Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 14
1 DAGBLAÐII) — FIMMTUDAtíUR 10. J( Spenna á Selfossi sigurmarkið í lokin — þegar heimamenn sigruðu Reyni Árskógsströnd 3-2 í 2. deild í gœr Selfyssingar fóru illa meö opin marktækifæri í leik sinum á gras- vellinum á Selfossi í gær í leiknum við lie.vni frá Arskógs- strönd í 2. deild — og lentu svo í mikilli hættu að tapa öðru stiginu. Þegar örstutt var eftir af ieiktímanum tókst Björgvini Gunnlaugssyni að jafna í 2-2 fyrir Reyni. Seifyssingar hófu leik á miðju — hrunuðu beint upp og Tryggvi tíunnarsson sendi knöttinn í mark Reynis við mikinn fögnuð áhorfenda. 3-2 og það mátti ekki tæpara standa. Rétt á eftir flautaði dómarinn, Ölafur Valgeirsson, Hafnarfirði, leikslok. Fyrri hálfleikur var þófkenndur og lítil knattspyrna sást til liðanna.Reymrkom á óvart með að ná forystu í leiknum um miðjan hálfleikinn, þegar Björgvin Gunnlaugsson skoraði. En Ölafur Sigurðsson jafnaði fyrir Selfoss eftir hornspyrnu og staðan var 1-1 í leikhléi. í siðari hálfleiknum tóku Sel- fyssingar völdin í sínar hendur og á 55. mín. skoraði Tryggvi Gunnarsson 2-1. En þeir fóru heldur illa með góð tækifæri, Guðjón Arngrímsson átti skot í þverslá, bjargað var á marklinu frá Sumarliða Guðbjartssyni — og dómarinn sleppti augljósri vítaspyrnu á Reyni. Um miðjan hálfleikinn meiddist Sigurður Ottósson hjá Selfoss-liðinu — fékk slærnan skurð, greinilega eftir takka, og varð að fara með Sigurð á sjúkrahús. Leikurinn tafðist um fimm mínútur — og það var heldur betur spenna þær fimm mínútur sem dómarinn bætti við í lokin. Fyrst jöfnuðu Reynismenn eftir að venjulegum leiktíma var lokið — og Selfoss skoraði svo sigurmarkið eins og áður er lýst. Leikurinn var harður — Reynismenn spila fast — og mikið um aukaspyrnur. Selfoss-liðið er ekki eins sterkt og í fyrrasumar, þar sem fimm af leikmönnum liðsins hættu knatt- spyrnu. Alvara lífsins húsbyggingar og fleira slíkt — átti aðalþáttinn í því og þjálfari iiðsins, Árni Njálsson, hefur því orðið að byggja upp svo að segja nýtt lið. Stefnan tekin beint ó I. deild á ný hjó ÍBV — Vestmanneyingar sigruðu Ármenninga á Laugardalsvelli 2-0 í gœr ÍBV vann ákaflega mikilvægan sigur í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu í gærkvöld þegar liðið lagði aðalkeppinaut sinn að velli, Armann 2—0. Sigur IBV var verðskuldaður en ákaflega var leikurinn daufur, Ármenningar ótrúlega slakir. Ekki þar fyrir, sú knattspyrna sem Vestmannaeyingar sýndu var ekkert til að hrópa húrra fyrir, þó sáust góðir samleikskaflar ÍBV — alls engir hjá Ármanni. Knattspyrna sú er Ármann sýndi var tilviljanakennd og mest b.vggð upp af kraftinum, enda hafa leikmenn liðsins alls ekki yfir þeirri tækni að ráða sem 13 kanadísk met í sundi Á kanadíska úrtökumótinu i sundi fyrir Olympíuleikana, sem háð var um síðustu heigi í Toronto, voru sett 13 ný, kanadísk met — og níu þeirra voru jafn- framt samveldismet, sem sýnir vel hve Kanadamenn eru sterkir í sundinu. Graham Smith, 17 ára, var mesti afreksmaðurinn — setti met í 100 og 200 m bringusundi (2:21.13 mín.) og 400 metra fiór- sundi á 4:30.96 mín. Systir hans, Becky Smith, 16 ára, setti met í fjórsundinu 4:52.70 mín. og bætti met sitt um 3.65 sek. Þetta er annar bezti tími ársins — aðeins heimsmet Ulrika Tauber, A- Þýzkalandi, 4:48.79 mín. er betra, sett á mótinu mikla í Berlín fyrir heigi. Stephen Badgcr setti kana- dískt met í 400 m skriðsundi — synti á 4:01.62 min. í undanrás og síðan 4:01.32 í úrslitum. Í 100 m skriðsundi setti Stephen Pickell frábært met 51.87 sek. og hin 13 ára stúlka Robin Corsiglia setti kanadískt met í 100 m bringu- sundi á 1:13.92 mín. þarf í 1. deild. Hræddur er ég um, að kæmist Armann í 1. deild þá yrðu stigin ekki mörg. Nú, en þrátt fyrir að tBV hafi haft yfirburði án þess þó að sýna neitt verulegt, þá voru mörkin, sem liðið skoraði, ódýr, sérstak- lega þó fyrra markið. Það var á 30. mínútu fyrri hálf- leiks að einn varnarmanna Ármanns ætlaði að gefa knöttinn til markvarðar frá hliðarlínui Ekki vildi betur til en svo að Tómas Pálsson komst inn í send- inguna og skoraði örugglega. Fleiri tækifæri sköpuðust, sér- staklega var Örn Óskarsson i góð- um færum sem honum tókst ekki að nýta. Síðara mark ÍBV kom á 18. mínútu síðari hálfleiks. Karl Sveinsson gaf góðan bolta fyrir og Örn Óskarsson aleinn fyrir opnu marki skallaði örugglega fram hjá Ogmundi Kristinssyni mark- verði Ármanns. Þarna var Ármannsvörnin illa á verði, Þrátt fyrír góð tækifæri tókst ÍBV ekki að bæta við markatöluna — sann- gjarn sigur í daufum leik. —h.halls. Tómas Pálsson — hefur nú skorað 3 miirk i 2. deild. II anii komsl inn í sendingu í gærkvöld og skoraði sitt þriðja mark auðveldlega. Ilér á Tómas í hiiggi við Jeiis .leusson. Armanni. l)B-mynd Bjarnleifur. SJÖ NÝIR — Ég reyndi sjö nýja leikmenn á landsliðsæfingu þegar landsliðið Iék við 1. deildarlið Breiðablik á Melavellinum í gærkvöld. Ég vcrð að segja eins og er, að ég er ákaflega ánægður með útkomuna. Við lékum 4x20 mínútur og jafntefli varð 2-2, sagði Tony Knapp, landsliðsþjálfari, eftir æfingu landsliðsins og Breiðabliks. — Ekki að það hafi í sjálfu sér skipt neinu máli hver úrslitin urðu, heldur hitt að við vorum að reyna ýmislegt nýtt. Reyndum þrjú mismunandi leikkerfi. Hinir sjö nýju leikmenn eru: Viðar Halldórsson og Pálmi Pálmason, FH, Einar Þórhallsson og Gísli Sigurðsson, Breiðabliki, Dýri Guðmundsson og Vilhjálmur Kjartansson Val og mark- vörðurinn úr Víkingi, Diðrik Olafsson, sem reyndar hefur áður leikið með íslenzka landsliðinu. — Af þessu má sjá, sagði Knapp ennfremur, að allir fá tækifæri til að reyna sig með landsliðinu. Það tel ég ákaflega mikílvægt og ánægjulegt er að sjá leikmenn úr FH og Breiðabliki í lands- liðshópnum. Langt er síðan leik- menn frá þessum félögum Iéku með landsliði. Að vísu vantaði á landsliðsæfinguna þá Magnús Bergs, sem er veikur, og Jón Gunnlaugsson. en hann er meiddur. Á laugardaginn fer ég til Finnlands og mun sjá leik F'innlands og Englands í undan- keppni HM. Finnar eru okkar na'stu mótherjar og gott verður að fá að sja" þá leika gegn jafn sterkum andstæðingum. Don Revie, landsjiðsþjálfari Englendinga. hefur sagt. að Finnar séu ákaflega erfiðir mótherjar. Það verður því fróðlegt að * sjá hvernig Eng- lendingar leika gogn Finnum og eins að taia við Don Revie. Síðan fer ég frá Kaupmanna- höfn beint til Færeyja en eins og kunnugt er leikum við í Færeyjum á miðvikudag. Bæði Ásgeir Sigurvinsson og Guðgeir i Leifsson, atvinnumennirnir | Sam Akureyri 9. júní. Haukar fengu óskabyrjun er þeir skoruðu sitt fyrsta mark strax á 5. mín. Góð sókn þeirra hófst á miðju, er Ólafur Jóhannesson lék á þrjá leikmenn Þórs og gaf yfir á hægri kant og þar átti Arnór Guðmundsson mjög fallega sendingu fyrir þar sem Ólafur kom aðvífandi og skallaði inti — algerlega óverj- andi fyrir hinu ágæta markvörð, Samúel Jóhannsson. Ekki liðu nema 2 mín. þar til Haukar skoruðu sitt annað mark og skoraði Arnór þá á undra- verðan hátt. Skaut ,,banana“- bolta á móts við markteig út við hliðarlínu, og þaut knötturinn yfir Samúel, sem var kominn heldur framarlega, fór f stöng og inn. Á 16. mín. skoruðu Þórsarar sitt fyrsta mark en skömmu áður hafði dómari leiksins, Ármann Pétursson, sleppt vafasömu broti inni í teig er Magnúsi Jónatans- syni (Þór) var brugðið. Markið gerði Jón Lárusson með þrumu- skoti upp í þaknetið frá vítateigs- línu eftir fallega sendingu frá Sævari Jónatanssyni. Markið kom eftir hroðaleg varnarmistök fyrir- liðans Sveins Jónssonar sem hitti ekki boltann er hann hugðist • hreinsa frá. 8 mínútum síðar var Sveinn aftur á ferðinni er hann féll við með þeim afleiðingum að kalla þurfti til sjúkrabifreið. 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.