Dagblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 10
10
DACBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976.
MMBIAÐW
fijálsi, úháð dagblað
Útju'fandi: Daubladið hf.
Fiainkvæindastjóri: Svuinn H. KyjólfssorKÍÍitstjón: Jónas Kristjánsson.
Frúttastjóri: Jón Birj>ir Pótursson. Kitstjórnarfulltrúi: Haukur Holjjason. Aóstoóarfrótla-
stjóri: Atli Stcinarsson. íþróttir: Hallur Símonarson. Hönnun: Jóhannos Rovkdal. Ilandril:
Asyrímur Pálsson.
Blaóamenn Anna Bjarnason. Asseir Tómasson. Bolli Hóðinsson. Braj>i Siguróss'ön. Krna V.
Intíolfsdottir. (íissur Siuurðsson. Hallur Hallsson, Helui Pótnrv^on, Kat'rin Pálsdóttir. Olafur
Jónsson. Ómar Valdimarsson. Ljósm.vndir: Bjarnleifur Bjamieifs.son. Björjjvin Pálsson.
Rajjnar Th. Sigurðsson.
(Ijaldkeri: Þráinn Þorleifsson. DreifinjjarstjórL Míir K.M. Halldórsson.
Askriftarjíjald 1000 kr. á mánuði innanlan'ds. í lausasölu 50 kr. eintakið.
Ritstjórn Síðumúla 12. sími 83322. au<jlýsin«ar. áskriftirojj afjíreiðsla Þverholti 2. sími 27022.
Setninj’ ojj umhrot: Dajjhlaðið hf ojj .SiidndórsprenJ Armúla 5.
Mynda-tiy plötu«eró: Hilmir lif.. Siðumúla 12.1’n .-.tun: Arvakur hf.. Skeifunni 10.
„Sérstaða" Einars
Einar Ágústsson, utanríkis-
ráðherra, hefur að ýmsu leyti
reynt aó skapa sér sérstöðu í ríkis-
stjórninni. Hann hefur látió í þaö
skína, aö hann vilji ganga
rösklegar til verks í landhelgis-
málinu en ríkisstjórnin í heild,
sem jafnan dregur lappirnar.
Hvað eftir annað hefur utanríkisráðherra
lýst yfir efasemdum um, að við eigum að hafa
hér varnarlió frá Atlantshafsbandalaginu við
þær aðstæður sem skapazt hafa. Vissulega eru
það engin smáræðis tíðindi, þegar ráðherrann
sagði á „beinni línu” í útvarpi síðastliðinn
sunnudag, að hann væri vel til meó aó ganga
Keflavíkurgöngu, ef hún væri aðeins gegn her-
stöðvunum, en hann væri ekki tilbúinn að
mótmæla NATO.
Utanríkisráðherra var í vetur fljótur til að
segja þá skoóun sína, að tafarlaust ætti að slíta
stjórnmálasambandi vió Breta, þegar hann
daginn eftir varð að beygja sig fyrir vilja
forsætisráðherra og samþykkja frestun á þeirri
ákvöróun.
Þrátt fyrir ýmsa tilburði af þessu tagi hefur
afstaða utanríkisráðherra haft yfir sér ,,já, já,
nei, nei”-yfirbragð.
Yfirlýsing utanríkisráðherra í beinni línu
gaf til kynna, aó hann stæði enn við þá afstöðu
sína frá dögum vinstri stjórnarinnar að vilja
herinn burt.
Sú afstaða hefði átt að styrkjast við atferli
Bretlands, eins NATO-ríkisins, við ísland.
Varla er um annað að ræða en að sá, sem var
andvígur dvöl varnarliðsins fyrir landhelgis-
deiluna, væri enn andvígari henni eftir að
deilan hófst.
En hver trúir því, að utanríkisráðherra í
núverandi stjórn, maðurinn, sem samdi við
Bandaríkjamenn um áframhaldandi dvöl
þeirra hér og festingu hennar með byggingu
íbúðarhúsa á vellinum og öðrum fram-
kvæmdum til langs tíma, sé í reyndinni að
reyna að koma hernum burt?
Ef marka mætti yfirlýsingar ráðherrans fyrr
og síðar, yrði niðurstaðan sú, að hann hafi verið
andvígur varnarliðinu, þegar hann sem fulltrúi
vinstri stjórnarinnar sótti bandarísk stjórnvöld
heim og afhenti þeim kröfur um að varnarliðið
færi. Þá yrði niðurstaðan sú, að skömmu
seinna, í núverandi stjórn, hafi ráðherrann
verið fylgjandi varnarliðinu, þegar hann samdi
um áframhaldandi dvöl þess og beitti sér fyrir
henni í opinberri umræðu. Þá yrði niðurstaðan,
að nú sé ráðherrann aftur orðinn andvígur
varnarliðinu, þegar hann segist í útvarpi
standa með þeim, sem krefjast brottfarar
liósins. Er nokkur önnur lausn?
Fáir munu telja, aö í þessu felist nægileg
skýring á afstöðu utanríkisráðherra okkar til
varnarliðsins, enda skortir augljóslega
samhengi í slíka afstöðu.
Vel væri, ef utanríkisráóherra berðist fyrir
skeleggari afstöðu í landhelgismálum. Ekki
veitir af.
En samkvæmt því hefði utanríkisráðherra
átt aó neita aó setjast meó Bretum á utanríkis-
ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins, sem
stendur fyrir dyrum.
Þjóöin á heimtingu á, að utanríkisráðherra
hennar geri grein fyrir, hvað hann er eiginlega
að fara.
Hann hefur samband
víð aðra heima
Viótal APN vió Rúdólf Peshek,
meðlim tékknesku vísindaaka-
demíunnar og formann alþjóð-
legrar nefndar sem stefnir aö
samskiptum við aðra hnetti.Hann
er í fararbroddi hreyfingar sem
kölluð er CETI, en það er í fyrsta
lagi skammstöfun á
„Communication with Extra-
terrestrial Intelligence” og í öðru
lagi þýðir ceti á latínu „hvalur”.
Ein af stjörnum samstirnisins
sem kennt er við hvalinn,
stjarnan Taú, vekur sérstaka
athygli vísindamannanna. Þeir
álíta að á henni séu skilyrði fyrir
hendi til þess að líf þróist. Fjar-
lægð Taú frá okkar jörð er
„aðeins” 12,2 ljósár.
APN — Megum við álíta, að
draumurinn um að hitta viti
gæddar verur úti í geimnum sé
hættur að tilheyra draumórum og
orðinn að vísindalegu rann-
sóknarefni?
RP — Já. Nefndin starfar á
vegum Alþjóðlegu stjörnufræði-
akademíunnar, sem er alvarleg
stofnun og fæst ekki við
draumóra. Það var árið 1961, sem
nokkrir vísindamenn komu
saman til að íhuga þessi mál en
þorðu ekki að segja frá því, enda
þótt meðal þeirra væru tveir
nóbelsverðlaunahafar. Þeir voru
hræddir um að fólk mundi líta á
þetta sem hvert annað andakukl.
En 1965 tók ég á mig rögg og
talaði upphátt um þetta á fundi í
sjörnufræðiakademíunni. Þá var
ákveðið að senda öllum mestu
vísindamönnum heims spurninga-
lista til þess að kanna afstöðu
þeirra. Yfirgnæfandi meirihluti
hafði áhuga á að niálið yrði
rannsakað nánar. Uppúr þessu
komst á laggirnar starfshópur,
síðan bráðabirgðanefnd og loks
var sett fastanefnd CETI árið
1971. Var ég kosinn formaður
nefndarinnar.
APN — Hvernig stóð á því að þér
ákváðuð að gefa yður að þessum
rannsóknum, sem margir vísinda-
menn líta þó tortryggnisaugum?
RP — Þar býst ég við að ráði
mestu þróun mín sem vísinda-
manns. Eg er flugvélaverk-
fræðingur að mennt. í fyrstu
vann ég við að hanna flugvélar,
síðan tóku geimskip við af flug-
vélum, og loks fór ég að fást við
tæki, er notuð eru til að reyna að
ná sambandi við verur á öðrum
hnöttum. Á meðan við höfum
ekki nóga tæknimöguleika til að
fljúga milli stjarnanna er CETI
eina rökræna framhaldið á geim-
rannsóknunum.
Stundum er sagt, að við séum
að reyna að ná sambandi við ein-
hvern eða eitthvað, án þess að
vita hvort „það” er til. Að við
tölum um afleiðingar, sem slíkt
samband gæti haft, án þess að
vita hvort það er yfirhöfuð fram-
kvæmanlegt. En mikilvægi
þessa vandamáls er slíkt, að
vísindin verða að fást við það. Það
er útí hött að spyrja hvaða gagn
sé af slíkri þekkingu.
í marz 1974 var samþykkt í
sovésku vísindaakademíunni
áætlun um rannsóknir á hljóð-
merkjum utan úr geimnum. t
Sovétríkjunum er lokið smíði rat-
sjár, sem nefnd hefur verið
RATAN-600 og er 600 metrar að
þvermáli. Stærsta ratsjá í heimi,
áður en hún kom til sögunnar var
bandarísk, staðsett á Puerto Rico,
og var hún 300 m í þvermál. Gert
er ráð fyrir að ratsjám verði ekki
aðeins komið fyrir á okkar
plánetu, heldur einnig á hnatt-
braut hennar. Sovéska áætlunin
nær langt fram í tímann. Eg
vona líka að bandarísku
„víkingarnir” komi til með að
svara spurningunni um líf á Mars,
en þeim er einmitt ætlað að leita
lífrænna verksummerkja þar.
APN — En vísindin hafa enn ekki
fundið neinar sannanir fyrir því
að vitsmunalífi sé lifað annars
staóar en á jörðinni okkar. Margir
vísindamenn staðhæfa að svo sé
ekki...
RP — Þeir eru ekki svo margir,
og þeim fækkar stöðugt. Það eru
aðallega lfffræðingar, sem telja
að lífið á jörðinni sé einstakt
fyrirbæri, það byggist á svo
mörgum lögmálum og tilviljunum
að útilokað sé að slíkt gerist
annars staðar. En slíkar
kenningar vekja andmæli þeirra
sem ekki vilja sætta sig við þessa
einveru okkar í geimnum, og svo
stríða þær gegn vísindalegum
staðreyndum.
APN — Hvaða staðreyndum?
RP — Til dæmis hefur komið í
ljós, að mólekúlin, sem eru grund-
völlur lífsins, fyrirfinnast alls
staðar í geimnum. Og þar sem ævi
þeirra er stutt, á stjarnfræðilegan
mælikvarða, hafa þau ekki getað
verið þarna frá fornu fari, þau
hljóta að endurfæðast. Árið 1969
féll loftsteinn til jarðar skammt
frá Melbourne í Astralíu. í
honum fundust leifar af 18
sýrutegundum, þar af 12, sem
ekki þekkjast á jörðinni. Þarna er
um að ræða efni, sem hefur fæðst
annars staðar í geimnum, þ.e.a.s.
einhvers staðar hafaöll þessi lög-
mál og tilviljanir verið fyrir
hendi til þess að líf gæti kviknað,
og því skyldi þá ekki vitsmunalíf
geta kviknað?
APN — Látum svo vera.
Sýrutegundirnar sanna að líf
finnst í geimnum. En hefur ykkur
nokkuð miðað áfram í leitinni að
vitsmunalífi?
RP — Enn sem komið er hefur
ekkert af þeim hljóðmerkjum,
sem borist hafa utan úr geimnum,
verið sent af vitsmunaverum.
Stundum hefur mönnum skjátlast
og þeir haldið sig hafa heyrt
merki sem síðar kom í ljós að voru
stjörnumerki eins og t.d. þegar
breskir vísindamenn uppgötvuðu
það sem þeir kölluðu „litlu grænu
mennina.” Þvi miður voru það
ekki litlir grænir menn, heldur
stjörnur, sem gefa frá sér
hljóðmerki með jöfnu millibili —
sem er útaf fyrir sig mjög merk
uppgötvun. Við höfum reynt að
ná merkjum frá stjörnum eins og
Epsilon og Taú, en árangurslaust.
APN — Hvers vegna einmitt
þaðan?
PR — Vegna þess, að þessar
stjörnur eru tiltölulega nálægar
og uppfylla skilyrðin, sem
nauðsynleg eru til þess að líf geti
kviknað: Þessi skilyrði eru:
Stjarnan má ekki vera of ung (þá
hefur lífið ekki haft tíma til að
þróast frá frumstæðum formum í
ÍSLAND ÚR NAT0,
HERSTODVARNAR BURT
v
Enn er blásið til Keflavíkur-
göngu undir kjörorðinu ísland
úr Nato, herinn burt. Síðast var
slík ganga 1968. Þá sömu daga
var í Háskóla Islands boðaður
ráðherrafundur NATO-ríkja.
Um það bil sem Keflavíkur-
gangan var komin miðja vega
til Reykjavíkur lenti á Reykja-
víkurflugvelli þota Pimpinellis,
eins helsta foringja grísku her-
foringjastjórnarinnar, sem þá
sat við völd.
Út á flugvöll skunduðu ís-
lenskir valdamenn og aðrir
Nato-forkólfar með fleðulátum
til að taka á móti þessum blóð-
hundi og baráttumanni fyrir
hagsmunum Nato frá Grikk-
landi. En á flugvellinum voru
einnig mættir nokkrir flótta-
menn frá Grikklandi. Þeir
ætluðu að hafa í frammi mót-
mælaaðgerðir gegn herfor-
ingjastjórninni. Þeir vonuðust
til, að slíkar mótmælaaðgerðir
við þetta tækifæri mundu ber-
ast með fjölmiðlum víða um
heim, og verða þannig a.m.k.
siðferðilegur stuðningur við þá
alþjóðlegu baráttu, sem þá fór
fram í Grikklandi og utan þess
gegn ógnarstjórn herforingj-
anna. Þeir vildu sýna heimin-
um, að jafnvel hér á þessu af-
skekkta eylandi væri herfor-
ingjastjórnin ekki látin í friði.
Flóttamennirnir voru fljótlega
umkringdir af fslenskum lög-
reglumönnum. Foringi lögregl-
unnar tilkynnti flóttamönnun-
um, að ef þeir ekki hefðu sig
hæga yrði þeim umsvifalaust
vlsað úr landi og sendir til
Grikklands, í hendur herfor-
ingjastjórnarinnar. Menn geta
giskað á, hvaða örlög hefðu
beðið þeirra þar.
Að þessari móttökuathöfn
lokinni fóru grísku andspyrnu-
mennirnir til móts við Kefla-
víkurgönguna, með merki sln
og fána, fylktu liði með íslenzk-
um herstöðvaandstæðingum,
meðal þeirra fundu þeir sína
bandaménn. Þessir bandamenn
lögðu svo vaxandi áherslu og
tóku upp á sína arma baráttu
hérlendis til stuðnings frelsis-
baráttunni á Grikklandi. Bar-
átta þeirra ásamt baráttu á
svipuðum grundvelli um allan
heim varð svo sá stuðningur við
baráttuna í Grikklandi sjálfu,
sem leiddi til þess áfangá, sem
fall herforingjastjórnarinnar
var.
Segi menn svo, að barátta
herstöðvaandstæðinga hafi
verið árangurslaus. Og þetta er
ekki eini árangurinn. Víetnam-
starfið hér á íslandi reis vissu-
lega upp í kjölfar almennrar
andheimsvaldasinnaðrar bar-
áttu um allan heim á þeim tíma,
en mergurinn í þeirri baráttu-
fylkingu, sem þá reis upp hér á
landi hafði hlotið eldskírn slna
I baráttuhreyfingunni gegn
herstöðvunum og Nato.
Almennt má fullyrða, að bar-
átta herstöðvaandstæðinga hafi
haft mikil áhrif til eflingar
þeirrar andheimsvaldasinnuðu
vitundar, sem nú er svo ríkj-
andi, einkum meðal ungs fólks
á islandi. í þessari baráttu hafa
slíkar fjöldaaðgerðir sem
Keflavíkurgöngur reynst
þýðirigarmikið vopn, við
ákveðnar kringumstæður. Það
er mat herstöðvaandstæðinga,
að nú sé réttur tlmi til að grlpa
til þessa vopns, en héðan I frá
sem hingað til verður þetta
aðeins ein af fjölmörgum bar-
áttuaðferðum. Það eru slikar
fjöldaaðgerðir, ásamt stöðugri
upplýsingastarfsemi fjöl-
margra baráttumanna, sem
tengst hafa baráttunni I slíkum
fjöldaaðgerðum, sem orðið
hefur öflugt mótvægi vinstri-
hreyfingarinnar á íslandi gegn
næstum samhljóma kór auð-
valdsáróðurs og auðvaldslitaðra
frétta I flestum þýðingarmestu
fjölmiðlum landsins.
Mikil samstaða
Barátta herstöðvaand-