Dagblaðið - 24.02.1976, Qupperneq 13
Dagblaðið. Þriðjudagur 24. febrúar 1976.
13
íþróttir IÞ róttir íþróttir íþróttir )]
— gegn Luxemborg í Olympíukeppninni — Var markhœstur
leikmanna íslands í Olympíuleikjunum í Munchen og nú
aftur í olympíuhóp íslands
Jón Hjaltalín gerði usla í liði sovézkra í landsleiknum í desember og þá tók Bjarnleifur þessa mynd af honum með
knöttinn í færi.
Jón Hjahalín í 50.
sinn í kmdsliðinu
Það er mér mikið gleði-
efni að vera kominn í
landsliðshópinn á ný.
Fyrst landsleikurinn við
Sovétríkin í Reykjavík
rétt fyrir jólin og svo
nú að vera valinn í
Olympíuliðið gegn Lux-
emborg og Júgóslavíu,
sagði Jón Hjaltalín
Magnússon, gamli
Víkingurinn í Lugi-liðinu
í Svíþjóð, þegar Dagblað-
ið ræddi við hann í Lundi.
jón var fastur landsliðsmaöur um
árabil meðan liann lék með Víking hér
heima — og einnig fyrst eftir að hann
fór til Svíþjóðar í verkfræðinám. En frá
því á Olympíuleikjunum í Munchen
1S)72, þar sem hann var markhæstur
lcikmanna fslands. hefur Jón ekki
leikið í Iandsliðinu fyrr cn gegn
Sovétríkjunum í desember. Þar gerði
Jón Hjaltalín svo mikinn usla í vörn
sovc/.kra að þeir gripu til þess ráös að
setja sérstakan leikmann honum til
höfuðs. Það cr ekki vafi á því
að Jón Hjaltalín verður styrkur fyrir
íslenzka Olympíuliðið — Júgóslavar
reikna ekki með honum nú, en þcir
þckkja hann auðvitað vel frá því á
Olympíuleikjunum í Múnchen. Þar
urðu Júgóslavar Olympíumeistarar og
hafa allan hug á að verja þann titil í
Montreal í sumar.
Landsleikurinn við Luxemborg um
heleina verður 50. landsleikur minn
fyrir ísland Ég sleppi síðasta leik Lugi í
Allsvenskan til að gcta fariö í keppnis-
förina með íslenzka landsiiðinu — og
hlakka mikið til að hitta strákana í
Luxemborg. Þangað held ég á
föstudaginn héðan frá Svíþjóð.
Lugi hcfur misst af lestinni í
Allsvenskan?
Já, ég held að ég hefði tekið íslenzka
landsliðið fram yfir Lugi, þó liðið hefði
verið í baráttu um meistaratitilinn
sænska. Staðan í Allsvenskan cr nú
þannig, að Ystad og Heim eru efst
með 22 stig, en Malmö og Hcllas hafa
20 stig. Þau lið keppa um
meistaratitilinn. Síðan kemur Guif
með 18 stig og við í Lugi með 17.
Síðasti lcikur liðsins verður við Guif.
Hellas sigraði Malmberget á dögunum
í Norður-Syíþjóð með cins marks mun,
14-15,' og tryggði sér þá réttinn. Ekki
veit ég hvað Ágúst Svavarsson skoraði
í þeim leik — en hann hefur fengið
ákaflega góða dóma síðan hann byrjaði
að leika með Malmbergct-liðinu um
miðjan janúar.
Nokkuð á leiðinni heim?
Það er erfitt að segja — en auðvitað
hefur maður alltaf heimþrá. Okkur
hjónunum líkar ákaflega vel hér í
Svíþjóð — Jón Hjaltalín starfar sem
rafmagnsverkfræðingur hjá stórfyrir-
tækinu Kockum — en það er þó fyrst
og fremst spurning um vinnu heima,
hvort við komum eða ekki. Ég neita því
ekki, að það er verið að ^athuga fyrir
mig um vinnu heima á íslandi — og ef
eitthvað gott rekur á fjörurnar er ekki
að vita hvað maður gerir.
Jón Hjaltalín Magnússon er ekki
nema 27 ára, þó hann hafi um langt
árabil verið kunnur landsliðsmaður í
handknattleik og hafi fyrir löngu lokið
námi í verkfræði. Vissulega yrði
það Víkingum mikið fagnaðarefni ef
Jón flytur aftur heim. Hann mundi
áreiðanlega styrkja Víkingsliðið mjög
— og á enn mörg ár eftir í handknatt-
leik ef af líkum lætur. Víkingur hefur
orðið að sjá á bak sterkum leik-
mönnum í nám erlendis. Fyrst Jón
Hjaltalín og síðan Einar Magnússon —
einhverjir tveir mestu skotmenn í hand-
knattlcik, sem fsland hefur átt.
Þrettán ára
og stökk
1.71 metra
Ágætur árangur náðist á sveina- og
meyjameistaramóti íslands, sem var
háð í Kársnesskóla um helgina.
Hæst ber árangur Sigurðar P.
Guðjónssonar úr FH — hann setti nýtt
piltamet í hástökki — stökk 1.71 — 5
cm hærra en gamla metið. Frábært hjá
13 ára dreng.
Sigurður sigraði þó ekki —
Guðmundur R. Guðmundsson einnig
úr FH sigraði, stökk 1.80. Mjög gott hjá
þessum ungu piltum.
Einnig vakti ungur piltur úr
Breiðholti athygli, Sigurjón Sigurðsson
úr Leikni. Hann stökk 7.97 í þrístökki
án atrennu, sem er 23 cm lengra en
gamla metið. Sigurvegari varð Sig-
urður Sigurðsson úr Ármanni, hann
stökk 8.61 cm.
Sigurður sigraði einnig í langstökki
án atrennu, stökk 2.86 . í hástökki án
atrennu sigraði Guðmundur R.
Guðmundsson FH, hann stökk 1.45.
Hjá stúlkunum var hörð barátta í
langstökkinu án atrennu. Ásta B.
Gunnlaugsdóttir ÍR sigraði eftir
harða keppni, hún stökk 2.40 Næstar
komu Margrét Grétarsdóttir úr
Ármanni. og Brynja Bjarnadóttir úr
Leikni, sem báðar stukku 2.39. Aðeins
einn sentimetri skildi næstu að, sú var
Erna Guðmundsdóttir úr KR, hún
stökk 2.38.
í hástökki setti Þórdís Gísladóttir,
ÍR, nýtt meyjamet (15-16 ára), hún
stökk 1.63. h. halls.
íþróttir
Heimsmet
Rita Wilden, Vestur-Þýzkalandi,
bætti heimsmest sitt í 400 m hlaupi
innanhúss á EM í Múnchen í gær.
Hljóp á 52.26 sek., og var tíminn tekinn
á rafmagnsklukkur. Eldra metið var
52.28 sek., sett í Dortmund fyrr í þess-
um mánuði og tíminn þá tekinn af
tímavörðum. Hefur hún því bætt metið
verulega — þó aðeins sé um tvo
hundruðustu úr sekúndu að ræða á
skrám. önnur í hlaupinu varð Jelica
Pavlicic, Júgóslavíu, á 52.47 sek.
Linda Haglund, Svíþjóð, sigraði í 60
m grindahlaupi, á 7.24 sekl, en Sonia
Lannaman, Bretlandi, hljóp á 7.25 sek.
Sergei Senyukov, Sovét, sigraði í
hástökki karla, stökk 2.22 metra.
Á mótinu kom á óvart hve sumar
sterkar þjóðir — Austur-Þjóðverjar,
Pólverjar Finnar og Bretar — lögðu
litla áherzlu á Evrópumeistaramótið og
var það því í daufasta lagi. Þess var
getið í blaðinu í gær, að Geoff Capes,
Bretlandi, sem sigraði í kúluvarpinu,
hefði keppt slasaður. Hann fór illa út úr
því — meiðslin á tveimur fingrum tóku
sig upp og Capes var mjög kvalinn í
keppninni. Varpaði þó mun lengra en
aðrir.
Verðlaun á EM skiptust þannig:
Sovétríkin
V-Þýzkaland
Búlgaría
Bretland
Pólland
Frakkland
A-Þýzkaland
Belgía
Svíþjóð
G S B
6 3 3
4 4 4
3 1 2
1 2 1
1 1 3
1 1 1
1 1 1
1 0 0
1 0 0
Aðrar þjóðir hlutu ekki gullverðlaun.
Rúmenía hlaut tvenn silfurverðlaun og
ein bronsverðlaun, Tékkar og Júgó-
slavar silfur og brons, Grikkir og Finnar
silfur, og Ítalía brons.
Skautahlauparinn Sten Stensen var
mesti afreksmaður Norðmanna á
Olympíuleikjunum í Innsbruck á dögun-
um. Hlaut gullverðlaunin í 5000 metra
skautahlaupinu — og á myndinni að ofan
hampar hann þeim — en varð annar á
þeirri vegalengdinni, 10000 metrum, þar
sem hann var talinn enn öruggari með
fyrsta sætið. Hollendingurinn Kleine kom
þar mjög á óvart — bætti tíma sinn um
nær hálfa mínútu og sigraði Sten, sem þó
náði frábærum tíma. Var rétt við heims-
met sitt á vegalengdinni — sett fyrr í
vetur.
•
Markatalan
rœður eftir allt
Alþjóðahandknattleikssambandið til-
kynnti Vestur-Þjóðverjum fyrir leikinn við
Belgíu í Olympíukeppninni síðastlliðinn
sunnudag, að markatala í riðlinum mundi
ráða úrslitum ef tvö lið yrðu jöfn að
stigum.
Þessi ákvörðun var tekin á fundi
nefndarinnar í sl. viku og hlýtur einnig að
varða okkur íslendinga, þó kannski séu,
ekki miklar líkur á, að íslenzka landsliðið
verði jafnt því júgóslavneska í riðlinum,
sem löndin leika í. Það er því ekki nóg
fyrir ísl. landsliðið að vinna upp 6
marka muninn frá landsleiknum við Júgó-
slava hér heima, heldur einnig tugi marka,
sem Júgóslavar hafa fram yfir í leikjunum
við Luxemborg. En hvað um það —
sennilega skiptir þetta ekki máli.
En hjá Vestur-Þjóðverjum var* viðhorf-
ið annað. Þeir sigruðu Austur-Þjóðverja
með þriggja marka mun í leik landanna í
Múnchen ~ og gengu beinlínis berserks-
gang gegn Belgum á sunnudag í Eppel-
heim til að ná sem mestum markamun.
Og það tókst þeim. Þeir sigruðu Belga
með 28 marka mun, 34-6 eftir að staðan í
hálfleik var 16-3. Vestur-Þýzkaland hefur
sex stig, en Austur-Þýzkaland fjögur og
Belgía ekkert. öll löndin hafa leikið þrjá
leiki.
Irans-keisari
talar um tíu
millj. dollara
— segir Ali ef ég vil slást
við Forman hjá honum
Ég held, að Jean-Pierre Coopmann taki
það ekki nærri sér, þó Evrópusambandið
hafi sett hann í tveggja ára keppnisbann
fyrir að keppa við mig, sagði heimsmeist-
arinnMuhammad Ali, þegar hann kom til
New York í gær eftir keppnina í San Juan.
— Ég sé þessum piltum fyrir lifibrauði,
sagði Ali, sem alltaf kallar Belgann Coop-
ermann. Hann rotaði hinn 29 ára belgíska
steinsmið í fimmtu lotu í San Juan.
Evrópusambandið var alla tíð á móti leik
þeirra — taldi Coopmann ekki verðugan
mótherja fyrir Ali, hvað einnig sýndi sig.
Ali ræddi um leikinn við Coopmann í
New York. Ég sló hann fast. Hann var
kvalinn og hann var meiddur. Þá var Ali
spurður hvers vegna allir meiri háttar
leikir hans voru háðir utan Bandaríkjanna
Hann svaraði. Amerískir vilja ekki borga
mér nóga peninga. írans-keisari talar um
tíu milljónir dollara ef ég slæst hjá honum
við Foreman. Blaðamannafundurinn með
Ali var haldinn hjá leikfangafyrirtæki, sem
notaði fundinn til að kynna „Muhammad
Ali dúkkuna”.