Dagblaðið - 29.03.1976, Qupperneq 3
3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976.
Atli Örn Hilmarsson skrifar:
Hvernig má þaö vera að
listaþátturinn Vaka gerir popp-
tónlist engin skil? Nú undan-
Raddir
lesenda
Flugleiðir buðu nómsmðnnum
lœgstu mögulegu fargjöld
Námsmenn og aðrir íslend-
ingar í Danmörku hafa á und-
anförnum áratugum átt náin og
góð samskipti við íslensku flug-
félögin. Hefir það orðið til góðs
fyrir alla viðkomandi. íslensku
flugfélögin hafa alltaf boðið
löndum ytra bestu möguleg
kjör og eftir sameiningu félag-
anna og stofnun Flugleiða hf.
hefir sú þjónusta sist minnkað.
Það er mikill misskilningur
hjá námsmanni i Kaupmanna-
höfn, er hann heldur því fram,
að tilboð það sem Flugleiðir
gerðu Islendingaféjaginu i
Kaupmannahöfn fyrir leigu-
ferðir á sumri komandi, sé
óhóflega hátt.
Þetta kemur reyndar fram
í greininni, sem birtist í Dagbl.
mánudaginn 22. marz síðast-
liðinn, því þar segir, að erfitt sé‘
að fá lægri verðtilboð frá
öðrum flugfélögum og reyndar
ómögulegt. Sannleikurinn er
sá, að þegar tekið er* tillit til
allra aðstæðna og að þessir
flutningar fara fram a háanna-
tíma farþegaflutninganna í
júní og júlí, þá er þetta tilboð
sérstaklega lágt og hagkvæmt.
í sambandi við aðdróttanir
um einokun, má benda náms-
manni og öðrum á, að um slíkt
er ekki að ræða. SAS mun hefja
íslandsflug nú í vor og hefur að
sjálfsögðu sömu réttindi og
Flugfélag íslands og Loftleiðir
á umræddri flugleið. Þar að
auki hafa a.m.k. fjögur
flugfélög réttindi til flugs til
íslands. Heilbrigð samkeppni
er réttmæt og eðlileg, ekki
síður á vettvangi flug- og ferða-
mála en öðrum. Það er hins
vegar engum til góðs, hvorki
flugfélögum né almenningi, að
flogið sé á óraunverulegum far-
gjöldum. Slíkt endar aðeins
með kollsteypu eins og dæmin
sanna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi
Ákvörðun landbúnaðar-
vöruverðs einu sinni ó óri!
— það myndi koma í veg fyrir spókaup-
„OUT” skrifar:
„Þar eð mikið er kvartað um
skemmtistaði og ýmislegt þeim
viðkomandi þessa dagana
langar mig til að benda á það
forað fyrir utan veitingahúsið
Sigtún sem einhverjir gárung-
ar hafa leyft sér að kalla bíla-
stæði.
Stærri holur en á þessu Sig-
túnsstæði hef ég ekki rekizt á
síðan farið var að malbika
Kópavoginn, nema hvað bíla-
stæðið við Umferðarmiðstöðina
veitir því kannski harða sam-
keppni.
Ég vil gera það að kröfu
minni að holur þessar verði
fylltar hið fyrsta og borið í
drullusvaðið sem myndast við
Sigtún í úrkomu. Bezt væri
auðvitað ef stæðið yrði malbik-
að en tæplega er sanngjarnt að
fara fram á það svona stuttu
eftir að húsið hefur verið reist
og eigandinn er enn þá blank-
ur. En þegar að malbikun kem-
ur verður einnig að strika fyrir
bílastæðum. Það er ekki hægt
að ætlast til þess að góðglaðir
ökumenn komist klakklaust út
úr stæðunum og í umferðina án
þess að hafa línur og örvar til
að leiðbeina sér.”
Af hverju ekki popp í Vöku?
mennsku, segir kjötiðnaðarmaður
Hrafn í Kjötmiðstöðinni
hringdi til blaðsins og kvaðst
vilja koma gagnrýni á land-
búnaðarvöruverðið á framfæri.
„Eins og verðlags-
ákvörðunum á landbúnaðar-
vöru er nú háttað leiðir það til
afar mikillar spákaupmennsku,
ekki aðeins af hálfu neytenda
heldur líka af hálfu kaup-
manna. Því geta verðlagsyfir-
völd landbúnaðarvara ekki
ákveðið eitt verð sem gilti þá i
eitt ár og að það yrði ákveðið á
haustin? Hefði þetta t.d. það í
för með sér við samninga-
gerð í kjarasamningum að þá
gæti verkalýðshreyfingin vitað
a.m.k. hvert verðið á
landbúnaðarafurðum verður til
næsta hausts. Eins og þess-
um málum er nú háttað krefst
þetta mikillar lánafyrir-
greiðslu, a.m.k. hjá hinum
smærri kaupmönnum og sú
lánafyrirgreiðsla er alls ekki
til staðar. Ef litlu verzlununum
tekst ekki að komast fyrir þessa
erfiðleika er þeim sagt að þær
geti þá bara lokað, ef bændur
reka of Iítið bú til að það geti
borið sig, þá eru þeim strax
veittir styrkir og lán svo þeir
megi halda búi sínu áfram. Mis-
réttið á milli hinna ýmsu at-
vinnugreina er þarna augljóst.”
Kjötverðið breytist mörgum sinnum á ári.
DBmynd Bjarnleifur.
farið hefur verið efnt til tón-
listarkvölda, mjög merkilegra
að mínum dómi, þar sem fjöl-
margir listamenn komu fram.
En stjórnendur Vöku sáu enga
ástæðu til að minnast á þau
einu orði, hvað þá meir. Hvað
veldur? Maður var svo vitlaus
að halda að þetta breyttist
þegar Gunnari Þórðarsyni var
úthlutað listamannalaunum,
því það var í reynd viðurkenn-
ing á poppinu sem listgrein.
Fæst listamaður ekki við list?
Eða voru honum veitt launin
einungis til að friða poppunn-
endur?
Eru Vökumenn ekki vak-
andi? Eru þeir kannski tor-
næmir fyrir poppi? Eða fer
popptónlist í þeirra hárfínu sin-
fónísku taugar? Vita kauðar í
útvarpsráði ekki að meginþorri
áhorfenda/ hlustenda á aldrin-
um 12—30 ára hefði mjög gam-
an af þessu efni? Ef ekki er
mögulegt að koma þessu efni að
í Vöku þá viljum við poppunn-
endur mælast til að tónlistar-
þáttur verði settur á laggirnar í
sjónvarpinu, þar sem hvers
konar tónlist (lýðræði) fengi
sitt rúm.
Gunnar Þórðarson átti mikinn
þátt i því að poppið hefur verið
viðurkennt sem listgrein. Hann
hefur fengið listamannalaun.
f
Hvora stjórnina í Stúdenta-
félaginu, þó hœgri eða þó
vinstri, álítur þú rétt-
mœta?
Ingimundur Einarsson iaganemi:
Helzt vildi ég ekki tjá mig um
þetta. Ég er nýbúinn að sækja um
fbúð í hjónagörðunum og þvi gæti
þetta skipt verulegu máli fyrir
mig.
Þorgeir örlygsson laganemi:
Ég hef ekki kynnt mér lög
félagsins, veit þvi ekki hvernig
atkvæðagreiðslan fer fram og get
því ekkert um þetta sagt.
Hjörieifur B. Kvaran laganemi:
Þvi er fljótsvarað að stjórn
Kjartans Gunnarssonar var
loglega kosin á þessum fundi. Ég
var á fundinum.
Skúli Fjeldsted laganeml:
Þetta er mjög lögfræðilegt
túlkunarefni, hvor stjórnin telst
vera við völd, ég hef kynnt mér
málin.
Helga Jónsdóttir laganemi:
Það þarf ekkert að spyrja um það,
það er alveg sjálfsagt mál, hægri
auðvitað.
Björn E. Arnason nemandi:
Ég m.vndi segja tvímælalaust sú
hægri. ég rétt leit inn á fundinn.