Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 24
r ÍBÚÐARLEIGAN HEFÐI KOSTAÐ BÆJAR- frjálst,áháð dagblað Þriðjudagur 3. febrúar 1976 A RETTUM TIMA — 26 þúsund blöð, — uppselt á afgreiðslunni DAGBLAÐIÐ kom út í gær, prentað í prentsmiðju Arvakurs h.f. í Skeifunni 19, en unnið að öðru leyti í hinni nýju prentsmiðju DB. Þetta var 118. tölublað DB, — og það fvrsta scm kom úi á réttum tíma. Prentun hófst laust upp ör. 12 á hádegi og lauk um kiukkan hálf-tvö. Prentuð voru 26 þúsund eintök af blaðinu í gær — og seldust þau gjörsamlega upp hjá afgreiðslu blaðsins og margir útsölustaðir voru orðnir blaðalausir undir kvöld og óskuðu eftir fleiri blöðum, en því miður var ekki hægt að hjálpa upp á sakirnar.. Ymis tæknileg vandamál komu upp við prentun fvrsta blaðsins við þessar aðstæður en næstu daga vcrð- ur unnið að því að leysa þau. Meðal vandamálanna er leturstærðin, en von er á stærra letri, blaðaletri,í stað bókaletursins sem blaðið verður að nota fyrst í stað. -JBP- • • Olvaður ökumaður velti bíl sínum Bílvelta varð á Vesturlandsvegi á móts við Lágafell í nótt. . Fólksvagni var ekið þar út aí veginum og fór hann eina veltu, áður en hann stöðvaðist á hjólunum á ný. Fernt var í bílnum, ökumaður, tvær konur og barn. Voru konurnar fluttar á slysa- deild með minniháttar skrámur en ökumaður fluttur í blóðprufu, þar sem hann hafði viðurkennt að hafa bragðað áfengi, áður en ökuferðin hófst. Bíllinn var eitthvað dældaður og þurfti að fá kranabifreið til að ná honum upp á veginn á ný. —HP. Útilegumaður fundinn FÉLAGIÐ 7-8 MILLJ. Undanfarna daga hefur verið lýst eftir manni, sem horfið hafði frá heimi sínu fyrir nokkrum dögum. Maður þessi kom í leitirnar í gærmorgun í húsi, þar sem kvartað hafði verið undan nærveru hans. Lögreglan taldi öruggast að flytja manninn á slysadeild, þar eð hann- var vannærður og eitthvað hruflaður eftir útivistina. —HP. Dagblaðið hefur aflað scr nánari upplysinga um það, sem leiddi til þess að Sigfinni Sigurðssyni, bæjar- stjóra í Vestmannaeyjum, var vísað úr starfi á laugardaginn. Sumt af því hefur minnihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja raunar þegar kært til saksóknara ríkisins og er viðbragða hans vænzt á hverri stundu. Það sem gerði þó útslagið var „íbúðaleigan," sem Sigfinnur vildi koma á við bæjarstjórn. Eins og skýrt var frá í Dagblaðinu í gær. vildi Sigfinnur leigja tvær íbúðir af bænum í tvö "ar á „sérstökum kjör- um,” eins og einn bæjarfulltrúi orðaði það. Aður en bæjarstjórn hafði tekið endanlega afstöðu til málsins hafði Sigfinnur látið brjóta niður vegg á milli íbúðanna svo úr yrði ein. Sigfinnur hafði einnig farið fram á það að fá að innrétta íbúðirnar eftir eigin höfði, í stað þess að nota þær stöðluðu innréttingar er fylgdu bæjaríbúðunum. Upphaflega féllst meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á þessa ósk Sig- finns, jafnframt þeirri að leigan yrði 15000 krónur á mánuði fyrir báðar íbúðirnar. Þá gerði Sigfinnur þá kröfu — eða lagði fram um það ósk — að lcigutíminn yrði þrjú ár en að þeim tíma liðnum gæti hann keypt íbúðirnar á núgildandi kostnaðar- verði — og gengju þá leigugreiðsl- urnar upp í kaupverðið. íbúðir þessar eru m.a. byggðar til að útrýma héilsuspillandi húsnæði og lánar ,,hið opinbera” allt að 80% byggingarkostnaðar, bæjarfélagið greiðir megnið af hinu. Minnihluta- menn sáu sér leik á borði og á næsta bæjarstjórnarfundi lagði Magnús Magnússon, fvrrum bæjarstjóri spilin á borðið fyrir bæjarstjórnarfulltrú- ana: Með því að ieigja — og síðan selja — Sigfinni húsnæðið væri ekki bein- línis verið að útrýma heilsuspillandi húsnæði. Þar með myndi ríkið ekki lána nema hluta af því sem að öðrum kosti yrði lánað, nefnilega þau 80% sem á nndan er getið. Þannig gæti bæjarfélagið reiknað sér beint fjár- hagslegt tap, allt að átla milljónum króna, miðað við ákveðna verðbólgu- þróun, á því að ganga að kjörum Sigfinns. Meirihlutamenn sannfærðust, eftir að hafa hugsað málið gaumgæfilega. En þá var Sigfinnur búinn að brjóta niður vegginn. -ÓV. f#Get ekkert um þoð sagt" segir stjórnarformaður útgófufélags Vísis um hvort dómsmdla- raðherrc verður stefnt fyrir ummœli sín um „mafíu" og „glœpa- menn" er standi að útgdfu Vísis Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum hefur Ólafur Jóhannesson. dómsmálaráðherra, ítrekað talað um aðstandendur dagblaðsins Visir sem „rnafiu.” Síðast í gær sagði ráðherr- ann á Alþingi, að „mafía er það og mafía skal það heita.” Vísir sagði í forsíðugrein Þorsteins Pálssonar ritstjóra í gær, að drægi ráðherra þessi ummæli sín ekki til baka, yrði hann að svara fyrir þau ,,að réttum lögum.” ólafur Jóhannesson sagði í útvarpsþættin- um „Bein lína” í fyrrakvöld, að „Vísismafían” yrði að „svara til saka” fyrir grein Vilmundar Gylfa- sonar í Vísi á föstudaginn, þar scm Vilmundur sakar Ólaf og ráðuneyti hans um óeðlileg afskipti af rannsókn sakamála. Vegna þessa hafði fréttamaður blaðsins samband við Ingimund Sigfússon, stjórnarformann útgáfu- félags Vísis, og spurði hann hvort stjórn Vísis hygðist stefna dóms- málaráðherra fvrir ummæli sín. „Um það get ég ekkert sagt,” sagði Inginnindur. „Ég hef satt að segja ekki áhuga á að ræða það.” Þá var Ingimundur spurður að því, hvort Vísir myndi styðja við bakið á Vilmundi Gylfasyni í þeim átökum, sem hann kynni að eiga í á næstunni. „Ég skil alls ekki hvað þú ert að fara,” sagði Ingimundur Sigfússon. —ÓV. Dagblaðið í prent- smiðju Árvakurs: Nýja blaðið skoðað í prentsmiðju Árvakurs í hádeginu í gær, frá vinstri Sveinn R. Eyjólfsson, framkvæmda- stjóri Dagblaðsinsjóhannes Reyk- dal, útlitsteiknari, Ólafur Brynjólfs- son, prentsmiðjustjóri Hilmis, Jónas Kristjánsson ritstjóri og Benedikt Jónsson, framkv.stj. Hilmis h.f, en það fyrirtæki sér um filmu- og plötu- gerð Dagblaðsins (DB-mynd Bjarn- leifur) Fannst fótbrotinn ó götu Um klukkan eitt í nótt kom lög- reglan í Reykjavík að manni þar sem hann lá ósjálfbjarga á götunni við gatnamót Nóatúns og Borgar- túns. Kom í ljós, að hann hafði dottið í hálkunni og fótbrotnað og gat því litla björg sér veitt. Maðurinn, sem er utanbæjar- maður, var fluttur á slysadeildina, þar sem gert var að meiðslum háns. — HP. IFYRSTA SINN A MARKAÐI Níu bátor gerðir út frá Stokkseyri á vetrarvertíð — „Það cru allir að undirbúa sig á vertíðina og cr það aðalumræðuefni manna hér núna,” sagði sveitarstjór- inn á Stokkscyri, Steingrímur Jóns- son, í viðtali við Dagblaðið í mo.gun. „Vertíðin byrjar í dag. Alls verða níu bátar gerðir út frá Stokkseyri. Þrír eru þegar byrjaðir, hófu raunar róðra um áramót. Þeir hafa lagt upp í Þorlákshöfn, og kemur með því gífurlegur aukakostnaður á aflann, en það kostar. tvær kr. á hvert kg að flvtja fiskinn frá Þorlákshöfn og hing- að. Aflinn hefur að mcstu lcyti vcrið ufsi, sem er flakaður og saltaður hér á Stokkseyri, lil útflutnings á Þý/.ka- landsmarkað. Bátarnir sem gcrðir eru út frá okkur eru frá 105 tonnum upp í 180 tonn á stærð. Stærstu bátar, sem við getum tekið á móti her í höfninni, cru 80 tonn.” — Hvernig hefur afli þeirra verið? „Ég held að hann hafi verið nokk uð sæmil'egur. Sá sem mest hefur aflað hefur fengið um 200 tonn og hinir tveir eru komnir með á annað hundraðið. Nú eruin við að búast við að fá loðnu til vinnslu, og verður einnig að aka henni hingað frá Þorlákshöfn.” — Er búið að laga skemmdirnar sem urðu hjá vkkur í nóvember sl? „Nei, við höfum cnga fyrirgrciðslu fengið enn. Það er mjög bagalegt, því ef það kæmi eitthvert brim að ráði er hætta á landbroti. Sjóvarnargarður- inn þarfnast mikillar lagfæringar og sömuleiðis þarf að lagfæra landbrot sem varð hér fyrir austan kauptúnið. Við höfum fengið vilyrði fyrir 700 þúsund kr. fjárveitingu frá alþingi, en það segir lítið í svo fjárfrekar framkvæmdir sem þessar.” — A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.