Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.05.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 19.05.1976, Qupperneq 1
2. ÁRÍi. — MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1976 — 109. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SlMI 83322, AUGLYSINGAR OG AFGRÉIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMÍ 27022. Geirfinnsmálið: HVENÆR FÆR JÓN 0DDSS0N HRL. ÁHEYRN DÓMSMÁLARÁÐHERRA? „Ný tilhögun í þessu máli verður ekki metin öðruvísi en að leggja hana undir dóm reynslunnar", sagði Jón Odds- son hæstaréttarlögmaður í viðtali við Dagblaóið í gær. Jón kvaðst hafa beðið um viðtal við dómsmálaráðherra, Ölaf Jóhannesson, til þess að leggja fyrir hann niðurstöður af víðtækum rannsóknum, sem gerðar hafa verið í hinu svokallaða Geirfinnsmáli. Vegna þagnarskyldu, sem Jón kvaðst bundinn, vegna stöðu sinnar sem réttar- gæzlumanns Sævars Marínós Ciecielskis, gat hann ekki tjáð sig um þau atriði, sem hann hyggst skýra dómsmála- ráðherra frá. „Eftir að hafa ráðfært mig við fullkomlega trausta og sérfróða-samstarfs- menn tel ég það skyldu mína að skýra dómsmálaráðherra frá vissum atriðum,- sagði Jón Oddsson. „Vegna sérstakra anna ráðherra vegna starfa Alþingis átti ég þess ekki kost að hitta hann að málií gær, en það er aðeins spurning um, hvenær ég næ fundi hans.” Sem fyrr segir gat Jón ekki skýrt neitt frá þeirri athugun sem hann hefur gert á málinu, en kvaðst hafa skýrt Hallvarði Einvarðssyni vararíkissak- sóknara frá henni og Halldóri Þorbjörnssyni yfirsakadómara, sem og rannsóknarlögreglu- mönnum málsins og rann- sóknardómara, Erni Höskulds- syni, er hann kom heim úr stuttri ferð erlendis. Eins og fram hefur komið í Dagblaðinu hefur Jón Oddsson látið uppi þá skoðun sína, að hann telji, að ekki hafi nægilega verið rannsökuð atriði fjárhagslegsog viðskipta- legs eðlis, og kunna að vera tengd málinu og geta varpað á það nýju ljósi. Þess má geta, að Erla Bolla- dóttir starfaði skamman tíma á skrifstofu Jóns, en varð að hverfa úr því starfiJ framhaldi af þvl vakti Jón athygli dóms- málaráðuneytisins á því, að kanna þyrfti rannsóknar- aðferðir varðandi fíkniefnamál hjá embætti lögreglustjórans I Reykjavík. Að fengnu áliti Asgeirs Friðjónssonar fíkniefnadómara, taldi ráðuneytið ekki þörf sérstakra aðgerða vegna erindis Jóns Oddssonar. Þá má og geta þess, að Jón Oddsson var lögfræðingur hins jórdanska manns, sem fór ásamt Hauki Guðmundssyni og konu Geirfinns Einarssonar til fundar við „sjáanda” I Jórdaníu á slnum tíma. Hinn 11. desember sl. var Jón skipaður réttargæzlumaður Erlu Bolladóttur og Sævars Marínós Ciecielskis, sem veriö hefur I algerri einangrun síðan. Er Erla Bolladóttir var úr- skurðuð I varðhald aftur, var Guðmundur Ingvi Sigurðsson skipaður vérjandi hennar. Jón hefur m.a. vegna sér- staks kunnugleika af þessu máli, lagt mjög mikla vinnu I starf sitt, að öllum öðrum ólöstuðum. Nú er það spurningin, hvenær dómsmála- ráðherra gefst timi til að veita Jóni Oddssyni hrl. áheyrn. -BS- Hrein borg# — fögur torg! ÞAÐER K0MIÐV0R - NÚ ÞARF AÐTAKATIL HENDINNI — sóðaskapurinn er allt of víða -bls.4 — skrúfan fór ó Óðni, en veltiuggarnir trúlega ó Gúrku Bretarnir á Gurku, stríðs- skipinu sem Öli Tynes gerði heimsfrægt á dögunum, hafa bar I skipi sínu, og til þess að vært sé á barnum er sagt að veltiuggar séu hafðir utan á byrðingnum. Fimmtudaginn 6. maí reyndi gúrkan 21 sinni að sigla á Öðin og hitti þrívegis, alltaf á bakborðshornið. Daginn eftir keyrði gúrkan enn á Öðin, lenti nú á brúarvæng bakborðs- megin. Skipsmenn vestur I slipp töldu I gær að skrúfan hefði orðið fyrir hinum dýru veltiuggum, sem þeir segja að kosti tugmilljónir króna.mun dýrari útbúnaður en skrúfublöðin. Ef svo sé, þá hafi veltiuggar gúrkunnar skemmzt og gleðin af að vera á barnum að sjálfsögðu líka. ER ORÐIÐ ÓVÆRT Á BARNUM Á GÚRKUNNI? Vœringar innan varnarbandalags — en aðalmálið verður „samskipti austurs og vesturs" NATO-fundurinn í Osló: Luns frsmkvæmdsstjóri NATO í kaffi é blafla- mannafundi, er hann kom hingefl í haust. Á myndinni mé einnig sjé Tómas Tómasson, sendiherra islands hjé bandalaginu. DB-mynd: Bjarnleifur. Af fréttaskeytum má ráða, að landhelgismál Islendinga og Breta er ekki eitt af aðalmálum sem fjallað verður um á fundi Natoráðherra I Osló á morgun. Utanríkisráðherrarnir munu ræða stefnu Sovétríkjanna I heimsmálum og I Afríku, áhrif þau sem þau sækjast eftir I Mið- austurlöndum og Miðjarðarhafs- löndum. Kissinger utanríkisráðherra Bandaríkjanna og 14 aðrir utan- ríkisráðherrar, þar á meðal Einar Ágústsson, munu þar ræða sín á milli stefnu þá, sem mál þessi eru að taka og hver „þíðan” i mál- unum raunverulega er. Þá er búizt við því, að þróun mála I stjórnmálum Italiu eigi eftir að valda umræðum og eins má gera því skóna, að einhver hiti verði I mönnum vegna landhelgisdeilu tslendinga og Breta, þó það verði ekki ráðið af fréttaskeytum, enda hafa samtökin ekki látið málið til sín taka, svo einhverju nemi. Var helzt búizt við því, að reynt yrði að miðla málum bak við tjöldin og eru Norðmenn taldir líklegastir til þess að reyna að skerast I leik- inn, enda eiga þeir hagsmuna að gæta. Stórverzlunin fyrir Selfoss: Lendir hún í Hraungerðis- hreppi? — bls. 9 Raf magnoð óstand í Sigöldu: Energoproject vill nokkra tugi milljóna í viðbót — baksíðo • „Ég var að veslast upp af drykkju- skap og sjúkleika" - rœtt við söngvarann frœga Wannebo, sem hér er í stuttri heimsókn - bls.8

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.