Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 23
23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1976.
Útvarp
Útvarpkl. 19,15 íkvöld:
Sjónvarp
LANDSLEIKUR í KNATTSPYRNU
TtvTuí:
Þessa mynd tók ljósmyndarinn okkar hann Bjarnleifur í Bergen í síðasta landsleik okkar við
Norðmenn. Nú er bara spurningin hvernig strákunum tekst upp i kvöld.
— ión Ásgeirsson lýsir f ró Oslé
Það verða eflaust margir við
itvarpstækin sín í kvöld kl.
19.15, en þá lýsir Jón Ásgeirs-
son, eins og honum einum er
lagið, landsleik íslendinga og
Norðmanna á Ullevall-
leikvanginum í Osló.
Síðastliðið sumar léku þessar
þjóðir tvo leiki, annan á
Laugardalsvelli 7. júlí og svo
17. júlí í Bergen. Fyrri leiknum
lauk með jafntefli 1 mark gegn
1 og það var Arni Sveinsson frá
Akranesi sem skoraði það.
Þegar til Noregs kom gekk
skkur ekki nógu vel, töpuðum
leiknum með þrem mörkum
gegn tveim. Þessir leikir voru í
undankeppni ólympíuleikanna,
en leikurinn að þessu sinni er
vináttuleikur.
Það er Arni Stefánsson Fram
3g Sigurður Dagsson úr Val
sem gæta íslenzka marksins.
Þeir Jóhannes Eðvaldsson,
Asgeir Sigurvinssonog Guðgeir
Leifsson koma frá sínum er-
lendu félögum og styrkja liðið
mikið.
Við skulum svo bara vona að
Jrengirnir verði á skotskónum í
kvöld. — KP
J
Sjónvarp
íkvöld
kl. 20.40:
NÝJASTA TÆKNI
OG VÍSINDI
Við fáum að sjá fjórar nýjar
bandarískar myndir á sjón-
varpsskerminum í kvöld kl.
20.40 í þættinum Nýjasta
tækni og vísindi.
Fyrsta myndin nefnist hita-
geislunarmyndataka. Er í
henni greint frá þvi, að öll
lfffæri manna og dýra geisla út
frá sér hita, þegar hin ýmsu
efnaskipti fara þar fram, mis-
jafnlega mikið þó. Þessa geisla
er hægt að festa á filmu og
mynda þeir ákveðið mynztur,
en breytingar á mynztrinu gefa
til kynna ýmsa sjúkdóma, svo
sem brjóstkrabba, æðasjúk-
dóma o.fl.
Næst er síðan sýnd mynd um
hina öru þróun sem orðið hefur
á út- og uppskipunartækni
síðustu 10—15 árin. Er næsta
lítið hægt að greina frá henni i
fáum orðum svo myndin verður
bara að tala sínu máli um það.
Þá verður sýnd mynd um
verndun höfrunga. Höfrungar
halda sig mikið í nánd við tún-
fisktorfur og síðan hringnót var
tekin í notkun við veiðar á tún-
fiski hefur stöðugt aukizt að
höfrungarnir festi sig í nótun-
urri. Þar eð þetta eru spendýr,
sem þurfa að koma upp á yfir-
borðið til að anda, drukkna þeir
mjög fljótt. Greint verður frá
rannsóknum um úrbætur á
þessu sviði, þar sem höfrunga-
stofninum er talin stafa mikil
hætta af.
Síðasta myndin fjallar um
fjarskynjun úr gervihnöttum.
Er þar greint frá Landsat-
gervihnöttunum, sem Banda-
ríkjamenn hafa sett á braut
umhverfis jörðu síðan árið
1970. Skýrt verður frá gagn-
semi þeirra, m.a. við kortagerð,
rannsóknir á uppskeru.gróður-
breytingum, og vatnsstreymi.
Umsjónarmaður þáttarins er
Sigurður H. Richter. JB
Sigurður H. Richter er umsjón-
armaður þáttarins Nýjasta
tækni og vísindi, sem er á dag-
skrá sjónvarpsins kl. 20.40.
Gegn
samábyrgð
fjAk jfanna
Miðvikudagur
19. maí
12.00 Dajískráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar. Þáttur um
áfengismál I umsjá Arna Gunnars-
sonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: ..Gestur í blind-
götu" eftir Jane Blackmore. Valdls
Halldórsdóttir les þýðingu sína (8).
15.00 Miðdegistónleikar. Godelieve
Monden gitarleikari leikur Svitu eítir
Lodewijk de Vocht. Benny Goodman
<»g Sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar
leika Klarinettukonsert i Es-dúrop. 74
nr. 2 eftir Carl Maria von Weber.
Sinfóniuhljómsveit Berlinar leikur
Sinfóníu i C-dúr op. 46 eftir Hans
I’fit/ner: Ferdinand Leitner stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðiirfregnir).
16.20 Popphorn.
J 7.00 Lagið mitt. Berglind Bjarnadóttir
sér um óskalagaþátt fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Mannlif í mótun. Sæmundur G.
.lóhannesson ritstjóri á Akureyri rifj-
ar upp minningar sínar (5).
IS.00 Tónleikar. Tilkvnningar.
15.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
10.00 Fróttir.
10.15 Landsleikur i knattspyrnu: Noregur
— Island. .lón Asgeirsson lýsir síðasta
hálftima leiksins frá Ulleváll-
leikvanginum i Ósló.
10.45 Tilkynningar.
1ÍI.5Ó Kvöldvaka. a. Einsöngur. Snæbjörg
SmehjarnardöUir s.vngur lög eftir fs-
lenzk tónskáld. Fritz Weisshappel
leikur á pianó. b. Átti maðurinn
eða dýrið aö ráða? Bjarni
Jónsson flytur frásöguþátt. c. Kvœöa-
lög. Þorbjörn Kristinsson kveður
lausavísur og ljóðmæli eftir ísleif
Gíslason á Sauðárkróki. Gísla Ólafsson
frá Eiríksstöðum o.fl. d. Endurminnnig
nm tíu króna seðil. Torfi Þorsteinsson
bóndi í Haga í Hornafirði segir frá.
e. Um islenzka þjóöhœtti. Arni Björns-
son cand. mag. flytur þáttinn. f. Kór-
söngur. Karlakór Akureyrar syngur.
Söngstjóri: Jón Hj. Jónsson.
21.30 Útvarpssagan: „Síðasta freistingin"
eftir Nikos Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu Kristins
Björnssonar (29).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Sá
svarti senuþjófur", œvisaga Haralds
Bjömssonar. Höfundurinn, Njörður P.
Njarðvík. les (22).
22.40 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir.
23.25 Dagskrárlok.
Fimmtudagur
20. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl
7.00. U.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00.
Morgunbœn kl. 7.55. Morgunstund
bamanna kl. 8.45: Sigrún Sigurðar-
dóttir les söguna „Þegar Friðbjörn
Brandsson minnkaði” eftir Inger
Sandberg (2). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefáns-
son ræðir við Guðmund Hallvarðsson
um rnálefni aldraðra siómanna. Tón-
leikar. Morguntónleikar kl. 11.00
Koeckert-kvartetttinn leikur
Strengjakvartett nr. 77 í C-dúr. ..Keis-
arakvartettinn”. op. 76 eftir Ha.vdn.
Isaac Stern og Fíladelfíuhljómsveitin
leika Fiðlukonsert nr. 22 í a-moll eftir
Viotti: Eugene Ormandv stjórnar.
^ Sjónvarp
Miðvikudagur
19. maí
18.00 Bjöminn Jóai. Bandarisk
teikmmynuasyrpa. Þýðanui Jón
Skaptason.
18.25 Demantaþjófamir. flnns,k fram-
haldsmynd. 2. þáttur. Efni fyrsta
þáttar: Strákarnir Pertsa og Kilu eru
komnir í sumarleyfi og vita ekki hvað
þeir eiea að taka sér fyrir hendur
Þeir gera alræmdum glæpamanm
greiða, og lögreglan fær grun um. að
strákarnir seu a einhvern hátt tengdir
flokki demantaþjófa. Þýðandi Borg-
þór Kjærnested. (Nord-
vision—Finnska sjónvarpið).
18.45 Gluggar. Breskur fræðslumynda-
flokkur. Glergerö. Risaflugvolar. Olíu-
borpallar. Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
Hló.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýainati’pg daqskró.
20.40 Nýjaata tssttm og visindi. Myndataka
af hitageislum líkamans. Nýjungar i upp-
skipunartaakni. Vamdun héfrunga.
Fylgst mað jörðinni úr garvihnöttum.
Umsjónarmaður Sigurður H. Richter.
21.05 Bilalaigan. Þýskur myndaflokkur
Páskavatn. Þýðandi Bríet Héðins-
dóttir.
21.30 I kjallaranum. Hljómsveitin Cabaret
flytur frumsamin log. Hijóm-
sveitina skipa Tryggvi J. Hiibner. Val-
geir Skagfjörð, Ingólfur Sigurðsson.
Finnur Jóhannsson og Jón ólafsson.
Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.
21.50 Kvennastörf — kvennalaun. Dönsk
fræðslum.vnd um konur á vinnu-
markaðnum, launamisrétti og ýrais
önnur vandamál. Þýðandi og þulur
Gvlfi Pálsson. (Nordvision—Danska
sjónvarpið).
22.30 Dagskrárlok.