hluthafar eru skráðir: Gróa Bærings- dóttir, Magnús Leópoldsson, sem einnig var með prókúruumboð, Björk Valsdóttir, Siggeir M. Eiríks- son, Bjargarstíg 15, Guðný. Sigur- björnsdóttir og Jón Ragnarsson, Fífuhvammsvegi, ritari. Lækjarmót hf. var stofnað hinn 5. september 1973. Tilgangur félag- sins var sagður rekstur gisti- og veitingahúss. og skemmtanahald. Formaður stjórnar Guðjón Jóns- son, Skálholtsstíg 2 a, aðrir í stjórn: Magnús Leópoldsson, sem fór með framkvæmdastjórastarf og prókúru- umboð, og Magnús A. Magnússon, Dalbæ, Blesugróf. Aðrir stofnendur voru: Björk Valsdóttir, Skálholtsstíg a, og Hallur Leópoldsson, Austur- brún 2. Hlutafé var kr. 300.000. —BS. Hvers vegna birtast Vilmundur og Valdimar ekki i Kastljósi ? Það hefur enginn kippt í spottann" segir fréttastjóri sjónvarps - formaður útvarpsróðs telur Vilmund œsifréttamann „Það hefur ekki verið kippt í spoti- ann af neinum mönnum bak við tj>öidin,”sagði Emil Björnsson frétta stjóri sjónvarpsins, í morgun. Margir virðast álíta að þcim Vilmundi Gylfasyni og Valdimai' Jóhanncssyni hafi verið varpað fyrir borð úr þætt- inum Kastljósi, fréttaskýringaþætti sjónvarpsins. Hafa þeir þótt skara nokkuð fram úr fréttamönnum sjón- varps hvað því viðvíkur að ganga hreint og beint til verks í spurning- um sínum. Valdimar Jóhannesson sagði í morgun að hann vissi ekki hvað gerzt hefði. Þeir félagar hefðu haft sjón- varpsviðtai vio Jóii Sólnes, formann Kröflunefndar í nóvember síðastliðn- um, en síðan hefði ekki verið óskað eftir þeim Vilmundi í þáttum þessum. í haust hefði þó verið látið í það skína að þeir Vilmundur mundu taka að sér þætti nokkuð reglulega. „Varðandi Vilmund, þá skil ég reyndar ekki hvernig sjónvarpið getur haft efni á að sleppa svo góðum krafti sem Vilmundur er,” sagði Valdimar. Emil Björnsson sagði í viðtalinu við DB að fréttamenn sjónvarps, þeir sem sjá um Kastljósþættina, vcldu sér samstarfsmenn hverju sinni og iicíöu hjúLai licudui í þeiin efnum. Guðjón Einarsson vinnur nú að gerð næsta Kastljóssþáttar ásamt Baldri Öskarssyni. Guðjón sagði í morgun að útvarpsráð hefði óskað eftir því í haust að umsjónarmenn reyndu að velja sem flest andlit með sér í þættina í vetur, en engir fastir menn hefðu verið ráðnir við þáttinn eins og áður var. Vilmundur hefði þó komið þrívegis í þættina í vetur. Yrðu umsjónarmenn því vart sakaðir um að hafa vanrækt hann í þessum efnum. Formaður útvarpsráðs er Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Tímans. Hann segir í leiðara í blaði sínu í morgun m.a. álit sitt á Vilmundi og skrifum hans: „Það hefur komið hvað eftir annað í ljós, áð bæði hinum unga Alþýðuflokksmanni (þ.e Vilmundi) og þeim sjálfstæðismönnum sem standa að Vísi, er mjög í nöp við Ólaf Jóhannesson dómsmála- ráðherra. Hvað eftir annað hafa þessir samherjar reynt að koma höggi á hann. Hingað til hefur þetta engan árangur borið, og því hefur ekki þótt seinna vænna að reiða til höggs”. Kallar Þórarinn gagnrýnina á Ólaf klámhögg og líkir skrifum Vísis við ameríska æsifréttamennsku. Hvað þarf að bjóða þér til að gonga ÍKR? Sja íþróttir í opnu Rdðherra berst við Mafíu — úrvalskaflar úr Beinu línunni - bls. 8-9 Pósthús vallarins: Eiturefna lekinn inn í landið — bls. 8 Vaxandi stríðshœtta í Sahara Hanaat aftur ú Englandi - bls. 7

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.