Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 6
fi
DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 10. JUNl 1976
Fundur í Kairó:
Sameiginlegar friðargœzlusveitir
halda til Líbanon innan skamms
Neyðarfundur utanríkis-
ráðherra allra Arabalandanna,
sem haldinn er í Kairó, hefur
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum að senda sameigin-
legar friðargæzlusveitir til
Líbanon. Talsmaður samtaka
Arabalandanna sagði við frétta-
menn í gærkvöldi, að gæzlu-
sveitirnar, sem skipaðar verða
hermönnum frá Sýrlandi,
Saudi-Arabíu, Alsír, Súdan og
liðsmönnum Frelsishreyfingar
Palestínumanna, PLO, væru
hluti af áætlun um frið í
Líbanon í sjö atriðum, sem sam-
tök Arabalanda hefðu sam-
þykkt.
Talsmaðurinn lagði einnig á
það áherzlu, að friðargæzlu-
sveitirnar myndu halda líbönsk
lög að fullu. Fjöldi hermanna,
sem skipa myndu sveitirnar,
yrði ákveðinn af formanni Sam-
taka Arabalanda, Riad, að
höfðu samráði við ríkisstjórn
Líbanon.
Samþykktin, sem gerð var í
gær, hvetur til vopnahlés um-
svifalaust og að skæruhoar
Palestínumanna hætti að skipta
sér af þróun mála umfram það,
sem þeir hafa samið um við
stjórn Líbanon. I þeim sam-
þykktum er nákvæmlega
kveðið á um það, hvar Palest-
ínumenn megi búa og vinna.
Áætlun samtakanna var sam-
þykkt eftir að sendinefnd, sem
send hafði verið til Damaskus,
gerði grein fyrir för sinni.
Enn sem komið er hefur ekki
verið sagt fyrir um það ná-
kvæmlega, hvenær friðargæzlu-
sveitirnar halda til Líbanon.
Að sögn fréttamanna í Kairó
var áætlun þessi samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum,
þrátt fyrir það að töluverðrar
spennu hefði gætt á fundinum
og að sjónarmiðin væru mörg.
I nánari umsögn um friðar-
gæzlusveitirnar var sagt, að
þær ættu að „koma í staðinn
fyrir“ herlið Sýrlendinga í
landinu, orðalag, sem menn
gátu vel sætt sig við, og myndi
ekki særa tilfinningar Sýr-
lendinga eins mikið og „und-
anhald“.
Áður en niðurstaða fundar-
ins var gerð heyrinkunnug,
höfðu Sovétmenn sent frá sér
tilkynningu þar sem sagði, að
enda þótt Sýrlendingar hefðu
ætlað sér að stöðva blóðbaðið,
flæddi blóðió nú í enn stríðari
straumum.
í fréttum frá Líbanon segir,
að bardagar hefðu haldið áfram
þar í gær, m.a. í Beirút og I
hafnarborginni Trípolí.
Arabaríkin hafa nú loksins ákveðið að taka í taumana í Lfbanon,
enda hafa bardagar þar nú staðið í meira en ár.
Ródesía:
SMITH HVETUR TIL FREKARI
AFSKIPTA BRETLANDS
ætlazt. Sagði hann það trú sína, að
flestir Bandaríkjamenn væru
honum sammála.
Ian Smith, forsætisráðherra
Ródesíu, hefur sagt, að ferðaiag
Kissingers utanríkisráðherra
Bandaríkjanna um Afríkulönd nú
fyrir skömmu hafi haft þveröfug
áhrif en þau er til hafði verið
Smith sagði í viðtali, að enginn
fótur væri fyrir því að sambandið
milli Suður-Afríku og Ródesiu
hefði versnað. Þvert á móti, sagði
hann.
Sagðist hann enn vera því
fylgjandi að Bretland legði til
nefnd til þess að gera tillögur um
það, hvernig hátta bæri samruna
hvítra manna og þeldökkra í ríkis-
stjórn. Helzt hefði hann kosið, að
þeir hefðu haldið sig utan við
átökin en fyrst þeir hefðu ekki
gert það, ættu þeir að snúa sér af
alvöru að lausn málsins og ræða
við báða aðila.
Hann bætti því einnig við, að
enda þótt engar tryggingar
lægju fyrir, mundi hann taka því
tækifæri fagnandi að fara til
Bretlands og kynna málstað
Ródesíumanna.
Angóla:
Múgurinn heimtar blóð
Brezkur starfsmaður
aþjóðanefndarinnar í Angóla,
Shretie, segir, að mótmælaað-
gerðirnar í gær í Luanda hafi
gert nefndarmönnum mun
erfiðara um vik.
Nefndarmenn eru að kanna
að hve miklu leyti málaliðar
voru notaðir í borgara-
styrjöldinni í Angóla og verða
viðdstaddir réttarhöld yfir 13
þeirra, sem flestir eru brezkir.
Réttarhöldin hefjast í dag.
Sagði Shretie, að kröfur
tugþúsunda manna, sem þátt
tóku í mótmælaaðgerðunum í
gær, þess efnis að málaliðarnir
yrðu teknir af lifi, gætu haft
mikil áhrif á þá, sem stjórna
réttarhöldunum.
Þó sagði hann að enn væri
ekki ástæða til þess að ætla
annað en réttarhöldin færu
eðlilega fram og að nefndar-
menn myndu fylgjast vandlega
með öllum gangi mála.
I Olafsvík starfar sumarhótel í fyrsta sinn nú í sumar.
k 38 vel búin tveggja manna neroergi.
k Vistlegur matarsalur.
k Heimilislegur matur, kaffi og kaffibrauð, grill-
réttir allan daginn.
k Þægileg setustofa þar sem spjallað er saman og
horft á sjónvarp.
Snæfellsnes er frægt fyrir stórbrotið og fagurt landslag.
SKOOlt) SNÆFELLSNES,
GISTIÐ HJA OKKUR.
SJÓBÚÐIR HF.
Ólafsvík, — Sími (93)6300
Vestur-Sahara: MAROKKÓ•
STJÓRN VARAR MENN VIÐ
I tilkynningu, þar sem
sprengjuárásin á höfuðborg Mári-
tanlu, Mogshad, er harðlega
fordæmd, segir Marokkóstjórn,
að frelsishreyfingin Polisario geti
alls ekki hafa verið þar ein að
verki.
Segir í tilkynningunni, að
vopnin, sem notuð voru við á-
rásina, hljóti að hafa verið í eigu
venjulegs her. Þó að herlið þetta
sé ekki nefnt á nafn í til-
kynningunni, er Alsír varað við
því, að stjórnarvöld átti sig ekki
réttilega á ástandi mála, ef þeir
haldi að Marokkóstjórn muni
halda að sér höndum á meðan
sjálfstæði Maritaníu sé I hættu.
Eins og kunnugt er, lét Spánn
Vestur-Sahara af hendi við
Márítaníu og Marokkó en Alsír-
búar eru þessari tilhögun
andvígir. Hafa þeir því stutt með
ráðum og dáð frelsishreyfingu
íbúa svæðisins, Polisario.
Bolivía:
Námumenn handteknir
og herlög hafa tekið gildi
Herlögum hefur nú verið nokkrir létu lífið í miklum óeirð-
komið á í Bólivíu og hafa her- um.
sveitir lagt undir sig tinnámur
iandsins. Ýmsar byggingar í eigu
námumanna hafa einnig verið
teknar herskildi, auk þriggja út-
varpsstöðva í eigu þeirra.
Um 20 leiðtogar námumanna,
auk nokkurra leiðtoga stúdenta,
hafa verið handteknir.
Talsmaður ríkisstjórnar Bóli-
víu segir, að þessar ráðstafanir
hafi verið teknar eftir að uppvíst
varð úm fyrirætlun, sem valdið
hefði algjöru öngþveiti, ef hún
hefði náðfram að ganga.
‘ Undanfarið hefur ríkt ótryggt
ástand í Bólívíu meðal náms-
manna og námuverkamanna, er
náði hámarki sl. þriðjudag er
Ástralía:
HELLTU MÁLNINGU YFIR
KERR LANDSTJÓRA
Hópur mótmælenda hellti
málningu og bleki og kastaði
reyksprengjum að bifreið, sem
í var landstjóri Ástralíu, Sir
John Kerr, á leið til opinberrar
móttöku í Melbourne.
Landstjórinn hefur oftsinnis
undanfarið. verið skotmark
mótmæla síðan hann leysti upp
verkamannastjórn Whitlam i
nóvember sl.
Eínkaritari Kerrs særðist
lítillega við árásina og tveir
menn voru handteknir.
Kerr, landstjóri i Ástralíu,
hefur staðið i ströngu að und-
anförnu.
Erlendar
fréttir
REUTER