Dagblaðið - 03.02.1976, Síða 22
22
Dagblaðið. Þriðjudagur 3. febrúar 1976.
1
NYJA BIO
Öskubuskuorlof.
Cinderella
Liberty
ÍSLENZKUR TEXTI
Mjög vel gerð ný bandarísk gaman-
mynd.
Aðalhlutverk
JAMES CAAN,
MARSHA MASON
Bönnuð börnum yngri en 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
TONABÍO
I
Skot í myrkri
(A shot in the dark)
Nú er komið nýtt eintak af þessari
frábæru mynd með Peter Sellers í
aðalhlutverki sem hinn óviðjafnanlegi
INSPECTOR CLOUSEAU, er margir
kannast við úr Bleika pardusinum.
Aðalhlutverk:
PETER SELLERS,
ELKE SOMMER,
GEORGE SANDERS.
ÍSLENZKUR TEXTI
Endursýnd kL5, 7 og 9.
I
BÆJARBIO
8
Hafnarfirði. Sími 50184.
Á flótta i
óbyggðum
Hörkuspennandi bandarísk kvikmynd,
byggð á metsölubók eftir Barry
England. Aðalhlutverk Robert Shaw,
Malcolm Mcdowell.
íslenzkur tcxti.
Sýnd kl. H og 10.
1
HAFNARBIO
8
Makt myrkranna
Hrollvekjandi, spennandi og vel gc'ró ný
kvikmyndun á hinni víðfrægu sögu
Bram Stoker’s um hinn illa greifa
Dracula og myrkraverk hans.
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Sýndkl. 3,5, 7,9 og 11,15.
I
LAUGARASBIO
8
Ókindin
JAWS
Mynd þessi hefur slegið öll aðsóknar-
met í Bandaríkjunum til þessa. Myndin
er eftir samnefndri sögu eftir PETER
BENCHLEY, sem komin er út á
íslenzku.
Leikstjóri:
STEVEN SPIELBERG
Aðalhlutverk:
ROY SCHEIDER,
ROBERT SHAW,
RICHARD DREYFUSS.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð innan 16 ára.
Hækkað verð.
I
GAMIA BÍÓ
8
Dýrkeypt játning
(Sweet Tortur)
Ný frönsk-ítölsk sakamálamynd með
ensku tali.
ROGER HANIN
CAROLINE CELLIER
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
/5
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
ISLENZKUR TEX I I
Leynivopnið
(Big Game)
Hörkuspennandi og mjög viðburðarík
ný ítölsk-ensk kvikmynd í ALISTAIR
MacLean stíl. Myndin er í litum.
Aðalhlutverk:
STEPHEN BOYD,
FRANCE NUYEN,
CAMERON MITCHELL,
RAY MILLAND.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
1
HÁSKOIABIO
8
Óskarsverðlaunamyndin
Guðfaðirinn
2. hluti
Fjöldi gagnrýnenda telur þessa mynd
belri en fyrri hlutann. Bezt að hvei4
dæmi fyrir sig.
Leikstjóri:
FRANCIS FORD COPPOLA.
Aðalhlutverk:
AL PACINO,
ROBERT DE NIRO,
DIANE KEATON,
ROBERT DUVALL
fSLENZKUR TEXTI
Bönnuð börnum.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 5-og 8.30.
ATH. breyttan sýningartíma.
STJÖRNUBÍÓ
8
Crazy Joe
ÍSLENZKUR TEXTI
Hrottaspennandi ný amerísk saka-
málamynd bvggð á sönnum viðburðum
um völdin í undirheimum New York
borgar.
Leikstjóri: CARLO LIZZANI.
Aðalhlutverk: PE FER BOYLE,
PAULA PRENTISS, LUTH.ER ADL-
ER, ELI WALLACH.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Hljómsveitin
Bella Donna
Útvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 21,10 í kvöld:
C0LUMB0
HEFUR FIUTT
SIG TIL
Leikarinn Petcr Falk missti hægra
augað af völdum heilaæxlis, sem
hann var skorinn upp við þegar hann
var barn að aldri, þannig að hann er
með glerauga.
Þeir félagar okkar McCloude og
Columbo hafa nú verið færðir til í
dagskrá sjónvarpsins og verða fram-
vegis á skjánum á þriðjudögum í stað
miðvikudaga áður.
í kvöld er þáð Columbo sem er á
dagskrá kl. 21.10. Þýðandi er Jón
Thor Haraldsson.
Að þessu sinni tókst okkur ekki að
fá fréttir af því hver er efnisþráður
þáttarins í kvöld, en vafalaust verður
hann spennandi eins og aðrir
Columbo-þættir. Mér finnst hann
hafa það fram yfir McCloude, að
allir þættirnir, sem sýndir hafa verið
hér, a.m.k., hafa verið alveg prýðileg-
ir og mjög spennandi en ég man eftir
tveim McCloude þáttum sem voru
alveg fyrir ncðan allar hellur.
Svo góða skemmtun í kvöld með
vini vorum Columbo. —A.Bj.
Sjónvarp kl. 20,40 í kvöld:
Hvað gerðist í þinginu í gœr?
í upphafi þáttarins Þjóðarskút-
unnar, sem er á dagskrá sjónvarpsins
kl. 20:40 í kvöld, verður Hermanns
Jónassonar minnzt.
Síðan er ætlunin að sýna upptöku
frá þingfundi í gær, en þegar þetta er
ritað var ekki ákveðin dagskrá þing-
fundarins.
Einnig voru ráðgerðar utan dag-
skrár umræður um ýms viðkvæm
mál, svo sem Klúbbmálið svonefnda
og fleiri skyld, og ef af þeim hefur
orðið voru þær einnig teknar upp og
verða fluttar í kvöld.
í lok þáttarins var ráðgert viðtal
við Jón Jónsson fiskifræðing eða stað-
gengil hans.
Stjórnendur þáttarins eru Björn
Teitsson og Björn Þorsteinsson.
—A.Bj.
Útvarpið í kvöld kl. 20,50:
„Að skoða og skilgreina"
W
ESKIM0AR
,,Það verður fjallað um Eskimóa til
forna og svo hvernig samfélag þeirra
er í dag og hvernig það hefur
breytzt,” sagði Kristján Guðmundss.
Inúk er um þessar mundir sýnt á litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu, en eins og
kunnugt er fjallar það um Eskimóa. í þættinum Að skoða og skilgreina í kvöld
verður einnig rætt um þá.
sem sér um þáttinn fyrir fyrir
unglinga, „ Að skoða og skilgreina.”
Pétur Guðbrandsson nemandi í
Menntaskólanum við Tjörnina, tók
fyrir í mannfræðihópi það verkefni
að rannsaka líf Eskimóa og við hann
ræðir Kristján. Þá verður einnig rætt
við Ása í Bæ, en hann fór til Græn-
lands á sínum tíma og skrifaði síðan
sögu sína „Granninn í vestri”.
Það er sem sagt baksvið hins
landsfræga Inuks sem er til umræðu í
kvöld. Raunar er Inuk ekki bara
landsfrægt heldur mikið meira en
það. Leikritið hefur verið sýnt víða í
Evrópu og vakið mikla athygli og
aðdáun. Hróður leikritsins hefur bor-
izt víða og nú mun leikflokkurinn
fara alla leið til Caracas í Venezúela
og sýna SuðurrAmeríkumönnum
hvernig menningu Eskimóa er hátt-
að. EVI
-iflriT
við
EDVARD BEFRING,
prófessor í uppeldis- og sálarfræði
Árósa-háskóla, flytur fyrirlestur um
SKÓLANN OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ
í Norræna húsinu miðvikudaginn 4. febrúar
kl. 20.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á
norsku og nefnist „Den aktuelle utfordring i
den socialpedagogiske professjon”.
FÉLAG ÍSLENZKRA SÉRKENNARA.
NORRÆNA
HUSIÐ