Dagblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 23
Dagblaðið. Þriðjudagur. 3. febrúar 1976.
Útvarp
23
Sjónvarp
HÉRNA KEMUR
KONAN HANS
COLUMBOS
Nú hefur Columbo verið á skerm-
inum í fimm ár. Hann hefur oft talað
um „konu sína” í þáttunum en hún
hefur samt aldrei komið fram. Fólk
um gjöryallan heim, sem fylgzt hefur
með þáttum hans, hefur borið fram
eindregnar óskir um að fá að sjá „frú
Columbo.”
Hérna er hún, frú Alice Falk,
eiginkona Columbos í einkalífinu.
Hann hefur annars gætt þess vand-
lega að járnhliðið að heimili þeirra í
Beverly Hills sé vandlega læst, engu
líkara en um væri að ræða herbúðir,
þar sem geymd væru hernaðar-
leyndarmál.
Nú hefur Falk hins vegar leyft
Ijósmyndurum að koma inn fyrir og
mynda konu sína og fósturdætur
þeirra tvær, Jackie sem er átta ára og
Catherine fjögurra ára. Þau hjónin
hafa verið gift í fimmtán ár en ekki
getað eignazt börn sjálf, svo þau
ættleiddu þessar tvær telpur.
Fjölskyldan býr í meðalstóru húsi
sem kostaði um 36 millj. ísl. kr., sem
þykir ekki ýkja mikið þar í landi.
Öðrum megin við þau býr kvik-
myndaleikarinn Kirk Douglas og hin
„eilífa jómfrú kvikmyndanna”, Doris
Day, býr hinum megin við þau. Því
hefur verið haldið fram að Peter Falk
kunni ekkert mjög vel við sig í þessu
dýra og fína umhverfi. „Þótt ég ætti
á hættu að ráðizt yrði á mig,” segir
hann, „vildi ég miklu heldur vera í
New York. Hér í Beverly Hills er
ekki nokkur einasti maður á ferli.”
Peter Falk fæddist fyrir 48 árum á
Peter Falk er nýfarinn að leggja fyrir
sig teikningu og virðist býsna drátt-
hagur.
Peter Folk hefur haldið
henni vandlega leyndri
Alice og Peter mæta á frumsýningu á
einni af myndum hans, en annars
eru þau ekki mikið fyrir „hið Ijúfa
næturlíF’.
Manhattan og er sonur Gyðinga-
kaupmanns. Þótt hann sé í dag einn
af hæstlaunuðu kvikmyndastjörnun-
um í Bandaríkjunum, hefur hann
mjög lítinn áhuga á peningum, um-
hverfi sínu eða sjónvarpshlutverki
sínu yfirleitt. Síðari hluta árs 1975
voru teknar sjö sjónvarpsmyndir um
hetjuna Columbo. Fyrir hverja mynd
fær hann greitt sem svarar rúmlega
25 millj. kr. Þetta eru miklir
peningar, sérstaklega þegar tekið er
tillit til þess að hver 90 mínútna
þáttur er ekki nema 10 daga í upp-
töku. Bankainnistæða Peter Falk vex
því drjúgt á hverju ári. Kvikmynda-
félög og leikhússtjórar keppast um að
fá Columbo í þjónustu sína. Það
virðist ekki standa í vegi fyrir frama
hans þótt hann sé ekki nema 168 cm
á hæð, með glerauga hægra megin og
jafnan ógreiddur, hafi óstöðugt
göngulag og sé í alla staði frekar
óásjálegur.
„Við getum þakkað Columbo fyrir
að við eigum alltaf salt í grautinn og
smjör á brauðið,” segir, Peter Falk.
„En ef ég leik í venjulegri kvikmynd
fæ ég helmingi meiri laun og tíma. í
hvert skipti sem ég fæ nýtt sjónvarps-
handrit í hendur setur að mér
skjálfta, tíminn til upptökunnar er
alltaf of naumur og það skerðir gæði
myndarinnar oft á tíðum.”
Þegar Peter Falk er ekki að vinna
heyrist ekki mikið frá honum. Hvorki
hann eða Alice kona hans, sem er
fyrrverandi tízkuteiknari, kæra sig
um að stunda næturklúbbalíf.
Þau hjónin helga sig algjörlega
dætrunum og leika við þær í hinu
eilífa sólskini Kaliforníu eða þá að
þau fara í bílferðir, enda ekki í kot
vísað, því þau eiga bæði Jaguar og
loftkældan Rolls Royce.
Áður fyrr lék hann tennis af miklu
kappi, en það var dálítið erfitt fyrir
hann vegna þess að hann er eineygð-
ur. Augað missti hann af völdum
sínum í leik við dæturnar tvær í góða
veðrinu í Kaliforníu.
Frú Alice Falk er fyrrverandi tízkuteiknari.
heilaæxlis sem hann var skorinn upp
við þegar hann var þriggja ára
gamall. Áður fyrr var hann einnig
áhugasamur biljardleikari, en nú
hefur hann lagt það á hilluna fýrir
fullt og allt.
„Þegar það rann upp fyrir mér, að
ég er ekki neitt unglamb lengur,
ákvað ég að hætta. Ég vildi ekki líta
til baka og sjá að ég hefði eytt 75
þúsund klukkutímum við biljard-
borðið,” segir Peter Falk.
Hann hefur fengið áhuga á að
teikna nakta kvenmenn og einnig
teiknar hann myndir af dætrum sín-
um heima á Foothill Road.
Eins og svo margir aðrir kvik-
myndaleikarar er Peter Falk hrædd-
ur við að áhorfendur „skipi honum í
ákveðinn bás,” og vill því gjarnan
segja skilið við hlutverk löreglu-
mannsins Columbo. Hann ætlaði að
vera hættur fyrir löngu en jafnan
látið undan, bæði vinum og framleið-
endunum, um ,,að gera bara eina
seríu í viðbót.”.
En nú hefur hann tekið ákvörðun
um að þeir þættir sem teknir voru
upp í janúar og um þetta leyti verði
þeir allra síðustu. Það verður spenn-
andi að vita hvort hann stendur við
það.
Við hér á íslandi þurfum ekki að
vera hrædd um að sýningar áþáttum
hans hætti vegna þess að ekki séu til
nógir þættir, því þeir skipta mörgum
tugum sem hann hefur leikið í á
undanförnum árum.
Nú hefur verið breytt um sýn-
ingardag í sjónvarpinu hjá okkur, og
Columbo er sýndur í kvöld og
verður framvegis á þriðjudagskvöld-
um í stað miðvikudags, eins og verið
hefur. —A.Bj.
wmmmmmmmmmm
(!
jigSjónvarp
ÞRIÐJUDAGUR
. 3. febrúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: TónJeikar.
14.30 Póstur frá útlöndum. Send-
andi: Sigmar B. Hauksson.
15.00 Miðdegistónleikar. Hljóm-
sveitin Fílharmonía leikur tvo
forleiki eftir Weber, „Töfraskytt-
una” og „Preciosa”, Wolfgang
Sawallisch stjórnar Hljómsveitin
Fílharmonía leikur Sinfóníu nr. 3
í a-moll op. 56 Skozku sinfóníuna
eftir Mendelssohn, Otto Klemp-
erer stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
16.40 Litli barnatíminn. Finnborg
Scheving sér um tímann.
17.00 Lagið mitt. Anne-Marie
Markan sér um óskalagaþátt fyrir
börn yngri en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla í
spænsku og þýzku
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn-
ingar.
mmmammmmmmmmmmmmnamsimmmmmammBmmm
19.35 Orsakir landeyðingar á ís-
landi. Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins. Ragn-
heiður Drífa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér um
þátt fyrir unglinga.
21.30 Gítar úr gaddavír. Kynning
á pólitískum ljóðasöng í Þýzka-
landi eftir stríð. Tomas Ahrens
leikur á gítar. Kynningar:
Halldór Guðmundsson og Jórunn
Sigurðardóttir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„í verum,” sjálfsævisaga Theó-
dórs Friðrikssonar Gils Guð-
mundsson les síðara bindi (13).
22.40 Harmonikulög. Jo Basile og
hljómsveit hans leika.
23.00 „Ol Man Adam.”. Sögur
bandarískra svertingja af því, er
þeir Guð, Móses og Salómon
gamli gengu um meðal fólksins.
Mantan Moreland les.
23.40 Fréttir í stuttu máli. Dag-
skrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
3. febrúar
20.00 Fréttir og.veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Þjóðarskútan. Þáttur um
störf alþingis. Umsjónarmenn
Björn Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.10 Columbo. Bandarískur saka-
málamyndaflokkur. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
22.25 Utan ur heimi. Þáttur um
erlend málefni ofarlega á baugi.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.55 Dagskrárlok.