Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 10.06.1976, Blaðsíða 8
8 Styrkur til náms í Frakklandi Franska sendiráðiö í Reykjavík hefur tilkynnt að frönsk stjórnvöld bjóði fram styrk handa íslendingi til 4-6 manaða námsdvalar í Frakklandi háskólaárið 1976-77. Styrkurinn er ætlaður til framhaldsnáms við háskóla í raunvísinda- og tæknigreinum. Umsóknum um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skal komið til menntamála- ráðuneytisins. Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 26. júní nk. — Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 8. júní 1976. Umsóknir um húsnœði fyrir íslenska númsmenn í Noregi Samkvæmt upplýsingum sendiráðsins í Ósló er þar starfandi stofnun á vegum Óslóarháskóla, er hefur m.a. það verkefni með höndum að útvega námsmönnum hús- næði. Hefur stofnun þessi látið í ljós áhuga á að greiða götu íslenskra námsmanna í Noregi við útvegun húsnæðis eftir því sem tök eru á, hvort heldur þeir eru þar við háskólanám eða annað nám. Umsóknir um húsnæði þurfa að hafa borist stofnuninni f siðasta lagi fyrir 15. júlí ár hvert. Heimilisfangið er: Studentsamskipnaden, Boligavdelingen, Sogn, Oslo 8. — Tilskilin umsóknareyðublöð fást hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Laugavegi 77, Reykjavík, skrifstofu SÍNE f Stúdentaheimilinu v. Hringbraut, svo og í menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Menntamálaráðunevtið 3. júní 1976. Flugmaður Flugmaður með flugkennararéttindi óskast. Gamla flugturninum Reykjavíkurflugvelli. Sími 28122. Stúlka óskastl Stúlka óskast á blaða- og bóka- dreifingu. Þyrfti að geta byrjað sem allra fyrst. Uppl. leggist inn á af- greiðslu Dagblaðsins fyrir þriðjudags- kvöld merkt: „Afgreiðslustörf 1105.“ Handfœrabótur 10-30 tonn Vanir og áreiðanlegir færamenn óska eftir að taka á leigu 10-30 tonna bát. Æskilegt að rafmagnsrúllur fylgi. Há ieiga í boði. Tilboð óskast send til Dagblaðsins, Þverholti 2, eigi síðar en 15. júní merkt „Beggja hagur.“ Trésmiðir! Vantar 1 yfirsmið og 4-5 smiði í mótauppslátt í Odds- skarði. Mikil vinna í 3 mánuði. Uppl. í síma 97-1189 allan daginn og 97-1275 kl. 12 — 13 og 19-21. ALHLIÐA VERZLUN VERZLUNARFÉLAGIÐ GRUND GRUNDARFIRÐI SÍMAR: 93-8710 og 8610 DAGBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 10. JÚNl 1976 STOKKENDUR DREPAST AF ÓKUNNUM ÁSTÆDUM — rottueitur kemur helzt til greina, segir Finnur Guðmundsson „Ég skal ekkert segja um dauða þessara anda, sem fundust vestur í bæ, annað en það að ég get mér þess til að þær hafi komizt í rottueitur og drepizt af þvf,“ sagðir Finnur Guðmundsson fuglafræðingur. Endurnar, sem um ræðir, fundust rétt við fyrirtækin Jón Loftsson hf. og Fóðurblönduna hf. f síðustu viku. Að sögn Finns Guðmunds- sonar er engin aðstaða hér á landi til að rannsaka dánaror- sakir dýra. Erlendis eru sér- stakir sérfræðingar f þessari grein. Öðru hvoru kemur þó fyrir, að Náttúru- fræðistofnunin sendir villt dýr til rannsóknar. Til dæmis hefur örn verið rannsakaður erlendis, svo og nokkrir fálkar. „Ég sé enga ástæðu til að senda nokkrar stokkendur út í rándýra rannsókn," sagði Finnur Guðmundsson. „Þó að við vitum ekki með vissu um dauðaorsökina, þá á hún sér vafalaust eðlilegar skýringar.“ Starfsmaður hjá Fóður- blöndunni hf., sem Dagblaðið ræddi einnig við, sagði að hann vissi ekki til þess að neinn frá þvf fyrirtæki hetði dreift eitri f nágrenninu. Hins vegar sæju menn frá meindýraeyði um að eitra fyrir rottur og þeir hefðu ef til vill komið þarna við eins og annars staðar. „Við höfum ekki orðið varir við neinar rottur við fyrirtækið," sagði hann, „en ég held að ástæða væri til að eitra fyrir þann dúfnafjölda, sem virðist hafa fastan samastað í nágrenni Fóðurblöndunnar hf.“ -at- Þarna er komið með endurnar í Náttúrufræðistofnun Islands. Þar er hins vegar engin aðstaða til að rannsaka hvernig dauða þeirra bar að. DB-myndir: Sv. Þorm. Það er í tízku að vera STIGAMAÐUR Já, það er greinilega í tizku þessa stundina að vera „stiga- maður", ekki eins og þessir í mafíunni (þessari á ítalfu), heldurað reisajtiga aðhúsvegg, klifra upp með málningarrúllu eða pensil og dollu með málningu. Nú eru margir að fegra og bæta umhverfið, enda tekur það yfirleitt miklum stakkaskiptum um þetta leyti árs. Bjarnleifur tók þessa mynd vestur á Ránargötu í gærdag. Þar voru fbúar eins af hinum reisulegu húsum vesturbæjarins í óða önn að mála hús sitt, eins og myndin sýnir gjörla. — segir höfundur handrítsins, Guðrún Helgadóttir „Eg hef ekki farið fram á sjónvarpinu fyrir að semja neina kauphækkun frá handntin um hann Falla vin minn,“ sagði Guðrún Helga- dóttir, rithöfundur og deildar- stjóri, er DB innti hana eftir þvf hvort deilurnar um Palla f Stundinni okkar væru að leysast. „Okkur Jóni Þórarinssyni samdist svo um, að ég sæi um að gera handritin um Palla frá jólum og fram að sumarleyfum sjónvarpsins," sagði Guðrún ennfremur. „Ég stóð við mitt, og þegar þessar kaupdeilur komu upp, átti enn eftir að sýna tvo þætti, sem ég hef gert. Ég er í það háum launaflokki hjá ríkinu, að það skiptir mig engu máli hvort ég fæ þessum krónum meira eða minna fyrir að skrifa um strákinn," sagði Guðrún Helgadóttir að lokum. Hinn aðilinn, sem séF um Palla sjónvarpsstrák, er Gísli Rúnar Jónsson kaffibrúsakarl og leikari. Hann virðist þvi vera sökudólgurinn, að börnin — og fullorðnir líka — sjá ekki meira af Palla á næstunni. -AT- „Eg á ekki í neinum kaupdeilum út af honum Palla vini mínum"

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.