Dagblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 16
16 Dagblaðið. Laugardagur 21. febrúar 1976. Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir sunnudaginn 22. febrúar. Vatnsberinn (21. jan.—19. feb): Gefðu góðan gaum að heimilismálunum. Nú væri rétt að reyna nýja hugmynd í verki, jafnvel þótt einhver af hinu kyninu sé þér ósammála. Fiskarnir (20. feb.—20. marz): Láttu nýjan starfs- félaga ekkit.aka upp of mikinn tíma með frekju sinni. Svo kann að fara að þú verðir ósammála vinum þínum í einhverju máli þar sem þú setur „prinsippið” ofar öllu öðru. Hrúturinn (21. marz—20. apríl): Einhver ný félagsstarfsemi mun gera frítímann bjartari. Gáðu að hvað þú getur gert fyrir vin þinn sem á bágt. Eitthvað óvenjulegt gerist í dag. Nautið (21. apríl—21. maí): Einhver vill trúa þér fyrir leyndarmáli. Núna er tækifærið til að bæta fyrir pennaletina, annars kanntu að missa af tækifæri, trúlega peningum. Tvíburarnir (22. maí—21. júní): Vertp ákveðinn við þér yngri manneskju, sem er að reyna að notfæra sérþig. Gott kvöld til að fara eitthvað út og njóta vetrarins, þ.e. ef veður leyfir það þá. Krabbinn (22. júní—23. júlí): í ástamálum er útlitið glæsilegt og spennandi og eitthvað leiðir af því. Einhver spenna virðist þó koma í ljós heima fyrir, einkum vegna þess að öðrum finnst þú vanrækja þá. Ljónið (24. júlí—23. ágúst): Þú ættir að vera ánægður með hvernig persónulegt mál er að þróast. Haltu leyndarmálunum hjá sjálfum þér núna, annars áttu á hættu að verðá fyrir von- brigðum með andsvör annarra. Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Vertu ekki að láta flækja þig í ósætti milli annarra. Hlustaðu bara vel og hafðu þínar skoðanir eingöngu fyrir sjálfan þ>g- Vogin (24. sept.—23. okt): Varastu að svara höstuglega þér eldri persónu, það kann að valda leiðindum. Með þolinmæði muntu vinna þér hylli annarra. Sporðdrekinn (24. okt.—22. nóv.): Notaðu ekki spé þitt til að lítillækka aðra. Það er mun betra að hafa orð fyrir að vera skemmtilegur en að vera talinn rótarlegur, en innst inni langar þig til að vera það. Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Nú er rétti tíminn til að gera eitthvað á heimilinu og jafnvel úti í garðinum. Vel meint hrós frá’einhverjum óþekktum mun gera þig undrandi og gíaðan. Steingeitin (21. des.—20. jan.): Vertu varkár í ástamálum ella kannt þú að verða sá sem tapar. Vertu kaldur og ákveðinn um sinn. Deildu ekki hjarta þínu með neinum fyrr en hinr aðilinn á það skilið að gjöf. Afmælisbarn dagsins: Þú kemst að raun um að þér gengur miklu betur að umgangast eldra fólk þetta ár. Þú ert að þorskast og ert að öðlast vizku og reyhslu. Peningamál ættu að dafna, en láttu ekki undan þeirri freistingu áð eyða fé í áhættu- sama hfuti. Einhver breyting mun launa sig ríkulega á þessu ári.. ,,Ég er viss um að þú trúir mér ekki núna. ,,Mér finnst ég finna brunalykt, Emma.” REYKJAVIK: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. KÓPAVOGUR: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. HAFNARFJÖRÐUR: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Kvöld- og helgidagavarzla apótekanna vikuna 20.—26. febrúar er í Garðs- apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörzluna á sunnudögum, helgidögum og almennum frídögum. Einnig nætur- vörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga, en til kl. 10 á sunnudögum, helgidögum og almenn- um frídögum. HAFNARFJÖRÐUR — GARÐA- BÆR NÆTUR- OG HELGIDAGA- VARZLA, upplýsingar á slökkvistöð- inni í síma 51100. Á laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjabúða- þjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Sjjúkrahús BORGARSPÍTALINN: Mánud. - fostud. kl. 18.30 - 19.30. Laugard. - sunnud. kl. 13.30 - 14.30 og 18.30 - 19. HEILSUVERNDARSTÖÐIN: Kl. 15 - 16 og kl. 18.30- 19.30. FÆÐINGARDEILD: Kl. 15 - 16 og 19.30- 20. FÆÐINGARHEIMILI REYKJAVÍKUR: Alla daga kl. 15.30 - 16.30. KLEPPSSPÍTALINN: Alla daga kl. 15 - 16 og 18.30- 19.30. FLÖKADEILD: Alla daga kl. 15.30 - 17. LANDAKOT: Kl. 18.30-19.30 mánud.-föstud., laugard. og sunnud. kl. 15-16. Barnadeild alla daga kl. 15-16. GRENSÁSDEILD: Kl. 18.30 - 19.30 alla daga og kl. 13 - 17 á laugard. og sunnud. ' HVÍTABANDIÐ: Mánud. - föstud. kl. 19 - 19.30, laugard. og sunnud. á sama tíma og kl. 15 - 16. KÓPAVOGSHÆLIÐ: Eftir umtali og kl. 15 - 17 á helgum dögum. SÓLVANGUR HAFNARFIRÐI: Mánud. - laugard. kl. 15 - 16 og kl. 19.30 - 20. Sunnudaga og aðra helgi- dagakl. 15- 16.30. LANDSPÍTALINN: Alla daga kl. 15 - 16 og 19- 19.30. FÆÐINGARDEILD: Kl. 15 - 16 og 19.30- 20. BARNASPÍTALI HRINGSINS: Kl. 15 - 16 alla daga. SJÚKRABIFREIÐ: Reykjavík og Kópavogur slmi 11100, Hafnarfjörður sími 51100. TANNLÆKNAVAKT er i Heilsu- verndarstoðinni viðBarónsstígailalaug- ardaga og sunnudaga kl. 17 - 18. Simi 22411. REYKJAVÍK — KOPAVOGUR DAGVAKT: Kl. 8 - 17. Mánud. - föstud., ef ekki næst í heimilislækni, sími 11510. Kvöld- og næturvakt: Kl. 17-08 mánud. — fimmtud. sími 21230. Á laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar, en læknir er til viðtals á göngudeild Landspitalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúða- þjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Bilanir RAFMAGN: í Reykjavík og Kópavogi sími 18230. í Hafnarfirði i síma 51336. HITAVEITUBILANIR: Sími 25524. VATNSVEITUBILANIR: Sími 85477. SlMABILANIR: Simi 05. Bilanavakt bor gar stof nana Sími27311 Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. (! tö Bridge D Það er ekki olt, sem maður hefur um þrjá möguleika að velja i einu og sama spilinu — en það er þó tilfellið i spilinu hér á eftir. Suður spilar sex hjörtu og vestur spilar út hjartatvisti. Kemur þú auga á möguleikana? — auðvitað, hví- lík spurning! Norður gefur. Allir á hættu. . ÁK87 y ÁG6 4 G974 4 G5 4 93 4 742 ♦ D82 .♦ ÁD843 A G1064 I5 ♦ 10653 * 10962 4 D52 y KD10983 ♦ ÁK *K7 Sagnir gengu þannig: Norður Austur Suður Vestur 1 sp. pass 3 hj. pass 4 hj. pass 4 gr. pass 5 hj. pass 6 hj. pass Suður á 11 háslagi beint og sá 12. kemur ef 1. spaðinn fellur 3-3 2. Austur á laufaás 3. Tíguldrottning fellur 3ja. Nú er að sameina þessa möguleika í úrspilinu. Suður tekur þrisvar tromp og síðan tvo hæstu í tígli, því fyrst reynum við tígulmöguleikann. Drottningin kemur ekki og blindum er þá spilað inn á spaðakóng. Tígull trompaður og þegar drottningin fellur eru öll vanda- mál úr sögunni. Ef það hefði hins vegar ekki skeð, er spaðadrottningu spilað, og síðan spaða á ásinn. Ef spaðinn fellur vinnst spilið — ef ekki er síðasti mögu- leikinn eftir — laufið. Það er að spila laufi frá blindum á kónginn í þeirri von, að austur eigi laufaás. g? Skák i Þeim gengur illa að knýja fram úrslit í einvígi sínu í Stokkhólmi, köppunum Ulf Andersson og Mikhel Tal. Fyrstu fjórum skákunum lauk með jafntefli. Þetta er lokastaðan í fjórðu skákinni. Tefld var Retibyrjun — Andersson hafði hvítt og hafði frumkvæðið fram að 29. leik. Þá lék hann veikum leik — Tal hrifsaði til sín frumkvæðið, en tókst ekki að ná vinningi. 2-2 því eftir fjórar skákir, en þeir tefla átta. Af hverju bendir þú svona upp í loftið maður? Gæti það ekki .valdið misskilningi?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.