Dagblaðið - 10.06.1976, Page 16

Dagblaðið - 10.06.1976, Page 16
DAÍJBLÁÐIÐ — KIMMTUDACUR 10. JUNÍ 1976 Gamall draumur sportbótaeigenda verður að veruleika: Loks hœgt að koma bóti á sjó á Reykjavíkursvœðinu Aldrei eins mikið líf íbátasportinu á borgarsvœðinu Nú hefur sá langþráói draumur skemmtibátaeigenda í Reykjavík rætzt, aö geta komið bátum sínum á sjó og náð þeim £ DB myndir: GS } <C Hópur manna hafði safnazt saman á bryggjuhausnum til að fylgjast með upphafi jómfrúr- ferðar heimasmiðaðs báts, en tveir ungir Reykvíkingar hafa eytt frístundum sínum að undanförnu í bátinn með ágætum árangri. aftur á land með góðu móti. Eins og við skýrðum frá hér á síðunni áður, fékk Snarfari, félag sportbátaeigenda, aðstöðu í landi Keilis við Elliðaárvog, en nú að undanförnu hefur hópur klúbbmeðlima unnið í sjálfboðavinnu að gerð mann- virkja til að skapa viðunandi aðstöðu fyrir smábáta sína. Búið er að steypa góða ak- braut niður í fjöruna, en örugg möl er í fjörunni og hallar fjaran þægileg út I sjóinn og er sjósetning þar auðveld. Síðan er búið að leggja allstóra flot- bryggju út frá fjörunni, sem þó nokkrir bátar geta verið við i einu til að taka fólk eða setja það I land. Keðja er strengd yfir ak- brautina og er hún læst öðrum en klúbbfélögum, en þeir sem vilja hafa afnot af þessari að- stöðu geta gengið í klúbbinn hvenær sem er. Þegar blaðamaður DB kom niður í Keili sl. sunnudag var þar mikið um að vera. Nokkrir bátar voru að koma eða fara, nokkrir lágu við ból fyrir utan og fjöldi bátavagna í landi sýndi að margir voru á sjó þann daginn. Menn, sem voru að koma að eða fara út, og bát- lausir áhugamenn í landi skeggræddu um báta, mótora og veiðiskap, en margir renna fyrir fisk í skemmtisiglingum sínum. Þótt aðstaða þessi hljóti að teljast fremur frumstæð, kunnu þó reykvískir bátaeig- endur vel að meta hana enda slæmu vanir undanfarin ár, eins og lýst var á bátasíðu fyrir nokkru. Margir taka báta sína á land eftir hverja sjóferð, einkum minni bátana, en eigendur margra stærri báta hafa lagt bólfæri nokkuð út af bryggj- unni og geyma báta sína þar. Þar eru nú komin a.m.k. 10 bólfæri og mun þeim enn fjölga í sumar. Hvaleyrarlónið dýpkað Nú er unnið að dýpkun Hvaleyrarlóns í Hafnarfirði, eða Bátalóns, eins og það er nú oftast nefnt í daglegu tali. Upp- haflega stóð aðeins til að dýpka rennu heim að skipasmíðastöð- inni Bátalóni þar við lónið, en síðar var ákveðið að dýpka rennu inn að og fiaman við sportbataskýlin, sem standa sunnanvert við lónið. Hefur dýpkunarprammi unnið að þessu verki að undan- förnu én botninn er gljúpur og hefur verkið unnizt vel. Fyrrnefnd bátaskýli eru nú orðin 11 og hefur þeim ijölgað verulega síðustu tvö árin. Þau eru flest vel útbúin.með raf- magnsspili og teinabraut út í sjó, og jafnvel með steyptu gólfi og einangruð. Ekki er endanlega búið að ganga frá skipulagi á þessu svæði og þurfa skýliseigendur að endurnýja lóðaleigusamning við Hafnarfjarðarbæ til eins árs i senn og skuldbinda sig til að fjarlægja skýlin, verði þau ekki skv. skipulagi og þar með fyrir. Menn vona nú að dýpkunin þýði að skýlin fái að standa áfram og falli inn í skipulag og þar með verði falið frá þeirri hugmynd að fylla lónið að mestu upp og byggja þar verk- smiðjuhús fyrir fiskiðnaðinn. Það hefur hingað til háð eigendum skýlanna að þurfa alltaf að sæta sjávarföllum vegna grynninga til að koma bátum sínum inn og út úr skýlunum. Nú ætti sá vandi aó vera úr sögunni. Allir bátarnir, sem þarna eru geymdir, eru Vœnkast hagur bátaskýlaeigenda þar yfir 20 fet að lengd og eru þar samankomnir flestir glæsi- legustu skemmtibátar hér- lendis. Eigendur geyma þá yfirleitt við ból inni í Hafnar- fjarðarhöfn, en draga þá inn í skýlin á vetrum eða þegar þeir af öðrum ástæðum nota þá ekki um tíma. A MARKAÐNUM: Asíufélagið hf.: Selur norska smábáta ogkanóa Asíufólagið flytur inn Pioneer smóbóta, sem hœgt er að róa, sigla fyrir seglum og nota mótor við. Bótarnir eru 8 og 10 fet, og öruggir vegna góðra flotryma. Minni bótur- inn kostar röskar 100 þúsund krónur en sé stœrri um 130 þúsund krónur. Fyrirtœkið utvegar einnig hverskyns stœrri bóta eftir hugsanlegum óskum kaupenda._einkum frá Noregi, en Pioneer bátarnir eru norskir. Frá sama fyrirtæki flytur Asíufólagið inn litla kanóa af ýmsum gerðum og kosta þeir frá 100 til 1 50 þúsund krónur. útvegar einnig stœrri bóta Bótadeild Sjólfsakins: Hlutir fyrir heimasmíði Nú færist i vöxt að menn sm<ði báta sína sjálfir og slái tvær flugur í einú höggi, verði sór úti um ánægjulega tómstundaiöju og eignist ódýran bát. Bátadeild Sjálfsalans hf. við Tryggvagutu útvogar nú teikningar. mahónigrindur og tilsniðið efni i margar gerðir báta og er ve*ð mjög mismunandi. Myndin hór aö neöan er t.d. af einum heima- smiðuðum eftir teikningu, sem Sjálfsalinn getur utvogað. (ircinilega sést hvernig renna hefur verið dýpkuð inn eftir lóninu og f.vrir framan skvlin. Ná rennibrautir frá skýlunum niður undir þar sem dýpkar. Dýpkunarpramminn dadir hotnlaginu i gegn um rörin, sem sjást liggja upp á eyrina hinum megin lónsins. Til luegri sést i liorn skipasiiiiðastöðvarinnar Bátalóns.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.