Dagblaðið - 01.03.1976, Side 3

Dagblaðið - 01.03.1976, Side 3
Spurning dagsins Raddir lesenda HVER EFTIR ÞORFUM .,10. fcbrúar síðastliðinn birtir Dagblaðið grcinarkorn cftir Guð- mund Jónsson á Kópsvatni. „Fíflinu skal á foraðið etja", og er stór hluti þess tilvitnanir í grein sem birtist cftir mig í Þjóðviljanum fyrir tæpum tveimur árum. Það er mér sannarlega gleðiefni að þessi Þjóðviljagrein hcfur orðið ein- hverjum umhugsunarefni en ég hlýt að viðurkenna að gleði mín er þó ekki fölskvalaus. Satt bezt að segja hélt ég að öllum þeim, sem lesið hafa grein mína, ætti að vera ljóst um hvað þar er rætt. En nú kemur í Ijós að því fer fjarri og er líklega við engan aö sakast nema sjálfan mig. Það eru einkum niðurlagsorð Guð- mundar á Kópsvatni sem benda til að ég hafi ekki kveðið nógu skýrt að. En hann segir: „Verkamenn verða að læra af reynslunni, minnast varn- aðarorða Óttars Proppé og láta ekki etja sér út í verkföll eins og fíflum á forað.” Hvorki nú né fyrir tveimur árum heur það verið skoðun mín að verka- fólk eigi ekki að nota verkfallshótun til að knýja fram kröfur sínar. Aftur á móti hef ég talið (og tel enn) að kröfurnar hafi ekki verið nógu hnit- miðaðar. Títtnefnd Þjóðviljagrein var fvrst og fremst hugsuð sem rök gegn þeirri ósvinnu að greiða fólki mishá laun fvrir jafnlangan vinnudag. En þar má einnig finna gagnrýni á for- ystusveit verkalýðsins fyrir að gera lítið sem ekkert til að afnema þetta óréttlæti. Sjálf baráttuaðferðin, verk- föll, er þar ekki gagnrýnd en látnar cru í Ijósi nokkrar efasemdir um að takmark baráttunnar hafi verið rétt valið og bent er á nauðsyn þess að færa baráttuna út fyrir þann ramma sem henni er nú markaður. Þar segir m.a. þegar rætt er um launajöfnuð: „Atvinnurckendur. vinnuveit- endasambandið og ríkið, svara án efa að ekki sé unnt að ganga gjörsamlega á snið við lögmál um framboð og eftirspurn. Ríkjandi kerfi leyfi ekki svo róttækar brevtingar. Það er líka mín trú að ríkjandi samfélagsgerð leyfi ekki slíkar brevtingar. Eg held hún sé réttlætismálum sem þessu Þrándur í Götu. Ef launþegasamtökin komast einnig að þeirri niðurstöðu ber þeim skylda til að leggja ekki árar í bát. Ef ríkjandi kerfi er þröskuldur á vegi réttlætisins liggur ekki annað fyrir en að gjörbreyta kerfinu.” Síðasta tilvitnun Guðmundar í grein mína er þannig: „Óréttlæti í stórum eða smáum stíl verður að hverfa. Nýafstaðnir kjarasamningar (marz 74) hafa litlu sem engu breytt um þessi mál.” Ég hefi gjarnan kosið að hann hefði látið næstu tvær máls- greinar fljóta með úr því hann var á annað borð að vitna í mig: „Þess vegna mælir ekkert með að fresta sókninni. Hið endanlega markmið hlýtur að vera að reglan „Hver eftir þörfum” verði höfð í heiðri þegar skipta á þeim auði sem sameiginlegt átak allra íslendinga hefur skapað.” Þessi viðbót hefði líklega komið í veg fyrir að ég birtist á síðum Dag- blaðsins í gervi frjálslynds góðborg- ara sem sér aó verkafólk er órétti beitt en vill engu að síður ræna það því vopni sem gæti, ef vel er málum haldið, afnumið óréttlætið.” Dalvík, ÓTTAR PROPPÉ. FÍFLINU SKAL Á FORAÐIÐ ETJA Þjóðviljinn cr málgagn sósialisma, vcrkalýðshrcyfingar og þjóðfrclsis, cins og i blaðinu slcndur. Kkki cr cg áskrifandi að Þjóðviljanum cn Sigríður í Núpsiúni hcldur honum lil haga fyrir mig svo að cg f* lækifæri ul að kynna mcr efni hans öðru hverju. Þó að cg sc oft ósammála þcim Þjóðviljamönnum, verð ég að viður- kcnna, að í blaðinu koma ofl Ixsileg- ar og áhugaverðar greinar. Ég er nú að lita i eitt Þjóðviljablað scm kom úl 23. marz 1974. Á þeim tima höfðu ýmsir örlagarikir atburðir nýlega gerzt. Dr. Þorsteinn Sæ- múndsson o.fl. merkir mcnn voru þá búnir að safna undirskriftum fyrir Varið land og miklar vinnudcilur höfðu þá nýlega verið lcystar á ör- lagarikan hátt. Þá fór allt úr bönd- unum cins og Hannibal sagði. Á bls. 7 i fyrrneíndu blaði cr mynd af dr. Þorsteini Sarmundssyni að beygja sig yfir kassann með undir- skriftablöðunum frá Vörðu landi cn þeir Ólafur Jóhanncsson og Eystcinn Jónsson horfa á mcð miklum alvöru- svip eins og þcir scu að fylgja vini til grafar. Nú að undanförnu hcf ég litið hcyrt i dr. Þorstcini Sa-mundssyni og öðrum VL-mönnum en mér finnst timi til kominn að þcir láli nú citt- hvað i sér heyra. Ég lcgg til, að þeir láti nú lólvuna draga út 500 nöfn þeirra sem skrifuðu undir hjá þeim VL-mönnum. Siðan vcrði þessir 500 menn spurðir hvort þcir séu cnn sömu skoðunar og fyrir tvcim árum varðandi dvöl bandariska hcrsins hér á landi. Á bls. 9 og 10 i fyrrnefdu blaði er grcin cftir Óttar Proppé sem nefnist Mennt er máttur tii að ..? Opið bréf til Markúsar Á Kinarsson- ar og annarra háttlaunaðra mcnnta- manna. Höfundurinn farrir þarna rtik gcgn þvi. að langskólamcnn cigi að fá harrra kaup en ómenntaður lýðurinn. Margt i grcin óttars cr svo vcl sagt og ihugunarvcrt að ég fór að rifja hana upp að nýju og cg ætla nú t d. að Ix-nda á cftirfarandi kafla: ..L'iii lcið og lágtekjufólk fcr að sclja vmnu sina. fcr það að borga skatta scm mcðal annars eru notaðir til að grciða kostnað af islenska skóla- kerfinu. Það fer þvi strax að greiða sinn hluta af kostnaði við menntun langskólagengins fólks. Það má því með fullum rétti spyrja hver skuldi hverjum.— Fullkomlega eðlilegt er að spyrja hvort láglaunafólk sé ekki haft að fifli. Augljóst er að láglaunamönnum er att á foraðið. Lykillinn að viðun- andi kjarasamningum hefur oftast verið í höndum Dagsbrúnarmanna. Tekjul-Tgstu launþcgarnir hafa lika oftast beitt skrðasta og vandmeð- farnasta vopni stéttabaráttunnar, verkföllum. En hvað hefur svo gerzt, þegar verkamenn hafa knúið fram kjarabziur? Tckjuháir launþegar fylgja í slóð- ina, eða berast cftir henni sjalfkrafa Allir fá hlutfallslega sömu launa- hzkkun, sem velt er bcínt út i verð- lagið. Kjarabætur láglaunafólks verða að engu. Það fa:r heldur flciri en að sama skapi léttari krónur i umslagið cn áður. Raungildi laun- anna er cnn svo lágt, að það er ofvaxið mennskum mönnum að framfléyta sér á dagvinnukaupi. Þcgar ég var skólastrákur í Flens- borg vann ég stundum á sumrin við að landa úr togurum. V»ð þetta unnu þá einkum unglingar og roskn- ir vcrkamenn. Karlarnir voru margir hverjir orðnir lúnir cftir langa *vi, og sumir þcirra hefðu alls ekki átt að koma niður í lest til annars en að rabba um daginn og veginn, því að þclta var púlvinna. Ég öfundaði mjög kranamennina, taldi þá eiga náðuga daga miðað við okkur i lest- inni og hefði með glöðu geði borgað dálitið af kaupinu minu fvrir að fá að stjórna krana einn og einn dag í stað þess að moka karfa. Ég hef sjaldan á zvinni orðið jafn undrandi og þegar ég heyrði, að kranamennirnir fengju hzrra kaup en karlarnir í lestinni. óréttlsrti i stórum eða smáum stíl verður að hverfa. Nýafstaðnir kjara- samningar hafa litlu scm engu breytt um þessi mál." Þetta allt hefur orðið mér mikið umhugsunarefni. Þó að verkamenn fengju mjög miklar kauphækkanir í krónutölu i fcbrúarlok 1974 voru þeir litlu sem engu bættari að þrem vik- uni liðnum, að dómi óttars Proppé. Eini árangurínn var aukin verðbólga og síðan varð ríkisstjórnin að gefast upp. En það er eins og menn eigi ósköp erfitt með að læra af reynslunni. Nú eru verkalýðsfélögin að undirbúa vcrkfoll ef ekki vcrður gengið að kröfum þeirra. Auðvitað vita allir, hver árangurinn vetður, aðeins aukin verðbólga. Krónutölukjarabseturnar verða allar teknar aftur á einn eða annan hátt, og verkamennirnir fá kannski ekki einu sinni hugsanlegan verkfallskostnað bættan Einhvcrs staðar cr villa i kerfinu sem verkalýðsfélögin verða að finna. Mig grunar að villan sé sú að lág- launastéttirnar bcita verkfallsvopn- inu til framdráttar kröfum tínum. Samningar, sem gerðir eru, hafa því aðeins eitthvert gildi að þeir séu haldnir. En samningar, sem gerðir eru þegar verkfall er yfirvofandi eða skollið á, eru í eðli sinu nauðungar- samningar, og samkvæmt almcnn- ingsáliti er ekki talin siðferðileg skylda að halda nauðungarsamninga. Þar liggur hundurinn grafinn. Þess vcgna renna slíkir samningar yfirlcitt strax út í sandinn. Atvinnurckendur og stjórnvöld rcyna strax að finna smugur til þess að komast fram hjá samningunum og jafnvel brjóta þá niður. Samningsrétlurinn er launastétt- unum svo rnikils virði að það er of mikil áhætta að gera þau réttindi óvirk rpeð verkfollum eða verkíallv hótunum. Svo má lika líta á rcynslu bænda. Þeir láta nægja að semja um kjör sin samkvæmt lögum, scm Al- þingi hefur sett, en beita ekki sölu- stöðvun á afutðum. S^mt finnst Jón- asi Kristjánssyni, ritstjóra Dagblaðs- ins, að þeir séu of heimtufrekir. Vcrkamenn verða að læra af reynslunni, minnast varnaðarorða óttars Proppé og láta ekki etja sér út i verkföl! cins og fiflum út I forað. Kópsvatni 1. febrúar 1976. GUÐMUNDUR JÓNSSON Grein Guðmundar Jónssonar — Fíflinu skal á foraðið etja, ljósrit. Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976. r/Nóg komið af svo góðu" HALLDÓRA GUÐLAUG SIGUR- JÓNSDÓTTIR hringdi og bað okk- ur að koma eftirfarandi á framfæri: „Þegar ég hringdi í minn gamla kennara, Ólaf Jóhannesson, í beinni línu um daginn ætlaði ég einungis að spvrja hann um gjaldevrismál sjó- manna. Það var aldrei ætlunin að vera með neitt skítkast í garð Ólafs sem mér hcfur alla tíð líkað mjög vel við. Þetta mál hefur verið blásið upp í lesendadálkum blaðanna og þætti mér mjög vænt um ef umræðum um það væri nú lokið.” Allir í F.Í.B. „EIN BÁLREIД skrifar: „Hvernig væri það að bifreiðaeig- endur tækju sig saman í andlitinu og gengju allir í FÍB og mynduðu nú einu sinni ærleg samtök til að mót- mæla þcssum sífelldu bensínhækkun- um sem dvnja yfin þjóðina í tíma og ótíma? Eru kannski allir orðnir svo heila- þvegnir af þessari biilvuðu ríkisstjórn að þcir saMti sig við hvað sem er án þess að æmta né skra*mta.‘ látthvað róttækt þarf að gera til að stöðva þessar sífelldu ha*kkanir. Því tel ég að myndun sterkra samtaka bifreiða- eigenda sé eina lausnin til að hamla á móti þróuninni.” ANNA LÍSA GUÐMUNDSDÓTTIR nemi: Jú, það geri ég og ég held að það sé alltaf svoleiðis þegar eitthvað er tekið sem maður er vanur að hafa. Annars er þetta allt í lagi í stuttan tíma. Mér fmnst ágætt að fá gosdrykki í staðinn. SÆVAR HAFSTEINSSON nemi: Já, auðvitað, en það er allt í lagi fyrir mig að fá hana ckki. Ég á tvö lítil systkini og það er slæmt fyrir þau að missa hana. Saknarðu þess að hafa ekki mjólk? ÞÓRUNN ÁRNADÓTTIR húsmóðir: Jú, svo sannarlega. En ég birgði mig nú svolítið upp vegna þess að ég á lítið barn. Ég veit ekki hvernig ég fer að núna, þar sem ég er búin með það sem ég átti. ÖRNÓLFUR ÖRNÓLFSSON verzl- unarstjóri: Jú, auðvitað geri ég það, það er ungabarn á heimilinu og það þarfn- ast hennar virkilega. Annars er þetta í lagi með þá fullorðnu, það er allt í lagi að drekka ávaxtasafa og gosdrykki. ÁSLAUG' KRISTINSDÓTTIR nemi: Já, svolítið, vegna þess að maður er svo vanur því. Ég drekk ávaxtasafa, te og gosdrykki í staðinn. Þakkir til dóms- mála- ráð- herra GUNNAR GUÐJÓNSSON hringdi: „Við erum hér félagar á vinnustað sem vildum koma þakklæti á fram- færi til Ólafs Jóhannessonar dóms- málaráðherra vegna lokunar hans fyrir vínveitingarnar á veitingahús- um borgarinnar. Það þarf að endur- skoða rekstur þessara staða ef þcir geta ekki borið sig án þess að seljaáfengi. Þessi endurskoðun ætti að fara fram áður en þetta bann er úr gildi fallið. Það ætti að takmarka þann fjölda staða sem verða opnaðir aftur og byggja allan sinn rekstur á vínsölu. Það er cngin þörf fyrir þá alla og mundi cf til vill minnka drykkjuskap til muna.” SIGURÐUR SIGURÐSSON nemi: Nei, ætli það. Þetta er allt í lagi í stuttan tíma. Þetta kemur verst niður á litlu börnunum. Það er ágætis tilbreyt- ing að drekka gosdrykki.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.