Dagblaðið - 03.02.1976, Page 17
Dagblaðið. Þriðjudagur 3. febrúar 1976
17
Veðrið
Vestan gola eða kaldi og él.
Hitinn verður um frostmark í
dag. Síðan vaxandi sunnanátt
og stinningskaldi með slyddu
þegar líður á nóttina.
t
EGILL ÓLAFSSON, Hrafnistu, lézt
26. janúar síðastliðinn. Hann verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í dag kl.
13.30.— Egill var fæddur 19. marz 1892
í Ytri-Njarðvík. Foreldrar hans voru
Elín Þorsteinsdóttir og Ólafur Jafetsson
sjómaður. Egill fór snemma til sjós og
lauk prófi frá Stýrimannaskólanum árið
1917 — vélaprófi lauk hann nokkru
síðar. Árin, sem hann var á sjó vann
hann ýmist sem háseti eða yfirmaður,
þangað til hann fór í land og gerðist
verkstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur.
Árið 1921 kvæntist Egill Ragnheiði
R. S. Stefánsdóttur. Þau eignuðust þrjú
börn og tóku jafnframt tvö í fóstur.
Konu sína missti Egill árið 1949.
Síðustu árin bjó Egill á Hrafnistu og
vann við netagerð og ýmislegt smádútl
fram á síðasta dag. — Hann var einn af
stofnendum Hásetafélags Reykjavíkur
og síðar Sjómannafélags Reykjavíkur
þar sem hann var heiðursfélagi.
WALTER BOURANEL, 1801
Albany Avenue, Brooklyn, NY,
andaðist 28. janúar síðastliðinn.
RÍKHARÐUR REIMAR JÓ-
HANNSSON, Sogavegi 152, lézt 1.
febrúar.
VALDIMAR ÞORVALDSSON, frá
Suðureyri, Súgandafirði, lézt í Land-
spítalanum 1. febrúar.
STEFÁN INGIMUNDARSON
kaupmaður, Vogagerði 8, Vogum
verður jarðsunginn frá Kálfatjarnar-
kirkju á morgun kl. 14.
MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR,
Fífuhvammsvegi 25, Kópavogi, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag kl.
15.
HÁSKOLAFYRIRLESTUR
Dr. philos. Edvard Befring, prófessor
í uppeldislegri sálarfræði í Árósum,
flytur opinberan fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands fimmtu-
daginn 5. febrúar nk. kl. 17.00 í stofu
301, Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist
Ungdom og ungdomsforskning i en
vestnordisk sammenheng.
ÖLLUM ER HEIMILL AÐGANG-
UR.
6 FERMETRA
miðstöðvarketill frá Stálsmiðjunni
ásamt brennara til sölu á tækifæris-
verði. Upplýsingar í síma 35051 eða
85040. Kvöldsími 75215.
OLÍUKYNDITÆKI
í góðu lagi til sölu. Ketill 2V2 ferm,
brennari og dæla, tveggja ára gömul.
Upplýsingar í síma 43784.
VEGNA FLUTNINGS
er til sölu nýlegt 24” sjónvarp HMW
með stálfæti, verð 70 þús. Einnig eru til
sölu 3 hansatjöld, stærð 112x112, verð 6
þús., eldhúsborð og 4 stólar með baki,
verð 25 þús. Til sýnis að Langholtsvegi
21, milli kl. 6 og 9.
TILSÖLU
ný vönduð útidyrahurð á kr. 35
þúsund, útsaumaður, kringlóttur antik-
stóll á kr. 8 þús, sem ný slides sýningar-
vél (Keystone) og tjald á kr. 25 þús.
sjónvarp RCA 26” FM—AM stereó
útvarp, hátalarar, fjarstýrt, allt í einu
húsgagni, mjög vandað, verð 350 þús.
Afborgunarskilmálar. Einnig er til sölu
handunninn kertastjaki úr smíðajárni,
spánskur, á 15 þús og nokkrar eftir-
prentanir í fallegum römmum. Sími
73204.
NORSKUR EVALET
rafmagnshitadunkur til sölu. Uppl. í
síma 41968 eftir kl. 17.
Umrœður utan dagskrár á Alþingi í gœr:
Krefst birtingar „sem flestra" bréfa
ráðuneytisins um rannsókn málanna
— Sighvatur Björgvinsson rœðir
afskipti dómsmálaráðherra af
rannsókn „Spíramálsins" og
hvarfi Geirfinns Einarssonar
í lok ræðu, sem Sighvatur
Björgvinsson flutti í umræðum utan
dagskrár á Alþingi í gær, varpaði
hann fram þeirri spurningu, hvort
bréf dómsmálaráðuneytisins til
bæjarfógetans í Keflavík frá 11. mars
1975 séu einu afskipti ráðuneytisins
af þeim sakamálum, sem unnið er að
rannsókn á. Sighvatur spurði hvort
fógeta hefðu borizt einhver munnleg
skilaboð frá ráðuneytinu, í því sím-
tali sem fulltrúi ráðuneytisins átti við
fógetaembættið til áréttingar bréfinu
þann sama dag. Bréf þetta birtist í
greinargerð dómsmálaráðuneytisins
vegna ásakana Vilmundar Gylfason-
ar á hendur ráðherra, Ólafi Jó-
hannessyni, og dórnsmálaráðuneyt-
inu, um að ráðherra hefði í tvígang
stöðvað sakarannsóknir á málum
veitingahússins Klúbbsins.
Spurningar
Sighvats
til ráðherra
Sighvatur spurði í ræðu sinni
nokkurra beinna spurninga í sam-
bandi við þessi mál og afskipti dóms-
málaráðuneytisins af þeim. Spurn-
ingar þingmannsins voru efnislega
eftirfarandi:
— Er rannsókn þess máls, er hófst
með ólöglegum flutningi vínbirgða
úr ríkisverslun í Klúbbinn haustið
1972 lokið og hefur ákæra verið gefin
út?
— Er rannsókn á meintum skatt-
svikum Klúbbsins lokið og hefur ák-
æra verið gefin út?
— Er rannsókn á meintri bók-
haldsóreiðu lokið og héfur sú rann-
sókn leitt til ákæru?
— Voru reglur og lög um hluta-
félög haldin við stofnun hlutafélags-
(ins Bæjar og hver var útkoman úr
þeirri rannsókn? (Bær h.f. rak veit-
ingahúsið Klúbbinn á þeim tíma.)
— Hefur sú ósk komið fram síð-
ustu daga frá þeim rannsóknarlög-
reglumönnum, er að rannsókn þess-
ara mála starfa um þessar mundir,
að ný rannsókn verði gerð á starfsemi
Klúbbsins, allt frá grunni?
Sighvatur Björgvinsson kvaðst
vilja leggja á það áherzlu, að við
rannsókn þessara sakamála yrði
„hvorki sparað fé né fyrirhöfn” og
lagði hann til, að sérstakri rann-
sóknarnefnd rannsóknarlögreglu-
manna yrði falin rannsóknin. Þing-
maðurinn hvatti einnig til birtingar
„sem flestra” þeirra bréfa, er dóms-
málaráðuneytið hefði undir höndum
um rannsókn málanna tveggja,
Spíramálsins og Geirfinnsmálsins.
Liggur á
upplýsingum
Þingmaðurinn lét að því liggja í
ræðu sinni, að hann hefði aðgang að
ýmsum viðbótarupplýsingum um
þátt ráðuneytisins í þessum málum.
Með þeim upplýsingum væri hann
nær um að hverju bæri að spyrja og
sagði Sighvatur að svör við þeim
spurningum gætu sagt til um þau
áhrif, er afskipti ráðuneytisins kynnu
að hafa — eða hafa haft.
Sighvatur vitnaði í bréf Inga Ingi-
mundarsonar, hrl., lögmanns þeirra
Sigurbjörns Eiríkssonar og Magnúsar
Leópoldssonar, þar sem talað er um
„einhvers konar stórfelld mistök” við
rannsókn þessara tveggja mála. Kvað
þingmaðurinn sig ekki fá séðaf þeim
gögnum er fyrir lægju, að ráðuneytið
hefði leitað umsagnar rannsóknarlög-
reglumannanna, sem um málið fjöll-
uðu, um þau „stórfelldu mistök,”
sem Ingi Ingimundarson vísaði til.
„Látið að því
liggja að ég
hafi hylmað
yfir morð”
Sighvatur Björgvinsson sagði að
lokum, að sér sýndust afskipti ráðu-
neytisins af fyrra málinu „ósæmileg
með öllu” og af báðum málunum
„vægast sagt mjög óæskileg.”
Ólafur Jóhannesson, dómsmála-
ráðherra, sagði í svarræðu sinni, að
sér þætti leitt til þess að vita að verið
væri að „bera rógskrif Vísis inn í
sali Alþingis.” Ráðherrann sagðist
telja sig vera borinn þungum sökum,
í fyrsta lagi að hafa að ástæðulausu
fellt niður bann við starfsemi
Klúbbsins á sínum tíma, og í öðru
lagi væri dómsmálaráðherra sakaður
um að hafa hylmað yfir mannshvarf.
Það er látið að bví liggja á milli
linanna, sagði Olatur Jóhannesson,
að ráðuneytið hafi þannig hylmað
yfir morð.
Sakaði ráðherra Sighvat Björgvins-
son um að „velta sér upp úr svaðinu”
í þeim „óhróðri,” sem borinn hefði
verið fram í grein Vilmundar Gylfa-
sonar í Vísi.
Ráðherra sagði hið svokallaða
Klúbbmál liggja hjá embætti ríkis-
saksóknara „og þar hefur það legið
allt of lengi,” sagði hann. Dómsmála-
ráðuneytið færi ekki með ákæru-
valdið, það gerði ríkissaksóknari.
Mestallan þann tíma, sem Klúbb-
málið hefði verið hjá ríkissaksóknara,
hefði það verið í höndum Hallvarðs
Einvarðssonar, vararíkissaksóknara,
sem var aðalfulltrúi embættisins er
Klúbbmálið kom upp, og sem „hátt-
virtur þingmaður gerði sér far um að
nefna oft,” sagði ráðherrann.
(Eíns og fram hefur komið var það
Hallvarður Einvarðsson, sem samdi
greinargerð embættis ríkissaksókn-
ara, þá er mest hefur verið vitnað í,
enda segir Hallvarður þar að „fyrr-
greind niðurfelling dómsmálaráðu-
neytisins hinn 20. þ.m. (okt. 1972) á
umræddu banni lögreglustjóra frá
14. þ.m. þykir því af hálfu sak-
sóknara hafa verið allsendis ótíma-
bær og ástæðulaus og ekki studd
almennum opinberum réttarvörslu-
hagsmunum.”
Dómsmálaráðherra sagði á þingi í
gær, að hvað varðaði rannsókn á
meintum bókhaldsbrotum og skatt-
svikum, þá hefði staðið á því, að
hæfur maður fengist til bókhalds-
rannsóknar, en nú muni hafa verið
úr því bætt.
„Lögreglumennirnir
misskildu bréfið”
Ólafur Jóhannesson sagði að hann
„leyfði sér” að halda því fram, að
rannsóknarlögreglumennirnir í
Keflavík hefðu misskilið fyrrgreint
'bréf ráðuneytisins til fógeta í Kefla-
vík frá 11. mars 1972. Eins og fram
hefur komið, m.a. í þingræðu
Sighvats Björgvinssonar, hefur
Haukur Guðmundsson, sem stjórn-
aði rannsókninni á Geirfinnsmálinu
á sínum tíma, lýst því yfir, að hann
haFi skilið bréf ráðuneytisins svo, að
hætta bæri yFirheyrslum og rann-
sóknum á högum þeirra Sigurbjarnar
Eiríkssonar og Magnúsar Leópolds-
sonar. Haukur hefur þó tekið fram,
m.a. í bréfi til Sighvats Björgvins-
sonar, að mögulega hefði hann mis-
skilið bréFið.
ólafur Jóhannesson sagði í fram-
haldi af þessu, að skýlaus lagabók-
stafurinn gerði dómsmálaráðherra
skylt að taka lokaákvörðun í málum,
sem skotið væri til hans. „Dómsmála-
ráðherra er ekki frjálst að láta það
vera, að taka ákvörðun. Ríkissak-
sóknari hefur ekkert um þetta að
segja. Eitt stjórnvald getur ekki farið
inn á valdsvið annars stjórnvalds.”
Ráðherra sagði einnig, að það
hefði ekki verið hann sjálfur eða
dómsmálaráðuneytið, sem aflétti
banninu við starfsemi Klúbbsins á
sínum tíma, það hefði ekki verið
beðið eftir sínum úrskurði. Það hefði
því verið lögreglustjórinn í Reykja-
vík, sem hefði aflétt banninu.
Sighvatur Björgvinsson hafði í
ræðu sinni lesið upp yfirlýsingu frá
lögreglustjóra, þar sem hann sagði
það hafa verið að fyrirlagi dóms-
málaráðuneytisins, að banninu var
aflétt, og kemur þetta raunar einnig
fram í gréinargerð ráðuneytisins frá
31. janúar sl.
Annar yfirheyrður
einu sinni, hinn aldrei
Um rannsókn og yfirheyrslur
þeirra Magnúsar Leópoldssonar og
Sigurbjarnar Eiríkssonar sagði dóms-
málaráðherra, að Magnús hefði einu
sinni verið kallaður fyrir, í lok janúar
1975, og þá spurður „um bifreiðar og
þess háttar” en Sigurbjörn hefði al-
drei verið kallaður fyrir. Afskipti
ráðuneytisins hefðu haflst drjúgum
tíma síðar, eða 11. mars það sama ár.
Ráðherra sagði Rúnar Sigurðsson,
rannsóknarlögreglumann, er hefði
aðstoðað rannsóknarlögregluna í
Keflavík við rannsóknina á hvafi
Geirfinns Einarssonar, fullyrða að
aldrei hafí verið ýjað að þyí við sig,
að rannsóknin mætti ekki beinast að
tveim áðurnefndum mönnum,þann-
ig að Keflvíkingunum hefði ekki ver-
ið það mjög ofarlega í huga.
Ólafur Jóhannesson sagði að þeim
Hauki Guðmundssyni og Jóni
Eysteinssyni, bæjarfógeta í Keflavík,
bæri saman um að síðasta athugun
„á þeim Klúbbmönnum” hefði verið
gerð 5. mars í fyrra. „Þannig tel ég
mig hafa gert ljóst, að ég hef ekki
torveldað rannsókn þessara mála á
nokkurn hátt,” sagði dómsmálaráð-
herra. —ÓV.
BAÐKER
með blöndunartækjum,. vaskur með
krönum og klósett er til sölu (gamalt).
Uppl. í síma 12711.
TIL SÖLU HILLUR
úr gaboni og spæni í búr og geymslur,
einnig hringborð úr palisander og 2
stólar, útileguborð og 2 stólar, taurúlla,
barnastóll í bíl, vanÖaður, barnakerra,
2 stk. flúrlampar í bílskúr. Allt á hálf-
virði. Uppl. í síma 74269.
I
Óskast keypt
8
ÍÓSKA EFTIR
að kaupa nouiö uókbandsáhöld. Upp-
lýsingar í síma 5.1459 mitli kl. 5 og 7.
LOGSUÐUKÚTAR
áskast til kaups. Upplýsingar i Ttftra
56279.
AFLÓGA ISSKÁPUR
óskast (litill). Símar 92-1202 og 92-3176
Verzlun
8
BLÓM OG GJAFAVORUR
við öll tækifæri. Opið til kl. 6 virka
daga. Blómaskáli Michelsens, Hvera-
gerði.
KJARAKAUP
Hjartacrepe og combicrepe nú kr. 176
pr. 50 gráður 196 pr. hnota. Nokkrir
ljósir litir á aðeins 100 kr. hnotan. 10%
aukaafsláttur af 1 kg. pökkum. Hoí
Þingholtsstræti 1. Sími 16764.
HEILDSALA
á alls konar fatnaði. Gallabuxur og
flauelsbuxur fyrir dömur og herra,
drengja- og karlmannaskyrtur, blússur
fyrir dömur í miklu úrvali. Nærfot fyrir
drengi og margt fleira. Kaupfélög og
verzlanir, komið og skoðið úrvalið. Allt
mjög ódýrt. Sími 30220. Laugarnes-
vegur 112.
ÚTSALA — HANNYRÐIR.
Hannyrðaverzlunin Lilja Glæsibæ býð-
ur stórkostlega útsölu. Hannyrðapakk-
ar, strammi, garn, stækkunargler, hann-
yrðablöð, laus mynztur, heklugarnið
okkar vinsæla í ýmsum litum, hann-
yrðalistaverkin okkar, naglalistaverkin
og gjafavara. Allt þetta og margt óupp-
talið er á útsölu hjá okkur. Póstsendum.
Einkunnarorð okkar eru: „Ekki eins og
allir hinir.” Hannyrðaverzlunin Lilja,
Glæsibæ. Sími 85979. 1
ÚTSALA — ÚTSALA "
Mikill afsláttur af öllum vörum verzl-
unarinnar. Barnafatnaður í miklu úr-
vali. Gerið góð kaup. — Barnafataverzl-
unin Rauðhetta, Hallveigarstíg 1.
(Iðnaðarmannahúsinu).
Fatnaður
8
SMÓKINGFÖT,
lítið notuð, nr 42, til sölu. Uppl, í síma
35460 eftir kl. 19.
BRÚÐARKJÓLL
og buxnadragtir. Hvítur brúðarkjóll til
sölu, stærð 38—40, einnig til sölu á
sama stað 2 vandaðar enskar buxna-
dragtir, stærðir 36. Uppl. í síma 41427.
Heimilistæki
IGNIS ÞVOTTAVÉL
svo til ónotuð til sölu. Upplýsingar í
síma 74644 milli kl. 4 og 6.
ROWENTA
grillofn til sölu á kr. 23.000. Sími 85609.
l
Fyrir ungbörn
SILVER-CROSS
barnavagn til sölu. Uppl. í síma 36032.
TAN-Sad
barnavagn er til sölu. Á sama stað
óskast til kaups barnakerra og bílstóll.
Aðeins viðurkenndur öryggisstóll kemur
til greina. Uppl. í síma 53703 eftirö.
HONDA CB 350
til sölu, árgerð 1975, lítið ekin, einnig
Fidelity stereosamstæða (húsgagn).
Uppl. í síma 52157 á milli kl. 18 og 20.
VIL KAUPA
mótorhjól, árgerð ’68—’74, alls
minna en 350 kúbik. Uppl. í
92-7411.
ekki
síma
Til bygginga
MÓTATIMBUR.
Öska eftir 2x4 tommu 1 undirslátt
undir plötu. notað, 230 til 240 cm.
Uppl. eftir kl. 17 í sima 27496.
BARNAVAGGA
OG BURÐARRUM TIL SÖLU. Upp-
lýsingar í sima 35405.
MOTATIMBUR TIL SÖLU,
1x4”, 1x6”, 2x4”. Upplýsingar í síma
20142.