Dagblaðið - 21.02.1976, Page 4
4
NÝJA BÍÓ
99 44/100 DAUÐUR
. ÍSLENZKUR TEXTI
Hörkuspennandi og viðburðahröð ný,
sakamálamynd í gamansömum stíl.
Tónlist HENRY MANCINI. Leikstjóri
JOHN FRANKENHEIMER. Aðal-
hlutverk: Richard Harris, Edmund
0’Haraf Ann Turkel^Chuck Connors.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
8
BÆJARBÍÓ
Halnarf'irði. Sími áOlH L
Óbyggðirnar kalla
Spennandi og fögur litmynd, byggð á
sígildri sögu eftir Jack London.
Aðalhlutverk: Charlton Heston
ÍSLENZKUR 1 EXTl
Sýnd kl. 5, 8 og 10.
*----------------->
HAFNARBÍÓ
Spyrjum að leikslokum
Afar spennandi og viðburðarík banda-
rísk Panavision litmynd eftir sögu
Alistair McLcan, sem komið hefur út í
íslenzkri þýðingu.
ANTHONY HOPKINS
NATHALIE DELON.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 14 ára.
Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og lj.15.
8
LAUGARASBIO
8
frumsýnir
Janis
Mynd um feril og frcegð hinnar frægu
poppstjörnu Janis Joplin.
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Ókindin
Sýnd kl. 9.
Síðasta sýningarvika.
Dagblaðið
er smó-
auglýsinga-
blað
l
GAMLA BIO
Shaft enn á
ferðinni
Æsispennandi og vel gerð ný, bandarísk
sakamálamynd. Músík: Isaac Hayes
Aðalhlutverk: Richard Roundtree
ÍSLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 14 ára.
Hrói höttur
sýnd kl. 3.
Aðeins sýnd um helgina
Óskarsverðlaunamyndin
Guðfaðirinn
2. hluti
Ejöldi gagnrýnenda lelnr þessa mvnd
belri en fyrri hlulann. Uezt að hver
dæmi fyrir sig.
Lcikstjóri:
FRANCIS FORD CORPOLA.
Aðalhlutverk:
AL PACINO,
ROBERT DE NIRO,
DIANE KEATON,
ROBERT DUVALL
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuð börnum.
Flækkað verð.
Sýnd kl. 5 og 8.30.
Síðasta sinn.
ATH. breyttan sýningartima.
8
STJÖRNUBÍÓ
8
Bræður á
glapstigum
ÍSLENZKUR TEXTI
Afarspennandi ný, amerísk sakamála-
kvikmynd í litum. Leikstjóri. Jack
Starrett. Aðalhlutverk: Stacy Keach,
Frederich Forrest, Margot Kidder.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Að kála konu sinni
(How to murder your
wife)
Nú höfum við fengið nýtt eintak af
þessari hressilegu gam^nmynd, með
Jack Lemmon í essinu sínu.
Aðalhlutverk: Jack þemmon, Virna
Lisi, Terry-Thomas.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
8
AUSTURBÆJARBÍÓ
Sænsk kvikmyndavika
Sjö stelpur
Sýnd kl. 9
8
Hvítur veggur
Sýnd kl. 7
Hnefafylli af ást
Sýnd kl. 4.
Bönnuð innan 16 ára.
Miðasala frá kl. 2
STIGAHLlÐ 45 SÍMI 38890
Seljum út köld
veizluborð, einnig
hrósalat, franskar
kartöflur, sósur o. fl.
v
Byggðaþróun í Hveragerði ó JC-fundi í dag:
NÚ FÁ BÖRNIN LEIKVELLI, -
EKKI BARA EINN HELDUR TVO
Börnin í Hveragerði eiga von á
góðu, þau fá ekki bara einn leikvöll,
heldur tvo. Verða þeir sinn í hvorum
hluta þorpsins. Junior Chamber-
menn munu í dag afhenda hrepps-
nefnd Hveragerðis líkön að leikvöll-
unum og með þeim framkvæmda- og
fjárhagsáætlanir. Einnig mun JC
gefa eitt leiktæki á hvorn völl. Munu
leikvellir þessir verða nýstárlegir
mjög og með öðrum hætti en áður
hefur gerzt hér á landi. Hönnun
hefur Gestur Ólafsson arkitekt séð
um.
JC er félagsskapur ungra manna:
sem vilja bæta og breyta í sínum
heimabæ. Boða þeir JC-menn í dag
til almenns borgarafundar kl. 14, en
þar verður tekið fyrir efnið
„Maðurinn og umhverfi hans”.
Verða fluttar 6 framsöguræður; um
leikvallamál, skrúðgarðamál, um-
hverfísmál, atvinnumál, menningar-
og siðferðilegt umhverfi barna og
unglinga og heilbrigðismál.
—JBP—
Stolið úr peningaskóp í
Mýrarhúsaskóla ~ ^
Allmikið innbrot var framið í
Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi að-
faranótt miðvikudagsins. Farið var í
bókasafn Seltjarnarness og stolið
þaðan skiptimynt. Að svo búnu
hefur þjófurinn eða þjófarnir lagt
leið sína í peningaskáp skólans.
Þaðan náðu þeir 80—100 þúsund
krónum sem höfðu komið inn fyrir
miðasölu að leikritinu Inúk. Happ-
drættisskuldabréf að verðmæti
27.000 krónur voru skilin eftir.
Það furðulegasta við þetta mál er
að peningaskápurin hefur að öllum
líkindum verið opnaður með lykli.
Fyrir tveimur árum var einnig brot-
izt inn í Mýrarhúsaskólann og stolið
þaðan lyklum, þar á meðal að pen-
ingaskápnum. Þjófurinn hefur því<
beðið með að nota þann feng þangað
til hann vissi að verðmæti væru
geymd í peningaskápnum.
Rannsóknarlögreglan í Hafnarfirði
hefur málið til meðferðar. Þar vildu
menn ekkert segja um málið í gær.
—ÁT—
Skipaður
prófessor
Bragi Árnason hefur verið skipaður
prófessor við verkfræði- og raunvísinda-
deild Háskóla íslands. Forseti íslands
skipaði hann í stöðuna að tiilögu
menntamálaráðherra.
STJÓRN LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS:
ÞORSTEINISVARAÐ
Dagblaðið birtir þann 13. febr. sl.
grein eftjr Þorstein Thoraren-
sen rithöfund. Grein þessi er rætinn-
óhróður í garð íslenzkra lækna og í
henni eru fjarstæðukenndar
fullvrðingar urn Iaun og starfskjör
héraðslækna
Vill stjórn Lækhafélags íslands af
þcs.su tilefni taka fram eftirfarandi:
L Föst mánaðarlaun héraðslækna frá
ríkissjóði eru í dag kr. 110.723.-
EKKI kr. 200.000.
2. Grcinarhöfundur segitc ómögulegt
að geta sér til um, hvar felist
greiðslur fyrir alls kyns Ýaktir og
næturstörf. Hið rétta er i\ö fyrir
hvern vaktmánuð eru greiddar kr.
48.095.- í hvert hcilsugæzluumdæmi,
sem skiptist milli þcirra lækna, sem
vaktir taka.
3. Greinarhöfundur talai um 400'
þús. kr. í lckjur á mánuði frá
sýslusamlagi og aðrar 400 þús. fyrir
„einkapraksís”. Hér gætir þess
grundvallarmisskilnings að tekjur
héraðslækna, af því sem greinar-
höfundur kailar cinkapraksís, fari
ckki í gegnum sýslusamlag. Hið rétta
er að sjúklingur greiðir nú kr. 100.-
fyrir hverja komu til héraðslæknis, en
samlag eftirstöðvar samkvæmt gjald-
skrá sem um er samið við Tr>gginga-
stofnun ríkisins. Mun láta nærri að
hluti samlags sé á bilinu 70-80% af
heildarfjárhæðinni. Fjárhæðir þessar
eru mjög mismunandi og eru aðal-
lega háðar fólksfjölda í hcraði og
vinnuálagi læknisins. Getgátur um
800 þúsund króna AL^KATEKJUR
á mánuði eru fjarstæðukenndar.
4. Greinarhöfundur talar um fría
íbúð og 300 þús. krónur í bif-
reiðastyrk á ári. Það er rétt að sumir
héraðslæknar búa í húsnæði sem
ríkissjóður á, en gegn greiðslu á
húsaleigu, samkvæmt reglugerð um
íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins nr.
104/1970 sem gildir einnig fyrir
ýmsa aðra embættismcnn, svo sem
presta og sýslumenn.Bifrciðastyrkir
til lækna eru óþekkt fyrirbrigði.
5. Fari læknir í orlof falla allar
greiðslur til hans niður nema föstu
Iaunin, kr. 110.723.- á mánuði.
6. Upplýsingar um tekjur lækna eru
aðgengilegar hjá opinberum aðilum
eins og ríkissjóði, sjúkrasamlögum,
Tryggingastofnun ríkisins og sjúkra-
stofnunum. Hluta sjúklings, sem
greinarhöfundur nefnir einkapraksís,
er mjög auðvelt að áætla út frá
fyrrnefndum greiðslum.
Tölur um tekjur hinna ýmsu stétta
fyrir sl. ár liggja ekki fyrir cn
samkvæmt októberhefti Hagtíðinda
1974 voru meðallaun lækna á árinu
1974, þ.m.t. laun maka, kr.
2.759.000. Sætir því furðu að
greinarhöfundur skuli ekki kynna sér
tiltæk gögn um tekjur lækna áður
en hann lætur slík skrif frá sér fara,
vilji hann á annað borð láta taka
mark á skrifum sínum.
Gagnrýni á heilbrigðiskerfið á
vissulega rétt á sér en gera verður þá
kröfu til þeirra sem um þau mál
skrifa að það sé gert á málefnalegum
grundvelli og að þeir hirði um að
kynna sér fyrirliggjandi staðreyndir.
7. Öðrum rangfærslum og dylgjum í
garð íslenzkra lækna sér stjórn
Læknafélags fslands ekki ástæðu til
að svara að sinni, enda vandséð
hvaða hvatir liggja að baki greininni.