Dagblaðið - 29.03.1976, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐli). MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976.
ÓSKARSVERDIAUNIN '76
VERDA VEITT í KVÖID
llin árlega veiting Óskars-
verðlaunanna verður í Holly-
wood í kvöld. Almennt er álitið
að bandaríski leikarinn Jack
Nicholson hljóti verðlaunin
fyrir beztan leik í kvikmynd-
inni „One Flew Over the
Cuckoo’s Nest".
Helzti keppinautur hans er
„guðfaðirinn” A1 Pacino, sem
leikur kynvilltan bankaræn-
ingja í kviklnyndinni „Dog
Day Afternoon”.
■Þetta er þriðja árið í röð sem
þeir Nicholson og Pacino
berjast um Öskarinn fyrir
bezta leikinn í aðalhlutverki.
Nicholson er 39 ára, Paeino 35
ára.
Kvikmynd Nicholsons, sem
fjallar um uppreisn eins
manns gegn kerfinu á geð-
veikrahæli — og síðan ósigur
hans — hefur hlotið flestar
tilnefningar til Öskarsverð-
launa í ár, alls niu.
Á hátíðinni í Hollywood í
kvöld verður einnig veittur
sérstakur Öskar til handa
einni mestu leikkonu fyrstu
Hollywood-kynslóðarinnar
fyrir rúmlega fimmtíu árum.
Það er engin önnur en Mary
Pickford, sem nú er 82 ára, er
verður heiðruð fyrir bæði að
vera einn frumbyggja Holly-
woodborgar og upphafsmaður
Öskarsverðlaunaveitingarinn-
ar.
Mary Pickford getur ekki
verið viðstödd sjálfa afhend-
ingarathöfnina, en þess i stað
sjá gestir þar kvikmynd, sem
tekin var af afhendingunni
heima hjá henni, í húsinu sem
hún og Douglast Fáírbanks Sr.
byggðu þegar þau giftust fyrir
löngu síðan.
Um verðlaunin fyrir bezta
leik í kvenhlutverki berjast
þær Louise Fletcher, sem
leikur mjúkmælta og einbeitta
hjúkrunarkonu í „Cuckoo’s
Nest”, og Ann-Margret, sem
leikur móðurina i rokkóper-
unni „Tommy”
Tilnefndar til verðlaunanna
fyrir beztu kvikmynd ársins
eru „Cuckoo’s Nest”,„Dog Day
Afternoon”, „Nashville”,
„Jaws" og „Barry Lyndon”
eftir Stanley Kubrik.
Meðal annarra ieikara, sem
taldir eru sigurstranglegir, eru
Walter Matthau, sem leikur
gamla vaudevillestjörnu í
„The Sunshine Boys”, Maxi-
milian Sehell fyrir hlutverk
sitt í myndinni „The Man In
the Glass Booth” og Ioks James
Whitmore fyrir túlkun sína á
Harry Truman, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, i„Give 'em Hell
Harry!”
Sigurstranglegar leikkonur
eru franska leikkonan Isabelle
Adjani, sem leikur dóttur
Victors Hugo i „The Story of
Adele H”, Glenda Jackson
fyrir hlutverk Heddu Gabler
og Carol Kane, sem leikur í
„Hester Street”, gamanmynd
um rússneska Gyðinga er
flytja til New York.
Þessir eru sigurstranglegastir: A1 Pacino, Maximiliian Schell, Jack Nicolsson, James Whitmore og
Walter Matthau.
Ef bíllinn er
auglýstur,
fœst hann hjó okkur
ÁHORNI
BORGARTÚNS OG NÓATÚNS
SÍMI 28255-2 línur
Dr. med. Jörgen B. Dalgaard,
prófessor í réttarlækningum vid
Háskólann í Árósum flytur fyrirlest-
ur um
umferðarslys og varnir gegn þeim
mánudaginn 29. mars kl. 17.00 í Nor-
ræna húsinu.
Allt áhugafólk velkomid.
Fyrirlestur þessi er fluttur á vegum
Læknadeildar Háskóla íslands,
Umferdarráds og Norræna hússins.
Allir velkomnir
NORRÆNA
HÚSIÐ
Argentína:
NÝR FORSETI f DAG
— Peron blönk og vill ekki fara ór landi
Rafael Videla hershöfðingi, trúarleiðtogum, sem komu að vana og vilji ekki láta vísa sér úr
yfirmaður landhersins í Argen- heimsækja hana, að hún sé fjár- landi.
tínu mun sverja forsetaeið í dag,
sá áttundi í röðinni af hermönn-
um, sem það gerir á síðustu 30
árum.
Videla mun halda embætti sínu
sem yfirmaður hersins og jafn-
framt halda stöðu sinni í her-
foringjaklíku þeirri, sem tók völd-
in í Argentínu s.l. miðvikudag.
María Peron, sem nú er i stofu-
fangelsi á sveitasetri, hefur sagt
Herforingjastjórnin sver
embættiseið sinn. Frá vinstri:
Emiiio Eduardo Massera, Jorge
Rafael Videla, hinn nýi forseti
og Orlando Ramon Agosti.
Wallace hyggst
Ríkisstjóri Alabama, George
Wallace hefur látið hafa eftir
sér, að hann muni ekki taka
þátt í fleiri forsetakosningum,
ef hann vinnur ekki í þetta
hœtta...
skiptið.
I sjónvarpsviðtali í gærkvöldi
sagði ríkisstjórinn: ,,Ég verð
ríkisstjóri Alabama í ein þrjú
ár til viðbótar, en þá er stjórn-
málaferii mínum að öllum lík-
indum lokið. Ég mun ekki
sækjast eftir forsetakjöri einu
sinni enn.”
Yfirlýsing þessi kemur í kjöl-
far þriggja ósigra Wallace i for-
kosningunum fyrir Jimmy
Carter, i Flórida, Illinois og
Norður-Karólínu.
SENDIHERRAR TIL
VANDRÆÐA í SVÍÞJÓD
Sænska lögreglan stöðvaði
bil, sem var ekið mjög
glannalega í miðborg
Stokkhólms á föstudaginn og
lét flytja hann á brott þegar
ökumaðurinn, erlendur
sendiherra, neitaði að yfirgefa
bílinn, en hellti sér yfir lög-
regluinennina með kröftugum
og kjarn.vrtum yfirlýsingum.
„Hann var einstaklega
ruddalegur og hrokafullur,"
sagði lögreglumaðurinn, sem
stöðvaði sendiherrann. „Þegar
ég rétti honum höndina, eftir
að við vorum komnir með hann
heim. hröpaði hann að mér:
„Farðu til helvítis, tíkar-
sonurinn þinn. Áður hafði
hann setið þrjá tíma i bilnum.”
Talsmaður Stokkhólmslög
reglunnar segir lögregluskýrsl-
una um málið bera með sér. að
sendiherrann hafi ekki verið
fær um að stjórna bifreið sinni
og verið hættulegur alntennri
umferð. Þessi meðferð hafi þvi
verið í fullu samræmi við al-
þjóðlegar reglur og lög. Sænska
lögreglan hefur ekki viljað
skýra frá því, hvaða sendiherra
átti í hlut.
Fyrr í þessum mánuði var
erlendur sendiherra í
Stokkhólmi sakaður um að hafa
nauðgað stúlku nokkurri marg-
oft í íbúð sinni í borginni, en
rannsóknin var látimiiður falla
þegar hann vísaði til
diplómatískrar stöðu sinnar.