Dagblaðið - 05.02.1976, Page 12

Dagblaðið - 05.02.1976, Page 12
Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. qpp qpp qpp qq*q qpp qpp qpp qpp qpp qpp qpp cg ^ ^^p qpp qpp qpp qpp qpp q^ Fímmfóldu heims- meistgromr efstir — i ísdonsinum eftir fyrsta keppnisdaginn ó Olympíuleikunum í Innsbruck. Nœr fullkomin sýning hjá þeim Þau Ludmila Pakho- mova og Alexander Gorshkov, sem fimm sinn- um hafa orðið heimsmeist- arar í ísdansi, náðu fpr- ustu \ gcerkvöla í ísdansin- um á Olympíuleikunúm í InnsbrucK —- fyrstu keppnisgreininni á 12. Vetrarleikunum. Þau hafa 1.30 stiga forustu á næsta par. Frammistat'a þeirra þótti hreint frá- bær og var þeim fagnað innilega af áhorfendum. Pakhomova og Gorshov eru bæði 29 ára — hjón — frá Moskvu. Þau dönsuðu vínarvalsa í nokkrum at- riðum sínum í keppninni við mikinn fögnuð hinna austurrísku áhorfenda, sem að miklum meirihluta fylltu íþróttahöllina við Innsbruck. Ute Ruhrold er í 3ja sæti í sleðakeppninni í öðru sæti var einnig par frá Spvét- ríkjunum — Irina Moiseeva og Andrei Minenkov. Þau sigruðu í heims- meistarakeppninni í Colorado í fyrra. Gorshkov átti þá við lungnasjúkdóma að stríða og horfði á keppnina ásamt eiginkonu sinni. í þriðja sæti nú eru Colleen O’Connor og James Milins frá Banda- ríkjunum — en þau voru í öðru sæti á HM í Colorado. Mikil keppni er um efstu sætin. Keppnin í ísdansinum heldur áfram næstkomandi mánudag og er þeim Pak- homovu og Gorshkov almennt spáð sigri. Þau sigruðu í öllum þremur grein- unum í ísdansinum í gærkvöld og hafa 61.40 stig. Auk heimsmeistaratitla sinna hafa þau sex sinnum orðið Evrópumeistarar. Sovézka parið, sem er í öðru sæti, er með lakari stigatölu en bandaríska parið 59.12 gegn 59.56 Heimsmeistarinn Margit Schumann hefur nú forustu í sleðakeppninni í Innsbruck. stigum, en er í öðru sæti „í röðun ”, sem ekki er skýrt nánar í fréttaskeyti Reut- ers. „Við erum ánægð með árangur okkar,” sögðu þau bandarísku „og við vitum að við getum gert betur í frjálsu æfingunum.” í fjórða sæti voru Natalía Linichuk og Gennadi frá Sovétríkjunum með 59.00 stig. Fimmtu Krisztina Regoczy og Andras Salley, Ungverjalandi og í sjötta sæti Hilary Creen og Glyn Watts, Bretlandi. Brezkt par var einnig í sjö- unda sæti — ítalskt í því áttunda. Hereford efst í 3. deild! Einn leikur var lcikinn í 3. deild í ^ærkvöld. Þá léku Hereford og Cardiff. Leikurinn var báðum liðunum mikil- ^ægur — því bæði eygja möguleika á að tryggja sér sæti í 2. deild. Hereford sigraði örugglega 4-1 og komst liðið við það í fyrsta sæti í 3. deild. Liðið hefur nú hlotið 36 stig — stigi meir en Clrystal Palace og hefur leikið tveimur leikjum minna. Því er staða Hereford mjög sterk. Hereford skoraði þrjú mörk þegar á 20 fyrstu mínútunum og þar með voru úrslitin ráðin. Eftir að Terry Paine tók við framkvæmdastjórastöðu hjá liðinu hefur því vegnað mjög vel í vetur — Paine var áður leikmaður Southampton og lék marga landsleiki með enska landsliðinu. Hereford hefur aðeins verið 4 ár í ensku deildinni —^ liðið vann sig strax irpp í 3. deild og hefur vaxið ásmegin — heldur en ekki. Mörk Hereford í gærkvöld skoruðu McNeil 2, Steve Emery og John Layton. John Buchanan skoraði fyrir Cardiff. Wales og Skotland háðu með sér landsleik undir .23 ára í gærkvöld í Wrexham í Wales. Skotland sigraði 3-2. h.halls. Auslur-Þjóðverjar í efstu sœtunum! i sleðakeppni á Olympiuleikunum i Innsbruck Austur-Þýzkaland, sem hlaut meirihlutann af hinum níu verðlaunum í sleðakeppninni á (Jlym- píuleikunum í Sapporo 1972, byrjaði vörn verð- launanna með miklum glæsibrag í lnnsbruck í gær. Austur-þýzkt í- þróttafólk er í efstu sæt- unum bæði í karla- og kvennaflokki í einstakl- ingskeppninni. Mjög á óvart náði Detlef Gunther beztum tíma, en ekki sá, scm talinn var langsigurstranglegastur fvrirfram, Hans Rinn. Eftir á að keppa enn þrívegis á næstu dögum. Margit Schuman.n, sem þrívegis hefur orðið heimsmeistari kvenna, hafði örlitla forustu á Moniku Scheftschik frá Vestur-Þýzkalandi í kvennakeppninni. Evrópumeistarinn Detlef Gunther, sem er 21 árs rafvirki, náði tímanum 52.381 sekúndu í hinni nýju braut, sem er 1217 metra löng. Hann var þremur sekúndubrotum á undan Josef Fendt, Vestur-Þýzkalandi — og tveir aðrir Vestur-Þjóðverjar voru í næstu sætum. Josef Fendt er fyrrum heimsmeistari. í 3ja sæti var Anton Winkler, 21 árs, og fjórði Stefan Hoelzwinner, 24 ára frá Berchtesgaden. Hans Rinn virtist öruggur með að ná forustu eftir 700 metra í brautinni — en þá brást héimsmeistaranum boga- listin. Varð aðeins sjötti, en keppendur í greininni voru 43. Margit Schumann, sem er eins og Rinn liðþjálfi í austur-þýzka hernum, fór hina 817 metra löngu braut í kvennaflokki á 42.85 sekúndum. Sú braut er 400 metrum styttri en í karla- flokki — byrjað þessum 400 metrum frá rásstaðnum. Metin féllu ótt og títt þarna í brautinni í Innsbruck. Tíu sinnum var brautarmetið bætt í karlaflokki — sjö sinnum í kvennaflokki, en metin voru 53.32 sek. og 43.37 sekúndur. Þeir tímar höfðu þó verið bættir í óopinberum æfingamótum þarna í Innsbruck siðustu dagana. Staða efstu í karlaflokki var þannig: 1. D. Gunther, A-Þýzkal. 52.381 2. J. Fendt, V-Þýzkal. 52.694 3. A. Winkler, V-Þýzkal. 52.755 4. Hoelzlwimmer, V-Þýzkal. 52.766 5. H. Winckler, A-Þýzka. 52.916 6. Rinn, A-Þýzkalandi, 7. R. Scmidt, Austurríki, 52.933 8. M. Schmidt, Austurríki, 52.973 9. D. Bremze, Sovét. . 52.984 .10. R. Sulzbacher, Aust. 53.137 í kvennaflokki var staðan þannig hjá hinum efstu: 1. M. Schumann, A-Þýzkal. 42.854 2. M. Scheftschik, V-Þýzkal. 42.863 3. Ute Ruehrold, A-Þýzkal. 42.926 4. Antonia Mayr, Austurríki. 42.949 5. E. Wernicke, A-Þýzkal. 43.007 6. Margit Graf, Austurríki, 43.094 Charleroi vann í fallbaróttu- leik í Belgíu! — Sigraði Berchem 2-0 í gœrkvöld Guðgeir lék með á ný eftir meiðslin „Eftir hið stóra tap gegn Waregen fyrir rúmri viku tókst okkur að sigra Berchem — I þjóningabrœður okkar i fallbar- iáttunni — 2-0. Van Orn skoraði fyrra markið úr vi'ti ifyrri hálfleik ' og i þeim siðari bœtti Gebauer við I öðru marki, ” sagði Guðgeir Leifsson eftir sigur Charleroi i I gærkvöld. í Belgiu er allt þakið snjó og } þegar leikurinn var háður var . hitinn undir frostmarki. Það var ' þvi ekki út i bláinn, að talað var l um, að aðstceðurnar hentuðu Guð- íþróttir geiri vel. Þetta var fyrsti leikur Guðgeirs eftir meiðsli sem hann hlaut. Charleroi hefur nú hlotið 15 stig — fjórða neðsta liðið i deildinni. Annars hefur Charleroi verið eitt stórt spurningamerki i vetur. Fyrirfram var búizt við að liðið yrði með i toppbaráttunni — en ekki er allt sem sýnist. Liðið réð til sin nýjan þjálfara i sumar, einnig hafa nokkrir nýir leikmenn bœtzt i hópinn. Þvi er eðlilegt að það taki einhvern tima að móta liðið. Einn daginn á liðið stórgóð- an leik — þann nœsta lélegan. h. hall. /í Skíðakennsla hjá SR. Næstkomandi sunnudag, 8. febrúar kl. tvö mun Skíðafélag Reykjavíkur gangast fyrir kennslu í skíðastökki, skíðagöngu og svigi. Kennt verður við skíðaskálann í Hveradölum. Skarphéðinn Guðmundsson og Jónas Ásgeirsson munu annast kennsluna í skíðastökkinu, Haraldur Pálsson í sviginu og göngumenn ur göngusveitum Skíða- félagsins göngukennsluna. Innritun ler fram í skrifstofunni í skíðaskálanum og þurfa þátttakendur að láta skrá sig klukkustund fyrir kennsluna.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.