Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 13.05.1976, Qupperneq 7

Dagblaðið - 13.05.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1976. 7 Fellur sœnska stjórnin íhaust? Mikið fylgistap sósíaldemókrata Samkvæmt síðustu könnun- um er fylgi sósialdemókrata óven.julitió í Svíþ.jóð um þessar mundir eóa um 38.5 prósent. ..Baráttan undanfarna mánuði hefur sennilega valdiö okkur miklu t.jóni,” segir Olof Palme. Þetta þýöir t.d. fylgistap um 4% á tímabilinu marz til apríl, en á sama tíma hefur Miðflokk- urinn (Centern) aukið við sig. Aðeins á öðrum tug aldarinn- ar hefur fylgi sósíaldemókrata Erlendar fréttir REUTER Lesbía drap nunnu — sem vildi slíta ásta- sambandi þeirra Franqoise Matringe, fertug og áhugasamur kórsöngvari, varð mannsbani er vinkona hennar, sem var nunna, vildi ekki halda kunningsskapnum áfram. Hún hágrét er kviðdómur- inn, sem einungis var skipaður karlmönnum, dæmdi hana seka fyrir morðið á systur Marie Therese Lefevre í ágúst árið 1973. Franqoise, sem unnið hafði í mörgum klaustrum, hafði gert síðustu tilraun til að viðhalda sambandinu. Þær stöllur áttu fund á skrifstofu hreyfingarinnar sem berst fyrir réttindum til handa kynvilltum, en þar sleit nunnan sambandinu. Franqoise hljóp á eftir henni og skaut vinkonu sína til bana með riffli úti á götu. Mál þetta hefur lengi verið í deiglunni og valdið miklum deilum innan hinnar kaþólsku kirk.ju, en yfirmenn hennar hafa nú viðurkennt að um ein- hvers konar ástarsamband gæti hafa verið að ræða með stúlkunum tveim.en að nunn- an hafi fengið bót á „sjúkdóm- inum" og að það sé orsök af- brotsins. Franqoise Matringe var dæmd í fimmtán ára fangelsi. verið undir 40% fyrir kosning- ar, en kosningar verða í Svíþjóð í haust. „Árásirnar gegn ríkisstjórn- inni undanfarna mánuði hafa sennilega valdið hvað mestu hér um,” segir Olof Palme. „Þær hafa líka komið í veg fyrir að hægt væri að ræða þau mál sem telja verður nauðsyn- legri.” 4. apríl sl. réðist leikkonan Ford Bandaríkjaforseti hefur viðurkennt í fyrsta skipti að kosn- ingabarátta hans sé erfióari en hann hafi átt von á. Það hefur verið erfitt fyrir forsetann að tapa hverjum forkosningunum á fætur öðrum, en hann er þófull- viss um að hann verði útnefndur frambjóðandi Repúblikanaflokks- ins til forsetakjörs í haust. Ford er nú í heimaríki sínu í Michigan, þar sem forkosningar verða á þriðjudaginn. Fari svo, að Ford tapi þar fyrir Ronald Reagan, fyrrum ríkisstjóra Kali- forníu og kúrekahetju á hvíta tjaldinu, er talið víst að mögu- Martti Miettunen, forsætisráó- herra f’innlands, leggur í dag fram lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt. Talið er líklegt, að afleiðingin verðisú að kommúnist- ar mis.si ráöherraembætti sín fyrir fullt og allt. Stjórnarkreppan fylgir í kjöl- far andstöðu kommúnistaflokks- ins — sem á fjörutíu þingmenn af tvö hundruð á þingi — við tillög- um um hækkun á söluskatti. Aðrir flokkar hafa þegar fallizt á hækkunina. Miettunen forsætisráðherra gengur í dag 'á fund Kekkonens forseta til að ræða ákvörðun sína um að bið.jast lausnar. Kommúnistar segja að fyrir- huguð hækkun múni koma harðast niður á láglaunafólki og valda aukinni verðbólgu. Ekki er talið líklegt að efnt verði til nýrra kosninga því jafn- vel án kommúnista hefur sam- steypustjórn hinna f.jögurra flokkanna — Jafnaðarmanna, Miðflokksmanna, Sænska þjóðar- flokksins og Frjálsl.vnda flokksins fræga, Bibi Andersson, harka- lega gegn ríkisstjórninni og skattayfirvöldum. 22. apríl birtust í dagblöðum kveðjubréf Ingmars Bergman, er hann fór frá Svíþjóð fyrir fullt og allt. 31. marz kom saga Astrid Lind- gren, Pomperipossa, út. Hún fjallar um mann sem býr í þjóð- félagi þar sem maður verður að borga meira í skatt en hann þénar og hefur sagan þótt hæða Palme og skattastefnu hans verulega. leikar hans á að hljóta útnefning- una og ná kjöri séu alvarlega tak- markaóir. Reagan hefur sigrað forsetann í fimm af sex síðustu forkosningum, síðast í Nebraska í fyrradag. Þessi óheppni forsetans hefur vakið ugg í Hvíta húsinu um að Ford gæti orðið fyrsti for- setinn sem ekki hlýtur útnefningu flokks síns síðan Chester Arthur varð fyrir því árið 1884. Aðstoðarmenn Fords í Hvíta húsinu vióurkenna, að hann verði að sigra I Michigan á þriðjudag- inn eigi hann að hljóta útnefning- una. — tólf atkvæða meirihluta á þingi. Enn ein stjórnin verður nú að fara Irá i Finnlandi. Sá eini sem stendur af sér stjórnmálalegt um- rót er Kekkonen forseti, sem gegnt hefur því embætti í ára- raöir. FORD AÐ MISSA AF FORSETA- EMBÆWNU Finnland: Stjóm Miettunens segirafsér — heldurþó líklega áfram en án þátttöku kommónista Palme á nú í mestu erfiðieikum fyrir kosningarnar í haust, en fylgi sósíaldemókrata hefur minnkað um fjögur prósent á einum mánuði. Borgarafiokkarnir bæta hins vegar við sig. Það er greinilega ekki nóg að láta mynda sig með huggulegum stelpum til þess að hljóta útnefningu sem forsetaefni. Allt bendir til þess að Ford muni verða að verjast harðri baráttu til þess að hljóta þá upphefð. SAMSKIPTIMEÐ SENDISTÖÐVUM í HÖFÐINU! Tvær erfðaskrár til viðbótar hafa komið í ljós í Las Vegas í Nevada, báðar sagðar vera skrifaðar með eigin hendi auð- jöfursins Howards Hughes. Hafa þá alls fjórar erfðaskrár komið fram. 1 annarri peirra, sem komu fram í gær, var gert ráð fyrir að megnið af auðæfum Hughes rynni til manns, sem eitt sinn hélt því fram að hann og Hughes hefðu haft samband sin á milli með örsmáum sendi- stöðvum, er komið hefði ýerið fyrir í höfði þeirra. Fyrri erfðaskráin, sem barst til fógetaskrifstofunnar í Las Vegas í gær, segir svo fyrir að allar eigur Hughes, tveir milljarðar dollara, eigi að renna til Richard Robards Hughes, en hann er einnig þekktur undir nafninu Joseph Michael Brown, og telur sig vera son auðkýfingsins. Richard R. Hughes teiur sig vera son bilijónerans.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.