Dagblaðið - 05.02.1976, Qupperneq 13
Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976.
>P W QS& 99P Q9P 099 Q9P Q9P W 099 Q9P
mmm
' QPP RPP PPP {PPP RPP’ QPS'
13
HER VERDA VETRARLEIKARNIR
Þrjátíu km skíðaganga
fór fram á Olympíu-
leikunum í morgun — og
lauk í hádeginu eða nokkru
eftir að blaðið fór í prentun,
svo við gátum ekki birt
úrslitin. Gangan hófst
skammt norð-áustur af See-
feld í 186 metra hæð — en
hæst fór brautin í 360 metra
hæð. Sigurvegari á Olym-
píuleikunum í Sapporo
1972 í 30 km skíðagöngu
var Viatjeslav Vedenin, So-
vétríkjunum. Hann var í
sérflokki — gekk á
1:36,31.15, en Norðmaður-
inn Pal Tyldum varð annar
á 1:37,25.30 og landi hans
Jos Harviken þriðji.
Kl. tvö í dag hefst 1500 m skautahlaup
kvenna. Sigurvegari 1972 varð Diaane
Holum, Bandaríkjunum, og hún setti nýtt
olympískt met, 2:20.85 mín.
slakur timi. Heimsmetið á Tatjana Aver-
ina, Sovétríkjunum, 2:08.90 mín.
Rétt áður hófst brunkeppni
karla. Bernard Russsi, Sviss, varð
Olympíumeistari í Sapporo og mun verja
titil sinn í Innsbruck. Hann hefur náð
frábærum árangri undanfarna daga í
brautinni þar. Annar í Sapporo varð landi
hans Roland Collombin, sem slasaðist svo
illa í heimsbikarkeppninni í vetur að litlar
líkur eru á að hann stígi á skíði framar —
lamaðist. Þriðji varð Heini Messner,
Austurríki. —í dag er Franz Klammer
álitinn sigurstranglegastur
Austurríkismaðurinn sem verið hefur nær
ósigrandi í bruni tvö síðustu árin. Þetta
var svissnesk grein í Sapporo — Svisslend-
ingar áttu fjórða og sjötta mann, auk
tveggja fyrstu. Norðmaðurinn Erik Haker1
varð fimmti.
Ef við lítum á sigurvegara í bruni eftir
síðari heimsstyrjöldina, þá sigraði Henry
Oreller, Frakklandi, 1948 — Zeno Calo,
Ítalíu, sigraði 1952, kappinn frægi Tony
Sailer, Austurríki 1956, en 1960 Jean Viar-
net, Frakklandi. 1964 varð Egon Zimmer-
mann, Austurríki sigurvegari — en Jean-
Claude Killy, Frakklandi, einn mesti
skíðamaður allra tíma, sigraði 1968.
í dag og langt fram á kvöld verða leikir í
íshokkey—ísdans í kvöld og parakeppni í
listhlaupum á skautum.
Teikningin að ofan er af Olympíusvæð-
inu í Inn-dalnum — og þar merkt inn á
hvar einstakar keppnisgreinar fara fram.
Miðdepillinn er borgin Innsbruck, þar
sem aðalgreinarnar fyrir áhorfendur eru
— skíðastökk, skautahlaup, íshokkey og
listhlaup á skautum.
Hvað er að gerast
hjó Leeds United?
Leeds United — liðið sem hefur vegnað betur
en nokkru öðru liði á Englandi síðustu 10 árin
virðist vera að riða. Eftir tvö íöp í röð, og það
heima, eru krankleikarnir farnir að koma í ljós.
Að minnsta kosti er það álit ensku pressunnar.
Fyrir tæpum hálfum mánuði tapaði Leeds
United fyrir Crystal Palace í 4. umferð enska
bikarsins. Og síðan — svona rétt til að skvetta
salti í sárin — tapaði Leeds fyrir Norwich í
deildinni á Elland Road á laugardaginn. Ótrú-
legustu menn gerðu hrein byrjendamistök —
enska landsliðsmanninum Madeley urðu á hroða-
leg mistök, cem Ted MacDougall nýtti vel og
skoraði. Þá kastaði David Harvey 6 skozki lands-
liðsmarkvörðurinn boltanum beint til Pat
McGuire eftir að hafa varið ágætt skot. McGuire
nýtti tækifærið til hins ýtrasta.
Og afleiðingarnar eru farnar að koma í ljós —
nú hafa 2 af máttarstólpum liðsins farið fram á
sölu. Það eru engir aðrir en enski landsliðsmaður-
inn Norman Hunter og skozki landsliðsmark-
vörðurinn David Harvey. Krafa þeirra um sölu
kom mjög á óvart — raunar skók enska knatt-
spyrnuheiminn. Hunter hefur átt við meiðsli að
stríða í vetur og ekki getað leikið með sem skyldi.
Hann hefur því átt í erfiðleikum með að tryggja
sæti sitt í liðinu. Hins vegar hefur Harvey ekki átt
við slík vandamál að stríða — og krafa hans um
sölu kemur því enn meir á óvart.
Hvort Leeds samþykkir kröfur þeirra tvímenn-
inga er ekki vitað enn — enda væri þar skarð fyrir
skildi ef félagið missti þessa máttarstólpa sína.
h.halls.
SKIÐASKOU INGEMARS STENMARK
Haldiö hnjánum'
saman, þá er
auöveldara aö
beita köntunun.
13 -tO
Hafiö dáliö bil milli skiöanna og efra skföiö framar en hitt. Þunginn er hafður á neöra skiöinu. Beitiö köntunum rétt i brekkuna eins og
neöri myndin sýnir.