Dagblaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 1
RITSTJÖRN SÍÐUIVIÚLA 12, SÍMI 83322, 4UGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
„Varasjóðurinn" 5642
milljónir í mínus!
Gjaldeyris „varasjóðurinn'1 er
kominn 5642 milljónir króna i
mínus, samkvæmt síðustu töl-
um sem eru frá uppgjöri í apríl-
lok. Hrapið fyrstu mánuði
þessa árs er þó minna en það
var á sama tíma i fyrra.
Stór lán hafa komið inn til að
hressa upp á gjaldeyrisstöðuna
en ekki dugað til.
Minusinn óx um 2088
milljónir króna fyrstu fjóra
mánuði þessa árs en á sama
tíma í fyrra óx mínusinn um
5211 milljónir króna.
Lánin, sem hafa áhrif á þessa
stöðu, eru talsvert meiri en í
fyrra. Þessa mánuði komu í ár
inn 1800 milljónir af slíkum
lánum á núverandi gengi en
1100—1200 milljónir komu inn
á sama tíma í fyrra, reiknað á
þáverandi gengi.
Hagfræðingar segja að
þróunin sé „miklu skárri“ í ár
þar sem hrapið er miklu
hægara.
Rétt er að hafa í huga að
mest af þeim lánum sem tekin
hafa verið undanfarna mánuði
hafa ekki strax komið inn en
ekki eru líkur fyrir að úr
mínusnum dragi á næstunni.
—HH
Tveir í siúkra-
hús eftir
útafkeyrslu
Alvarlegt bifreiðaslys
varð laust fyrir klukkan 3 í
nótt í Fnjóskadal. Bill frá
Selfossi fór þar út af all-
háum vegarkanti og tveir
menn sem í honum voru
slösuðust báðir, annar alvar-
lega að því að talið var.
Sjúkrabifreið flutti
mennina, sem báðir eru
rúmlega tvítugir, í sjúkra-
húsið á Akureyri og var
komið þangað klukkan að
ganga 5 í morgun.
Farþeginn í bílnum var sá er
meira slasaðist og gekkst
hann undir aðgerð í
sjúkrahúsinu skömmu eftir
komuna þangað.
Bifreiðin er af Skoda-gerð
fjögurra manna. Slysið varð
á vegi frá aðalþjóðveginum
í átt að Illugastöðum
vestan Fnjóskár. 1 beygju
nálægt Hróarsstöðum varð
óhappið en hvernig það bar
að er enn ekki ljóst. -ASt.
Liggur milli
og helju
eftir
umferðar-
slys í
gœrkvöld
— baksíða
Prinsinn og kona hans ganga á land. Til vinstri við prinsinn
Kynnisferða.
er Kristján Jónsson, forstjóri
DB-mynd: Björgvin,
Al Sabah prins f ró Kuwait kom til Reykjavíkur í morgun:
„VEIT EKKERT UM AUÐINN
EN ALLIR HAFA ÞAÐ GOn"
— sagði kona hans um olíuauðinn og almenningskjör í Kuwait
„Eg veit ekkert um tekjur né
auðæfi nema hvað olíuauður-
inn gerir kleift að veita al-
menningi i landinu flesta þjón-
ustu ókeypis," sagði kona A1
Sabah prins frá Kuwait, er þau
hjónin voru spurð um hve mikil
auðæfi þeirra væru, en þau
stigu á land i Reykjavik um kl.
10.30 í morgun, ásamt fylgdar-
liði sinu. Eru þau farþegar með
norska skemmtiferðaskipinu
Vistafjord frá Oslö.
A1 Sabah prins og lið hans
var klætt að vestrænum sið og
kom prinsinn mjög vel tyrir,
hæglátur og vingjarnlegur, en
kona hans hafði einkum orð
fyrir honum þar sem hún er
liðugri í ensku. Ekki var frant-
koma hennar síðri og yfirborðs-
inennska var ekki til í fari
þeirra.
Þau hjón hafa aldrei koniið'
hingað áður og ætla í útsýnis-
ferð. Á undan þeim kom skeyti
í land þar sem pantaður var
bezti fólksflutningabíll á land-
inu, um 20 sæta. bezti bílstjóri
og leiðsögumaður. setustofa eða
hvíldarherbergi í bezta hóteli í
Reykjavík, matur þar eða á
bezta veitingastaðnum hér.
Munu þau hafa viðdvöl á Hótel
Sögu.
I skeytinu frá skipinu er þess
óskað að hans hátign fái notið
alls hins bezta sem völ er á
meðan hann dvelur hér þennan
einadag.
— G.S.
13.25« *
2028 Is Uvt
vlsufjora Uvj 1 ' "
urvai travnL ai/6-76
l'“t ‘>Ur«V. r.y»J,vlk .
. ttx no 20H2
pluasa note: tor v.l.p. party prince aL saoah of kuwalt 14
persons arrange folLowing: oest smaLL bus +- 20 seats wlth
oest driver and gulae for fuLL aay 09.30 tiL 17.00 hrs.
2 oayrooras or one Oayrooa/saLon in best hotet downtown
nearest to shoppingcentre for nis highness.
clients wish to slghtsee, Lunch in reykjavik in noteL where
oayrooas are or in nearoy oest restaurant and shop ln afternoon
or v«v •
costs tnrougn voucner Like tours.
guest^ ret*uesi PossibLe servlce for tnese very íraportant
tks ana regards.
- peter cox tour office -f
vlstafjord Lfvi
vistafjord Lfviferdig
+?♦
9022 elraskp is
Þjóðarstolt
eða
— Sjá kjallaragrein
AronsíKauphöllinni
bls.10-11
Nú er hœgt
að ná sér í
óskastein
— sjá bls. 9
Hassmálið á Spáni:
Fleiri teknir—
einn í gœzlu
maður sóttur heim í nótt
fyrir að rœkta marijuana
innan um stof ublómin
Langar og strangar
yfirheyrslur hafa verið að
undanförnu í sambandi við
hassmálið, sem fyrst kom
upp á Spáni. Tveir menn
voru í fyrradag sóttir austur
í Hveragerði og var annar
úrskurðaður 1 allt að tuttugu
daga gæzluvarðhald i gær.
Hinn gengur ennþá laus.
Asgeir Friðjónsson
dómari í ávana- og fíkniefna-
málum sagði 1 samtali við
fréttamann DB í morgun, að
rannsókninni miðaði nokkuð
vel áfram, en málið væri
flókið og viðamikið. Þriðji
maðurinn í hasskaupa-
förinni til Marokkó um
mánaðamótin situr enn í
gæzlu, en tími hans er
útrunninn á föstudaginn.
Starfsmenn fíkniefnadóm-
stólsins hafa engu viljað spá
um, hvort varðhald hans
yrði framlengt.
Þá var rnaður nokkur
sóttur heim til sín í
Breiðholti kl. hálfþrjú í nótt
og færður til yfirheyrslu,
þar eð í ljós hafði komið að
hann ræktaði cannabis-
plöntur innan um
stofublómin sín. .Qy