Dagblaðið - 29.03.1976, Síða 9

Dagblaðið - 29.03.1976, Síða 9
V DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976. Stefán Bjarnason, yfirlögregluþjónn: „Tími til kominn að athuga málið ## Um það, hver ber ábyrgð á því, að umrætt tæki var byggt með rás fyrir ýlitón eða hátíðni- tón, er ég ekki tilbúinn að svara, en eftir að tækið var komið- í notkun á lögreglustöð- inni, hlýt ég að vera ábyrgur fyrir notkun þess framar öðr- um lögregluþjónum. Skal það viðurkennt strax, að betur hefði þessi ýlutónn verið tekinn úr tækinu. En eftir að hafa lesið flest það. sem fram hefur komið í blöðum um þetta, þá sýnist mér ýmislegt fleira gefið i skyn og af þeim sökum eðlilegt, að málið verði brotið til mergjar á breiðari grunni, þvi fólk hlýtur að eiga heimt- ingu á því að fá úr því skorið, hvort lögreglunni á Akranesi sé stjórnað af manni með óeðli- legar hvatir, hvort meðferð fanga hér sé ómannúðleg eða þeir jafnvel kvaldir, þætti mér vænt um, ef félagið íslensk réttarvernd hefði forgöngu um réttarrannsókn á þessu sviði og niðurstaða þeirrar rannsóknar síðan birt i blöðum. Ég, sem þetta rita, er búinn að starfa sem lögreglumaður i hartnær 39 ár, þar af 35 ár á Akranesi, svo það er vafalaust timi til kominn að ganga úr skugga um þetta. Stefán Bjarnason, yfirlögregluþjónn. Rannsóknin var í höndum róðu- neytis Friðjón Guðröðarson, lögreglustjóri: Engin hátíðnitœki í fangaklefanum á Höfn // /# Vegna rangrar fréttar, er birzt hefur i nokkrum dagblöð- um og varðar notkun hátíðni- tækja í fangaklefum á Höfn í Hornafirði, vill undirritaður lögreglustjóri á Höfn taka fram eftirfarandi: 1: Kall-og hlustunarkerfi hér er af algengri japanskri gerð og hefur alls ekki hátíðni né möguleika til að hækka og lækka són inn í fangaklefa. Með tækjunum er því eigi hægt að valda sálrænum né líkamlegum óþægindum. Tæki þessi voru sett upp á miðju ári 1973 undir eftirliti og stjórn fulltrúa dóms- málaráðuneytisins. 2. Samkvæmt símtali við yfir- lögregluþjóninn á Akranesi, kvaðst hann eigi vera heimildarmaður varðandi upp- lýsingar um hátíðnitæki í fangaklefum á Höfn, og þar finnist nú enginn, sem vilji við málið kannast. 3. íslensk réttarvernd, sem kveðst hafa kannað það, að hátíðnitæki séu notuð í tveim fangelsum á íslandi, og meðal annars með yfirliti sinu á órétt- mætan hátt.beint grunsemdum að löggæzlunni á Höfn, hefur aldrei leitað eftir upplýsingum um tækjabúnað hér, hvað þá komið á staðinn og kannað málið eða látið á annan hátt rannsaka útbúnað í fangaklef- unurp. Lýsir undirritaður furðu sinni og vanþóknun á slíkum vinnubrögðum, en telur, að hér hljóti að vera um að kenna fljótræði en ekki illvilja, þar sem markmið íslenskrar réttar- verndar eru mjög jákvæð. Höfn, Hornafirði. 26. marz. 1976 Friðjón Guðröðarson. Vegna frétta af aðgerðum íslenzkrar réttarverndar í samvinnu við dómsmála- ráðuneytið í sambandi við kallkerfi í fangaklefum, hafa Dagblaðinu borizt yfir- lýsingar lögreglustjórans á Höfn í Hornafirði, Friðjóns Guðröðarsonar, og yfirlög- regluþjónsins á Akranesi, Stefáns Bjarnasonar. Dr. Bragi Jósepsson, for- maður íslenzkrar réttar- verndar hefur beðið Dagblaðið að geta þess, af gefnu tilefni, að félagið íslenzk réttarvernd hefur ekki haft með höndum rannsókn á tækjum þeim, sem um er fjallað. Hann kveður rannsókn á tilvist þeirra og notkun hafa verið í höndum dómsmálaráðuneytisins. Hins vegar hafi íslenzk réttarvernd átt hlut að ábendingum um slík tæki, og hafi dómsmála- ráðuneytið gefið félaginu kost á því að fylgjast með rannsókn þeirri, sem gerð var. , EINN FASTUR STARFSMAÐUR HJÁ HITAVEITU SELTIRNINGA „Hjá Hitaveitu Séltjarnarness er einn fastur starfsmaður og er ekki í ráði að á því verði hreyting í bráð,” sagði Jón H. Björnsson í viðtali við blaðið í gær. „Tekjur Hitaveitu Seltiarnarness eru nú rétt tæpar 2 milljónir króna á mánuði fyrir vatnssölu. Þessi tala er miðuð við siðasta innheimtutímabil sl. árs, þ.e. tvo síðustu mánuði ársins, en verðbreytingar urðu á árinu svo Hitaveita Seltjarnarness hafði ekki sexfalda þá tölu í heildartekjur 1975. Ekki er í ráði hækkun á heitu vatni á Seltjarnarnesi,” sagði Jón. Hjá Hitaveitu Reykjavíkur starfa 53 fastir starfsmenn ,að sögn Gunnars Nielsens skrifstofustjóra Hitaveitu Reykjavíkur. Gunnar gat ekki gefið upp tekjur Hitaveitu Reykjavíkur af vatnssölu á sl. ári. í Garðahreppi er vatnssala nú reynd með líkum hætti og gert er á Seltjarnarnesi, þ.e. með sölu mínútulítra, og greiða notendur þá fast gjald, hvort sem þeir nota allt vatnið eða ekki. Þeir geta í upphafi og árlega ákveðið hve mikið magn þeir kaupa. Hitaveita Reykjavíkur mun að fenginni reynslu í Garðahreppi taka til athugunar hvort heppilegt væri að sala á heitu vatni í Reykjavík yrði upp tekin með slíku hemlakerfi. Vegna fréttar okkar um verð á heitu vatni í Reykjavík og á Seltjarnarnesi hefur Hitaveita Seltjarnarness óskað birtingar á eftirfarandi: „Vegna fréttar í Dagblaðinu 24. þ.m. um verðsamanburð Hitaveitu Seltjarnarness og Hitaveitu Reykjavíkur þykir rétt að upplýsa eftirfarandi til þess að koma í veg fyrir hugsanlegan misskilning. Sölufyrirkomulag Hitaveitu Seltjarnarness er með öðrum hætti en hjá Hitaveitu Reykjavíkur þannig að einu sinni á ári er ákvarðað hámarksrennsli í hvert hús eða íbúð og gildir sú stilling út árið. Hver húseigandi notar þó aðeins það vatn sem hann þarfnast hverju sinni eftir veðráttu. Raunhæfasti samanburður er að bera saman hitunarkostnað sambærilegs húsnæðis, t.d. á ársmælikvarða, og kemur þá í Ijós að verðlagning þessara tveggja fyrirtækja er ekki ósvipuð. Hitaveita Seltjarnarness taldi þegar í upphafi rétt að taka upp svokallað hemlakerfi og kemur þar til góð reynsla annarra, t.d. Húsvíkinga. Með þessu er Hitaveita Seltjarnarness að sjálfsögðu ekki að segja það sé betra en mælakerfið, heldur hitt að það hafi þótt hæfa betur okkar markaði. Að endingu er rétt að árétta að verðsamanburður eins og gerður er í áðurnefndri Dagblaðsgrein er ekki raunhæfur og verður að skoðast með tilliti til ofangreindra skýringa. Hitaveita Seltjarnarness” _A gt 2. maí STEFNUMÓT VIÐ VORIÐ COSTA DEL SOL - 23. maí - 6. júní - 26. júní ÖRFÁ SÆTI LAUS - LANG HAGSTÆÐUSTU KJORIN FAST I VORFERÐUNUM. LIGNANO 19. maí - 2. júní - 23. júní - 7. júlí ÖRFÁ SÆTI LAUS COSTA BRAVA 13. maí — 28. maí — 18. júní ÖRFÁ SÆTI LAUS FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 SÍ/I/II 26611

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.