Dagblaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 7
DAGBl.AÐIÐ — MIÐVIKUDAGUH 23. JUNÍ 1976.
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Shirley
Tempfe
verður
siða-
meistari
Fords
Shirley Temple: Siðameistari
.. Utanríkismálanefnd
Oldungadeildar bandaríska
þingsins samþykkti á fundi
sínum í gær að skipa frú
Shirley Temple Black, fyrrum
barnastjörnuna Shirley
Temple — í stöðu siðameistara
Hvíta hússins.
Frú Black er nú sendiherra
lands síns í Ghana. Hún mun
halda þeirri stöðu og á
fulltrúadeildin nú eftir að
samþykkja embættis-
veitinguna.
„Kristilegir demókratar
eiga nú nœsta leik"
— sagði kommúnistaforinginn Berlinguer
í gœrkvöld
Miðstjórn ítalska
kommúnistaflokksins kemur
saman í dag til að taká afslöðu
til þess hvaða stefnu beri að
taka í kjölfar kosninganna, þar
sem kommúnistar juku veru-
lega við fylgi sitt.
1 gærkvöld sagði flokksfor-
maðurinn, Enrico Berlinguer,
að úrslit kosninganna (flokkur-
inn bætti við sig 49 sætum í
neðri deild þingsins og 23 í
öldungadeildinni) staðfestu
þörfina á þvi að kommúnistar
tækju þátt i mótun stjórnar-
stefnunnar.
Hann vildi aftur á móti ekk-
ert segja um hvort kommún-
istar myndu gera kröfu til ráð-
herraembætta. né heldur hvort
flokkurinn myndi styðja við
stjórn undir forystu kristilegra
demókrata. Það veltur algjör-
lega á tillögum kristilegra
demókrata, sagði Berlinguer.
Um tuttugu þúsund manns
söfnuðust saman fyrir utan
aðalstöðvar ítalska kommún-
istaflokksins í Hóm í gærkvöld
til að fagna sigri flokksins í
borgarstjórnarkosningunum,
þar sem flokkurinn vann veru-
legan sigur og er nú stærstur
flokka.
Mannfjöldinn hrópaði: ,,Róm
er rauð, Ítalía verður það'síðar'
og hvatti til þess að vinstri-
stjórn tæki við rekstri borgar-
innar.
í borgarstjórn Rómar eru
áttatíu fulltrúar. Kristilegir
demókratar hafa til þessa verið
þar í meirihluta, en eftir sigur
kommúnista nú er það liöin tíð.
Kommúnistum tókst þó ekki að
ná meirihlutaaðstöðu í borgar-
stjórninni.þeir bættu við sig
niu fulltrúum og hafa því alls
þrjátíu.
Enrico Berlinguer hefur kastað
boltanum upp og yfir til kristi-
legra demókrata. Nú er að sjá
hvert þeir senda hann.
Segja bandarískir og s-afrískir
ráðamenn, að fundur þessi kunni
að hafa mikla heimssögulega
þýðingu. Búizt er við þvi að
fundurinn hefjist á hóteli Vor-
sters nú eftir hádegið, og verður
það i fyrsta skipti, sem s-afrískur
ráðamaður hittir kollega sinn frá
Bandaríkjunum til þess að ræða
kynþáttavandamálið. sem orðið
hefur enn verra að undanförnu,
eftir miklar k.vnþáttaóeirðir í
landinu.
John Vorster og kona hans Tinie, við komuna til herflugvallarins við
Bonn. Þaðan hélt hann rakleiðis inn í skógana við Bavariu til fundar
við Kissinger.
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og John
Vorster, forsætisráðherra Suður
Afríku, koma saman til fundar í
bænum Bodenmais í dag, til þess
að re.vna að finna leiðir til að
koma í veg fyrir, að ástandið í
kvnþáttamálum S-Afríku verði
enn verra.
KISSINGER OG VORSTER
HEFJA VIÐRÆÐUR í DAG
Ætla Sovétmenn að slá nýtt geimmet?
Nýrri sovézkri geimstöð,
Salyut-5, var skotið á loft á braut
umhverfis jörðu í gær og talið er
að i henni ætli Sovetmenn að slá
met Bandaríkjamanna með því að
dveljast þar lengur en i 84 daga.
Samkvæmt fréttum frá Tass
fréttastofunni á hið ómannaða
geimfar að vinna ýmsar vísinda-
legar rannsóknir og fullkomna
athuganir á smíði geimstöðva. En
ef byggt er á vel heppnuðum
tveim fyrri tilraunum með Salyut
geimstöðvar, er búizt við að tveir
eða fleiri geimfarar verði sendir á
loft innan nokkurra vikna til þess
að vinna um borð í stöðinni.
Hambros-
banki
tapar á
norskum
Brezki Hambros-bankinn
hefur tapað 4.32 milljón
sterlingspundum (liðlega 14
milljörðum ísl. kr.) á því að
lána norsku skipafélögunum
Reksten og Waage, að þvi er
kemur fram í ársskýrslu bank-
ans, sem birt var i London í
morgun.
Tapið ber bankinn með því
að ganga í varasjóði sína. í
raun réttri hefur Hambros
lánað þessum tveimur skipa-
félögum miklu meira, en norsk
tryggingarfélög bera hluta
tjónsins. Norsk stjórnvöld
hyggjast leggja fram sem
svarar rúmlega 200 milljörðum
islenzkra króna til að tryggja
að Reksten geti staðið við fjár-
hagsskuldbindingar sínar.
Að öðru leyti gekk rekstur
bankans á síðasta fjárhagsári
vel, að því er segir i
skýrslunni, og græddist
honum töluvert fé.
ÞINGSKÝRSLA GÆTIVARPAÐ NÝJU
LJÓSIÁ MORÐ KENNEDYS FORSETA
— segir formaður rannsóknarnefndar öldungadeildarinnar um málefni leyniþjónustu Bandaríkjanna
HANDS
OFF
CUBA!
Join the Fair Play for
Cuba Committee
NEW ORLEANS CHARTER '
MEMBER BRANCH /
Frec Lilcrahiró' E&jfoa*'
EVERYONI
r NEW ORLEANS LA i
1 1 2 7 23
8 9 63
Rannsóknarmenn í öldunga-
deild Bandaríkjaþings birta í
dag skýrslu sem einn þeirra
segir að innihaldi ýmis mikil-
væg atriði er gætu varpað nýju
ljósi á morðið á Kennedy
Bandaríkjaforseta — ef rétt
væri að farið.
Richard Schweiker, öldunga-
deildarþingmaðuf Repúblik-
anaflokksins, var formaður
nefndarinnar. Skýrslan gagn-
K
Vinstri myndin var tekin af lögreglunni i
INIew Orleans i agust 1963, en þa dvaldi Lec
Harvey Oswald um tinia þar i borg. Hann
stofnaði meðal annars vinattufolag Kubu og
Bandarikjanna — og þykir nu ymsum það
gruggugt. ekki sizt nieð tilliti til uppljostrana
Bandarikjaþings um tilræði við lif Castros
Kubuforingja. A hægri myndinni dreifir
Oswald aroðursbloðuni og er eitt þeirra fellt
inn i myndina
rýnir hlutverk leyniþjónust-
unnar CIA og alrikislögregl-
unnar FBI i rannsókn morðsins
á Kennedy fyrir þrettán árum.
En varaformaður nefndar-
innar. demökratinn Gary Hart,
er á öndverðri skoðun og segir
að í skýrslunni — sem er 110
blaðsíður — sé ekkert nýtt er
■ kipti máli.
Hart sagði i Washington i
morgun. að engin alvarleg
sönnunárgögn lægju fyrir sem
bentu til þess að Lee Harvey
Oswald hefði ekki verið einn að
verki í Dallas 22. nóvember
1963, en sú varð niðurstaða
hinnar opinberu rannsóknar-
nefndar. Warren-nefndarinnar
svokölluðu.
Skýrslan er samin af rann-
sóknarnefnd öldungadeildar-
innar um starfsemi leyniþjón-
ustunnar. en sú nefnd starfar
ekki lengur. Skýrslan var níu
mánuði í vinnslu.