Dagblaðið - 01.03.1976, Page 12
Dagblaðið. Mánudagur 1. marz 1976.
12
Nýkomið
fró Vestur-
Þýzka
fyrirtœkinu
MANZ
Allar gerðir úr
úrvals skinni
Tvöfaldur sóli - leður
leður-bindisóli
Litur. Kastanie Nappa
Verð: 9.785.-
Breidd: G.
Einfaldur lipur leðursóli
Litur: Rauðbrúnt.
Leður-bindisóli
Breidd: G.
Verð: 7.115.-
Ekta hrágrúmmi'sólar
Leðurbindisólar.
Litur: Brúnt (kork Inka)
Breidd: J.
Sterkir gúmmisólar
Leðurbindisólar
Litur: Svart
■ Verð: 6.915.-
Breidd: f.
2802
Lipur leðursóli
Leðurbindisólar
Litir: Rauðbrúnt, svart,
brúnt
Breidd: J.
Verð: 7.570.-
Sjómenn lokuðu Vellinum
— fjögurra tíma öngþveiti
við varnarstöðina
Sjómenn á Suðurnesjum og ýmsir
þeir sem við sjávarútveg starfa, létu
verða af þeirri hótun sinni að loka fyrir
umferð inn í varnarstöðina á Keflavík-
urflugvelli í mótmælaskyni við afskipta-
leysi varnarliðsins, vegna framkomu
Breta við íslenzk varðskip, innan fisk-
veiðilögsögunnar.
Létu sjómenn til skarar skríða sl.
föstudagsmorgun, um klukkan sex, en
afléttu lokuninni klukkan rúmlega 10.
Lögreglunni barst tilkynning um vænt-
anlegar aðgerðir kvöldið áður og lokaði
hún hliðum vallarins strax og sjómenn
höfðu lagt bifreiðum þvert yfirgöturnar
við öll hliðin fjögur á vellinum, og þar
fékk enginn að fara nema að hafa
vegabréf sitt í lagi. Að sjálfsögðu urðu
menn að fara fótgangandi eftir að hafa
yfirgefið bifreiðar sínar utan vallarhlið-
anna og voru þar tugir ef ekki hundruð
bifreiða sem ökumenn og farþegar urðu
að yfirgefa.
Lögreglustjóri og fulltrúar voru í
hliðunum, ásamt nokkrum lögreglu-
þjónum, til að fylgjast með því sem
fram fór. Einnig voru þar forsvarsmenn
mótmælaaðgerðanna og í samtali við
fréttamann vildu þeir láta þess sérstak-
lega getið að þar væru helzt að verki
starfandi sjómenn.
Allt fór fram með hinni mestu ró og
spekt þótt einstaka manni þætti súrt í
broti að hverfa frá hliðunum vegna
vegabréfsleysis, — jafnvel eftir 20 ára
starf á vellinum. Meira að segja varð
ein kona að sjá á eftir eiginmanni
sínum inn fyrir hliðið, — þar sem hún
hafði ekki sín skilríki í lagi. —emm—
Dagblaðið
er smá-
auglýsinga
blað
- •' . .
• ^•. BHHIk
Mikið umferðaröngþveiti skapaðist í aðalhliðinu við lokun sjómannanna, eins og þessi mynd sýnir mæta vel.
■> Zf 'rT#*
Bandarísk skólabörn urðu að fara fótgangandi hluta af leið sinni, hér fara þau gegnum vallarhliðið á leið til skólans á
Vellinum.Lögreglumenn athuga skilríki þeirra sem inn á völlinn vilja fara.(DB-mynd EMM)
RlikíátftxM),,
f -NV- • O ■>, __ s , X(*».VX
(ÍEg víu’ uft hupa nm
luieVUmu ojí Cramtíö þ
Vl VfdvrttKv >>»,
í. i I V0W>.<" v 'ft v. , <? -fc~<*<s wv,
m ' v.: W.................
• •••••
' •-••••' ■ •
•'• ••••••• •••••• ■
Ég er oftast ósammála
Þjóðviljanum-
enégles hann reglulega.
Ég er ekki alltaf sammála
Þjóöviljanum-
en ég les hann reglulega.
Blað sem þú
kemst ekki hjá að lesa
Hvort sem þú ert sammála Þjóöviljanum eða ekki
þá kemstu ekki hjá aö lesa hann.
Áskriftarsíminn er 17505.
DIOÐVIUINN