Dagblaðið - 21.02.1976, Qupperneq 23
Dagblaðið. Laugardagur 21. febrúar 1976.
23
Utvarp
Sjónvarp
Útvarp kl. 13,15 á sunnudag:
„Sjálfstœð og skapandi hugsun,
er hún hornreka í skólakerfinu?
##
„Ég mun fjalla um skólakerfið og að
hve miklu leyti það örvar skapandi
hugsun,” sagði Guðný Guðbjörnsdóttir
lektor. Erindi hennar er á dagskrá út-
varpsins kl. 13.15 á sunnudaginn. Þetta
er fjórða erindið í erindaflokknum um
uppeldis- og sálarfræði.
Guðný sagði að það yrði vart farið
dult með það að skólinn eflir vissa
hæfileika sem mest ríður á að
nemendur tileinki sér.
Guðný mun víkja að ýmsu varðandi
þessi mál og þá m.a. sálfræðilegum
rannsóknum. RAnnsóknir þessar sýna í
mörgum tilfellum að skólinn leggur
ekki nógu mikla rækt við sköpunargafu
nemendanna. Þetta getur komið sér
mjög illa, síðar á lífsleiðinni, vegna þess
hve örar breytingarnar eru í sam-
félaginu.
Þessir erindaflokkar á sunnudags-
eftirmiðdögum eru mjög áheyrilegir og
fróðlegir. Þessi mál eru mörgum skyld
t.d. þeim sem eiga börn sín á skólaaldri.
Fólk er því hvatt til að fylgjast með
þessum erindum til að öðlast fróðleik,
sem það getur örugglega fært sér í nyt.
KP '
í erindinu á sunnudaginn verður fjallað um skólakerfið og þá þætti sem betur mega fara þar.
ama-Miaw
^ Sjónvarp
LAUGARDAGUR
21. febrúar
17.00 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Pollyanna. Brezkur mynda-
flokkur, gerður eftir hinni al-
kunnu skáldsögu Eleanor H.
Porter. 2. þáttur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Krossgáta III Spurningaþátt-
ur með þátttöku þeirra sem
heima sitja. Kynnir Edda Þór-
arinsdóttir. Umsjónarmaður
Andrés Indriðason.
21.05 Nei, ég er hérna. Brezkur
gamanmyndaflokkur. Aðalhlut-
verk Ronnie Corbert. Skál.! Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.30 James Paul McCartney,
eiginkona hans, Linda, og hljóm-
sveitin Wings syngja og leika ný
og gömul lög, þar á meðal syrpu
af bítlalögum. Þýðandi Jón
Skaptason.
22.20 Otley. Brezk gamanmynd frá
árinu 1969. Aðalhlutverk Tom
Courtenay og Romy Schneider.
Hrakfallabálkurinn Otley er í
húsnæðisleit. Hann fær inni hjá
kunningja sínum, sem er myrtur
sama kvöld, og því lendir Otley í
alls kyns raunum. Þýðandi Heba
Júlíusdóttir.
23.45 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
22. febrúar
18.00 Stundin okkar. Fyrst er mynd
um Largo, en síðan sýnir stúlka
úr Fimleikafélaginu Gerplu fim-
leika. Sagt verður frá Rósu og
bræðrum hennar, sem búa á
Spáni. Tveir strákar leika saman
á gítar og munnhörpu, og loks
verður sýndur síðasti þátturinn
um Bangsa, sterkasta björn í
heimi. Umsjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Kristín Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Það eru komnir gestir.
Magnús Bjarnfreðsson ræðir við
tvo fyrrverandi stjórnmálamenn,
Eystein Jónsson og Hannibal
Valdimarsson, sem m.a. rifja upp
minningar frá misvindasömum
ferli. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.35 Borg á leiðarenda, Lúpó fær
vinnu, en Klöru líkar ekki vistin á
vinnustaðnum og vill fara til
Rómar, og leggja þau af stað
þangað. Faðir Klöru hefur lýst
eftir þeim, og lögreglan finnur
þau á förnum vegi. Á síðustu
stundu tekst Klöru að strjúka frá
föður sínum og enn halda þau
áfram ferð sinni. 3. þáttur. Þýð-
andi Jónatan Þórmundsson.
22.30 Leyfileg manndráp^ Brezk
fræðslumynd um skaðsemi reyk-
inga. Þýðandi Gréta Hallgríms.
Þulur Ólafur Guðmundsson.
22.55 Að kvöldi dags. Séra Páll
Þórðarson sóknarprestur í Njarð-
vík flytur hughugvekju.
23.05 Dagskrárlok
Dag-
Pétur
'Q Utvarp
LAUGARDAGUR
21. febrúar
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgun-
leikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 ( og forustugr. dag-
bl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn
kl. 7.55. Morgunstund barnanna
kl. 8.45: Sigurður Gunnarsson
heldur áfram sögu sinni „Frændi
segir frá” (6). Tilkyningar kl.
9.30. Létt lög milli atriða. óska-
lög sjúklinga kl. 10.25: Kristín
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 íþróttir. Umsjón: Jón Ás-
gcirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan. Björn
Baldursson kynnir dagskrá út-
varps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. íslenzkt mál.
Ásgeir Blöndal Magnússon cand.
mag. flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 í skipalest yfir Atlantshaf.
Valgeir Sigurðsson ræðir við
Baldvin Sigurðsson frá Garði í
Aðaldal um siglingar á
stríðsárun-
20.00 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
20.45 Minningartónleikar og erindi
um Inga T. Lárusson tónskáld.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir í stuttu máli.
skrárlok.
SUNNUDAGUR
22. febrúar
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurgeirsson vígslubiskup flytur
ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustu-
greinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Guðsþjónusta í Hallgríms-
kirkju á vegum Hins ísl. biblíu-
félags.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Erindaflokkur um uppeldis-
og sálarfræði.
Sjálfstæð og skapandi hugsun; er
hún hornreka í skólakerfinu?
15.00 Þorskur á þurru landi. Drög
að skýrslu um sölu á hraðfrystum
físki í Bandaríkjunum Norður-
Ameríku. 2., þáttur:
15.00 Miðdegistónleikar:
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikrit barna og
unglinga: „Árni í Hraunkoti”
eftir Ármann Kr. Einarsson.
VIII. og síðasti þáttur:
17.10 Létt-klassísk tónlist.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
18.00 Stundarkorn með hollenzku
söngkonunni Elly Ameling,
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 ”Hjónakornin Steini og
Stína,” gamanleikþáttur eftir
Svavar Gests. Annar þáttur.
19.45 Sinfónía nr. 2 eftir Aram
Katsjatúrjan.
20.30 íþróttir og fjölmiðlar.
21.15 íslenzk tónlist. á. Ingvar
Jónasson leikur á víólu lög eftir
íslenzka höfunda; Guðrún
Kristinsdóttir leikur með á píanó.
b. Gunnar Egilson og Rögnvald-
ur Sigurjónsson leika Sónötu fyrir
klarínettu og píanó eftir Jón
Þórarinsson.
21.45 „Geymd stef en gleymd”
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiðar Ástvaldsson danskennari
velur lögin og kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Utvarpið annað kvðld kl. 19,25:
„Hjónakornin
Steini og Stína"
Blaðamaður: „Nú ert þú orðinn
leikritaskáld?”
Svavar Gests: ,Já, ég var að frétta
það.”
Blaðamaður: „Þú hefur kannski
skrifað mikið af slíkum bókmenntum
áður?”
Svavar Gests: ,Ja, ætli þetta séu
ekki orðin ein þrjátíu eða fjörutíu
verk.”
Blaðamaður: „Maður hefur samt
lítið séð nafnið þitt í þessu sambandi.
Hvað kemur til?”
Svavar Gests: „Það er bara af því
að aðrir hafa sett stafína sína undir
verkin.”
Blaðamaður: „Hefur þetta leikrit
verið í bígerð lengi?”
Svavar Gests: ,Já, mikil ósköp, ég
er búinn að ganga með í langan
tíma. Mörg ár.”
Blaðamaður: „Og hvað varð til
þess að þetta fór af stað?”
Svavar Gests: „Það varð að sam-
komulagi við forráðamenn útvarps-
ins að taka leikþætti eftir mig núna
eftir áramótin. Eins og þið vitið
vantaði eitthvað strax á eftir leik-
þáttunum „Bein lína”, þar var jú
raunar bara einn aðalleikari. Hjá
mér eru þeir oftast tveir. Þau Steini
og*Stína. Stundum eru fleiri.”
Blaðamaður: „Er þetta framhalds-
leikrit?”
Svavar Gests: „Nei, nei, ég bý
þetta bara til jafnóðum. Þetta á að
vera alveg nýtt af nálinni þegar það
kemur fyrir áheyrendur. Sem sagt
atburðir líðandi stundar.”
Blaðamaður: „Hvers konar fólk
eru þau Steini og Stína?”
Svavar Gests: „Þetta eru bara
svona venjuleg hjón. Þessi þáttur
núna fjallar um það þegar Steini
kemur til vinnu sinnar og það
stendur til að ráða sendiferðabíl-
stjóra fyrir fyrirtækið. Nú, svo hringir
Stína til hans. Þú veizt, eiginkonurn-
ar þurfa stundum að hringja í menn
sína í vinnuna. Þegar Stína heyrir að
það eigi að ráða bílstjóra kemur í ljós
að hún á ættingja, sem hún telur að
passi alveg í starfið. Ef ég segi meira
frá þessu verður leikritið allt í Dag-
blaðinu svo ég segi ekki meira.”
Blaðamaður: „Við eigum enga
mynd af þér, megum við ekki senda
ljósmyndara til þín. Þú mátt samt
ekki vera uppstilltur.
Svavar Gests: „Nei, góða bezta. Ég
skal standa á haus.” EVI
Sjónvarpið ó sunnudagskvöld kl. 20,35:
,Það em komnir gesttV
Eysteinn og Honnibol r'rfja upp minningar
fró misvindasömum ferfi
„Það er rætt um allt mögulegt og
vaðið úr fortíð í nútíð. Báðir þessir
menn eru náttúrlega heill hafsjór af
fróðleik. Auðvitað berst talið að stjórn-
irrá^um og stjórnmálamönnum en vafa-
laust hefðu umræður snúizt á annan
veg ef þátturinn hefði verið tekinn upp
nýlega, en hann var tekinn upp um
áramót.”
Þetta sagði Magnús Bjamfreðsson
sem ræðir við tvo fyrrverandi þingmenn
og flokksforingja, þá Eystein Jónsson og
Hannibal Valdimarsson í þættinum
„Það eru komnir gestir.”
Þeir Eysteinn og Hannibal eiga ótal
áhugamál og eru ekki af baki dottnir
með að sinna þeim, þótt aldur færist
yfir. Hannibal býr á vaxandi fjárbúi í
Selárdal en Eysteinn er formaður
Náttúruverndarráðs og mikill áhuga-
maður um þau efni. Hann stundar
ferðalög og skíðaferðir af miklu kappi.
Það verður áreiðanlega fróðlegt að
opna fyrir skjáinn í kvöld. -EVI
Magnús Bjarnfreðsson ræðir við tvo fyrrverandi stjómmálamenn, þá Eystein
Jónsson og Hannibal Valdimarsson.