Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 26

Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 26
26 NYJA BIO í) CLAUDINE Létt og gamansöm ný bandarísk litmynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuö börnum innan 14 ára. I TONABÍO I Neðanjarðarlest í rœningjahöndum (TheTakingof Pelham 1 — 2 — 3) Spennandi ný mynd, sem fjallar um glæfralegt mannrán í neðan- jarðarlest. „Hingað til besta kvikmynd árs- ins 1975” Ekstra Bladet. * Leikstjóri: Gabriel Katzka. Aðalhlutverk: Walter Matthau Robert Shaw (JAWS) Martin Baisam Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. I LAUGARASBIO FRUMSÝNIR Paramount Pictures presents l______________ .A |PGM^>|n Color • A Paramount Picture Paddan (BUG) Æsispennandi ný mynd frá Paramount gerð eftir bókinni „The Hephaestus Plague”. Kalifornía er helzta landskjálfta- svæði Bandaríkjanna og kippa menn sér ekki upp við smá skjálfta þar, en það er nýjung þegar pöddur taka að skríða úr sprungunum. Aðalhlutverk: Bradford Dillman og Joanna Miles. Leikstjóri: Jeannot Szware. ísl. texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. AUSTURBÆJARBÍÓ Njósnarinn ódrepandi (Le Magnifique) Mjög spennandi og gamansöm ný frönsk kvikmynd í litum. Jean-Paul Belmondo Jacqueline Bisset. Islenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 10. JUNI 1976 s STJÖRNUBÍÓ B Funny Lady Islenzkur texti Afarskemmtileg heimsfræg ný amerísk stórmynd í litum og Cinema Scope. Leikstjóri: Herbert Ross. Aðalhlutverk: Barbra Streisand, Omar Shariff, James Caan. Sýnd kl. 6 og 9. Ath. breyttan sýningartíma. I GAMIA BIO B Glötuð helgi Skemmtileg og spennandi ítölsk sakamálamynd með ensku tali og ísl. texta. Oliver Reed Marcello Mastroianni. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 HAFNARBIO B Hver var sekur? Spennandi og áhrifarík ný banda- rísk litmynd. Mark Lester Britt Ekland Bönnuð börnum innan 16 ára. Islenzkur texti. Sýnd kl.5, 7, 9 og 11. Auglýsing um úthlutun verzlunarlóðar Hér með er auglýst eftir umsókn um byggingarrétt fyrir matvöruverzlun á lóðinni Furugerði 3-5. Á lóðinni eru fyrirhugaðar tvær byggingar, og hefur annarri þei.rra (nr. 3) verið úthlutað fyrir þjónustustarf- semi. Húsið er 230 ferm að grunnfleti, 1 hæð auk vörugeymslukjallara. Gatnagerðargjöld og skilmálar verða ákveðin samkvæmt nánari ákvörðun borgarráðs. Umsóknarfrestur er til 20. júní nk. Allar nánari upplýsingar gefur skrifstofustjóri borgarverkfræðings. Borgarstjórinn í Reykjavík. Lausar stöður Við Menntaskólann á ísafirði eru lausar til umsóknar tvær kennarastöður. Kennslugreinar eru íslensk fræði og náttúrufræði (líffræði, lífefnafræði, haf- og fiskifræði, jarðfræði). Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um náms- feril og störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 6. júlí nk. — Umsóknar- eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 8. júní 1976. Útvarp Sjónvarp Útvarpkl. 19,35: Staldrað við íSelvogi ODDVITINN í HREPPNUM Á HELMINGINN AFBÖRNUNUM „Selvogur er lítill hreppur. Þar búa aðeins 23 íbúar, þar af 6 börn, og oddvitinn í hreppn- um á helminginn af þeim,“ sagði Jónas Jónasson en hann verður með síðari þátt sinni, Staldrað við í Selvogi, í kvöld kl. 19.35. „Þátturinn f dag verður um Strandarkirkjú og er hann tekinn upp í kirkjunni. Ég mun tala við prestinn þar, séra Tómas Guðmundsson, en hann er prestur í Hveragerði, Þor- lákshöfn og víðar. Ég ætlaði að hitta meðhjálparann þar, sem er mjög fróður og merkilegur maður. Ég kom þarna á miðjum sauðburði svo hann átti ekki hægt með að eyða tímanum í rabb. Strandarkirkja er rikasta kirkja landsins, og enn streyma áheitin þangað inn. Mikið af fjármagni kirkjunnar er lánað til annarra kirkna og notað til uppbyggingar þeirra. Kirkjan er ákaflega merkileg. /2 KRISTIN LÝÐSDÓTTIR Fólk í Selvogi segir að hún hafi einkennileg áhrif á það. Hvenær sem messað er í kirkj- unni, og hversu þungbúið veður er, þá skín ævinlega sól, þegar einhver stígur í stólinn. Frásögn Árna Óla um Strandarkirkju er fléttað inn í þetta spjall mitt,“ sagði Jónas. „Selvogur stefnir nú óðfluga í eyði, en þar er ekkert raf- magn. Þessi staður var einu sinni kallaður matarbúr Suður- lands. Og þetta er byggð sem öllum, sem búið hafa þarna, þykir óhemju vænt um,“ sagði Jónas að lokum. — KL 1 HASKOIABIO B Myndin sem unga fólkið hefur beiðið eftir Slade in flame Litmynd um hina heimsfrægu brezku hljómsveit Slade sem komið hefur hingað til lands. Myndin ertekin í Panavision. Hljómsveitina skipa: Dave Hill, Noddy Holder, Jim Lee, Don Powell. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 BÆJARBIO B Jarðskjólftinn An Event... EflRTHQUABf PG- -Æiy A UNIVERSAL PICTURE TECHNICOLOR " PANAVISION ■ Sýnd kl. 9. Auglýsing (í öllum dagblöðum og útvarpi) Skírteini vegna skyldusparnaðar gjaldársins 1975 eru nú tilbúin til afhendingar. Getja gjaldendur vitjað þeirra í skrifstofu innheimtumanns ríkissjóðs í umdæmi sínu þar sem þau verða afhent gjaldendum gegn framvísun persónuskil- ríkja. Éru skírteinin skráð á nafn og verða ekki afhent öðrum en skráðum rétthafa nema gegn framvísun skriflegs umboðs frá honum. Fjármálaráðuneytið 8. júni 1976. Litli prinsinn Frumsýning laugardag kl.20. 2. sýn. sunnudag kl. 15. Inúk á aðalsviðinu Föstudag 18. júní kl. 20. Laugardag 19. júni kl. 20. Aðeins þessar tvær sýningar. Miðasala 13.15—20. Sími 1-1200. UTB0Ð Bæjarstjórinn á Eskifirði óskar eftir tilboðum í að steypa 1. «hæð grunnskóla Eskifjarðar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarsjóðs Eskifjarðar og hjá verkfræðistofunni Hönnun hf., Höfðabakka 9, Reykjavík gegn 10.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá bæjar- stjóranum á Eskifirði þann 24. júní nk. kl. 14.00. Bœjarstiórinn ó Eskifirði

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.