Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 29. MARZ 1976. Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 30. marz. Vatnsberinn (21. jan.—19. feb.): Nú ráða öfl er valda því að málin snúast þér í hag. Þú skalt færa þér þetta tímabil í nyt. Þau mál sem einna helzt gætu valdið þér ein- hverjum vanda eru ástamálin. Fiskarnir (20. feb.—20. marz): Þessi dagur er góður til að innheimta skuldir. Farirðu í verzlunarleiðangur, virðast miklar líkur á að þú komist yfir eitthvað mjög óvenjulegt. Breytingar sem verða á einhverjum félagslegum framkvæmdum valda þér vonbrigðum. Hrúturinn (21. marz—20. apríl): Þetta verður rólegur dagur. Sinntu daglegum verkum þannig að þau dragist ekki aftur úr. Þessir friðartímar gætu vel endað mjög snögglega þannig að þú skalt koma því svo fyrir að það valdi þér engum vanda. Nautið (21. apríl—21. maí): Líkur eru á fjölskyldudeilum. Vertu eins ákveðinn og hægt er — en á vingjarnlegan, rólegan hátt — og ættir þú þá að sitja með ásana á hendi. Varaðu þig á að bjóða einhverjum heim í fljótræði. Tvíburarnir (22. maí—21. júní): Nú er rétti tíminn til að hefjast handa um ýmsar persónulegar breytingar. Skemmtileg og spennandi áætlun verður þér til ánægju, en þú mátt samt ekki láta það koma í veg fyrir að þú sinnir skyldum þínum. Krabbinn (22. júní—23. júlí): Þér býðst nú tækifæri til að fara í ferðalag. Stjörnu- staðan bendir til þess að það komi ekki til með að verða eins og þú ímyndar þér. Þú getur komið í veg fyrir að eldri mann- eskju finnist hún vanrækt. Ljónið (24. júlí—23. ágúst): Þú virðist vera flæktur í dálítið heimskulega aðstöðu og að þú verðir að fara varlega í kvöld. Einhver virðist nú færa þér hinar ánægjulegustu fréttir en þær þýða líka auknar bréfaskriftir. Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Gerðu það sem í þínu valdi stendur til að hressa þunglyndan vin þinn. Eitthvað mjög óvenjulegt gerist að öllum líkindum í kvöld. Ástarsamband virðist ætla að ná hámarki sínu innan skamms. Vogin (24. sept.—23. okt.): Sýndu stjórn- vizku og munt þú þá bæði fá þínu fram- gengt og halda orðspori þínu sem alls ósínkur maður. Hugaðu að heilsufari þínu, stjörnurnar benda til að þú þurfir á meiri hvíld að halda. Sporðdrekinn (24. okt.—22. nóv.): Nú ætti eitthvað sem þú átt og þykir vænt um að finnast aftur. Spáð er stuttu ferðalagi. Það lítur út fyrir að kvöldinu eyðir þú í félagsskap annarra — en þér er ráðlagt að fylgjast með fjárútlátum. Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.~): Stefnu- mót gæti vel brugðizt. Nánasta framtíð þin viröist bera i skauti sér óvænta heppni, sem á eftir að verða þér til mikillar gleði. Nýr vinur þinn gæti brugðizt nokkuð vonum þínum. Steingeitin (21. des.—20. jan.): Dagurinn í dag ætti að verða nokkuð líflegur og áhugaverður. Þér er boðið hingað og þangað og verður þú að grípa til lagninnar er þú afþakkar eitt þessara boða. Haltu pesónulegum bréfum til haga. Afmæiisbarn dagsins: Árið hefst með fjörkipp í félagslífinu, veizlum og fundar- höldum. Líkur eru á nýju ástarævintýri fyrri hluta árs. Þó er ólíklegt að það verði nokkuö varanlegt. Utlitið er mjög skemmtilegt eftir mitt tímabilið og þér ætti að bjóðast fyrsta flokks tækifæri. um Ja, hvorl væri nú bctra. . . . telja konuna frani scrstak- lega, — cða sem slæma fjárfestingu? H. SKA'l'TBKKti, Emnia! bú lofaðir að kaupa ekki meira af þessufn stofubiómum! Reykjavík: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavik: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið 1110. Slökkvistöðin 2222. Akureyri: Lögreglan sími 23222. Slökkvi- og sjúkrabifreið sími 22222. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 3333. Sjúkrabifreið 1110. Slökkvi- stöðin 2222. Rafmagn: I Reykjavík og Kópavogi, sími 18230. I Hafnarfirði í síma 51336. Hitaveitubilanir: Sími 25524. Vatnsveitubilarnir: Sími 85477. Simabilanir: Sími 05. Bilanavakt borgarstofnana Sími 27311. Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan' sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Orðaqáta 6 1 2 3 4 5 6 7 Þessi gáta líkist venjulegum krossgátum. Lausnarorðin koma í láréttu reitina, en um leið kemur fram orð í gráu reitunum, og er skýring þess: Þekktur veitingastaður í Reykjavík. Fyrsti stafur i því orði er einnig fyrsti stafur í 1 lárétt. 1. Saumurinn (eða nízkupúkinn) 2. Fríða 3. Verkfæri 4. Kalda veðrið 5. Hrærð 6. Listamaðurinn 7. Hesturinn. Lausn á orðagátu 5: 1. Fuglinn 2. Félagar 3. Kollana 4. Afbakar 5. Raungóð 6. Ókindin 7. Afbragð. Orðið í gráu reitunum: Félagið. HÍÍÍM Kvöld- og helgidagavarzla vikuna 26. marz til 1. apríl er í Lauga- vegsapóteki og Holtsapóteki. Það apótek, sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzluna á sunnudögum, helgidögum og almennum frídög- um, einnig næturvörzlu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga, en til kl. 10 á sunnudögum, helgidögum og almennum frídög- um, HAFNARFJÖRÐUR — GARÐABÆR NÆTUR- OG HELGIDAGAVARZLA, upplýsingar á slökkvistöðinni í síma 51100. Á laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Sjúkrabifreið: Reykjavík og Kópavogur, sími 11100, Hafnar- fjörður, simi 51100. Tannlæknavakt er í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstig alla laugardaga og sunnudaga kl. 17-18. Sími 22411. Reykjavík—Kópavogur Dagvakt: Kl. 8-17. Mánud,- föstud., ef ekki næst í heimilislækni, sími 11510. Kvöld- og næturvakt: Kl. 17-08 mánud,- fimmtud., simi 21230. A laugardögum og helgidögum eru læknastofur lokaðar, en læknir er til viðtals á göngudeild Landspítalans, sími 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Eftirfarandi spil kom nýlega fyrir í keppni í USA. Vestur spilaði út hjartagosa í þremur gröndum suðurs. Suður opnaði á einu grandi — norður stökk í þrjú, skrifar Alan Truscott. Norðub * 104 43 O ÁDG865 *K104 Vestur * Á973 G1096 0 1043 + 76 Austur * KG6 S? D82 O K2 * 98532 Suoun A D852 'í’ ÁK75 O 97 *. ÁDG Spilarinn í suður drap heima á kóng og svínaði strax tígulgosa. Austur gaf á stundinni, þar sem hann reiknaði með að suður mundi reyna tígulsvínun aftur. Auðvitað hefði hann nagað sig í Ifandabökin ef suður hefði átt fjóra tígla. Til þess kom þó ekki og þetta átti eftir að reynast vel. I 3ja slag spilaði suður laufi á gosann — og síðan tigli á drottninguna. Austur drap á kóng og tók eftir því að félagi hans lét tíuna. Með tvíspil í tígli hefði vestur strax látið hátt-lágt svo þetta hlaut að vera ósk um útspil í hærri hálitnum. Auk þess var greinilegt fyrir austur að spaðinn bauð upp á einu vonina til að hnekkja spilinu, þar sem hjartagosi í byrjun neitaði hærra spili í litnum. (Skrítið það — ef varnarspilari á t.d. ÁG1097 — ath. blaðsins). Austur fann vinningsvörnina. Spilaði spaðagosa og vörnin fékk fjóra spaðaslagi. Suður lét drottningu á gosann. Vestur drap með ás — spilaði litlum spaða sem austur tók á kóng. Enn spaði og nían og sjöið hjá vestri sáu fyrir 8-5 suðurs. If Skák Á skákmóti í Hollandi 1950 kom þessi staða upp hjá van Scheitinga og sænska stórmeistaranum Stahlberg, sem hafði svart og átti leik. |§| I * <> 1 1 * l Ö M l 1 l £ llll ■éf E 1.----Hxd5! 2. Hxd5 — Db7 3. Da5 — Rc7 og hvítur gafst upp þar sem hrókurinn er glataður. Ef 3. Dg2 — Dbl+ 4 Dgl — De5+ 5 Dg2 — Dxg2 6. Kxg2 — Rf4 og hrókurinn fellur. Þú ert svo upptrekktur, aó maður gæti haldið að þú værir fréttamaður hjá ríkis- fjölmiðli. Hvar eru Kóróna fötin þin?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.