Dagblaðið - 29.03.1976, Page 12

Dagblaðið - 29.03.1976, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 29. MARZ 1976. Iþróttir íþróttir Karl Þórðarson skoraðl fjórða mark Islandsmeistaranna. DB-mynd Bjarnleifur. Meistara- taktar hjá Skagamönnum — Sigruðu Fram 4-1 íslandsmeistarar Skagamanna sýndu meistaratakta í fyrsta leik sínum undir stjórn nýja þjálfarans, Mike Ferguson, á Melaveliinum á laugardag. Sigruðu Fram 4-1 í meistara- keppni KSÍ — og Ferguson gerði nokkrar breytingar á liði Skaga- manna frá tapleiknum í Kefiavík. Fram náði fljótt forustu í leiknum, þegar Marteinn Geirs- son skoraði á 5. mín. eftir horn- spyrnu. Matthías Hallgrímsson jafnaði um miðjan hálfleikinn. Sneri baki í markið, þegar hann fékk knöttinn. Lék á Martein og skoraði. Rétt fyrir hálfleik fékk Matthías góðan stungubolta frá Árna Sveinssyni og skoraði annað mark sitt í leiknum. Greinilega í góðu formi — og Matthías er alveg hættur við Noregsförina. Verður með Skagaliðinu í sumar — Islandsmeisturunum til mik- illar ánægju. Jón Gunnlaugsson kom íslands- meisturunum í 3—1 eftir auka- spyrnu frá Birni Lárussyni í byrjun s.h. — en þegar um 20 mín. voru eftir af leik vísaði dómarinn, Þorvarður Björnsson, Birni af velli, þegar hann sló í læri Eggerts Steingímssonar. Þeir höfðu eldað grátt silfur — en dómarinn ekki veitt brotunum athygli fyrr en þarna. Ekki kom þetta að sök fyrir. Skagamenn. Þeir skoruðu fallegt mark í lokin, Matthías lék upp að endamörkum og gaf fyrir til Karls Þórðarsonar, sem skoraði. Skagamenn léku oft skínandi vel i leiknum, þó svo nokkra góða menn vantaði. Teitur Þórðarson lék ekki vegna vinnu sinnar — Jón Alfreðsson byrjar ekki fyrr en Islandsmótinu í bridge er lokið, og Jóhannes Guðjónsson verður ekki með fyrr en að loknu íslandsmótinu í badminton, Jóhannes verður við nám í Reykjavík í sumar, en mun leika með Akurnesingum þrátt fyrir það. 1 heild lofar leikurinn góðu fyrir átökin í sumar í knattspyrn- unni. Meistarar í fimleikum Sigurður T. Sigurðsson, KR, varð fimleikameistari íslands á laugardag — sigraði með yfir- burðum 45.4 stigum. Jafnir í öðru sæti urðu Helgi Agústsson og Gunnar Ríkharðsson með 39.4 stig. íslandsmeistari í kvenna- flokki varð Karólína Valtýsdóttir. — í fyrsta leik Litlu bikarkeppninnar 1 —2 Breiðablik vannÍBK! Litii bikarinn, Keflavíkurvöllur, ÍBK — UBK 1:2 (1:0). Keflvíkingar hafa iöngum lagt metnað sinn í að sigra í Litlu bikarkeppninni og gengið það liða bezt. Einna erfiðasta ljónið á veginum til að ná því marki hefur verið Breiðabliksliðið, sem oft hefur óvænt sett strik í reikn inginn hjá ÍBK og svo var einnig í Keflavík á laugardaginn. Nýlið- arnir í I-deiidinni sigruðu bikar- meistarana með tveimur mörkum gegn einu, — náðu tveggja marka forystu, þar til á seinustu minútu að heimamenn skoruðu sitt eina mark. Mörkin sem Breiðablik skoraöi eru kannski ekkert til að guma af, — ódýr — en á móti vegur að þeir sköpuðu sér góð færi og voru óheppnir að skora ekki, sérstak- lega í byrjun leiks, þegar Þor- steinn Ólafss. sló yfir þverslá hörkuskot frá Gísla Sigurðssyni, en annað geigaði. Þá máttu Kefl- víkingar prísa sig sæla að fá ekki á sig þriðja markið þegar þeir björguðu á línu. Það var Ólafur Friðriksson sem skoraði fyrra markið, snaraði sér á milli Sigurðar Björgvinssonar og Þorsteins markvarðar, þegar sá fyrrnefndi ætlaði að renna knettinum til markvarðarins. Ekki var þá að sökum að spyrja, Ólafur sendi knöttinn örugglega í netið, 1:0. Seinna markið skoraði hinn bráðefnilegi Hinrik Þór- hallsson. Stakk hreinlega kefl- vísku vörnina af, þegar knöttur- inn var á leiðinni inn fyrir hana, eftir aukaspyrnu á vítateigslínu Breiðabliks. 2:0. Olafur Júlíusson og Guðjón Guðjónsson, sá leikni og lipri leik- maður, sem sjaldan finnur náð hjá þeim sem velja IBK-Iiðið, unnu saman að eina marki heima- manna, skorað rétt fyrir leikslok, en Guðjón átti seinasta orðió, skallaði knöttinn af stuttu færi í markið, 2:1. Breiðabliksliðið er skipað ung- um og frískum piltum, sem reyna að ná samleik og tókst oft vel upp, sérstaklega í seinni hálfleik. — létu knöttinn ganga og brá oft fyrir góðum samleiksköflum hjá þeim. Þór Hreiðarsson var hinn leiðandi spilari hjá UBK og menn bjuggust við að liðið myndi gefa heldur eftir.þegar hann yfirgaf völlinn vegna nefbrots, en Trausti Halldórsson sem tqk stöðu hans skilaði hinu nýja hlut- Til hamingju Armenningar, ís- landsmeistarar í fyrsta sinn. Efri röð talið frá vinstri: Ingvar Viktorsson, þjálfari, Guðmundur Sigurðsson, Björn Christiansen, Jimmy Rogers, Sigurður Ingólfsson, Birgir Örn Birgis, Björn Magnússon, Sveinn Christiansen, Hailgrím- ur Gunnarsson. Neðri röð, Jón Björgvinsson, Atli Arason, Jón Sigurðsson, fyrirliði, Haraldur Hauksson og Guðsteinn Ingi- marsson. verki með ágætum, svo og Vignir Baldursson, sem kom inn á og í útherjastöðuna. Gísli Sigurðsson, leikinn og fylginn framherji vakti og nokkra athygli. Engu er líkara en þrekþjálfun iBK-liðsins sé ábótavant. I þremur leikjum hefur botn- inn dottið úr leik þess i seinni hálfleik, og leikur þess verið eftir því, — hopað í vörn en þær sóknarlotur sem náðst hafa eitt miðjuhnoð, skipulagslaust en þetta er brestur sem auðvelt ætti að verja að berja í. Þrátt fyrir mistökin í fyrri hálfleik var Sig- urður Björgvinsson, þótt nýliði sé, Keflvíkinganna beztur, ásamt Ólafi Júliussyni og Karli Her- mannssyni. Dómari var Ársæll Jónsson og dæmdi vel. Ag.M. Islenzkur sigur íslenzku stúlkurnar náðu sigri yfir þeim kanadísku í síðari iandsleik þjóðanna í gærkvöld en naumur var sá sigur, 14-13. Sú er öðrum fremur stuðlaði að sigri íslenzka iiðsins var Arnþrúður Karlsdóttir, skoraði helming marka liðsins, eða 7 talsins. Þrátt fyrir sigur var fátt sem benti til sigurs í leiknum lengst af. Kanadíska liðið virkaði sterkara, samæfðara, og Iék sem ein heild, gagnstætt íslenzku stúlkunum. Ef ekki hefði komið til einstaklingsframtak Arn- þrúðar er engum vafa undirorpið að Kanada hefði sigrað. Kanada hafði yfir í hálfleik 8-7. Framan af síðari hálfleik hélzt leikurinn í jafnvægi og þegar hálfleikurinn var hálfnaður var staðan 10-10. Þá tók Kanada góðan sprett, skoraði 3 mörk í röð og sigurinn virtist þeirra. En aldeilis ekki, með elju tókst íslenzka liðinu að vinna þennan mun upp og skora úr- slitamarkið mínútu fyrir leikslok og sigur í höfn, 14-13. Eins og áður sagði var Arnþrúður Karlsdóttir áberandi bezt í íslenzka liðinu, eins komst Gyða Ulfarsdóttir í markinu vel frá leiknum. Mörk íslands skoruðu: Arnþrúður Karlsdóttir 7, Erla Sverrisdóttir og Margrét Brandsdóttir 2 hvor. Jóhanna Magnúsdóttir, Hansína Melsted og Oddný Sigsteinsdóttir skoruðu eitt mark hver. h. halls. EFTIR25AR VANNSTTH - Ármann varð Íslandsmeistari ó laugi Birgir Örn Birgis vann þá sinn Eftir aldarfjórðungs baráttu vann Ármann loksins sinn fyrsta Islandsmeistaratitil í körfuknatt- leik á laugardag þegar liðið sigr- aði KR 84-74' Stundum hefur ekki munað nema hársbreidd að titili- inn ynnist og því var hinn mikli fögnuður Ármenninga að leik loknum skiljanlegur. Veldi risanna IR og KR hefur verið rofið en frá því 1959 hafa þessi lið deilt titlinum sín á milli þó ÍR hefði augljósa yfirburði — hefur sigrað 15 sinnum, KR 5 sinnum. Öumdeilanleda hefur Ármann verið lið þessa Islands- móts — aðeins tapað einum leik og þá fyrir tR. Liðið hefur á að skipa mestri breidd allra ís- lenzkra körfuknattleiksliða — þó auðvitað þeir Jón Sigurðsson og Jimmy Rogers hafi borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn. Sigur- inn á laugardag var Birgi Erni Birgis stór stund — árið 1958 hóf Charleroi tapaði og er í alvarlegri fallhœttu — Standard tapaði fyrsta heimaleiknum — gegn efsta liðinu Utlitið versnaði hjá Charleroi að halda sæti sinu í 1. deild i leikjum helgarinnar í Belgíu. Liðið tapaði á heimavelli 1-2 fyrir Lokeren, sem er í öðru sæti. Guðgeir Leifsson gat ekki leikið vegna meiðsla í ökkla, sem tóku sig upp í leik fyrr í vikunni. Standard Liege lék á heimavelli við efsta liðið Brugge og tapaði 0-1 — fyrsti tapleikur liðsins á heimavelli. Asgeir Sigurvinsson var í leikbanni og Iék ekki með — og fjóra aðra lykilmenn vantaði hjá Standard. Bæði liðin, sem Islendingar leika með, eiga eftir átta leiki, svo enn er möguleiki fyrir Charleroi að bjarga sér. Guðgeir reiknar fastlega með að vera orðinn góður í ökklanum fyrir næstu umferð. Urslit urðu annars þessi: Malmes-Molenbeek 0-2 Ostende-Beringen 0-2 Standard-Brugge 0-1 Charleroi-Lokeren 1-2 Beveren-Lierse 1-1 CS Brugge-La Louviere 2-0 W aregem-Liegeois - 1-0 Berchem-Beerschot 0-1 Anderlecht-Malinois 2-2 hann að leika með Armanni og loks hafðist sigur. „Jú, það hefur verið verulega gaman að leika með liðinu í vetur, samstaðan innan liðsins hefur verið stórkostleg,” sagði Birgir eftir leikinn. „En pressan er mikil á manni og þegar maður kemst á þennan aldur verður æ erfiðara að halda sér í æfingu. Því ætla ég að hætta eftir úrslitaleik- inn gegn Njarðvík, legg þá skóna á hilluna.” Eftir leikinn á laugardag var Birgi afhent stytta frá KKl og átti þessi vinsæli leikmaður það skilið, um það voru ailir sammála. Nú, leikurinn á laugardag var ákaflega spennandi og sigur Ar- manns var ekki átakálaus. Bæði liðin byrjuðu varfærnislega en brátt tók KR forystu, eftir 10 mín- útna leik var staðan 21-14 KR í vil og á 18. mínútu 39-32 en Ármann náði að minnka muninn í lok hálf- leiksins — 42-39 í hálfleik KR i vil. Þetta var fyrsti leikur Ármanns í vetur sem liðið var undir í hálfleik og það var mest fyrir tilstilli Trukksins, sem skoraði 20 stig í hálfleiknum. I byrjun síðari hálfleiks jókst munurinn í 48-40 en þá fóru Ármenningar að síga á og á 7. mínútu höfðu þeir komizt yfir 55- 54. Smám saman náðu Ármenn- ingar betri tökum á leiknum, Trukkurinn var farinn að þreyt- ast og gerði sig sekan um mistök. Þegar hálfleikurinn var hálfn- aður var forystan 6 stig — 70-64. KR náði eftir það aldrei að ógna Ármanni verulega og öruggur sigur Ármanns í höfn — og um leið sanngjarn. Sem l'yrr bar mest á Jóni og Jimmy en eins kom Haraldur Hauksson vel frá leiknum og skoraði þýðingarmikii stig. Liðið léjt sem ein heild og eins og Ingvar Viktorsson þjálfari Ár-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.