Dagblaðið - 23.06.1976, Side 4
Bretinn grunaður -
en reyndist saklaus
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 23. JUNÍ 1976.
Varðskipsmenn grunuðu
Breta um græsku i gær. Togari
var með hlerana úti á miðunum
og var haldið að hann hefði
verið að veiðum. Þá lék einnig
grunur á að komið væri fram
yfir fjölda brezkra togara sem
hér mega veiða í einu.
Bretinn reyndist saklaus.
Varðskipsmenn snöruðust um
borð en fundu ekki fiskbein.
Bretinn var bara að bíða eftir
að fækkaði svo að hann gæti
komið í stað einhvers sem færi
heim. Hann hafði ekki hreyft
trollið.
,,Sem betur fer var allt í
lagi,“ sagði Gunnar Ólafsson
skipherra sem er forstjóri
Landhelgisgæzlunnar í fjar-
veru Péturs Sigurðssonar. Við
spurðum hann hvernig sam-
starfið gengi við Bretana
þessa dagana. ,,Við höfum ekki
þurft að kvarta undan því,“
sagði Gunnar. Hann taldi, að
Bretar væru yfirleitt þannig
gerðir að þeir vildu halda
samninga þegar búið væri að fá
þá til að gera þá.
„Ver skilað jafngóðum“
Þá spurðum við Gunnar
hvort satt væri, sem heyrzt
hefði, að Landhelgisgæzlan
„sæti uppi“ með togarana Ver
og Baldur.
Hann neitaði því. „Ríkið á
Baldur’en hann þarf stórar við-
gerðir og við notum hann nú á
meðan." sagði Gunnar. „Við
skilum Ver jafngóðum til fyrri
eigenda en miklar viðgerðir
þarf á s}úpinu.
Gunnar sagði, að þrjú varð-
skip væru úti við gæzlustörf um
þessar mundir.
—HH
Nýtt íslenzkt skipafélag:
4400 liSTA SKIP
KEYPT f KANADA
ÁHÖFNIN FLAUG ÚT í MORGUN
LEIKFÉLAGSFÓLK í LEIK-
FÖR MEÐ SAUMASTOFUNA
Nj'tt íslenzkt skipafélag hefur
verið stofnað og hefur það þegar
fest kaup á 4400 lesta kaupskipi
í Kanada. Skipið er sérhannað til
gámaflutninga og annarra þunga-
flutninga. Hafa kaupendur gert
samninga um flutninga milli
hafna i Kanada og hafna á austur-
strönd Bandaríkjanna næstu þrjú
ár.
Ahöfn skipsins er öll íslenzk
og fór hún í ’morgun með Flug-
leiðum hf. vestur um haf áleiðis
til Halifax i Kanada þar sem hún
tekur við skipinu.
Hið nýja skipafélag heitir
Islenzk kaupskip hf. og er
heimilisfang' þess í Reykjavík.
Hlutafé er kr. 50 milljónir. Stjórn
félagsins skipa Helgi Pétursson
skipstjóri, Pétur Einarsson
stórkaupmaður og Sævar
Guðlaugsson skipstjóri. Aðrir
stofnendur eru Hjalti Ragnars-
son, Guðmundur Haraldsson,
Agúst Ólafsson, Arnar Valgarðs-
son, Sigurbjörn Ölafsson og hinn
kunni útgerðarmaður Jón
Franklín. Flestir stofnenda
verða skipverjar á þessu fyrsta
skipi félagsins, Sem heitir nú Mv.
Bergfalk, og siglir fyrst um sinn
undir fána Singapore. Bergfalk
var smíðað í Austur-Þýzkalandi
árið 1970 og var flokkaskoðað
fyrir um það bil einu ári.
Pétur Einarsson sem er fram-
kvæmdastjóri félagsins, staðfesti
i viðtali við Dagblaðið að
samningar um þessi skipakaup
hefðu verið undirritaðir í fyrri
viku með fyrirvara um
nauðsynleg leyfi. Kvað hann
ástæðu til að geta góðrar fyrir-
greiðslu viðskiptaráðuneytisins
og Utvegsbankans í sambandi við
kaupin. Með hliðsjón af hag-
stæðum samningum um verkefni
fyrir skipið kvaðst Pétur vera
bjartsýnn á rekstur þess og gjald-
eyrisöflun til þjóðarbúsins.
Skipstjóri á Bergfalk verður
Sævar Guðlaugsson en 1. vélstjóri
Hjalti Ragnarsson.
-BS.
Félagar frá Leikfkélagi Reykja-
víkur eru nú lagðir upp I leik-
ferðalag um landið með Sauma-
stofuna sem sýnd var við miklar
vinsældir í Iðnó síðastliðinn
vetur. Höfundur leiksins er
Kjartan Ragnarsson leikari.
Leikarar í förinni eru alls niu
en auk þeirra er Magnús Péturs-
son með, hann sér um píanóundir-
leik. Leikmynd við sýninguna
gerði Jón Þórisson.
Leikritið, sem var frumsýnt í
Iðnó síðastliðið haust, var alls
sýnt 55 sinnum þar og oftast fyrir
fullu húsi. Þetta er léttur leikur,
sumpart tengdur kvennaári, og
fjallar hann á frjálslegan hátt um
gleði og mæðu alþýðufólks sem
vinnur saman á lítilli saumastofu.
Inn í leikinn eru fléttaðir léttir og
gáskafullir söngvar.
Fyrsta sýningin var á Akranesi
en áformað er að þræða Vestur-
land og Vestfirði og halda síðan
áfram norður á bóginn og enda á
Akureyri um miðjan júlí. Til
greina kemur að halda lengra
austur á land en áætlað er að
sýningar verði um tuttugu talsins
og að leikförin taki um einn
mánuð.
—JB
Myndin er af systurskipi Bergfalks.
Hitaveita á Siglufirði:
Borað í Skútudal og
leiðslur lagðar í bœnum
„í fyrra tókst að fá 20
sekúndulítra af 70 gráða heitu
vatni og er vonazt til að boranir
í sumar færi okkur 44
sekúndulítra af heitu vatni,“
sagði Steinar Jónasson, frétta-
ritari DB á Siglufirði, en þar
fer nú fram borun í Skútudal,
um 3 kílómetra frá bænum.
Borinn, sem koma átti í vor,
er nýkominn til Siglufjarðar
frá Reykjum. Eru fram-
kvæmdir rétt að hefjast.
Ætlunin er að dýpka 1500
metra djúpa holu niður I 2000
metra og að bora aðra holu
niður á 2000 metra dýpi.
Verið er að leggja leiðslur í
þann hluta bæjarins sem ekki
hefur áður fengið að' njóta
hitaveitu. Er Steinar var inntur
eftir því hvað gerðist ef ekki
fengist meira af heitu vatni
sagði hann að þegar hefðu verið
gerðar ráðstafanir. Dæla er til
staðar sem getur aukið
sekúndulítrafjöldann upp f 30-
40 lítra. Þá er búið að leggja
drög að forhitara fyrir heita
vatnið sem fæst úr borholunni
sem boruð var í fyrra.
Hitaveituframkvæmdirnar
hafa veitt mörgu skólafólki at-
vinnu en hefur ekki dugað til.
Allmargir unglingar munu enn
vera atvinnulausir. -BÁ-
FORSÍÐAN
Laugarásbío:
Front Page (Forsíöan)
Aöalleikarar:
Jack Lemmon og Walter Matthau.
Leikstjóri: Billy Wildor.
Sýningartimi: 105 mínútur.
Það er lítill vandi að halda
sumarskapinu meðan horft er á
Forsíðuna, mynd Billy Wilders
sem Laugarásbíó sýnir þessa
dagana. Wilder bregzt ekki
leikstjórnin á þessari mynd
freniur en endranær og frá-
bærir leikarar gera sitt til'að
efnið skilar sér hið bezta.
Forsíðan fjallar að sjálfsögðu
um dagblöðin og keppni þeirra
um fréttirnar. Myndin gerist
árið 1929 í þeirri syndum
spilltu borg, Chicago. Hildy
Johnson er „stjörnu"-
blaðamaður blaðsins Examiner
en Walter Burns er fréttarit-
stjóri blaðsins, harðsvíraður
náungi, einn þessara sem er
„giftur" starfi sínu og ann sér
aldrei hvíldar. Hildy er aftur á
móti hinn ljónheppni og
slungni blaðamaður sem
gjarnan vill losna úr erli blaða-
mannastarfsins.
Fyrir blaðamann er auðveit
að setja sig inn í atburðarásina
enda þótt segja megi að starfið
á ritstjórnum blaða, hvort
heldur þau eru íslenzk eða er-
lend, séu ekki alveg jafnæsilegt
og fram kemur í þessari mynd,
né heldur blaðamenn hvílíkir
drullusokkar og mörgum þeirra
er lýst í myndinni. En hvað um
það? Myndin býður upp á heil-
mikla skemmtun og er það lofs-
vert framtak bíósins að bjóða
upp á nýja kvikmynd af þessu
tagi um mitt sumar, — of mikið
hefur tíðkazt að endursýna
hálfgerðar draslmyndir þegar
sólin skín á landið okkar.
Jack Lemmon skilar vel hlut-
verki Hildy Johnson í þessari
mynd. Annars er hann alltaf
sjálfum sér líkur. Walter
Kvik
myndir
Matthau er háttgíraði fréttarit
stjórinn. Leikur hans allur er
frábær, enda krefst hlutverk
hans meiri átaka en hlutverk
Lemmons. Þá er hlutverk fang-
ans, sem hengja á, mjög vel
leikið af Austin Pendleton.