Dagblaðið - 21.02.1976, Síða 9
New York — höfuðborg heimsins
eins og hún hefur stundum að und-
anförnu verið nefnd. Þar er hið
iðandi líf nýja heimsins, miðstöð lista
og hvers kyns menningar. Þangað
sækja milljónir manna árlega
hvaðanæva að úr heiminum. Þangað
stefna risaþotur tuga flugfélaga og
flugfélagasamsteypa. Og slík er um-
ferð þeirra að þoturnar eru oft í
biðröðum yfir Kennedy-flugvelli á
Long Island og bíða færist ýmist eftir
lendingu eða flugtaki.
Á árinu 1975 ferðuðust 262.203
farþegar milli Evrópu og Ameríku
með vélum Flugleiða. Annaðist félag-
ið fiutning 3,5% allra farþega sem
yfir hafið fóru.
Sætanýting í íslenzku fiugvélunum
á þessari leið var með því bezta sem
gerðist í þeim efnum hjá öllum fé-
lögunum er yfir hafið fljúga eða
77,5% yfir allt árið 1975.
Dagblaðið. Laugardagur 21. febrúar 1976.
Já, Kennedy-fiugvöllur er ævintýri
út af fyrir sig í ævintýralandinu. Þar
eru fyrstu kynni margra af banda-
rískri grund. Þar er upphaf ævintýr-
anna fyrir þá, sem í heimsókn koma
til Bandaríkjanna og þar er upphaf
og endir ferða Bandaríkjamanna
hvert sem þeirra leiðir kunna að
•'ggja-
Á þessu höfuðbóli flugsamgangna
kennir margra grasa. Þar eiga fiug-
liðar og starfsfólk ótal fiugfélaga
bækistöðvar. Þar á ísland líka sitt
andlit í veglegri og fjölfarinni bæki-
stöð Loftleiða.
Loftleiðir — eða kannski réttara
-sagt Flugleiðir —: eru í 10. sæti á lista
yfir þau fiugfélög sem farþega flytja
yfir Norður-Atlantshaf milli Evrópu
og Ameríku. Tuttugu fiugfélög bítast
297 leggja upp í fiugferð frá vellin-
um.
En farþegafjöldinn skiptist engan
veginn jafnt milli allra daga ársins.
Þegar mest hefur á gengið í afgreiðsl-
um Loftleiða á Kennedy-velli komu
sama daginn fjórar fiugvelar full-
skipaðar farþegum. Hver þeirra
tekur 249 farþega. Komu því mestu
annadagana 996 farþegar til vallar-
ins. Jafnmargir fóru sömu daga.
Starfsfólk afgreiðslunnar á
Kennedy-velli afgreiddi því og lið-
sinnti 1992 farþegum þessa anna-
mestu sólarhringa.
En auk farþegafjöldans, sem sinna
þarf, er mikið starf og sívaxandi
unnið í sambandi við flutningadeild.
‘Á tímabilinu frá janúar til nóvember
1975 fluttu vélar félagsins 946 tonn
af varningi til Kennedy-vallar en
þaðan fiuttu þær vítt um heim 1317
tonn alls kyns flutnings.
Góð aðstaða
Loftleiðir hafa komið sér upp
ágætri aðs.töðu til farþegaafgreiðslu á
Kennedy-velli. Oft er þar þó þröng
á þingi, og mikið gengur á um
háannatímann og þegar annir eru
mestar eins og áðurnefnda „topp-
daga” þegar tæplega 2000 manns
þurfa afgreiðslu sama sólarhringinn.
Á götuhæð í austurálmu farþega-
afgreiðslu þessa risastóra flugvallar
hafa Loftleiðir rúmgott afgreiðslu-
herbergi með fjölda afgreiðsluborða.
Þar þurfa 250—500 farþegar að fá
afgreiðslu sinna mála á skömmum
tíma. Vigta þarf mörg hundruð tösk-
ur og pinkla og sjá um að farþegar
hafi tilskilin ferðaskilríki. Þetta getur
gengið misjafnlega gagnvart misjöfn-
um farþegum sem gera mismiklar
kröfun og eru misjafnlega stirðir í
umgengni. En hjá Loftleiðum virðist
valið afgreiðslufólk í hverju sæti og
vinnuhraðinn er geysilegur þó vinnu-
álagið sé á stundum gífurlegt.
Ur þessum afgreiðslu- eða mót-
tökusal fara farþegar í rúmgóðan
biðsal á annarri hæð. Þar eru farþeg-
ar í raun komnir allt að því út úr
landinu. En biðin þar getur orðið
nokkur og úr þessum sal er innan-
gengt til veitingasala og annarra
hvíldarsala fiugstöðvarbyggingarinn-
ar.
Afgreiðslufólkið er vart búið að
anna þeirri törn að taka á móti öllum
þeim farþegum sem eru á leið frá
Bandaríkjunum þegar fiugvélin eða
flugvélarnar koma að heiman frá ís-
landi fullskipaðar farþegum. Fyrir
þeim verður einnig að greiða og
aðstoða á ýmsan hátt. Það starf getur
orðið fiókið og vandasamt — en allt
er það leyst af hendi með bros á vör.
Mig grunar þó að stundum sé erfitt
að brosa, þó gert sé, því vandamálin
geta oft verið ærið fiókin og erfið.
Endalaus
fólksstraumur
Baldvin Berndsen sagði að aðal-
annatíminn á flugafgreiðslunni væri
frá kl. 6—9.30 síðdegis, ef allt er með
felldu. Á þeim tíma eru farþegar
afgreiddir bæði út og inn og sem fyrr
segir í mörgu að snúast. Á þessum
tíma er aðalannatíminn í flug-
stöðvarbyggingunni og straumui
farþega út og inn virðist endalaus.
Allar deildir Loftleiða vinna sam-
stilltu átaki að því að farþegaaf-
greiðslan gangi sem greiðlegast og
ljúfast fyrir sig. Þetta er oft erfitt
hlutverk. Völlurinn hefur oft þótt
erfiður viðfangs óvönum farþegum.
En yfirvöld vallarins hafa tekið
höndum saman við öll flugfélög sem
á honum starfa um að reyna að
leysa og korha í veg fyrir allt það
amstur farþega sem er samfara far-
þegaflugi nú á dögum.
Að slappa af
En eins og starfsfólkið á sína anna-
tíma, þegar það vinnúr með tvöföld-
um eða þreföldum hraða, þá á það
einnig sínar hvíldarstundir. Stund-
um geta það líka verið leiðinlegar
biðstundir eftir vél sem seinkað
hefur vegna óveðurs yfir hafinu eða
af öðrum ástæðum.
Þessar stundir notar Loftleiða-
fólkið sér til skemmtunar og lætur sér
ekki leiðast . með því að horfa í
gaupnir, sér. Þá er gripið til tafl-
mennsku eða jatzy-teninganna. Þetta
tvennt hefur stytt margan biðtím-
ann og breytt honum í ánægjustund.
Kynntist ég þessu lítillega og í bak-
sölum móttökusalar lenti ég í hörðu
skákeinvígi við einn starfsmannanna.
Á meðan heyrði ég jatzy-teningana
skoppa á borði, hlátrasköll og
skemmtilegheit. Það var ekkert verk-
efni að leysa þá stundina, nema eitt
og eitt símtal sem afgreitt var ljúf-
manrilega. En þetta fólk, sem kann
að „spretta úr spori” þegar á þarf að
halda og leysa ólík vandamál, kann
líka þá list að slappa af og fara ekki á
taugum þó eitthvað út af beri. Með
elskulegheitum og ljúfmannlegri
framkomu hefur starfsfólkið á þess-
um stað vakið athygli og fengið lof.
Það á vissulega sinn sterka þátt í
andliti íslands í höfuðborg heimsins.
AST.
Sjð deildir
Stöðvarstjóri Loftleiða á Kennedy
fiugvelli er Baldvin Berndsen. Á ferð
um flugvöllinn fyrir skömmu átti ég
þess kost að ræða stuttlega við Bald-
vin um umfangsmikinn rekstur Loft-
leiða í New York.
Deildir Loftleiða á Kennedy-
fiugvelli eru sjö talsins: fiutninga-
deild, umboðsdeild, viðhaldsdeild
fiugvéla, viðhaldsdeild bifreiða, vara-
hlutainnkaup, farþegaþjónusta og af-
greiðsla. Sjötíu og fjórir fastráðnir
starfsmenn vinna þar fyrir félagið, en
að sumarlagi þegar farþegafjöldinn
er mestur bætast allt að ellefu manns
í hóp starfsfólksins.
Það er rólegt þessa stundina í móttökusalnum á jarðhæð. Þarna verða oft biðraðir við hvert afgreiðsluborð.
Milli hæða skreytir listaverk Nínu Tryggvadóttur einn vegginn.
um farþega á pessari leið og sam-
keppnin er mikil og hörð.
Loftleiðir skipuðu einnig 10. sæti
þessa lista árið 1974, en hlutfall fé-‘
lagsins í farþegafjöldanum á þessari
leið batnaði aðeins á sl. ári.
Miklar annir
Þegar ég ræddi við Baldvin um
miðjan desember lágu fyrir tölur um
annirnar hjá flugafgreiðslu Loftleiða
á Kennedy-velli á þessu ári til
nóvemberloka. Pa noiou 97.548 far-
þegar komið með vélum félagsins til
vallarins, en 99.443 farþegar farið
með vélunum frá Kennedy-veíli. Ef
fundið er meðaltal fyrir hvern dag
ársins kemur í ljós að 292 farþegar
koma á hverjum einasta degi og aðrir