Dagblaðið - 29.03.1976, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. MARZ 1976.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Arnþrúður Karlsdóttir skorar eitt af sex mörkum sfnum i leiknum.
DB-mynd Bjarnleifur
Jafnt hjá konum
ískmds og Kanada
í fyrri landsleiknum á laugardag
Island og Kanada léku fyrsta
opinb,era landsleik þjóðanna í
kvennahandknattleik á laugar-
daginn og þjóðirnar skildu jafnar,
12-12, en ekki var risið hátt á
handknattleiknum sem boðið var
upp á.
íslenzka sóknin var alltof þung
og skipulagslaus en hins vegar
var vörnin skárri hluti liðsins.
Arnþrúður Karlsdóttir bar af í
íslenzka liðinu og sú eina, sem
hafði bormagn til að brjótast í
gegn um sterka vörn Kanada.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn — þö hafði Kanada yfir í
hálfleik 6-5 og framan af síðari
hálfleik hélt munurinn áfram að
aukast. Kanada komst í 10-7 en þá
náði íslenzka liðið ágætum kafla
En sigur íslands
í karla-leiknum!
ísland og Kanada léku fyrsta
iandsleik innbyrðis á laugardag
og i daufum leik f.vrir framan fáa
áhorfendur hafi ísiand sigur 23-
19. Öruggur sigur en greinilegt
áhugaleysi einkenndi leik ís-
lenzka liðsins enda handknatt-
leiksvertíðin á enda í augum
handknattleiksmanna, þrátt fyrir
að bikarkeppni HSÍ sé ekki lokið.
Greinilegt er hins vegar að ör
framþróun er í handknattleikn-
um í Kanada og sem gestgjafar
leika Kanadamenn á Olympíu-
leikunum í Montreal.
Leikurinn á laugardag var jafn
til að byrja með, þó hafði ísland
ávallt frumkvæðið. Staðan í hálf-
leik var 13-11 en áhugaleysi og
kæruleysi ríkti meðal leikmanna.
Vörn islenzka liðsins var alls ekki
nógu ákveðin og mörg mörk voru
skoruðu úr hornunum. En þrátt
fyrir það hélt munurinn áfram að
aukast í síðari hálfleik og í lokin
skildu 4 mörk — 23-19.
Guðjón Magnússon úr Val var
drýgstur íslendinga og skoraði
hann 5 mörk. Þeir Jón Karlsson
og Ólafur Einarsson skoruðu 4
mork hvor. Friðrik Friðriksson
skoraði 3 mörk og Hörður Sig-
marsson, Sigurbergur Sigsteins-
son og Arni Indriðason skoruðu 2
mörk hver. Bjarni Jónsson skor-
aði 1 mark.
Bkeðandi komst
Hartono í úrslit
— og varð heimsmeistari í áttunda sinn
Rudy Hartano, Indónesíu, átti í
litlum erfiðleikum með landa
sinn Liem Swie King í úrslita-
leiknum á All England-mótinu í
badminton á laugardag. Vann 15-
7 og 15-7 og varð þar með
heimsmeistari í áttunda sinn.
Það er met — Erling
Kops, Danniiirku, sigraði sjö
sinnum á mótinu. í einliðaleikn-
um i kvennaflokki sigraði Gillian
Gilks i fyrsta sinn — og vann
einnig í tvíliðaleik kvenna og
tvenndarkeppni. Fyrsti
„þrefaldi” sigurvegarinn á mót-
inu síðan Tonny Ahm, Dan-
mörku, vann það afrek 1952.
t undanúrslilum lenti Hartano í
mikilli baráttu við Danann Flem-
ing Delfs'. Hann vann fyrstu lot-
una 15-10, en tapaði annarri 7-15.
Það þurfti því oddalotu og í henni
virtjst Delfs ætla að tryggja sér
sigur. Komst í 9-2. Hartano lagaði
stöðuna 19-5, síðan 10-8, en þegar
Delfs komst' svo í 13-9 v'irtist staða
Hartano vonlítil. En hann gafst
ekki upp, þó blöðið dreitlaði úr
fæti hans og annar skórinn blóð-
storkinn. Vann næstu f.jögur stig
og jafnáði í 13-13 og jafnt vár
15-15. I lokin vann Hartano þrjú
stig fljótíega. I hinum leiknum í
undanúrslitum vann King Svíann
Sture Johnson 15-10 og 15-2.
FH-ingurinn
vann i
Víðavangshlaupinu
Sigurður P. Sigmundsson, FH
varð sigurvegari í víðavangs-
hlaupi ÍR um helgina. Hann skaut
þar Jóni Diðrikssyni UMSB aftur
fyrir sig og hljóp hina rúmu 5 km
á 17:05.7. Jón fekk tímann
17:12.6. Þriðji varð Agúst Þor-
steinsson, UMSB, á 17:23.9.
Ragnhildur Pálsdöttir KR varð
fyrst hja kvenfólkinu á 6:34.4,
önnur varð Lilja Steingrímsdóttir
USVS á 9:53.9.
í drengjaflokki 15-18 ára
sigraði Einat: P. Guðmundsson,
FH á 9:52.1, annar varð Ilafsteinn
Oskarsson ÍR á 9:53.
Arni . Arnþórsson ÍR pigraði í
piltaflokki 14 ára og yngri á
tímanum 6:23.6.
og komst í 12-10, og aðeins þrjár
mínútur eftir en ótímabær skot
urðu liðinu að falli og Kanada
náði að jafna 12-12.
Mörk íslands skoruðu Arn-
þrúður Karlsdóttir 6, Oddný Sig-
steinsdóttir, Erla Sverrisdóttir og
Guðrún Sigþórsdóttir 2 mörk
hver.
..Tilboð,
sem ekki verður
endurtekið...
SKODA 100
-‘630.000.
til öryrkja ca. kr. 460.000.-
I tilefni af því aö 30 ár eru síðan fyrsti
Skodinn kom til landsins,
hefur verið samið við SKODA
verksmiðjurnar um sérstakt
afmælisverð á takmörkuðu magni
af árgerðum 1976.
5000asti SKODA bíllinn verður
fluttur inn á næstunni.
Hver verður sá heppni?
SKODA 110L
verð ca. kr. 670.000.-
til öryrkja ca. kr. 492.000.-
SKODA 110LS
verð ca. kr. 725.000.-
til öryrkja ca. kr. 538.000.-
SKODA 110R Coupé
verð ca. kr. 797.000.-
til öryrkja ca. kr. 600.000.-
Shodr
TÉKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SÍMI 42600
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ Á AKUREYRI H/F. ÓSEYRI 8.
EGILSTAÐÍR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.
Húsbyggjendur Suðurnesjum
Eigum fyrirliggjandi
Þilplötur.
Spónaplötur.
10 mm — 25 mm þykkar
Plasthúðaðar spónaplötur 12 — 19 mm þykkt.
Krossviður 6 mm til 25 mm þykkur.
Masonitt.
Þurrkuð smíðafura i öllum þykktum.
" Gluggaefni, glerlistar, glerísetningarefni.
Furupanill o.m.fl.
Sendum fieim
Trésmiðja Þorvalds Ólafssonar h.f.,
■
Iðavöllum 6, Keflavík, sími 92-3320.