Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 24
FREKjATA ÓVIG EFflR
ÁSIGUNGAR A BALDUR
Freigátan Diomede
er á leid til Bretlands
vegna mikilla
skemmda sem á
henni urdu vid ásigl-
ingar á vardskipid
Baldur. Þetta er í
annad skipti, ad
Baldur gerir herskip
óvígt.
Eftir ásiglinguna, þar sem
freigátan hlaut svo miklar
skemmdir, mönnuöu Bretar
byssur herskipanna og beindu
þeim að varðskipsmönnum.
Með því var, að því er virtist,
hafinn nýr og háskalegri þáttur
í þorskastríðinu. Bretar kölluðií
til Baldurs og sögðu að honum
yrði ekki liðin frekari áreitni
við togarana. Hélt Baldur þá
undan.
Diomede gerði yfir tuttugu
tilraunir til ásiglingar á Baldur
á tæpum klukkutíma, milli tæp-
lega tvö og.tæplega þrjú á laug-
ardaginn. í fjögur skipti varð
harður árekstur og þó lang
harðastur í tvö skipti. Engin
meiðsl urðu á mönnum.
Skemmdir á herskipinu urðu
mun meiri en á Baldri. Á her-
skipinu sáu menn, að komið var
5—6 metra langt og 1,5 métra
breitt gat á mótum þilfaranna,
rétt framan við miðlínu. Þar
opnaðist inn í skipið.
Á Baldri urðu skemmdir á
Bretar urðu æfir og mönnuðu byssurnar og beindu þeim að
varðskipsmönnum. Á myndinni sjást sjóliðar í nýtízku brynjum,
yfir höfuð og herðar. Þær munu vera úr asbesti. Þeir starfa við
flugskeytabyssurnar. Þorskastríðið er komið á hættulegra stig.
brúarvæng. Þar var brot í þil-
farið og skemmdir inn í her-
bergi skipherra. Skemmdir
urðu á stjórnborðslunningu frá
þilfarskrana aftur að miðgálga.
Á milliþilfari hefur bognað inn
á sama kafla. Tvær rifur eru á
efra þilfari og brot á þilfari á
ásiglingarstað. — Þetta varð 52
mílur austur af Langanesi.
Varðskipið fer væntanlega
aftur á miðin í dag. —HH
Það urðu engar smáræðis skemmdir á freigátunni. Gatið er 5—6
metra langt og hálfur annar metri á breidd.
r.....^
Réttargœzlumenn þremenninganna:
V
Rannsóknarlögregki ó hólum ís
„Lögreglumenn skulu
stöðugt miða alla rannsókn sína
við að leiða hið sanna og rétta í
ljós í hverju máli, sem þeir hafa
til meðferðar, og rannsaka jöfn-
um höndum þau atriði sem
benda til sektar sakaðs manns
og sýknu.”
„Við ásökum rannsóknarlög-
regluna fyrir að hafa ekki haft
þetta ákvæði laga um meðferð
opinberra mála að leiðarljósi á
nefndum blaðamannafundi,”
segja réttargæzlumenn þriggja
manna, sem nú sitja í gæzlu-
varðhaldi.
Af yfirlýsingu réttargæzlu-
manna þriggja manna, sem nú
sitja í gæzluvarðhaldi, grunaðir
um að vera valdir að dauða og
hvarfi Geirfinns Einarssonar,
verður hiklaust dregin sú álykt-
un, að ekki liggi fyrir játning
skjólstæðinga þeirra um ýmis
þau atriði, sem úrslitaþýðingu
kunna að hafa um niðurstöður
rannsóknarinnar.
Að sögn réttargæzlumann-
anna hefur ekkert komið fram
við rannsókn málsins sl. 62
daga, sem styðji frásögn þá,
sem þykir helzt benda til sektar
gæzluvarðhaldsfanganna. Sé
það rétt, að mikilvægir þættir í
rannsókninni rýri mjög frásögn
þremenninganna, vaknar sú
spurning, hvernig það gæti
hugsanlega atvikazt, að mjög
áþekkur framburður þriggja
manna er svo samhljóða, sem
skýrt hefur verið frá.
Miðað við framansagt og með
hliðsjón af hinni mjög svo harð-
orðu gagnrýni, sem fram kemur
í yfirlýsingunni, verður ekki
gengið fram hjá þeim mögu-
leika, að framburður sá, sem
einkum er byggt á, hafi verið
mjög mikið á reiki, og jafnvel
að einhveru leyti beinlinis
dreginn til baka.
Réttargæzlumennirnir eru
þeir Hafsteinn Baldvinsson, hrl.
Ingvar Bjornsson. hdl. og Jón
Gunnar Zoega, hdl„ og fer yfir-
lýsing þeirra hér á eftir:
Við undirritaðir, róttargœzlumenn þriggja
manna. sem nú sitja í gœzluvarðhaldi, grun-
aðir um að vera valdir að hvarfi Geirfinns
Einarssonar, sem talið er að horfið hafi í
Koflavík þann 19. nóv. 1974, teljum óhjó-
kvœmilegt að koma á framfœri athuga-
semdum við frásögn rannsóknarlögreglunn-
ar af rannsókn málsins á blaðamannafundi í
gœr, eins og hún hefir birzt í fjölmiðlum í
gær og í dag.
Við ásökum rannsóknarlögregluna fyrir
það að hafa á nefndum blaðamannafundi
fœrzt undan að svara hver hafi verið við-
brögð hinna grunuðu manna, er þeim var
kynnt frásögn hinna þríggja ógæfuung-
menna um aðild þeirra að hvarfi Geirfinns.
Fáum við ekki séö hvaða tilgangi það þjónar
að þegja yfir viðbrögöum skjólstæðinga okk-
ar.
Við ásökum rannsóknariögregluna enn-
fremur fyrir það aö hafa á nefndum blaða-
mannafundi látið hjá líða að skýra frá mikil-
vægum þáttum í rannsókn málsins, sem rýrt
hafa verulega framburð hinna þriggja vitna.
Við ásökum ennfremur rannsóknartög-
regluna fyrir að hafa látið ógert að skýra frá
því á nefndum blaðamannafundi, að vætti
fjölmargra aðila hefir komið fram, sem gerir
frásögn hinna þríggja vitna meira en tor-l
tryggilega.
Við ásökum loks rannsóknaríögregluna
fyrír að hafa sleppt því að skýra frá þvi á
nefndum blaðamannafundi, aö allt frá 26..
janúar sl. eöa i 62 daga, hefir ekkert komið
fram við rannsókn málsins, sem styður frá-
sögn hinna þriggja ógæfuungmenna.
Undirritaðir róttargæzlumenn harma, að
þurfa að taka þátt i umræöu um rannsókn
máls þessa á opinberum vettvangi og hefðu
heldur kosið að mega reka réttar skjólstæð-
inga sinna fyrír löglegum dómstólum
landsins. En þar sem þeir, sem ábyrgð bera á
rannsókn málsins hafa kosið að velja fjöl-
miðla sem vettvang til umræöna um það,
verður naumast undan vikizt, að taka þátt í
þeim umræöum.
„Vil ekki munnhöggvast í
— segir Örn Höskuldsson
„Við munuro svara þessari
yfirlýsingu fyrir réttinum, en
ekki munnhöggvast I fjölmiðl-
um,” sagði Örn Hiiskuldsson,
sakadómari, er blaðið leitaði til
hans i morgun vegna yfir-
lýsingar réttargæzlumanna
þriggja þeirra fjögurra manna,
sem grunaðir eru um að eiga
sök á hvarfi og dauða Geirfinns
Einarssonar.
Örn vildi ekkert láta hafa
eftir sér um þessa yfirlýsingu
réttargæzlumannanna, en
viðurkenndi þó, að við henni
hefði mátt búast.
Dómsrannsókn i þessu máli,
sem sífellt virðist ætla að verða
flóknara og furðulegra, hefst í
dag. Henni stjórnar Örn
Höskuldsson.
frfálst, úháð dagbJað
MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976.
Ranaslys ufan
Hafnarfjarðar-
hafnar
Maður einn ó báti
féll fyrir borð
46 ára gamall maður, Hilmar
Þórarinsson, Urðarstig 5 í
Hafnarfirði drukknaði í
morgun skammt utan við
Hafnarfjarðarhöfn. Hilmar
var einhleypur maður, fæddur
21.3. 1930 og bjó hjá foreldrum
sínum.
Hilmar hélt úr höfninni á
tímabilinu milli kl. 6 og 8 í
morgun. Fór hann á smátrillu,
opinni. Nokkru síðar fann
maður á öðrum báti litlu opnu
trilluna mannlausa á siglingu
úti fyrir Hafnarfjarðarhöfn.
Náði hann mannlausa bátnum
og fann nokkru síðan Hilmar
heitinn í sjónum, en hann var
þá látinn.
Snjór var í mannlausa
bátnum og hált í botni hans. Er
talið að Hilmar heitinn hafi
hrasað vegna hálkunnar í
bátnum og fallið fyrir borð og
síðan misst af bát sínum, sem
hélt áfram siglingu.
—ASt
Éljakóf og
skaf renningur 6
Keflavikurvelli
Veður var enn slæmt á Reykja-
nesi í gærkvöldi og í nótt. Á
Keflavíkursvæðinu gekk á með
kafaldsbyljum og skafrenningi i
éljunum. Olli þetta nokkru amstri
og erfiðleikum á Keflavíkurflug-
velli, en ekki þó svo að tafir yrðu
á flugi af þess völdum.
—ASt.
Óvenjulegur
órekstrafjöldi
i Hafnarfirði
Nokkuð varð um bifreiða-
árekstra á sunnudaginn, en þó
keyrði um þverbak í Hafnarfirði
hvað þetta snerti. Urðu þar 10
árekstrar þennan eina dag, og er
slíkt mjög óvenjulegt. Voru
lögreglumenn önnum kafnir við
mælingar. Engin slys urðu á fólki,
en ökumenn munu ekki hafa
varað sig á hálkunni.
Hafnarfjörður var jafnoki
höfuðborgarinnar í fjölda
árekstra, því 10 urðu þeir einnig í
Reykjavik. í Kópavogi hafði
lögreglan afskipti af þremur slík-
um. í öllum þessum árekstrum
varð talsvert eignatjón, en meiðsli
lítil eða engin.
—ASt.
Hvoð á barníð
að heita?
Fjöldamargir hafa hringt og
lagt til nöfn handa nýja flug-
félaginu. Meðal þessara nafna
eru þessi:
Leifur heppni, Þotukraftur,
Flugfákar. Sólarflug
(Sunways). Einn vildi láta
fyrirtækið heita Flugglaðir og
taldi það í mótsetningu við
aðalkeppinautinn, Flugleiðir
—JBP