Dagblaðið - 13.05.1976, Page 3

Dagblaðið - 13.05.1976, Page 3
I)A(iBLAÐIí). KIMMTUDACUR 13. MAl 1ÍI7(>. 3 Að skylda menn tíl að taka sér f rí — það er hneyksli — fyrirkomulag orlof sgreiðslu er í ólestri K.G. skrifar: ,,Þaö fyrirkomulag sem nú er á greiðslu orlofsfjár 'er alger- lega óviðunandi. Ég veit dæmi þess að fólk hafi orðið að fara nokkrar ferðir auk þess að kosta upp á símtöl til þess að ná orlofsfé sínu. Þurfti viðkomandi þrjár ferðir á bíl milli fjarða, þar sem unnið var utan aðsetursstaðar, og auk þess tvö símtöl að viðbættu vinnutapi. Það er á algjörlega röngum skilningi byggt og hrein svik við vinnandi fólk að haga orlofsgreiðslum á þann hátt sem nú er gert. Fyrst og fremst er verið að svipta fólk frelsi ef það fær ekki að hafa umráð yfir sínum launum sem það á rétt til að fá í sínar hendur strax. Það er brot á frelsi að hver þegn þjóðfélagsins fái ekki notið launa sinna frjálst. Furðulegast er að þessi lög, sem í gildi eru um orlof og orlofsfé, skula vera samin af þeim mönn- um sem þykjast vera að gæta hagsmuna vinnandi fólks. Ef orlofsfé væri greitt með öðrum launum væri mörg fyrirhöfn og aukakostnaður afnuminn bæði hjá launþegum og fjölda ann- arra sem í þessu verða að standa og að öllu þessu kerfi vinna. Eða er það ekki tap fyrir þann sem í því verður að standa, þegar efnahagurinn er tæpur, að taka víxillán út á váentanlegt orlofsfé og borga þar með háa vexti? Fyrir utan það að þetta fyrirkomulag að taka þó nokkra upphæð af laun- um fólks, sem er haldið fastri hjá Póstri og síma eða atvinnu- rekendum eftir atvikum I heilt ár án vaxta. Segjum að orlofsfé væri á bankavöxtum. Mundi ekki verða einhver prósenta i kauphækkun? Hver maður getur séð hver munur er á lántöku og inn- stæðu. Ég er verkamaður og mér sárnar það mest að þeir sem eiga að vera forsvarsmenn okkar skuli koma svona lögum á, sem algjörlega ganga I öfuga átt við hag fólksins. Að skylda menn til að taka sér frí og hvíld frá störfum og fara í sumarfrí er algjörlega mis- heppnað og kemur ekki að neinu gagni. Menn fara ekki í sumarfrí eða taka sér hvíld þegar efnahagurinn jaðrar við gjaldþrot. Heldur fara menn í einhverja aðra vinnu sem gefur meira i aðra hönd en sú sem þeir hafa haft og þá verður álagið enn meira en þessir góðu herrar ætlast til með þessu hvíldartali, sem klifað er á. Að setja lög sem banna fólki að bjarga sér og jafnvel að hirða launin þess, eins og í sumum tilfellum er heimilað og þaó af þess eigin félagi, er mjög lítil- lækkandi. Nú kemur það í dagsljósið að þjóðin verður að borga flein milljónir vegna orlofsfyrir- komulagsins. Póstur og sími þárf að fá hækkanir í sífellu til þess að slanda straum af þess- um kostnaði Menn fara ekki í sumarfrí og taka sér hvíld þegar efnahagurinn jaðrar við gjaldþrot. Ljðsmynd Ragnar Th, Dýrtíð ó íslandi — að vísu en er þetta ekki fulllangt gengið? Július Högnason, Keflavík, hringdi: „Hér í Keflavík er trésmlða- verkstæði sem Þorvaldur Ólafs- son rekur. Eins og gengur og gerist vantaði mig timbur og pantaði hjá Þorvaldi 32 metra af furu 1x4 og hálfa plötu af hvítum, vatnsheldum krossviði, en hún var söguð I tvennt. Þegar ég pantaði þetta hjá Þor- valdi kostaði efnið — furan hefluð og krossviðsplatan söguð i fernt — krónur 11000 ellefu þúsund og auðvitað samþykkti ég þá upphæð. Þegar hins vegar fjórum og hálfum tíma síðar var komið með efnið til mín var timbrið komið upp í 14000 — fjórtán þúsund, verðið hafði hækkað um þrjú þúsund á fjórum og hálfum tíma. Þrátt fyrir mikla dýrtíð á Islandi var ög ekki alveg tilbúinn að samþykkja þessa óvæntu og miklu hækkun og sagði þvi þvert nei við borgun. Þá bauðst maðurinn til að lækka verðið um 2000 — tvö þúsund krónur. Þrátt fyrir það fannst mér enn dýrtíðin of mikil á þessum klukkustundum sem liðnar voru frá þvi að ég pantaði timbrið og neitaði og-hef enn neitað að borga timbrið. Lái mér hver sem vill. Svona viðskiptahættir eru engum líðandi og þeir eiga alls ekki að komast upp með slíka sem'þa.” Símatíminn er fró 13—15 Vildirðu vera á varðskipi? Páll Benediktsson nemi: Nei, það er strangt og hættulegt að standa í þessu og þetta eru djarfir karlar sem eru á skipunum. Spurning dagsins Páll Jónsson farmaður: Eg get ekki ímyndað mér það. Það er agalegt að standa I þessu og ég vildi ekki skipta. Guðmundur Hallgrímsson lyfjafræðingur: Jú, ég gæti hugsað mér það. Ég var einu sinni messagutti á varðskipi, en það er annað mál hvort konan yrði samþvkk því. Friðrik M. Friðriksson verka- maður: Nei, mig hefur aldrei langað til þess. Þetta er hræðilegt taugastrið og ekki fyrir hvern sem er að standa í þessu. Jóhannes Jónsson nemi: Já, hvers vegna ekki. Egvildinú frekar vera á miðunum ef þar væri dálítið rólegra, þeir þurfa að vera harðir af sér þessir náungar. Agúst Filipusson: Þvi ekki það? Við verðum að gera það sem við getum. Stjórnin verður líka að gera sitt, hún hefur ekki gert það.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.