Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 13
Dagblaðið. Þriðjudae;ur 3. febrúar 1976. 13 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 8> Gneistandi færi og sól á bláum himni í Innsbruck í gær. Æf t stíf t í Innsbruck Olympíuleikarnir í Innsbruck í Austur- ríki verða settir á morgun. Keppendur verða 1036 á hinni 12 daga íþróttahátíð. Aðstæður eru hinar beztu og undanfarna daga hefur íþróttafólkið kynnt sér aðstæður — æfingakeppni hefur verið í alpagreinum með þátttöku þeirra beztu. í lbrunkeppni náði Austurríkismaður- inn Anton Steiner beztum tíma í gær — fór brautina á 1:49.04 mín. — þremur hundruðustu úr sekúndu betri en Ken Read, Kanada. Austurríkismaðurinn Franz Klammer, sem er talinn sigurstranglegastur í brun- keppninni — sigraði í átta mótum af níu í bruni í heimsbikarkeppninni 1974-1975 — keyrði á 1:49.96 mín. Tími Steiners var 6.74 sek. betri en Klammer náði þegar hann setti brautarmet þarna í Innsbruck í fyrra — og miklu betri tími en fram- kvæmdanefndin hafði reiknað með að mundi nást. Þetta hefur valdið henni nokkrum áhyggjum — Brautin of „hröð” og því jafnvel hættuleg. Erik Haker, Noregi, sem keyrði á 1:51.45 mín. taldi þó eftir á, að brautiri væri ekkert sérstak- lega ,,hröð*— en, sagði hann, hún er fyrst og fremst erfið. Minnstu mistök hvar sem er í brautinni geta kostað sigur. Mér gekk vel — og ég vona, að svo verði einnig þegar sjálf olympíukeppnin hefst. íshokkey í Innsbruck Undankeppni fyrir íshokky-keppnina á Olympíuleikunum í Innsbruck hófst í gær. Pólland sigraði þá Rúmeníu 7-4, Vestur- Þýzkaland sigraði Sviss 5-1 og Tékkóslóvakía sigraði Búlgaríu 14-1. og Uruguay kom- ust í úrslit Brazilía og Uruguay hafa tryggt sér rétt í úrslitakeppni knattspyrnunnar á Olynipíuleikunum í Montreal í sumar. Keppnin í Suður-Ameríku — for- keppnin fyrir Montr'eal — stóð í 11 daga og tóku sex lönd þátt í henni. Tvv efstu löndin tryggðu sér réttinn, en lokastaðan varð þannig: Brazilía 5 -1 1 0 12-2 9 Uruguay 5 2 3 0 9-4 7 Argentína 5 2 12 7-8 5 Kolombía 5 1 2 2 5-9 4 Clhile 5 113 5-6 3 Perú 5 10 4 2-112 Hvað þarf að bjóða þér til að ganga í KR?! Tilboð, sem einn fremsti frjólsíþróttamaður Ármanns, fékk fró KR-ing — „Beðinn ó nœr hverri œfingu að ganga í KR" segir Óskar Jakobsson, efnilegasti kastarinn hér Það hefur ekki farið framhjá neinum, að margt af bezta frjálsí- þróttafólki íslands hefur gengið í KR síðustu vikurnar og mánuði.KR, þetta gamla stórveldi í ís- lenzkum frjálsíþróttum, sem byggði á eigin grunni undir forustu Benedikts heitins Jakobssonar, þess snjalla þjálfara, var orðið heldur þunnt í roðinu á þessu sviði síðustu árin, en nú hefur orðið skyndi- leg breyting. Hvers vegna? í síðustu viku birtist hér í opnunni viðtal við Guðmund Þórhallsson, þjálfara ÍR sem fram kom, að hann hefði ekki upplifað annan eins áróður um félagaskipti og nú síðan hann gerð- ist þjálfari 1948. Margir fleiri líta þau félagaskipti sem orðið hafa, alvarlegum augum. Hér á eftir fara nokkur viðtöl sem blaðið hefur tekið við frjálsiþrótta- fólk. Óskar Jakobsson, Islandsmethafinn í spjótkasti, efnilegasti kastari landsins, sagði: — „Það var mikið gert í því sl. sumar og fram eftir ári að fá mig til að ganga í KR — mikil ósköp. Á næstum hverri æfingu var komið til mín í þeim tilgangi og mér boðin fín aðstaða í KR. Það var aðallega Valbjörn Þorláksson, þjálfari KR-inga. Einnig er mér kunn- ugt um að leitað var til fleiri. Þetta er ákafiega leiðinlegt — já, sérstaklega að Elías Sveinsson, sá góði félagi skyldi láta svona áróður blekkja sig og gánga KR. Ég er ákveðinn í að halda áfram í ÍR. •Stefán Jóhannsson, þjálfari Ár- manns. — „Það er mikið leitað til frjálsíþróttafólks okkar í Ármanni og það beðið að ganga í KR, en hefur minnkað að undanförnu, þar sem þeir hafa fundið að það mun ekki takast. í fvrravetur var reynt að fá frjálsíþrótta- stúlkur okkar yfir — og undirbúningur * var hafinn árið þár áður, en aðeins Erna Guðmundsdóttir gekk yfir í KR. Einnig hefur verið rætt við frjálsí- þróttamenn Ármanns — spurt hvað þeir vildu. Við einn fremsta frjálsí- þróttamann félagsins var sagt orðrétt. Hvað þarf að bjóða þér til að ganga í KR? Þetta er ákafiega hvimleitt. Einn þessara KR-inga hefur sagt, að það væri ágætt að láta Ármann og ÍR ,,Ala upp” íþróttafólk og „hirða” það svo. Þetta er aðeins byrjunin, sagði hann ennfremur. Það fer ekki milli mála, að það hefur vcrið sótzt eftir frjálsíþróttafólki okkar og það stíft. En það er öruggt, að þeir KR-ingar sem það hafa gert, koma ekki fram vilja sínum. í Ármanni er enginn, sem æfir upp á eigin spýtur — þar er íþróttafólk, sem þarf þjálfara. Það í- þróttafólk, sem hefur gengið í KR æfir hins vegar á eigin spýtur —og þjálfari er því ekki svo mikið atriði fyrir það.”. Ingunn Einarsdóttir margfaldur íslandsmethafi í hlaupum, sagði. „Það gekk mikið á hér áður og ég veit um íslenzka landsliðið sigrað varnarliðið suður á Kefiavíkurvelli á sunnudaginn með 87-81. Leikurinn var mjög vel leikinn af beggja hálfu. Varnarliðs- menn voru lengst af yfir og mínútum leiksins að íslendingum tókst Sigurðsson úr Ármanni inn a og bein- línis „vann” lcikinn. Jón var í bana- stuði. — Fiskaði sendingar auk þess sem ýmsa, sem KR-ingar hafa reynt að fá í félag sitt. Hins vegar hafa þeir ekki rætt við mig — hafa vitað að það var tilgangslaust. Þetta er ekki gott. Það er ekki byggt á neinum grunni í KR aðrir látnir byggja upp og svo reynt að fá íþróttafólkið frá þeim.” Friðrik Þór Óskarsson, stökkvarinn kunni í ÍR, sagði. „Mikið hefur borið á því, að áróður hafi verið fyrir félaga- skiptum undanfarið. Eftir að Valbjörn Þorláksson byrjaði að þjálfa hjá KR og tók með sér Ernu Guðmundsdóttur úr Ármanni, hefur þessi áróður farið vax- andi. Valbjörn segir í viðtali, að menn ættu ekki að vera að brjóta niður það uppbyggingarstarf, sem frjálsíþrótta- deild KR vinnur. Hversu mikið^ upp- byggingarstarf er það að reyna að lokka „toppinn” úr öðrum félögum? Vgsri ekki nær að efia eigið unglingastarf. Þá var haft eftir Elíasi Sveinssyni, að hann hefði getað unnið þá menn, sem kepptu á meistaramótinu á Laugar- vatni á dögunum í atrennulausum stökkum á „annarri löppinni”. Svona fullurðingar eru auðvitað út í loftið — og lýsa Elíasi sjálfum, auk þess sem óleyfilegt er að stökkva á öðrum fæti. Að sjálfsögðu er Elíasi frjálst að skipta um félag — en við hjá ÍR munum hann átti frábærar sendingar og skor- aði. Þegar Jón kom inn á var staðan 76-71 varnarliðsmönnum í vil og á þessum mínútum vannst leikurinn. Einnig var Jónas Jóhannsson, hinn vax- andi leikmaður úr UMFN, mjög drjúg- ur og má segja, að hann og Jón hafi verið beztu menn í leiknum. Það sem ef til vill vakti mesta athygli halda áfram okkar starfi — uppbygg- ingarstarfi”. Karl West, Breiðabliki, einn bezti stökkvari íslands. „Guðmundur Jóhannsson, stangarstökkvari, tilkynnti formanni frjálsíþróttadeildar okkar, Hafsteini Jóhannssyni, að KR-ingar hefðu reynt að fá hann til að skipta um félag. Guðmundur hefur ekki gert það. Til okkar Hafsteins hefur hins vegar ekki verið leitað — enda báðir stjjórnar- menn í Breiðabliki. Af þeim störfum látum við fijótlega og hvað þá verður er ekki gott að segja.”. Þá snéri blaðið sér til Arnar Eiðsson- ar, formanns Frjálsíþróttasambands ís- lands. „Við í FRÍ höfum ekkert fjallað um félagaskiptin. Það mál verður ekki tekið fyrir nema sérstök ósk berist um það. Hins vegar hef ég frétt, að bréf væri á leiðinni til stjórnarinnar um þetta mál.” Einnig snéri blaðið sér til Úlfars Teitssonar, formanns Frjálsíþrótta- deildar KR til að fá fréttir af starfsemi deildarinnar. Úlfar neitaði hins vegar að tala við blaðið á þeirri forsendu, að það hefði birt viðtal við Guðmund Þórarinsson án þess að leggja það undir hann áður en það birtist. Furðulegt — og það er fieira furðu- legt í þessum málum öllum. —hsím. var að mörgum fslendingum var vísað frá vellinum vegna þess að þeir höfðu ekki passað inn á völlinn. Eitthvað virðast varnarliðsmenn vera orðnir smeykir um sjálfa sig — ástæðan sem gefin var var að nú væri landhelgismál- ið í fullum gangi og mönnum því ekki treystandi inn á vallarsvæðið. Góð á- stæða eða hitt þó heldur. h.halls. ísL landsliðið vann — Fjölda manns var vísað frá flugvellinum SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK f Ef skiðin eru færð i sundur að aftan, munu þau virka eins og plógur, munið að hafa bogin hné. Því meir sem innri köntunum er beitt þvi styttri verður stöðvunarvegalengdind. Þegar innri köntunum er beitt eru hnén færð saman og auðvitað eru þau höfð kogin. Reynið mismunandi stóran plóg og beitið innri köntunum og athugið hyernig stöövunarvegalengdin breytist. Ég skil þig flugstjóri — en staðreyndin' ^er, að Polli þarf læknishjdlp ■ . strax. ^Ég veit það en ég k /get ekki leyft neinum að Vyfirgefa staðinn um stund. Fyrirgefðu, stjóri, sjáumst siðar....J Bommi hleypur af stað með ákafan \ Ihjartslátt, inn ifrumskóginn,ákveöinn að N\n 'ná ihjálp — sama I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.