Dagblaðið - 01.03.1976, Page 28
Á slysstaðnum við
Háaleitisbraut.
Fjórir bílar meira
og minna klesstir.
DB-mynd. Sveinn
Þormóðsson.
frjálst, úháð daghlað
Mánudagur 1. marz 1976.
Norðurlandaróð:
Fordœmir
aðgerðir
Breta
Þing Norðurlandaráðs samþykkti'
einróma áskorun þess efnis, að
Bretar dragi herskip sín þegar í stað
úr íslenzkri lögsögu, þ.e. út fyrir 200
mílna mörkin.
Brezk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig
um það, hvort þau ætli að verða við
þessari áskorun, sem forsæt.isnefnd
Norðurlandaráðsþings samþykkti.
Þessi samþykkt hefur að vonum
vakið heimsathygli, en í henni felst
afdráttarlaus stuðningur við
sjónarmið íslendinga um, að eng-|
ar viðræður við Breta um fiskveiði-
deiluna geti farið fram á meðan
brezk herskip eru innan íslenzkrar
lögsögu.
Geir Hallgrímsson, forsætisráð-
herra, hefur lýst ánægju með þessa
yfirlýsingu Norðurlandaráðsþingsins
og telur hana sterkustu viðbrögð,
sem hægt var að vænta þaðan í
þessu máli. — BS
Akureyri:
Harður árekstur
Ingimar Eydal, hinn landskunni
hljómlistarmaður, liggur í sjúkra-
húsi Akureyrar eftir árekstur sem
hann lenti í sl. þriðjudag. Var hann
á ferð í bíl sínum ásamt konu og
tveim börnum á leið til Akureyrar á
móts við Ferðanesti á mótum Flug-
vallarvegar. Kom þá bifreið frá
bænum og varð áreksturinn harður
mjög.
Ingimar, kona hans og annað
barnanna voru flutt í sjúkrahús, en
konan og barnið fengu að fara heim
daginn eftir. Ingimar Eydal er hins
vegar talinn mjaðmargrindarbrot-
inn og mun þurfa að gera á honum
aðgerð vegna slyssins, að sögn lög-
reglunnar á Akureyri. Mun Ingimar
því gista sjúkrahúsið enn um skeið.
-ASt.
Siglt á Baldur
Freigátan Yarmouth sigldi um
hádegisbilið á laugardag inn í hlið
varðskipsins Baldurs, átti árekstur-
inn sér stað norðaustur aí landinu.
Á freigátuna kom um 50 cm löng
rifa, rétt neðan við akkerið, auk þess
sem tveir til þrír metrar af efri
fóðringu á stjórnborða vöðluðust
upp, eins og um blikkdós væri að
ræða. Eftir á huldu skipverjar frei-
gátunnar skemmdirnar með stóru
segli.
Sigldi freigátan inn í hlið Baldurs
á sama stað og freigátan Diomede
fyrir um tveim vikum síðan.
Skemmdir urðu litlar sem engar á
Baldri að þessu sinni, aðeins lítillega'
var bætt við beyglur þær er fyrir
voru á varðskipinu.
Þessi fannst mann-
laus í Sólheimum.
Árekstrasúpa á Miklubraut
Á 10. tímanum í gærkvöldi varð
árckstrasúpa á mótum Miklubrautar
og Háaleitisbrautar. Okumaður
stórrar amcrískrar bifrciðar varð fyrst
valdur að árckstri á Miklatorgi, þar
scm hann skemmdi Ghevrolet-
bifreið. Síðan var ekið austur Miklu-
braut og á mótum Háaleitisbrautar
yarð hann valdur að árckstri sem
stórskemmdi fjóra bíla.
f’rá þessum slysstað stakk öku-
maðurinn einnig af. Bíll hans fannst
síðar inn í Sólheimum mannlaus.
Var bíllinn færður í port lögreglu-
stöðvarinnar. Þangað kom svo maður
enn síðar með kranabíl og ætlaði að
taka bílinn. Var sá við skál. Neitaði
hann að hafa ekið bílnum fyrr um
kvöldið. Maðurinn gisti fanga-
geymslur í nótt og málið bíður rann-
sóknar.
ASt.
Fiskverð ákveðið í nótt
MIKILL AGREININGUR UM
VERÐ Á LODNUVERTÍÐ
Mikill ágreiningur varð í yfirnefnd
um loðnuverðið. Verð hennar var,
eins og annað fiskverð, ákveðið um
miðnætti síðastliðið, en að loðnu-
verðinu stóðu aðeins oddamaður í
yfirnefnd og fulltrúar seljenda, en
fulltrúar kaupenda mótmæltu harð-
lega.
Verð á loðnu var ákveðið 3,10
krónur á kíló frá 1. til 7. marz, 2,80
frá 8. til 14. marz, 2,50 frá 15. til 21.
marz og 2,25 frá 22. marz til loka
vertíðarinnar.
Þá bætast við 5 aurar á kíló fyrir
flutning frá 1. til 14. marz.
Fiskverðshækkun almennt varð
annars nokkuð yfir 24 prósent. 24
prósent af hækkuninni má rekja til
breytinganna frá sjóðakerfi. Yfir-
nefnd ákvað fiskverð með atkvæðum
oddamanns og fulltrúa seljenda, en
fulltrúar kaupenda greiddu ekki at-
kvæði.
Þorskur 43—54 sentimetra hækkar
um 25%, sé hann 54—70 sm hækkar
verðið um 31% og um 36% sé hann
yfir 70 sm.
Ýsa hækkar um 33%, steinbítur
um 36%, ufsi um 24%, að sögn verð-
lagsráðs sjávarútvegsins. Þá hækkar
karfi í verði um 26%, lúða um 25% en
um 30% sé hún yfir 3 kíló. Skata
hækkar um 25% og einnig hrogn og
lifur.
Þá ákvað yfirnefnd samhljóða, að
loðna til frystingar skyldi kosta 24
krónur og loðnuhrogn til frystingar
50 krónur kílóið.
Kassafiskur og línufiskur verður
8% dýrari. Ríkið greiðir 90 aura á
kíló fyrir framangreindan línufisk.
Breytingar urðu ekki á stærðar-
flokkum. — HH
Sigurbjörn og Magnús ákœrðir
Ákæruskjal hefur verið gefið út á
hendur Sigurbirni Eiríkssyni,
veitingamanni, og Magnúsi
Leópoldssyni, framkvæmdastjóra
Klúbbsins, fyrir brot á lögum um
söluskatt, tekjuskatt og lögum um
bókhald, vegna reksturs tveggja
veitingahúsa Glaumbæjar og
Klúbbsins.
Tekur ákæran til fjárhæða, sem
nema tæplega 40 milljónum króna.
—BS
Þór Vilhjálmsson í Hœstarétt
Þór Vilhjálmsson, prófessor hefur
verið skipaður hæstaréttardómari.
Aðrir umsækjendur um stöðuna voru
þessir: Bjarni K. Bjarnason, borgar-
dómari, Elías Elíasson, sýslumaður,
Halldór Þorbjörnsson, yfirsaka-
dómari, Jóhann Salberg Guðmunds-
son, sýslumaður, Sigurgeir Jónsson,
bæjarfógeti, og Sigurjón Sigurðsson,
lögreglustjóri.
Forseti íslands veitir þessa stöðu
að tillögu dómsmálaráðherra. —BS
Þorlákshöfn:
Tveir drengir slasast alvarlega
Alvarlegt slys átti sér stað á þriðju-
dagskvöldið í höfninni í Þorlákshöfn.
Tveir átta ára drengir fundust þar á
dekki bátsins Húnarastar illa á sig
komnir, mjaðmargrindar- og lærbrotn-
ir. Fundust drengirnir ekki fyrr en um
kl. .23 um kvöldið en álitið er að dreng-
irnir hafi klemmzt á milli Húnarastar
og annars báts um kvöldmatarleytið.
Hafði þeirra verið saknað um nokkurn
tíma og hóf björgunarsveitin Mann-
björg leit að drengjunum um 22.30.
Brotsjóir gengu vfir bryggjuna og
ófullgerðan hafnargarðinn og var mesta
mildi að vel tókst til við flutning
drengjanna frá bátnum og í land. Voru
drengirnir síðan fluttir í Landakotsspít-
ala og tók ferðin þangað a.m.k. helm-
ingi lengri tíma en venjulega vegna hins
ömurlega ástands Þorlákshafnarvegar.
Er á sjúkrahúsið kom, að svo löngum
tíma liðnum, hafði annar drengjanna
misst það mikið blóð að ekki mátti
tæpara standa og lá drengurinn á spít-
alanum alla nóttina milli heims og
helju. — BH.
Sigurður Jónsson bakarameistari hefur bakað bollur í 54 ár.
Ljósm. DB-Bjarnleifur.
B0LLA -
Við mættum klukkan fjögur til þess
að byrja á bollubakstrinum, sagði
Sigurður Jónsson bakarameistari í
bakaríinu Austurveri við Háaleitis-
þraut.
Fyrstu bollurnar fóru vestur á elli-
heimilið Grund kl. hálf sjö, en þangað
fóru þúsund bollur. Næsti skammtur,
fimm hundruð stykki, fór inn á Klepp.
— Hvað ætlarðu að baka margar
bollur?
,,Ætli þær verði ekki eitthvað um
- B0LLA
tuttugu og fimm þúsund. Það er heldur
minna en í fyrra, því þá urðu þær
þrjátíu þúsund. Fólk hefur miklu minna
milli handanna núna eftir verkfallið.
Við* spurðum Sigurð hvenær hann
hefði bakað sína fyrstu bollu.
„Það var í Vestmannaeyjum árið
1922. Þá voru ekki til rjó'mabollur bara
rúsínubollur, krembollur og berlínar-
bollur. Þá kostuðu bollurnar átta aura
stykkið.
—A.Bj.
Eldur varð laus í gömlu húsi á
Eyrarbakka seint á föstudagskvöld-
ið. Hús þetta, sem ber heitið Steins-
bær, er gamalt timburhús, hæð og
ris. 77 ára gömul kona var eini
íbúinn í húsinu og bjó uppi í risinu.
Gamla konan varð eldsins ekki
vör, en vegfarendur sem leið áttu
framhjá sáu eldinn og gerðu henni
aðvart. Mátti ekki miklu muna að
útgönguleiðir hefðu lokazt, þá er
gamla konan var leidd út úr húsinu.
Slökkvilið Eyrarbakka réð niður-
lögum eldsins en húsið er mjög illa
farið eftir. Innbú gömlu konunnar
var óvátryggt, en húsið var í trygg-
ineu.
ASt.
MILLJ0N KR0NA ÞYFI FUNDIÐ
Kópavogslögreglan með fjögur i varðhaldi vegna innbrots i Grindavík
Lögreglan í Kópavogi hefur hand-
samað þjófa þá er brutust inn í
verzlunina Bragakjör í Grindavík að-
faranótt föstudagsins sl. Þá hefur
þýfið, peningaskápur með mikilli
fjárhæð, fundizt.
Að sögn Ásmundar Guðmunds-
sonar, rannsóknarlögreglumanns í
Kópavogi, virðist sem þjófarnir, sem
eru um tvítugt, hafi verið tvcir sam-
an er þeir fóru á stolnum bíl til
Grindavíkur á föstudagsnóttina.
Hafa þeir haft peningaskáp með um
einnar milljónar króna virði í pening-
um og víxlum með sér. Er þeir
nálguðust Kópavoginn ákváðu þeir
að losa sig við skápinn og földu hann
í gryfju við Vatnsenda. Þar fanns
skápurinn í gær og voru þjófarnii
hai dteknir, ásamt einum vini þeirra
og vinstúlku. Eru þau öll í gæzlu-
varðhaldi og vinnur rannsóknarlög-
reglan nú að rannsókn málsins..
— HP
Eyrarbakki:
Gamalli konu bjarg-
að úr brennandi húsi