Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 7
ÍJAUBLAUIU — KIMMTUDAGU-R 10. JUNl 1976 7 Veðjað á vitlausan hest... Ian Fletcher í Bristol í Eng- landi* hefur verió sektaður þar um hundrað sterlingspund fyrir að vera of lengi að telja peningana sína. Fletcher þykir gaman að fara á veðreiðar og freista þar gæfunnar á sama hátt og margir aðrir. En hann vildi ekki tapa og hugsaði því upp öruggt ráð gegn því. Þegar keppnin hófst veðjaði Flet- cher fimmtíu pundum á hestinn, sem hann taldi sigurstranglegast- an. Með kvittunina á öruggum stað í vasa sínum fór Fletcher síðan að telja peningana sína — um 'eið og hann hlustaði á lýsingu frá veð- reiðunum í ferðaútvarpstækinu sínu. Þegar hann hafði talið fjörutíu pund var hlaupinu lokið og hesturinn sigurstranglegi síð- astur. Fletcher sagði því veðmangaranum að hann væri hættur við allt saman, skilaði kvittuninni og stakk peningunum sínum í vasann. Þegar veðmagnarinn hafði náð sér eftir undrunina hringdi hann á lögregluna. Japan: Það er rétt að fullnýta hlutina Japanskur karlmaður hefur nú fengið full not af hægri handlegg sínum, eftir að taka varð hann af eftir mikið slys, er maðurinn lenti í. Handleggurinn var síðan graf- inn, en þá tekinn upp á ný og festur við manninn! Kazumi Kimata, sem er 31 árs lenti f vinnuslysi í lítilli verk- smiðju í Mið-Japan. Handleggur- inn skarst af rétt framan við oin- boga. Læknarnir sögðu Kimata, að ekki væri hægt að græða hand- legginn á að nýju. Hann fékk því að taka hann með sér heim, þar sem handleggurinn var grafinn i garðinum að viðstöddum fjöl- skyldumeðlimum og með við- eigandi bænahaldi. Sex tímum síðar hringir systir Kimata í yfirlækninn sem féllst á að reyna sjálfur að festa handlegginn við að nýju. Aðgerðin sjálf tók rúma 12 tíma og nú, fjórum mánuðum síðar, er maðurinn farinn að geta hreyft fingurna það mikið, að hann getur unnið létta vinnu. Endan- lega verður gengið frá taugum og öðru sem eftir er um næstu áramót. Róm: Alþjóða land- búnaðurfœr eina milljón dollara I dag hetst í Róm tveggja daga fundur, þar sem settur verður á laggirnar einnar milljón dollara sjóður til þess að aðstoða þróunar- löndin við að byggja upp land- búnað sinn. Fjármagn til sjóðsins er lagt til af öllum stærri iðnaðarríkjum heims, auk þess OPEC-löndunum, framleiðsluríkjum olíu, en yfirstjórn hans verður í höndum Sameinuðu þjóðanna. Kurt Waldheim, aðalritari sam- takanna, mun flytja setningar- ræðu fundarins og sitja hann. Forkosningarnar: Æ fleirí lýsa yfír stuðningi við Jimmy Carter, — litlu munar á Ford og Reagan Enn fleiri leiðtogar innan Demókrataflokksins hafa lýst yfir stuðningi sínum við Jimmy Carter í kapphlaupinu um for- setaframboðið. Nú, þegar öllum forkosningum er lokið virðist nokkuð öruggt að Carter hlýtur útnefningu flokksins. Hann hefur nú hlotið stuðning Dailys, borjarstjóra í Chicago, Wallace, ríkisstjóra 1 Alabama og frá þingmanninum Henry Jackson, en báðir siðast- töldu höfðu tekið virkan þátt í forkosningunum gegn Carter. Hubert Humphrey hefur sagt að nokkuð augljóst sé að Carter hljóti útnefningu Demókrata- flokksins sem forsetaefni. Ríkisstjóri Kaliforníu, Jerry Brown, segir hins vegar að hann muni halda áfram þátt- töku í kosningabaráttunni en ekki er talið að hann geti haft mikil áhrif á gang mála úr þessu. Hjá repúblikönum virðist eins og ekki muni hársbreidd á fjdgi Fords forseta og Reagans, fyrrum ríkisstjóra Kaliforníu. Er talið að óákveðnir kjör- menn, sem sækja flokksþing repúblikana, muni eiga eftir að skera úr um það, hvor þeirra hlýtur útnefningu. Eftir að ljóst varð að Carter þótti langsigurstranglegastur í kapphiaupinu um útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, hafa æ fleiri fyrrum andstæðingar hans lýst því yfir, að þeir muni styðja hann á fiokksþinginu. Hér má sjá þá saman, Jackson og Carter og þá George Walla/ce, sem erfiðiega hefur gengið frá upphafi forkosninganna. ALLT ÍFÖKUS HJÁ OKKUR Tökum í umboðssölu ýmsar gerðir notaðra myndavéla petri Erm=a FÓKUS Lœkjargötu 6b, sími 15555 Juan Carlos Spánarkonungur hefur þótt vera nokkuð áfram um það, að stjórnmálalíf á Spáni komist í eðlilegra horf. Bretland: Vantrauststillagan felld Brezka ríkisstjórnin vann at- kvæðagreiðslu um vantrauststil- lögu í brezka þinginu með þægi- legum meirihluta, 19 atkvæðum. Vantrauststillagan, sem gagn- rýndi harðlega stefnu ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum, var lögð fram af þingmönnum Ihaldsflokksins. Þingmenn Frjálslynda flokks- ins og Sameiningarflokks Ulster sátu hjá. Fréttaskýrendur segja, að at- kvæðagreiðslan megi teljast mik- ill sálfræðílegur sigur-fyrir ríkis- stjórnina, sem hefur átt í erfið- leikum með að finna lausnir á efnahagsvandanum og einnig að fá lagafrumvörp sín samþykkt í þinginu. Að sögn fjármálaráðuneytisins brezka er ein aðalorsök batnandí efnahags í landinu sú, að út- flutningur hefur verið að aukast jafnt og þétt. Tíu prósent aukning varð á útflutningi á sex mánaða tímabili fyrir og eftir síðustu ára- mót. Þá segir í skýrslu fjármála- ráðuneytisins, að útflutningurinn fyrstu fjóra mánuði þessa árs hefði í heild aukizt um 13% og að á sama tíma hefði ekki verið um aukningu á innflutningi að ræða. Spánn: Lagafrumvarp um endurbœtur tafíð á þingi af hœgri öflum Frumvarp spænsku ríkisstjórn- arinnar um stjórnmálalegar endurbætur hefur mætt andstöðu 1 þinginu. Enda þótt frumvarp, sem kvað svo á, að ýmsir áður bannaðir stjórnmálaflokkar mættu starfa á ný, hefði verið samþykkt, var frumvarp, sem nam úr giidi ýmsar hindranir er á veg þeirra voru iagðar, tafið og sett í endurskoðun. Að sögn fréttaskýrenda er hér aðeins um tfmabundnar tafir að ræða, en allt um það sýnir sú staðreynd, að ríkisstjórnin varð að láta undan kröfum hægri manna, það eitt, að hægri öflin geta enn látið að sér kveða svo um munar. Leiðtogi Þjóðarfylkingarinnar, eina flokksins sem leyfður var í stjórnartíð Frankós heitins hers- höfðingja, var skotinn til bana Stjórnmálamaður þessi var skammt frá hafnarborginni formaður flokksfélagsins í Bilbao. Bilbao.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.