Dagblaðið - 21.02.1976, Side 14

Dagblaðið - 21.02.1976, Side 14
14 r Dagblaðið. Laugardagur 21. febrúar 1976. ■ Hraðskreiðasta herskip heims er 300 tonn og gengur 40 Skuthreyfil'inn má setja í lóðrctta hvíldarstöðu Sjávarinnsog Hraðaskynjari Smurolíudæh Sjávardæla Vatnshverfihreyfill Það er svifskip knúið flugvélomótorum f " Það gerðist í London Núna kasta karlarnir klœðunum A þessari síðu sögðum við fyrir skömmu frá framhaldsmyndasögu í dagblaðinu Daily Mirror, sem sýndi unga dömu kasta af sér einni spjör á dag þar til ekkert var eftir. Þeir þarna á Daily Mirror vilja greinilega gera báðum kynjunum jafn hátt undir höfði og hafa því hrint af stað annarri slíkri framhalds- sögu, nú með karlmann í aðalhlut- verki. Varíð ykkur á varðgœsunum! Nú er svo komið í Englandi að menn þurfa ekki lengur að vara sig á varðhundunum heldur varðgæsun- um. Gæsir virðast óðum ætla að taka við hlutverki hundanna við varð- gæzlu. Fyrir stuttu lézt tíu ára piltur í Englandi af sárum sem hann hafði hlotið í viðureign við grimman varð- hund, og á síðasta ári jókst tala þeirra barna mjög sem urðu fyrir alvarlegum sárum vegna árása varð- hunda. Ujn síðustu mánaðamót komu því til framkvæmda þar í landi lög sem banna lausa varðhunda í fyrirtækj- um og á stórum lóðum nema með þeim sé maður til eftirlits öllum stundum. Mörg stórfyrirtæki hafa af kostnaðarsökum orðið að lóga hundum sínum við gildistöku þess- ara nýju laga og smáfyrirtæki, sem spruttu upp fyrir nokkrum árum og buðu ódýra nætúrvörzlu með hund- um einum, hafa lagt upp laupana. Framtíðarhorfurnar voru því ekki bjartar þegar forstjóra eins þessara fyrirtækja datt snjallræði í hug. Hann mundi allt í einu eftir sögu- sögnum um að Rómverjar hefðu til forna notað gæsir til að vekja sig á næturnar ef ráðizt var á borgir þeirra. Fyrirtækið safnaði saman hópi gæsa og við tilraunir sýndi sig að þeim var það leikur einn að fæla burt óvelkomna gesti. Þegar menn gerast óþarflega nærgöngulir skrækja gæs- irnar óþyrmilega, berja vængjunum, gogga af afli í fótleggi gestanna og bíta í buxnaskálmarnar. Fyrstu gæsirnar hafa nú verið teknar í þjónustu nokkurra stórfyrir- tækja. Beðið er eftir því í ofvæni að fyrstu stigamennirnir láti sjá sig og að gæsirnar sýni getu sína í raun. Skilnaðar- hringur Nýjasta hugmyndin vestan frá Bandaríkjunum heitir „Skilnaðar- hringur.” Úr því að hægt var að venja fólk á giftingarhringi hlýtur að Cera hægt að venja það á skilnaðar- hringi líka, núna þegar sá þáttur hjónabandsins er orðinn síalgengari, segja þeir hugmyndaríku. Það er ungur hönnuður, Peter Lindeman að nafni, sem teiknað hefur skilnaðarhringinn. Hringurinn, sem er úr gulli, er þannig frábrugð- inn giftingarhring að á honum er breið rifa fyllt mcð demöntum. Ætlun hugvitsmannanna er sú að hjónin fyrrverandi skiptist á hringj- unum við hátíðlega athöfn í réttin- um um leið og þeim er formlega veittur lögskilnaður. Skuggalegir skattheimtu- seðlar Bretar hrukku óþyrmilega við er þeir fengu skattseðilinn sinn sendan núna skömmu eftir áramótin. Á umslögunum stóð — í örvæntingu? Sjálfsmorð? Hringdu í þjóna kirkjunnar. Þeir geta hjálpað. í ljós kom að af algjörri slysni hafði þessi póststimpill kirkjunnar verið í gangi á póstinum þegar skattseðl- arnir fóru þar í gegn. Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir urðu til að leita á naðir kirkjunnar eftir að hafa litið á inn- heimtuseðilinn. Dónalegur fótbolti Bæjarstjóri nokkur í Brasilíu bannaði fyrir stuttu fótboltaiðkun í bænum þar sem honum þóttu berir og loðnir fætur knattspyrnumann- anna siðspillandi sjón fyrir bæjar- búana. íbúar bæjarins Campo Grande í norðaustur Brasilíu, sem þótti hart að þurfa að segja skilið við þjóðar- íþrótt sína, kvörtuðu sáran yfir þessu furðulega uppátæki. Bæjarstjórinn hefur nú séð sig um hönd og leyft fótboltann á ný..með því skilyrði þó að leikmennirnir séu í síðbuxum. Rándýr yfírsjón Fjárhagslega séð hefur síðasta ár ekki verið gott fyrir bandaríska sjón- varpskerfið NBC. Til að kóróna allt saman hefur sjónvarpsstöðin nú komizt að því að nýtt stöðvarme/-ki, sem hún varði lygilegum 100 milljón- um króna í að kanna, teikna og auglýsa, er nær því nákvæmlega eins og stöðvarmerki lítillar og afskekktr- ar skólasjónvarpsstöðvar í einu vesturríkjanna. Skólasjónvarpið hafði á sínum tíma varið 15 þúsund krónum í að teikna merkið. Hópferðir fyrír sköllótta Brezkir skallaskurðlæknar hafa tekið eftir því að undanförnu að sköllóttir Ameríkanar flykkjast í æ ríkara mæli til Bretlands til að fá bót meina sinna. Ástæðan er sú að Bretar eru komnir þjóða lengst í tækni sem nefnist hárflutningur og felst í því að flytja heilbrigð hár yfir á þann hluta z

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.