Dagblaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 15
DAííBI.AÐIt) — MIDVIKI D \Ct’K 23. .JL'NI 1976.
LynyardSkynyard:
Ósköp sléttir
og felldir
Um nýjustu plötu Lynyard
Skynyard, Gimme Back My
Bullits, er ósköp lítió að segja,
nema það aö hún lætur vel í
e.vrum. Ekkert lag er öðrum
fremur vert athygli og þó að eitt
lagið hafi verið gefið út á lítilli
plötu viroist mér það ekki hafa
verið sérstaklega valið vegna þess
að það hefði meiri möguleika til
að slá í gegn en önnur. Lag þetta
nefnist Double Trouble.
Fyrir L.vnyard Skynyard-
aðdáendur er þessi nýja plata ef-
laust vel þegin, en sem plata til að
byrja á að hlusta á hljómsveitina,
er hún vonlaus. Þar er ekkert lag,
sem öllum getur fallið eins og var
á síðustu plötu, þar sem Sweet
Home Alabama sló í gegn. * *
Alls konar
músík
fyrir
alls konar
fólk
— það er Tríó '72
,,Við erum stöðugt á ferð og
flugi út um allt land," sagði
Bjarni Sigurðsson, hljóin-
sveitarstjóri í Tríói '72, þegar
við rákumst á hann og
hljómsveit hans er þeir stigu
um borð í flugvél á Reykja-
víkurflugvelli 17. júní. Þá var
Bjarni að fara með menn sína
austur í Egilsstaði, þar sem
tríóið átti að leika f.vrir dansi
nokkur kvöld.
Tríó '72 er nú skipað þeim
Bjarna, sem leikur á cordovox
og bassa, Stefáni Þorbergssyni,
gítarleikara og aðalsöngvara,
og Má Elíassyni, trommu-
leikara og söngvara.
Þeir félagar leika alls konar-
músík fyrir alls konar fólk, eins
og þeir segja sjálfir, Trió '72
hefur um nokkurt skeið verið
meðal vinsælustu danstríóa á
landinu og þá ekki sízt fyrir
það, að Bjarni og menn hans
eru fljótir að koma öllum í
dansskap og út á gólfið — sem
hlýtur að vera tilgangur dans-
hljómsveita. -OV.
Trió '72 á leið til Egilsslaða.
Már trommuleikari er lengst til
vinstri, þá gitarleikarinn
Stefán og loks Bjarni hljóm-
sveitarst jóri Sigurðsson,
cordovox- og bassaleikari.
DB-mynd Arni Páll.
TIZKUHORNIÐ
Þœgilegur sólkjóll
I sólarhitanum er svona
víður kjóll tilvalinn og manni
líður vel i svona klæðum.
Þröngur og aðskorinn fatnaður
er ekki vel við hæfi í heitu
loftslagi. Hér mætti allt eins
nota rúllukragabol innanundir.
Það sýnist ekki vera mikið
mál að sauma svona kjól úr
einhverju léttu og skemmtilegu
efni. Það er breitt teygjustykki
yfir brjóstin og kióllinn sjálfur
rykktur undir teygjuna.
Tilvalinn fyrir vanfæiar og
einnig þær sem eru i þvngri
þyngdarflokknum.
Þótt ekki verði mögulegt að
nota svona fatnað úti vtð hér i
sumar skaðar ekkt að lifa i
voninni og eiga eitthvað al'
sumarfatnaði til EF sólin skyldi
skína.
Pils utan yfir kjólinn
A'uk þess að hægt er að nota
svona „laust" pils eitt sér er
tilvalið að nota það utan yfir
kjóla, bæði sem aukahlut við
nýjan kjól og einnig að hressa
upp á gamlan kjól, sem kann-
ski er orðinn of stuttur með
slíku yfirpilsi.
Nýju kjólasniðin eru mörg
hver með þröngu pilsi og lausu
pilsin geta gefið tilbreytni. Þá á
pilsið að vera einlitt og kjólinn
með mynztri eða öfugt.
Þá er tilvalið að hafa höfuð-
klútinn úr sama efni og pilsið.
Einfalt vesti úr þremur
treflum
Oft er það einfaldasta lang-
fallegast. Varla er hægt að
hugsa sér nokkuð einfaldara en
vestið hérna á myndinni, en
það er búið til úr þremur jafn-
löngum stykkjum.
Hægt er að prjóna svona
stykki úr garni með gullþræði
og nota síðan við hvítar síð-
buxur. Er þá kominn fínasti
kvöldklæðnaður. Ef notað er
annars konar garn er hægt að
nota vestið við hin ýmsu tæki-
færi.
Prjónið þrjú jafnlöng stykki.
Eitt á að vera breiðast (fyrir
bakið) og tvö aðeins mjórri
(framstykkin). Saumið síðan
stykkin saman á öxlunum og
frá mitti og niður úr.
Loks er stórt kögur saumað á
allt í kring að neðan og vestið
tekið saman í mittið með belti.
Sumarskófatnaður
í sumar er í tízku að hafa
reimar og bönd á skónum og
alveg upp undir hné. Til, er á
markaðinum bæði hér heima og
erlendis alls kyns ,,smart“ og
þægilegur skófatnaður.
Þar sem óhætt er að ganga
um berfættur án þess að eiga á
hættu að skera sig í iljar annað
hvort á rusli eða eggjagrjóti
(slíkur staður er trúlega vand-
l'undinn á íslandi) er hægt að
nota ,,skó"-fatnað eins og mynd-
in sýnir. Þetta eru bara mislit
bönd sem vafin eru utan um
stóru tána og upp eftir kálf-
anum og bundin uppi við hné.
Ofan á tána er látið gerviblóm
til skrauts.
Daman á myndinni er einnig
með sams konar blóm í hárinu
og sjá má að hún er í viðamikl-
um blúndu-undirpilsum.
Sem sagt allt fyrir rómantík-
ina.
Vinnugallar og samfest-
ingar sem fengið hafa
andlitslyftingu
Fatnaður, sem fyrir nokkrum
árum gekk undir nafninu
vinnu„gallar“ og samfestingar,
hefur hlotið heilmikinn
heiðurssess í tízkuheiminum í
dag. Að vísu hefur þessi tegund
fatnaðar fengið eins konar
„andlitslyftingu," — efnið
ekki orðið eins grófgert og áður
og sniðið fellur betur að
likamanum en áður var.
Þessir samfestingar eru nú
framleiddir úr ýmiss konar
efnum, bæði einlitum og rönd-
óttum. Buxnaskálmarnar eru
ýmist beinar niður eða
útsniðnar. Hentugt er að vera í
léttum bómullarbolum innan-
undir.
Samfestingarnir geta einnig
verið með klaufum á buxna-
skálmunum. teygju i mittið,
stuttum ermum með uppslög-
um og smá vasa hér og þar til
skrauts.
Þið sjáið hér á myndinni
hvað þetta getur verið smellinn
og skemmtilegur klæðnaður.