Dagblaðið - 29.03.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976.
7
Vaxcmdi klofningur
meðal blökkumanna
— í Ródesíu
„Ytri” vængur hins sundraða
Afríska þjóðarráðs, undir
stjórn biskupsins Abels
Muzorewas, hefur hafnað öllum
hugmyndum um að þjóðernis-
leiðtoginn Joshua Nkomo,
forystumaður hins hluta ráðs-
ins, gangi til sartistarfs við þá.
í yfirlýsingu, sem gefin var
út í Salisbury í gærkvöld eftir
fund • Muzorewas og helztu
stuðningsmanna hans, var
Nkomo og stuðningsmönnum
hans lýst sem miklum minni-
hlutahópi, sem væri búinn að
vera, eftir að viðræður Nkomos
við ríkisstjórn Ians Smiths fóru
út um þúfur.
Báðir hlutar Afríska þjóðar-
ráðsins telja sig hvorn um sig
vera hinn eina sanna fulltrúa
blökkumanna í Ródesíu og
mega ekki heyra minnzt á sam-
starf um lausn mála þar suður
frá.
Síðasta tillagan í þá átt kom
fram á toppfundi með forsetum
Zambíu, Mósambík, Tanzaníu
og Botswana í Lusaka í síðustu
viku, en þann fund sátu einnig
þeir Nkomo og Muzorewa.
Vinstri menn vinna
síðasta vígi
Falangista í Beirót
Vinstri sinnaðir skæruliðar
hafa náð á sitt vald Hilton
hótelinu í Beirút, en það er talið
mjög hernaðarlega mikilvægt og
eru skæruliðarnir nú í
seilingarfjarlægð frá aðalstöðvum
kristinna manna í borginni.
Hefur nú verið lagt enn harðar að
Suleiman Franjieh forseta að
segja af sér nú þegar.
Hinir vinstri sinnuðu
skæruliðar, sem njóta stuðnings
palentínskra skæruliða, náðu
hótelinu, sem er 17 hæða bygging,
á sitt vald eftir harða bardaga,
sem taldir eru hafa kostað um '125
manns lífið.
Talsmenn skæruliðanna sögðu í
gær að þeir hefu nú færzt fram í
baráttunni um austurhluta
borgarinnar og er víglínan nú
talin vera í aðeins 400 metra fjar-
lægð frá höfuðstöðvum kristi-
legra Falangista. Leiðtogi sósíal-
ista, Kamal Junblatt hefur sagt,
að afsögn forsetans sé „óhjá-
kvæmileg og bráðnauðsynleg”.
OMAR
VALDIMARSSON
IRA hótar
auknum
sprenging-
um meðal
almennings
Sprengjur sem kunna að
valda sem mestum glundroða
meðal almennings, er sú
aðferð er írski frelsisherinn,
IRA, mun ætla að beita sér
fyrir á næstunni, samkvæmt
heimildum er næst ráðamönn-
um standa.
í London eru menn ennþá
að jafna sig eftir síðasta til-
ræði írsku skæruliðanna, er 85
manns særðust þegar sprengja
sprakk i sýningarmiðstöð
Ölympiuleikanna. Er því
haldið fram, að frelsisherinn
muni láta lítið á sér bera á
næstunni og beina tilræðum
sínum aðallega að mannvirkj-
um, ekki fólki, eins og verið
hefur.
Undanfarið hafa mannmörg
svæði, eins og vinsælir veit-
ingastaðir og neðanjarðarjárn-
brautarstöðvar, orðið fyrir
barðinu á árásum frelsis-
hersins og er talið að handtök-
ur lögreglunnar og hersins
undanfarna mánuði hafi
valdið því að liðsmenn frelsis-
hersins séu nú farnir að
iirvænta um sigur og láti sig
því engu skipta hvaða meðuí-
um þeir beita til þess að vekja
athygli á málstað sinum.
Erlendar
fréttir
REUTER
Rnnir þú til
feröalöngunac
þá er það vitneskian
um vorið erlendis
sem veldur
30% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí.
FLUCFÉLAC LOFTLEIBIR
ISLAJVDS
Félög sem sjá um föst tengsi við umheiminn