Dagblaðið - 19.05.1976, Side 4

Dagblaðið - 19.05.1976, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAt 1976. — um 6 þúsund cr unni uu vinnu uiUTur~ tonnum af If w W | ■ grásleppu lim ur grasleppuhveljum? hent í sjóinn árlega Svo kann að fara að hægt verði að nýta þá grásleppu, sem veidd er til að hirða hrognin úr, en henni er hent aftur fyrir borð. Talið er að saltað verði í 15 til 20 þúsund tunnur af grá- sleppuhrognum í ár, eða 1500 til 2000 tonn. Þar sem hrognin eru áð meðaltali um 25% af grásleppunni lætur nærri að um sex þúsund' tonnum af grá- sleppu sé hent I sjóinn og er Þá miðað við lægra markið, eða 15 þúsund tunnur. Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins hóf í vetur tilraunir með að vinna matarlím úr hvelju grásleppunnar og að sögn dr. Björns Dagbjartssonar, forstjóra stofnunarinnar, hefur þegar tekizt að gera límið þokkalega glært og eru lfm- eiginleikar þegar nokkrir þótt þeir séu ekki nógu góðir enn. Fyrir mörgum árum var þó nokkuð flutt út af steinbftsroði til límgerðar en eiginleikar þess og grásleppuhveljunnar eru mjög svipaðir. Vegna óvenju mikils vatnsinnihalds og Iélegra mjölgæða svarar ekki kostnaði að vinna mjöl úr grásleppunni. Að sögn dr. Björns kemur hráefni til matarlímsgerðar aðallega úr kjötúrgangi, en honum virtist sem auðveldara yrði að vinna það úr grá- sleppuskrápnum ef sambærileg gæði næðust. Rannsóknir þessar eru enn á frumstigi og þvf óljóst um niðurstöður, en verði þær jákvæðar er hér um umtalsverða verðmætasköpun að ræða. -G.S. Grundarfjörður: AÐALATVINNUTÆKISTAÐARINS FÆR EKKIVIÐUNANDIAÐSTÖÐU — Rothögg fyrir staðinn, segir sveitarstjórinn um leigu skuttogarans Runólfs SH til Haf rannsóknastof nunarinnar „Hraðfrystihús Grundarfjarðar hefur ekki enn fengizt til að gera við mig öruggan samning, en þar sem það er eini aðilinn hér á Grundarfirði, sem getur sinnt okkar þörfum hvað viðvfkur þjónustu, skortir mig traustan grundvöll til að gera togara minn út héðan,“ sagði Guðmundur Run- ólfsson útgerðarmaður f Grundar- firði 1 viðtali við DB í gær, en hann hefur nú leigt Hafrann- sóknastofnuninni nýjan skut- togara sinn, Runólf SH, um óá- kveðinn tíma. Runólfur, sem smíðaður var f Stálvfk fyrir tæpum tveim árum, er eini skuttogarinn sem gerður er út frá Grundarfirði oghefur að sögn staðarmanna verið mikil lyftistöng fyrir atvinnuiífið þar. Hann er f hópi aflahæstu skut- togara á landinu og hefur reynzt mjög vel f alla staði, að sögn Guð- mundar. Guðmundur sagði að hraðfrystihósinu hefði staðið til boða að fá allan afla Runólfs til vinnslu og það áður en smfði skipsins var lokið, til að hafa góðan fyrirvara á samningsgerð. Nú tekur hraðfrystihúsið við 60% aflans og tveir aðrir fisk- verkendur á staðnum við 20% hvor en hvorugur þeirra hefur bolmagn til að veita útgerð Runólfs nægilega þjónustu. Samband fslenzkra samvinnu- félaga á hreinan meirihluta f hraðfrystihúsinu, aðra hluti á hreppurinn og nokkrir ein- staklingar. „Þetta skip hefur haft geysilega þýðingu fyrir staðinn og aldrei meiri en nú, þegar afli bátanna fer rýrnandi, og ef ekki reynist unnt að gera skipið héðan út er það svo mikið rothögg fyrir staðinn að ég vil ekki hugsa það dæmi til enda,” sagði Árni Emils- son, sveitarstjóri Eyrarsveitar, í viðtali við DB í gær. Arni sagði að miðað við þá frá- bæru hagsýni, sem rfkti í útgerð skipsins, væri fullljóst að ekki væri grundvöllur til útgerðar skuttogara á landinu, nema út- gerðin ætti hlut í fiskverkun eða aðild að henni, og væri sú furðu- lega staðreynd reyndar orðin viðurkennd. Hann sagði að sveitarstjórnin hefði reynt að mióla málum, en það hefði greini- lega ekki borið tilætlaðan árangur enn. -G.S. Landað úr Runólfi, aðalatvinnutæki Grundfirðinga. Nú hverfur þessi sjón og heimamenn eru að vonum sárir. (DB-mynd Gissur). UTANLANDSFERÐIR KLÚBBS 32 HEFJAST í MAÍL0K Ferðaklúbbur unga fólksins, Klúbbur 32, er nú að vakna til Iffsins á nýjan leik eftir nokkra þögn. Fyrsta sðlarlandaferð féiagsins er ákveðin 30. mai næst- komandi. Eins og f fyrra verður farið til Mallorka og gist á Hóteli 33. Hljómsveitin Cabaret verður með f förinni að þessu sinni og mun skemmta á hótelinu þrjú kvöld f viku. I fyrrasumar fór hijómsveitin Júdas f svipaða för til Mallorka Búið er að ákveða þrjár ferðir I viðbót á vegum Klúbbs 32. Þær verða 13. júni, 5. september og 19. september. 1 öll skipin verður gist á Hóteli 33. Enda þótt einungis þessar fjórar ferðir séu ákveðnar á Hóteli 33, geta farþegar með Ferðaskrifstofunni Sunnu fengið þar inni, ef þeir vilja. Eina skilyrðið, sem þeir verða að uppfylla er það, að þeir séu á aldrinum 18-33 ára gamlir. Dvöl á hótelinu verður þó að panta f tfma, þar eðgffurleg aðsókn er. -AT- Háteigskirkja cr glæsileg bygging. Því er skömm að því að ekkert skuli hafa verið gert ennþá fyrir lóð hennar. DB- mynd Björgvin Pálsson. Víð Háteigskirkju: Lóðin í litlu samrœmi við kirkjuna Grásleppan hefur verið illa nýtt til þessa og hefur mikið til farlð í sjóinn, kannski lausn finnist á vandanum?— Hljómsveitin Cabaret verður með I fyrstu ferðinni til Mallorka á vegum Klúbbs 32. DB-mynd: Björgvin. Lóðir f kringum kirkjur borgarinnar eru yfirleitt snyrti- legar og vel til hafðar. Strax eftir að byggingu þeirra lýkur er yfirleitt ráðizt i að ganga frá lóðum. Undantekning er þó um Háteigskirkju. Byggingu kirkjunnar lauk fyrir um ára- tug og enn er svæðið f kringum hana eins og holótt bílastæði. Þegar Björgvin Pálsson ljós- myndari átti leið fram hjá Há- ■teigskirkju fyrir nokkrum dögum var einnig spýtnabrak dreift um lóðina. Þar lá það og stóð eins og skakkir krossar í illa hirtum kirkjugarði. Nokkrum dögum seinna var sem betur fer búið að hirða allt brakið og fjarlægja það. Ekki ætti að vera erfitt að fá sjálfboðaliða úr Háteigssókn til að gera lóð kirkjunnar aðlaðandi. Kirkjan er ein sú fallegasta í borginni og það er skömm að umhverfi hennar skuli vera í vanhirðu. -AT-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.